Morgunblaðið - 02.11.2002, Page 64
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 2002 65
Þegar líkaminn þarf
meira en lystin leyfir
Útsölustaðir apótek landsins
og Heilsuhúsið
Við orku- og
próteinskorti
Smiðjuvegi 5, Kópavogi, sími 564 3988
2 fyrir 1
Fallegir jóladúkar
Þú greiðir fyrir dýrari dúkinn
Fleiri lögaðilar
Borist hefur leiðrétting frá Skatt-
stofu Reykjanesumdæmis vegna
fjölda lögaðila í umdæminu. Þeir eru
4.315 en ekki 3.645 eins og fram kom
í frétt blaðsins í gær.
Lionshátíð á Eir Lionshátíð verður
á hjúkrunarheimilinu Eir í Graf-
arvogi laugardaginn 2. nóvember kl.
13.30. Þar munu Karlakórinn Fóst-
bræður og Krakkakór Grafarvogs-
kirkju syngja. Lionsklúbbarnir Fold
og Fjörgyn bjóða heimilisfólki og
gestum upp á heitt súkkulaði og
veitingar, segir í fréttatilkynningu.
Í DAG
Kosningaskrifstofa Guðlaugs
Þórs opnuð Stuðningsmenn Guð-
laugs Þórs Þórðarsonar opna
kosningaskrifstofu, sunnudaginn 3.
nóvember kl. 16 í Vegmúla 2.
Helgi Björnsson tónlistarmaður
mun taka nokkur lög og hljóm-
sveitin XD leikur fyrir gesti. Boð-
ið verður upp á léttar veitingar.
Kosningaskrifstofan verður opin
frá klukkan 16–20 virka daga og
frá klukkan 14–20 um helgar. Allt-
af heitt á könnunni. Netfang Guð-
laugs Þórs er gudlaugurthor-
@gudlaugurthor.is
Fundur hjá VG Vinstrihreyfingin
– grænt framboð heldur opinn
fund í dag, laugardaginn 2. nóv-
ember, kl. 11–13, á Torginu, Hafn-
arstræti 20, um Írak og þá atburði
sem þar eiga sér stað um þessar
mundir. Frummælendur verða
Elías Davíðsson og Stefán Páls-
son. Boðið verður upp á molasopa.
Bryndís Hlöðversdóttir býður til
hátíðar Bryndís Hlöðversdóttir,
alþingismaður og frambjóðandi í
prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjavík, býður til hátíðar í dag
á efri hæð Kaffi Sólon, kl. 17–19.
Á dagskrá er ávarp Bryndísar
Hlöðversdóttur, Arnaldur Indr-
iðason les kafla úr Röddinni, nýút-
kominni bók sinni. Þverflautudúett
leika Dagbjört Hákonardóttir og
Bryndís Nielsen.
Katrín Júlíusdóttir varaformaður
framkvæmdastjórnar Samfylking-
arinnar hefur opnað vef á slóðinni
www.katrin.co.is.
Á vefnum er að
finna pistla eftir
Katrínu um
þjóðmálin og
kveðjur frá
stuðnings-
mönnum. Katrín
gefur kost á sér
í 2 - 3 sæti í
flokksvali Sam-
fylkingarinnar í
suðvesturkjördæmi sem fram fer
þann 9.nóvember n.k.
Katrín er 27 ára ráðgjafi og verk-
efnastjóri hjá hugbúnaðarfyr-
irtæki. Hún hefur um árabil starf-
að með jafnaðarmönnum á Íslandi.
Hún sat í háskóla- og stúdentaráði
fyrir Röskvu 1997 - 1999, sat í
stjórn Grósku, var formaður
Ungra jafnaðarmanna auk þess að
hafa sinnt fjölda annarra trún-
aðarstarfa fyrir áður Alþýðu-
bandalagið og nú Samfylkinguna.
Í DAG STJÓRNMÁL
Katrín Júlíusdóttir
Basar Húsmæðrafélags Reykja-
víkur Húsmæðrafélag Reykjavíkur
heldur basar á Hallveigarstöðum við
Túngötu sunnudaginn 3. nóvember
kl. 14. Á boðstólum verður jólafönd-
ur og handavinna, t.d. sokkar, vett-
lingar, heklaðir dúkar, prjónuð leik-
föng o.fl. Einnig verða lukkupakkar
fyrir börnin. Allur ágóði af sölunni
rennur til líknarmála.
Friðarstund í Bókasafni Kópa-
vogs Bahá’í samfélagið í Kópavogi
stendur fyrir friðarstundum fyrir al-
menning í sal Bókasafns Kópavogs,
Hamraborg 6a, fyrsta sunnudag í
hverjum mánuði. Lesið er úr ritum
bahá’í trúarinnar og annarra trúar-
bragða samþætt við tónlist og mynd-
list. Næsta friðarstund verður
sunnudaginn 3. nóvember kl. 14.
Kirkja og kaffisala hjá Húnvetn-
ingafélaginu Húnvetningafélagið í
Reykjavík verður með kirkju- og
kaffisöludag á morgun, sunnudaginn
3. nóvember, kl. 15 í Húnabúð, í
Skeifunni 11. Kaffi og meðlæti kost-
ar 1.000 kr. fyrir fullorðna og 500 kr.
fyrir börn. Kl. 14 verður messa í
Kópavogskirkju, þar sem Húnakór-
inn syngur.
