Morgunblaðið - 27.11.2002, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002 9
Forsala miða og borðapantanir alla virka daga kl. 11:00-19.00.
Sími 533 1100 - fax 533 1110 - www.broadway.is - broadway@broadway.is
Verð kr. 1.500
Sýning laugardaginn
30. nóvember.
„Sögur af sviðinu“, fæst í Skífunni.
Húsið opnað kl. 19:00
fyrir kvöldverðargesti.
Sýning hefst kl. 22:00.
13. og 14. desember
STÓRSÝNING
Jóla-
hlaðborð
og sýning
kr. 6.400
Sýning
kr. 2.500
• Þau syngja, dansa og þjóna þér !
• Þau láta þig hlæja, dansa og syngja!
• Ekki missa af þessari sýningu !
• Þau eru Le'Sing!
29/11
30/11 Örfá sæti laus
06/12
07/12
21/12
28/12
Jólamats
eðill:
Forréttad
iskur;
úrval jól
aforrétta
Jólasteik
arhlaðbo
rð
Eftirrétta
fantasía
Verð kr. 3
.900
Verð kr. 2.500 + matur
Litla sviðið opnar klukkan 19.30 .
Sýningin hefst
stundvíslega kl. 20:00.
Verð kr. 3.900
Bættu við 2.500 kr. og sjáðu, Viva Latino,
Elvis eða Le'Sing.
Viljirðu sjá Með sykri og rjóma
bætir þú við kr. 1.500.
Frábær sýning,
sem slegið hefur
rækilega í gegn!
Miðaverð:
Kvöldverður kr. 3,900.
Sýning kr. 2,500 kr.
Húsið opnar klukkan 19:00
fyrir matargesti.
Sýningin hefst kl. 22:00
Sýningar til jóla:
St
af
ræ
na
h
ug
m
yn
da
sm
ið
ja
n/
25
89
29. nóvember, jólahlaðborð
30. nóvember, jólahlaðborð
7. desember, jólahlaðborð
Miðasalan er hafin!
Verð 9.900 ,kvöldverður og skemmtun
Óperukórinn og félagar úr hljómsveit
Íslensku Óperunnar skemmta
gestum á nýárskvöld!
Óperuballið
Ál- og laxa mósaík í hvítvínshlaupi
m/engifervinagrette.
Hvalacarbachio m/ristuðum
furuhnetum og rifnum parmesjanosti.
Dádýrasteik
m/púrtvínslegnri
smáperu, kantarellusveppum
og villibráðasósu.
Hunangs-
og hindberjaterta „Lavender“.
Gamlárskvöld
Matseðill
SÁLINMiðasala hafin
1. ja
núa
r
200
3
Ný sending
Glæsilegir jólajakkar,
peysur og gallabuxur
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Lagersala Antik-hússins
er opin alla daga frá kl. 14.00-18.00
í Suðurhrauni 12, Garðabæ.
Borðstofuhúsgögn, bókaskápar, skrifborð og skrautmunir.
HELSTU hundategundir landsins
voru kynntar á hvuttadögum í
Reiðhöll Gusts í Kópavogi um
helgina. Um leið voru kynntar
vörur sem tengjast hundahaldi.
Margir hundanna léku listir sínar
og ýmislegt gagn sem þeir geta
gert eigendum sínum. Á hvutta-
dögum gaf að líta marga hvutt-
ana en hér eru Rottweiler hvolp-
ur og þrír Sharpei hundar.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hundar
kynntir á
hvuttadögum
ELÍSABET Pálmadóttir efna-
verkfræðingur hefur verið ráðin í
stöðu skólastjóra Brunamálaskól-
ans. Hún hefur
víðtæka menntun
og mikla starfs-
reynslu á sviði
efnafræði og við
gerð áhættu-
greininga, örygg-
isáætlana og
gæðahandbóka.
Elísabet tekur
við starfinu af
Guðmundi Haraldssyni sem hefur
gegnt stöðu skólastjóra frá því skól-
inn tók til starfa 1994. Guðmundur
starfar áfram sem sérfræðingur hjá
Brunamálastofnun.
