Morgunblaðið - 27.11.2002, Side 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002 11
VONIR standa til að í framtíðinni verði hægt að
innleiða í skólum hér á landi uppeldisfræðitilraun
sem byggist á flutningi á textabrotum úr verkum
Williams Shakespeare. Hér er ekki um tungu-
málakennslu að ræða og heldur ekki kennslu í
leiklist heldur snýst verkefnið um að nemendur á
grunn- og framhaldsskólastigi læri að tileinka sér
textaskáldsins á frummálinu sem þar með verði
hluti af sjálfsmyndarsköpun þeirra.
Heimir Pálsson, dósent í íslensku við Kenn-
araháskóla Íslands, hefur kynnt sér verkefnið
sem er afrakstur af áratuga bréfaskriftum breska
lárviðarskáldsins Ted Hughes og bandarísk-
sænsku listakonunnar Donyu Feuer og ber heitið
„In the Company of Shakespeare“.
Það er ætlað fyrir nemendur allt frá 1. bekk í
grunnskóla fram til loka menntaskóla og gengur
sem fyrr segir út á að nemendur fara með ör-
stuttan texta úr verkum Shakespeares og æfa
hann þar til að þeir skilja merkingu orðanna og
gera textann að sínum.
Sama línan er ávallt lögð fyrir í upphafi og flutt
á ensku: „And when my cue comes, call me! Call
me and I will answer!“ Þegar textinn er þaul-
æfður er tekið til við fleiri textabrot.
Mjög mikilvægt er að nemendur æfi textann á
ensku því hann þarf að vera framandi. Á sama
tíma skiptir miklu máli, að sögn Heimis, að nem-
endur læri að njóta textans án þess að velta vöng-
um yfir úr hvaða verki hann er kominn. Og ljóð-
línur Shakespeares standa fyllilega fyrir sínu.
„Þetta á ekki að koma í staðinn fyrir aðra
kennslu heldur er um að ræða hreina viðbót og
stuðning við annað nám.“
Stefnt að því að koma á
tengslaneti við norræna skóla
Heimir segir það æskilegt að formlegt samstarf
komist á milli Kennaraháskólans og leikhúsa og
hann hefur þegar rætt við leikhússtjóra Borg-
arleikhússins um mögulegt samstarf sem gæti
nýst nemendum við flutning á textabrotum.
Hér á landi hefur tilraunaverkefninu ekki
formlega verið ýtt úr vör en nokkrir fyrrum nem-
endur Heimis sem nú starfa við kennslu hafa
reynt það á nemendum sínum og hefur það gefist
mjög vel.
Leitað hefur verið eftir stuðningi Norrænu ráð-
herranefndarinnar við að koma á tengslaneti milli
Kennaraháskóla Íslands, skóla í Björgvin, Stokk-
hólmi og Silkiborg í tengslum við verkefnið með
mögulegt samstarf í huga.
Hann segir kennara í Svíþjóð hafa fullyrt að
ekki sé vafi á að að félagsskapurinn við Shake-
speare hafi gjörbreytt bekkjarandanum þar sem
hann hefur verið reyndur. Einn kennari hafi til að
mynda haft á orði að í stað þess að slást í frímín-
útum væri skollið á textastríð milli nemenda sem
hreyttu nú Shakespeare hver í annan! Heimir
mun í dag kynna verkefnið í fyrirlestri sem hann
heldur kl. 16.15 í sal 2 í nýbyggingu Kennarahá-
skóla Íslands og greina frá því hvaða möguleikar
eru fyrir okkur að tileinka okkur það. Fyrirlest-
urinn nefnist: „In the Company of Shakespeare“
– afturhvarf til Bessastaða, og er vísað þar í
fræga íslenskukennslu í Bessastaðaskóla þar sem
öll kennsla í móðurmálinu fór fram með aðstoð
þýðinga úr erlendum tungumálum undir stjórn
Sveinbjarnar Egilssonar og fleiri mætra manna.
Á næsta ári mun hann síðan dvelja í Svíþjóð
þar sem hann mun sinna rannsóknum og kynna
sér nánar verkefnið.
Athyglisverð uppeldis-
fræðitilraun gefur
góða raun erlendis
Nemendur hreyta William
Shakespeare hver í annan
Morgunblaðið/Jim Smart
Heimir Pálsson mun í dag kynna uppeldisfræðiverkefni sem tengist leikritaskáldinu Shakespeare í
fyrirlestri sem hann heldur kl. 16.15 í sal 2 í nýbyggingu Kennaraháskóla Íslands.