Opið hús hjá Jöklasýningu og Há-
skólasetrinu á Hornafirði Í sam-
bandi við Vísindadaga 2002 bjóða
Háskólasetrið á Hornafirði og Jökla-
sýningin á Höfn upp á opið hús auk
tveggja fyrirlestra á vegum raunvís-
indadeildar Háskóla Íslands sunnu-
daginn 3. nóvember. Jöklasýningin:
Opið hús kl. 13–18. Fyrirlestrar
verða kl. 16. Erindi halda: Guðrún
Larsen, jarðfræðingur á Raunvís-
indastofnun Háskóla Íslands, og
Finnur Pálsson, rafmagnsverkfræð-
ingur á jarðeðlisfræðistofu Raunvís-
indastofnunar Háskóla Íslands og
aðjúnkt við rafmagns- og tölvuverk-
fræðiskor Háskóla Íslands.
Á MORGUN
ÞEIR sem sóttu trúnaðarmannaráð-
stefnu Rafiðnaðarsambands Íslands,
RSÍ, í síðustu viku skora á ríkis-
stjórnina að efna sinn hluta sam-
komulags sem gert var við aðila
vinnumarkaðarins um aðgerðir til að
koma í veg fyrir að þensla í efna-
hagslífinu færi úr böndunum fyrir 1.
febrúar nk.
Í ályktun sem Morgunblaðinu
barst frá ráðstefnu RSÍ segir að for-
sætisráðherra hafi lagt fram fyrir
hönd ríkisstjórnarinnar yfirlýsingu
um hver yrði hennar þáttur. „Á þeim
forsendum féllst verkalýðshreyfing-
in á að fresta viðmiðunardagsetn-
ingu svo svigrúm væri til að ná
markmiðum kjarasamninga,“ segir í
ályktuninni.
Þar segir að nú séu tíu mánuðir
liðnir frá undirritun yfirlýsingar ráð-
herra „og þrátt fyrir fjölda funda
ASÍ með embættismönnum og ráð-
herrum er málið enn óleyst. Fjár-
málaráðherra telur að um sé að ræða
kostnaðarauka sem ekki verði vipp-
að fram úr erminni, svo vitnað sé til
hans eigin orða. Það var forsenda
samkomulagsins að jafnað yrði það
misrétti að félagsmenn í tilteknum
stéttarfélögum njóti mun betri líf-
eyrisréttinda en þeir sem kjósa að
vista sig í stéttarfélögum innan
ASÍ“. Í ályktuninni frá trúnaðar-
mannaráðstefnunni er fjármálaráð-
herra bent á að dæmi séu um að
stjórnvöld hafi gengið frá breyting-
um á kjarasamningum á miðjum
samningstíma og oft hafi verið um að
ræða mun meiri kostnaðarauka.
„Aðilar vinnumarkaðar hafa staðið
við sinn hluta samkomulagsins. Því
verður ekki trúað að ráðherra í rík-
isstjórn Íslands undirriti yfirlýsingu
gagnvart heildarsamtökum á vinnu-
markaði og telji síðan að hann beri
ekki frekari ábyrgð á niðurstöðu
málsins.“
Ályktun um kjaramál frá trúnaðarmannaráðstefnu RSÍ
Aðilar vinnumarkaðar-
ins hafa staðið við sitt
BANDARÍSKA listflugskonan Patty
Wagstaff er stödd á Íslandi í boði
Flugmálafélags Íslands og verður
einn af þremur erlendum heiðurs-
gestum á hátíðarfagnaði félagsins
sem fram fer á Grand Hótel í kvöld.
Hún mun einnig sýna listflug á
Reykjavíkurflugvelli um helgina ef
veður leyfir.
Aðrir erlendir heiðursgestir á há-
tíðarfagnaðinum eru sænskur svif-
flugmaður, Pekka Havbrandt, og
bandaríski svifdrekaflugmaðurinn
Dennis Pagen. Geir H. Haarde verð-
ur aðalræðumaður en auk hans mun
Arngrímur B. Jóhannsson forseti
Flugmálafélagsins flytja ávarp. Ás-
geir Pálsson, framkvæmdastjóri flug-
umferðarþjónustu Flugmálastjórnar
verður veislustjóri og Jóhann Frið-
geir Valdimarsson syngur einsöng.
Fræg listflug-
kona á Íslandi
THORVALDSENSFÉLAGIÐ hef-
ur á undanförnum árum gefið út
jólakort til styrktar sjúkum börn-
um, en félagið hefur starfað að
líknarmálum barna vel á aðra
öld.
Jólakortið í ár er teiknað af
Sigríði Bragadóttur, grafískum
hönnuði. Myndin heitir Jólaæv-
intýri.
Jólakortin er bæði hægt að fá í
stykkjatali eða fimm í pakkningu.
Þau eru seld hjá félaginu og á
basar Thorvaldsensfélagsins í
Austurstræti, einnig í verslunum
Máls og menningar. Hægt er að
fá kortin ótextuð og þá hugsuð
fyrir fyrirtæki sem vilja prenta
sinn eigin texta í kortin.
Jólakort
Thorvald-
sens-
félagsins
LEIÐRÉTT