Morgunblaðið - 02.11.2002, Side 51
KIRKJUSTARF
52 LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Þau voru ljós á leiðum okkar
Á
allra heilagra messu
sunnudaginn 3. nóvember
er látinna minnst
Vitjum leiða ástvina okkar
með hlýhug og þakklæti
Starfsfólk Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma
verður til leiðsagnar í Fossvogskirkjugarði,
Gufuneskirkjugarði og garðinum við Suðurgötu frá
kl. 14-17. Skrifstofa Kirkjugarðanna er opin frá kl. 14-18.
Á sama tíma bjóða tónlistarmenn, kórar og prestar upp á
samfellda dagskrá í Fossvogskirkju. Eru gestir garðsins
hvattir til að ganga í kirkju og eiga helga stund við kerta-
ljós og kórsöng, orgelleik, bæn og ritningarlestur.
14.00-14.20 Tónlistarflutningur: Viera og
Pavel Manásek
Ritning og bæn: Sr. María Ágústsdóttir
14.30-15.00 Orgel og saxafónn: Gunnar Gunnarsson
og Sigurður Flosason
Ritning og bæn.
15.10-15.30 Kórsöngur: Hljómkórinn
Ritning og bæn: Sr. Hreinn Hákonarson
15.40-16.00 Kórsöngur: Félagar úr kór Bústaðakirkju
Ritning og bæn.
16.10-16.30 Kórsöngur: Félagar úr kór Bústaðakirkju
Ritning og bæn.
Friðarkerti Hjálparstarfs kirkjunnar eru til sölu
í Fossvogs- og Gufuneskirkjugarði.
Reykjavíkurprófastsdæmi og
Kirkjugarðar prófastsdæmanna
öllum sem á einhvern hátt hafa lát-
ið gott af sér leiða í lífi sínu og
starfi. Hefur dagurinn því verið
nefndur „allra heilagra messa“.
Í frumkirkjunni var þessi hátíð
helguð píslarvottum kirkjunnar.
Önnur hátíð tengdist þessum degi á
miðöldum, „allra sálna messa“, sem
var sunnudaginn eftir allra heil-
agra messu. Er þá minnst látinna
ættingja og vina.
Messa sunnudagsins, allra sálna
messu, verður í Hafnarfjarð-
arkirkju helguð þessum tveimur
fornu hátíðum. Þema hennar er því
„Hin kristna von“. Af því tilefni
syngur Alda Ingibergsdóttir ein-
söng en hún er Hafnfirðingum að
góðu kunn fyrir frábæran söng
sinn. Einnig mun hún syngja með
kór kirkjunnar undir stjórn Anton-
iu Hevesi.
Börn verða borin til skírnar í
messunni og eftir altarisgöngu geta
allir kirkjugestir tendrað bænaljós
á bænastjaka kirkjunnar, í minn-
ingu látinna vina og ættingja.
Messan hefst kl. 11. Prestur er sr.
Þórhallur Heimisson.
Allra heilagra messa í
Fella- og Hólakirkju
SUNNUDAGINN 3. nóvember
verður látinna minnst í allra heil-
agra messu í Fella- og Hólakirkju
kl. 11. Í upphafi messunnar gefst
kirkjugestum kostur á að tendra
bænaljós og leggja á kross til hliðar
við altarið til minningar um látinn
ástvin.
Sérstaklega verður blessuð
minning þeirra sem látist hafa síð-
astliðið ár og eru þeir sem vilja láta
lesa nöfn látinna ástvina bent á að
koma nöfnum þeirra til kirkjunnar
eða í síma 557 3280.
Sr. Guðmundur Karl Ágústsson
predikar og þjónar í messunni. Þor-
valdur Halldórsson sér um tónlist-
ina ásamt kór Fella- og Hólakirkju.
Fella- og Hólakirkja.
KK og Ellen syngja í
Árbæjarkirkju
Í ANNARRI Léttmessu vetrarins,
sem fram fer í Árbæjarkirkju
sunnudaginn 3. nóvember kl. 20,
koma systkinin Ellen Kristjáns-
dóttir og Kristján Kristjánsson og
leiða sönginn.
Í kirkjuárinu nefnist fyrsti
sunnudagurinn í nóvember allra
heilagra messa og er notaður til að
minnast sérstaklega þeirra sem
fallnir eru frá og munu kirkjugestir
geta kveikt á kertum og lagt þau á
steinkross í minningu ástvina.
Lagavalið tekur einnig mið af
kirkjuárinu og munu systkinin
syngja lögin: „When I think of an-
gel“ og „Englar himins grétu í dag“
sem samin voru í minningu látinna,
KK mun einnig flytja lögin „Úr-
skeiðis í Paradís og ,,Guðs náð“ af
glænýrri plötu sinni ásamt fleiri
lögum.
Hugleiðingin verður í höndum sr.
Óskars Inga Ingasonar sem einnig
þjónar til altaris og eldri félagar í
æskulýðsfélaginu flytja bænir.