Elísabet er 37 ára. Hún er efna-
verkfræðingur MSc. frá Norges
Tekniske Högskole. Að námi loknu
starfaði hún á verkfræðistofu í Nor-
egi með áhættugreiningu og áhættu-
mat vegna bruna og sprenginga sem
sérsvið. Elísabet hefur starfað sem
framkvæmdastjóri og verkefn-
isstjóri hjá Eski ehf., var verkefn-
isstjóri hjá Hönnun hf. um árabil og
gæðastjóri Vatnsveitu Reykjavíkur.
Hún hefur einnig stundað sjálf-
stæðan rekstur með gæðastjórnun
og öryggis- og umhverfismál sem
sérsvið. Elísabet hefur gefið út fjölda
fræðigreina og rita. Hún hefur meðal
annars tekið saman námsefni fyrir
námskeið um áhættu-, neyðar- og ör-
yggisstjórnun í rekstri fyrirtækja og
haft umsjón með námskeiðum um
þetta efni á vegum Endurmennt-
unarstofnunar Háskóla Íslands.
Brunamálaskólinn, sem rekinn er
af Brunamálastofnun, annast mennt-
un og endurmenntun slökkviliðs-
manna og eldvarnaeftirlitsmanna
um allt land. Skólinn hélt námskeið
fyrir 266 slökkviliðsmenn á 20 nám-
skeiðum í öllum landshlutum á þessu
ári. Það er átta prósent aukning frá
fyrra ári. Auk þess heimsækir far-
skóli Brunamálaskólans öll slökkvilið
landsins að minnsta kosti árlega.
Stuðst er við innlent námsefni auk
efnis frá öðrum Norðurlöndum og
Bandaríkjunum á námskeiðum skól-
ans.
Nýr skóla-
stjóri Bruna-
málaskólans
Sjúkraflutningamaðurinn sem á
fimmtudag í síðustu viku var dæmd-
ur í níu mánaða fangelsi fyrir kyn-
ferðislega áreitni gegn konu sem
verið var að flytja á sjúkrahús hefur
verið leystur frá störfum hjá
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Maðurinn hefur alla tíð neitað sök og
hefur ákveðið að áfrýja dómnum til
Hæstaréttar.
Atvikið átti sér stað í ágúst í fyrra.
Að sögn Jóns Viðars Matthíassonar
varaslökkviliðsstjóra var maðurinn
leystur frá störfum sem sjúkraflutn-
inga- og slökkviliðsmaður í mars á
þessu ári eftir að DNA-rannsókn
leiddi í ljós að munnvatn úr mann-
inum hafði fundist á öðru brjósti kon-
unnar. Hann gegndi öðrum störfum
hjá slökkviliðinu þar til hann var al-
farið leystur frá störfum í fyrradag.
Stjórnendur slökkviliðsins boðuðu
til starfsmannafundar vegna málsins
í síðustu viku. Jón Viðar segir tilgang
fundarins einfaldlega hafa verið
þann að gera starfsmönnum grein
fyrir málinu. Ekki hafi verið talið til-
efni til sérstakra aðgerða enda noti
slökkviliðið sömu aðferðir við sjúkra-
flutninga og víðast erlendis.
Sjúkraflutningamaður dæmdur
fyrir kynferðisbrot
Áfrýjar dómnum
til Hæstaréttar
ÞRJÚ INNBROT voru framin í
Reykjanesbæ aðfaranótt mánu-
dags. Brotist var inn í söluturn-
inn Nýjung við Iðavelli og þaðan
stolið um 40 kartonum af sígar-
ettum og skiptimynt, auk þess
sem ýmislegt annað var tekið
ófrjálsri hendi.
Þá var brotist inn í Reiðhöllina
við Mánagrund sem er í eigu
hestamannafélagsins Mána og
þaðan stolið nýlegu sjónvarps-
tæki og myndbandstæki. Loks
var rúða brotin í vörubíl við Iða-
velli 5, en engu stolið.
Lögreglan biður þá, sem orðið
hafa varir við grunsamlegar
mannaferðir í kringum þessa
staði að hafa samband í síma
420-2400.
Þrjú innbrot
í Reykjanesbæ