Morgunblaðið - 02.11.2002, Blaðsíða 56
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 57
JÓHANNA Sigurðardóttir hefur
markað spor í íslenskri stjórn-
málasögu. Hún er talsmaður þess
besta sem jafnaðarstefnan hefur að
geyma: Réttlætis, bættra kjara al-
mennings og mannúðar. Baráttan
gegn fátækt og misrétti, fyrir sam-
ábyrgð og félagslegum lausnum
hefur ekki verið í tísku þennan síð-
asta áratug frjálshyggjunnar.
En það eru teikn á lofti. Frjáls-
hyggjan hefur reynst gagnslaus
við að leysa fé-
lagslegan vanda og
mistekist hrap-
allega við að stýra
fjármagninu inn á
brautir arðsemi og
skynsamlegra fjár-
festinga. Það heyr-
ast háværar raddir úr röðum fjár-
magnseigenda og hagspekinga að
meta verði verðmæti fyrirtækja út
frá öðru og meiru en arðseminni
einni.
Mér lék forvitni á að vita hvaða
dóm stjórnmálamaðurinn Jóhanna
fengi frá athafnamanni úr röðum
Sjálfstæðisflokksins og leitaði því
til eins vinar míns, sem sagði: „Jó-
hanna Sigurðardóttir er heiðarleg
og vinnur af hugsjón, en veit ekki
alltaf hvað er arðbært fyrir ís-
lensku þjóðina.“ Þetta er hárrétt
en frjálshyggjan hefur sýnt og
sannað að arðsemin er ekki lengur
mál málanna, er að hverfa úr tísku,
bæði í viðskiptalífinu og í þjóðlíf-
inu. Nýir tímar eru að taka við.
Samfylkingin er ungur flokkur
nútímalegrar jafnaðarstefnu sem
ætlar sér stóran hlut í næstu kosn-
ingum. Og ég er viss um að svo
muni einnig verða með fánabera
jafnaðarstefnunnar, Jóhönnu Sig-
urðardóttur, í fylkingarbrjósti. Það
eru forréttindi fyrir Samfylk-
inguna að hafa þessa sönnu,
traustu og skeleggu baráttukonu í
fyrsta sæti í öðru Reykjavík-
urkjördæmanna og formanninn í
hinu.
Hvers vegna
Jóhanna
Sigurðardóttir?
Ingólfur H. Ingólfsson félagsfræðingur
skrifar:
ÉG vil endilega hvetja Samfylk-
ingarfólk í Reykjavík til að kjósa
Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur í 3.
sæti í prófkjörinu í
Reykjavík.
Af atorku og hug-
rekki hefur Ásta
Ragnheiður gerst
málsvari þeirra sem
oft á tíðum eiga sér
fáa málsvara á Al-
þingi. Nefnilega öryrkja, sjúkra,
aldraðra, barna og geðsjúkra svo
fátt eitt sé nefnt.
Við Íslendingar erum svo heppin
að geta státað af besta velferð-
arkerfi heimsins. Ég hélt að ég
myndi aldrei lifa þann dag að setja
spurningarmerki við þessa yfirlýs-
ingu.
Já það er von að maður spyrji
þegar biðlistar eftir sjálfsagðri og
nauðsynlegri sjúkraþjónustu lengj-
ast í sífellu. Í hraða þjóðfélagsins
má ekki gleyma þeim manngildum
sem við höfum öll verið alin upp við
í gegnum tíðina. Nefnilega mann-
virðingu, tillitssemi og umburð-
arlyndi.
Ásta Ragnheiður berst af atorku,
hugrekki og þekkingu fyrir einmitt
þessum gildum.
Ég skora því á Samfylkingarfólk
í Reykjavík að styðja Ástu Ragn-
heiði. Svo að hægt sé að tefla fram
sterkum lista í komandi Alþing-
iskosningum.
Kjósið Ástu
Ragnheiði
í 3. sæti
María Arinbjarnar, nemi í tölvufræði við
Háskólann í Reykjavík, skrifar:
Í FLOKKSVALI Samfylking-
arinnar í Suðurkjördæmi, sem fer
fram laugardaginn
9. nóvember nk.,
skora ég á félaga
mína að tryggja
áframhaldandi setu
Sigríðar Jóhann-
esdóttur á Alþingi.
Sigríði hef ég
þekkt lengi og starfað með henni í
stjórnmálum, við áttum mikið sam-
starf er ég sat í stjórn Sjúkrahúss
Suðurnesja um árabil og einnig í
stjórn Norræna félagsins á Suð-
urnesjum, en hún var lengi formað-
ur þar.
Eins og kunnugt er tók Sigríður
sæti á Alþingi er Ólafur Ragnar
Grímsson var kosinn forseti árið
1996. Hún átti m.a. sæti í fjárveit-
inganefnd Alþingis til ársins 1998.
Sigríður gætti þar af fremsta
megni hagsmuna Suðurnesja-
manna.
Sigríður er ötull talsmaður
þeirra sem minnst mega sín í þjóð-
félaginu og hefur barist fyrir jöfn-
uði og kvenfrelsi.
Viðhorf Sigríðar til þjóðmála fara
saman við mín viðhorf að öllu leyti.
Við viljum að auðlindir landsins,
fiskimiðin og stórbrotin náttúra
verði sameign þjóðarinnar.
Við viljum vernda náttúruperlur
landsins fyrir skammtíma gróða-
hagsmunum.
Nánar um störf Sigríðar, ræður
og greinar má finna á vef Alþingis
á slóðinni
http://www.althingi.is/altext/thingm-
/1006433679.html?knt=1006433679
Sigríði
áfram
á Alþingi
Eyjólfur Eysteinsson útsölustjóri skrifar:
meistar inn. is
HÖNNUN LIST
helgina 1. til 3. nóv
OPIÐ HÚS
Við opnum glæsilegustu innanhúss
golfaðstöðu landsins! Púl, sviti og sveifla,
kynningar, tilboð og fleira skemmtilegt alla
helgina. Komdu í heimsókn og prófaðu!
laugardagur
Opið hús fyrir alla
13:00 - 18:00
10:00 - 17:00
Hljómsveitin Land og Synir halda uppi alvöru fjöri
ásamt kennurum húsanna í risa hjólatíma
- 70 hjól í stóra salnum! Kl. 18:00-20:00
Tilboð á líkamsræktarkortum
Opnum tvo fullkomnustu golfherma landins
- allir geta prófað!
Framleiðendur hermanna verða á svæðinu
og kenna á græjurnar
Bob Brankely kynnir The Egde
- það nýjasta í golfinu
P.G.A. kennarar verða á svæðinu
og gefa góð ráð og leiðbeiningar
Golfverslanirnar Hole in One og Golfbúðin Strandgötu
kynna sínar vörur
Verslun Sporthússins opnar
- opnunar tilboð
Freddy tískusýning
EAS fæðubótaefna kynning
Boxaðstaðan opnar
- atvinnumenn sýna réttu höggin
Maximize fæðubótaefna kynning
Púttkeppni á nýja 200 m2 púttvellinum
Drivekeppni í nýju golfhermunum
utanlandsferðir f. tvo til Manchester
dregnar út
„Live“ spinningtímiföstudagur
sunnudagur
3
Sporthúsið Dalsmári 9-11 201 Kópavogur S: 564 4050 www.sporthusid.is
ze
to
r