VEGNA breyttra forsendna í
tengslum við stóriðju á Austurlandi
og þátttöku Alcoa í byggingu álvers í
Reyðarfirði hafa Náttúruverndar-
samtök Íslands fengið Þorstein Sig-
laugsson, hagfræðing og rekstrar-
ráðgjafa, til að gera nýja greinar-
gerð um arðsemi Kárahnjúkavirkj-
unar. Samkvæmt henni telur Þor-
steinn að 17 milljarða króna tap
verði af virkjuninni, miðað við for-
sendur stjórnvalda og Landsvirkj-
unar, m.a. ávöxtunarkröfu fram-
kvæmdanna upp á 5,23%.
Þorsteinn kynnti greinargerð sína
fyrir fréttamönnum í gær ásamt
talsmönnum Náttúruverndarsam-
taka Íslands, NSÍ. Hann telur að
miðað við „raunhæfar“ arðsemis-
kröfur upp á 8% og 50 ára líftíma
yrði 21 milljarðs króna tap af virkj-
uninni miðað við bjartsýnustu spá
hans en allt að 53 milljarða króna
tap miðað við svartsýnustu forsend-
ur.
Talsmenn samtakanna benda á að
eigendur Landsvirkjunar hafi ný-
verið skipað þriggja manna vinnu-
hóp til að kanna „fjárhagslegan und-
irbúning“ Kárahnjúkavirkjunar.
Þeir telja afar mikilvægt að eigend-
urnir geri almenningi skýra grein
fyrir því hverjar forsendur séu í ljósi
„þeirra gríðarlegu ábyrgða“ sem
eigendur taka á sig í nafni almenn-
ings. Að öðrum kosti sé ekki verj-
andi að undirrita samning við Alcoa.
Þorsteinn gerði samskonar úttekt
á arðsemi virkjunarinnar á síðasta
ári þegar Reyðarál var inni í mynd-
inni með álverið í Reyðarfirði. Þá
var niðurstaðan tap af virkjuninni
frá 16 til 53 milljörðum króna. Árni
Finnsson, formaður NSÍ, sagði að
frá þeim tíma hefði sem kunnugt er
margt breyst. Nýtt fyrirtæki, Alcoa,
áformaði t.d. minna álver en Reyð-
arál ætlaði að reisa og í einum
áfanga í stað tveggja, virkjunin væri
minni og framkvæmdatími annar.
Sömuleiðis hefðu fleiri og betri upp-
lýsingar komið fram sem auðveld-
uðu vinnu við arðsemismat og af
þeim sökum hefði verið beðið um
nýja greinargerð frá Þorsteini.
Helstu niðurstöður Þorsteins nú
eru sem sagt þær að lítil líkindi séu
til þess að Kárahnjúkavirkjun nái að
standa undir viðunandi arðsemi.
Jafnframt bendi margt til þess að
virkjunin geti ekki skilað þeirri lág-
marksarðsemi hlutafjár sem eigend-
ur geri kröfu um, jafnvel þó að þeir
taki að fullu á sig lánsfjáráhættu
með ríkistryggðum lánum. Afkoma
verkefnisins nú sé verulega miklu
óhagstæðari en miðað við fyrri áætl-
anir með þátttöku Norsk Hydro og
Hæfis í Reyðaráli.
Í tilkynningu NSÍ vegna greinar-
gerðarinnar segir m.a. að hag-
kvæmni virkjunarinnar ráðist af
þrennu. Í fyrsta lagi stofnkostnaði
upp á 96 milljarða króna, nettó-
tekjum virkjunarinnar og þeirri
ávöxtunarkröfu sem eigendur
Landsvirkjunar þurfi að gera.
Ný greinargerð
hagfræðings fyr-
ir Náttúruvernd-
arsamtök Íslands
Segir 17 milljarða tap
af Kárahnjúkavirkjun
!
"
!#
!$%
"!
%%%
&
&#%
'(
)*
%%
)(
#!%
)'+
!
"
*$
#%
%'
%%%
$
$%%
*$
)*$
'&%
%+
!
"
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur sýknað rúmlega fimm-
tugan karlmann af ákæru um
tollalagabrot en hann var með
um 240 lítra af vodka í bifreið
sinni þegar hann var stöðv-
aður í Mosfellsbæ árið 2000.
Maðurinn neitaði sök, sagðist
hafa talið að áfengið væri inn-
lend framleiðsla og hann hafi
ætlað að drekka það sjálfur.