Eftir messu verður boðið upp á
kaffi og konfekt í safnaðarheim-
ilinu og félagar úr æskulýðsfélag-
inu verða með basar til styrktar ut-
anlandsferð félagsins.
Ekki vanrækja andlegu hliðina,
láttu sjá þig í léttmessu.
Árbæjarkirkja.
Allra sálna messa í
Dómkirkjunni
SUNNUDAGINN 3. nóvember
verður messan kl. 11 helguð minn-
ingu látinna.
Við höfum fyrir því langa hefð að
minnast sérstaklega þeirra sem við
okkur hafa skilist um genginn árs-
hring sem og allra þeirra sem við
söknum. Þá gefst fólki tækifæri til
að tendra ljós í minningu þeirra.
Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson
mun prédika og þjóna fyrir altari
ásamt sr. Hjálmari Jónssyni. Dóm-
kórinn mun syngja undir stjórn
Marteins H. Friðrikssonar.
Á eftir verður svo samvera í safn-
aðarheimilinu með léttum veit-
ingum. Þar mun sr. Hjálmar í er-
indi leiða í ljós hvernig sálmar lýsa
og túlka sorgarviðbrögðin um leið
og þeir vísa veginn áfram að sátt-
inni við lífið og Guð sem gefur það
og tekur.
Léttmessa í
Dómkirkjunni
MESSAÐ verður í Dómkirkjunni á
sunnudagskvöldið. Öðrum þræði er
kvöldmessan leit og viðleitni til
þess að finna farveg helgihalds sem
fleiri og fleiri geti nýtt fyrir líf sitt
og aðstæður. Æðruleysismess-
urnar, sem nú hafa átt sér stað í
Dómkirkjunni í rúm fjögur ár, hafa
mælst vel fyrir og verið fjölsóttar.
Þessar byggja á sömu nálægð, ljúf-
um og innilegum trúarsöngvum og
léttleika í boðun fagnaðarerind-
isins.
Á sunnudagskvöldið predikar sr.
Hjálmar Jónsson og þjónar fyrir
altari ásamt sr. Jakob Á. Hjálm-
arssyni. Einnig þjónar Hans Guð-
berg Alfreðsson. Bræðrabandið,
Hörður og Birgir Bragasynir, sér
um undirleikinn og Anna Sigríður
Helgadóttir stýrir söngnum. Verið
velkomin.
Þrenna í Neskirkju á
sunnudag
ALFA III kl. 10. Séra Örn Bárður
heldur áfram fræðslu um Fjallræð-
una.
Allra heilagra messa kl. 11.
Minnst látinna. Séra Örn Bárður
Jónsson prédikar. Kór Neskirkju
leiðir söng. Inga J. Backman syng-
ur einsöng. Organisti Steingrímur
Þórhallsson. Ræðuefni á kosn-
ingavetri:
Stefnuskrá Krists. Barnastarf í
tveimur hópum, 8–9 ára og yngri
börn kl. 11. Börnin eru með full-
orðnum fyrri hluta messunnar en
njóta svo sérstakrar fræðslu í safn-
aðarheimili kirkjunnar. Kaffisopi
eftir messu.
Kvöldmessa kl. 20. Þorvaldur
Halldórsson leiðir lofgjörð á léttum
nótum. Séra Örn Bárður Jónsson
prédikar og leiðir fyrirbænir. Séra
Frank M. Halldórsson og séra
Toshiki Toma útdeila sakramenti.
Kaffisopi eftir messu.
Húnversk messa
EINS og undanfarin ár verður
guðsþjónusta í Kópavogskirkju á
vegum Húnvetningafélagsins
fyrsta sunnudag í nóvember og
hefst hún kl. 14.
Brynleifur Steingrímsson læknir
flytur stólræðu og séra Ægir Fr.
Sigurgeirsson þjónar fyrir altari.
Húnvetningar lesa ritningarlestra
og flytja upphafs- og lokabæn.
Húnakórinn syngur undir stjórn Ei-
ríks Grímssonar og orgelleik ann-
ast Árni Arinbjarnarson.
Að lokinni guðsþjónustu verður
kaffi og samvera í Húnabúð, Skeif-
unni 11.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Kvöldvaka í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði
KVÖLDVAKA verður í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði annað kvöld,
sunnudagskvöldið 3. nóvember, kl.
20, en slíkar kvöldvökur eru haldn-
ar í kirkjunni einu sinni í mánuði.
Það er að venju Örn Arnarson og
hljómsveit hans sem leiða tónlist og
söng ásamt félögum úr kór Frí-
kirkjunnar. Sérstakur gestur
kvöldvökunnar er að þessu sinni sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir. Sr. Jóna
Hrönn starfar sem miðbæj-
arprestur í Reykjavík og hefur get-
ið sér gott orð á þeim vettvangi.
Hún er kunn fyrir líflega og
skemmtilega framkomu og hispurs-
leysi í tali. Það er því tilhlökkunar-
efni að fá hana í heimsókn.
Á kvöldvökunni gefst fólki kost-
ur á að tendra bænakerti í minn-
ingu látinna ástvina, en á morgun
er einmitt allra sálna messa. Að
lokinni kvöldvöku verður svo kaffi í
safnaðarheimilinu.
50 ára prestsþjónusta
í Langholtskirkju
HÁTÍÐARMESSA verður í Lang-
holtskirkju sunnudaginn 3. nóv-
ember kl. 11.
Þess verður sérstaklega minnst
að 1. nóvember fyrir 50 árum tók
sr. Árelíus Níelsson við embætti
sem fyrsti prestur Langholtssafn-
aðar. Af þessu tilefni predikar sr.
Sigurður Haukur Guðjónsson,
fyrrv. sóknarprestur. Kammerkór
Langholtskirkju syngur undir
stjórn Jóns Stefánssonar.
Á allra heilagra messu er látinna
minnst með sérstökum hætti. Tekið
verður við framlögum í minning-
arsjóð Guðlaugar Bjargar Páls-
dóttur, en sjóðurinn greiðir tónlist-
arflutning við messuna þennan dag
ásamt því að styrkja efnilega söng-
nemendur. Guðlaug Björg var um
árabil félagi í Kór Langholtskirkju.
Trúin á Netinu
NETIÐ teygir anga sína inn á mörg
svið daglegs lífs og er þegar orðinn
einn helsti samskiptavettvangur
margra. Um fjórðungur þeirra sem
vafra um veraldarvefinn hafa sótt
sér trúarlegt efni. En hvað með trú-
ariðkunina sjálfa, er hægt að iðka
trú sína á Netinu? Og þá hvernig?
Árni Svanur Daníelsson guðfræð-
ingur og vefstjóri kirkjan.is ræðir
um trúna og Netið í ljósi kristins
mannskilnings á fræðslumorgni í
Hallgrímskirkju, sunnudaginn 3.
nóvember kl. 10.
Guðsþjónusta á allra heilagra
messu hefst síðan kl. 11 og er hún í
umsjá séra Sigurðar Pálssonar.
Kvöldmessa við kerta-
ljós í Hallgrímskirkju
SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 3. nóv-
ember á allra heilagra messu verð-
ur kvöldmessa í Hallgrímskirkju.
Kammerkór Hallgrímskirkju,
Schola cantorum, syngur nokkur
kórverk og leiðir safnaðarsöng
undir stjórn Harðar Áskelssonar,
kantors. Hafsteinn Þórólfsson
syngur einsöng. Prestarnir sr.
María Ágústsdóttir og sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson annast prests-
þjónustuna. Söfnuðinum verður
gefinn kostur á að tendra bænaljós
í minningu látinna ástvina eða
vegna annarra áfalla í fjölskyldum
svo og vegna þakkargjörðar. Form
messunnar er einfalt og mjög að-
gengilegt fyrir alla. Lögð er
áhersla á kyrrð, íhugun, söng og
vandaðan tónlistarflutning.
Kaffisala, basar og
happdrætti
í Landakoti
KVENFÉLAG Kristskirkju í
Landakoti heldur árlega kaffisölu
sína, basar og happdrætti í safn-
aðarheimili kaþólskra, Hávallagötu
16, Landakoti, nk. sunnudag kl. 15.
Þar verður um margt góðra muna
að velja og engin núll.
Kvenfélag Kristskirkju.
Fossvogskirkja.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 8–10
ára drengi á laugardögum kl. 11.
Starf fyrir 11–12 ára drengi á laug-
ardögum kl. 12.30.
Akureyrarkirkja. Hádegistónleikar
kl. 12. Björn Steinar Sólbergsson
leikur verk eftir Pál Ísólfsson og Sig-
fried Karg-Elert. Lesari er Laufey Brá
Jónsdóttir. Aðgangur ókeypis.
Hveragerðiskirkja. Kl. 15:30 –
16:30 Ath. breyting á áður auglýst-
um tíma. Allir mæta á sama tíma.
Fundur með foreldrum fermingar-
barna ásamt fermingarbörnum, ár-
íðandi að allir mæti. Erla Guðrún
Arnmundardóttir leiðir okkur inn í
heim Afríkubúans. Rætt verður um
tilhögun söfnunar og foreldrar fá að
heyra hvernig gengur í fræðslunni.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9,
Kópavogi. Samkoma í dag kl. 11-
12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédik-
un og biblíufræðsla þar sem ákveð-
ið efni er tekið fyrir, spurt og svarað.
Á laugardögum starfa barna- og ung-
lingadeildir. Létt hressing eftir sam-
komuna. Allir hjartanlega velkomnir.
Biblíufræðsla alla virka daga kl. 10,
13 og 22 á FM 105,5.
Safnaðarstarf