Áfengið var í plastbrúsum
og í bifreiðinni fundust einnig
sex tómir brúsar. Maðurinn
var ákærður fyrir tollalaga-
brot með því að hafa keypt
áfengi sem hann hafi mátt vita
að var flutt inn með ólöglegum
hætti. Var honum jafnframt
gefið að sök að hafa ætlað að
selja það að einhverju eða öllu
leyti. Þessu neitaði maðurinn
og kvaðst hafa talið áfengið
innlenda framleiðslu. Sagðist
hann hafa keypt það af manni
sem hann vildi ekki nafngreina
og neitaði jafnframt að gefa
upp verðið.
Ekki útilokað að fram-
leiðslan væri íslensk
Hjördís Hákonardóttir hér-
aðsdómari taldi forsendu fyrir
sakfellingu að sannað væri að
um ólöglegan innflutning væri
að ræða. „Fallast má á það með
ákæruvaldinu að umbúnaður
áfengisins og magn þess bendi
til þess að ekki sé um löglegan
varning að ræða. Einnig má
fallast á þá röksemd að þegar
um svo mikið magn er að ræða
megi leiða að því líkum að
áfengið sé ætlað til sölu en
ekki eingöngu til einkaneyslu.
Í þessu máli hefur hins vegar
ekki verið ákært fyrir brot
gegn áfengislögum heldur ein-
göngu tollalögum,“ segir í
dómnum. Ekki væri hægt að
útiloka að um íslenska fram-
leiðslu væri að ræða og var
maðurinn því sýknaður. Hann
var á hinn bóginn sakfelldur
fyrir brot á vopnalögum en á
heimili hans fannst óskráð
haglabyssa. Fyrir það var
hann dæmdur til að greiða
20.000 krónur í sekt.
Frá árinu 1977 hefur mað-
urinn fjórum sinnum gengist
undir greiðslu sektar og fimm
sinnum hlotið dóm, síðast árið
1995, aðallega fyrir brot gegn
áfengis- og tollalagabrot. Sak-
arferill mannsins hafði ekki
áhrif í málinu.
Hildur Briem flutti málið f.h.
lögreglustjórans í Reykjavík
en Kristján Stefánsson hrl. var
verjandi mannsins.
Ætlaði
sjálfur að
drekka
240 lítra
af vodka
KRÖFUR í þrotabú Frjálsrar
fjölmiðlunar ehf., fyrrum út-
gáfufélags DV, nema nú rúm-
um 2,1 milljarði króna. Jukust
kröfurnar nýverið um 330 millj-
ónir króna þegar þrír bankar
endurgreiddu sömu fjárhæð
vegna sölu á 60% hlut Frjálsrar
fjölmiðlunar, FF, í útgáfufélagi
DV fyrir tæpu ári. Áður höfðu
eigendur FF og hlutafélög
tengd þeim gert kröfu í
þrotabúið upp á um 500 millj-
ónir króna.
Skiptafundur í þrotabúi FF
er ráðgerður í dag og annar
ráðgerður síðar. Sigurður Giz-
urarson skiptastjóri segir að án
efa væri þetta með stærstu
gjaldþrotum Íslands og jafn-
framt hið flóknasta. „Mér
finnst ég rétt vera að krafsa í
ísjakann sem upp úr stendur,“
sagði Sigurður.
Fréttablaðið ehf. í þrot
Sigurður var í vikunni skip-
aður skiptastjóri í þrotabúi
Fréttablaðsins ehf., sem að
stærstum hluta var í eigu eig-
enda Frjálsrar fjölmiðlunar,
feðganna Sveins R. Eyjólfs-
sonar og Eyjólfs Sveinssonar.
Að sögn Sigurðar er eftir að
gefa út frest til að lýsa kröfum
en ljóst sé að lífeyrissjóðir verði
þar stórir kröfuhafar.
Þrotabú Frjálsrar
fjölmiðlunar
Kröfurn-
ar rúmur
2,1 millj-
arður
JARÐSKJÁLFTI upp á 4,8 stig á
Richterskvarða mældist á Reykja-
neshrygg um miðjan sl. sunnudag,
um 800 kílómetra suðvestur af land-
inu. Þetta er á svipuðum slóðum og
vart varð mikillar skjálftahrinu í
byrjun október síðastliðins, þeirrar
mestu í nærri fjörutíu ár á svæðinu.
Að sögn Gunnars B. Guðmunds-
sonar á jarðeðlissviði Veðurstofu Ís-
lands er ekki ástæða til að hafa
áhyggjur af skjálftavirkninni á
Reykjaneshrygg. Skjálftar séu tíðir
á úthafshryggjum og alltaf sé mögu-
leiki á eldvirkni. Nú hafi bara orðið
einn stakur skjálfti og litlar líkur á
að það boði eitthvað meira.
Skjálfti upp á
4,8 á Richter
Reykjaneshryggur