Morgunblaðið - 27.11.2002, Page 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002 17
Hver kona er einstök,
Helena Rubinstein
býður upp á fjölbreytt úrval farða
*m
eð
an
bi
rg
ði
r
en
da
st
Útsölustaðir: Ársól Grímsbæ, Gullbrá Nóatúni, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ,
Hygea Kringlunni, Hygea Laugavegi 23, Libia Mjódd, Mist Spönginni, Sara Bankastræti 8,
Sigurboginn Laugavegi 80, Andorra Strandgötu Hafnarfirði, Bylgjan Hamraborg Kópavogi,
Hygea Smáralind, Fína Háholti Mosfellsbæ.
Landið: Hjá Maríu Glerártorgi Akureyri, Jara Hafnarstræti 104 Akureyri, Bjarg
Stillholti 14 Akranesi, Hilma Garðarsbraut 18 Húsavík, Konur og menn Hafnarstræti 9
Ísafirði, Myrra Austurvegi 4 Selfossi, Miðbær Miðstræti 14 Vestmannaeyjum.
Kaupaukinn* þinn
þegar þú kaupir
HR farða
Taska með svampi fyrir farða og
bursta fyrir púður, kinnalit og
sólarpúður.
heldur tók ljósmyndari Reuters-fréttastof-
unnar þessa mynd af regnboganum og nokkr-
HÉR er ekki á ferðinni framhlið gamallar
hljómplötu rokkhljómsveitarinnar Pink Floyd
um svöngum kindum nálægt kolaverksmiðju í
Grosskrotzenburg í Þýskalandi.
Reuters
Undir regnboganum
HARÐAR deilur milli sjónvarps-
stöðvarinnar TV2 í Noregi og íþrótta-
hreyfingarinnar vegna sjónvarps-
þáttar fyrir skömmu um meinta
lyfjanotkun keppenda voru í gær
leystar með málamiðlun, að sögn Aft-
enposten. Komið hefur í ljós að
fréttamennirnir sem gerðu þáttinn
gátu ekki sannað staðhæfingar sem
þar koma fram en m.a. var gefið í
skyn að norskir þátttakendur í skíða-
göngu á Ólympíuleikunum í Lille-
hammer 1994 hefðu notað ólögleg lyf.
Sjónvarpsstöðin samþykkti í gær að
verja fimm milljónum norskra króna,
um 58,5 millj. ísl. kr., til að hreinsa
æru íþróttahreyfingarinnar sem
hafði hótað málsókn vegna þáttarins.
Hluti fjárins rennur til alþjóðlegrar
baráttu gegn lyfjamisnotkun í íþrótt-
um.
Um 700.000 manns sáu umræddan
þátt, en þessir þættir hafa verið á
dagskrá í fjögur ár og lagt áherslu á
rannsóknablaðamennsku af ýmsu
tagi. Lyfjahneykslið sem breyttist í
fjölmiðlahneyksli hefur vakið mikla
athygli í Noregi en einnig verið rætt í
grannlöndunum, ekki síst Svíþjóð og
Finnlandi.
Búningsklefar eins
og „herspítalar“
Ásakanirnar komu fram í máli
íþróttalæknisins Helge Oftebro í
þættinum Rikets Tilstand (Ástand
ríkisins). Hann sagði að þegar á ní-
unda áratugnum hefðu búningsklefar
íþróttamanna litið út eins og „herspít-
alar“ þar sem hvarvetna hefðu verið
pokar með blóðvökva og sprautunál-
ar í hrönnum. Talsmenn íþrótta-
hreyfingarinnar fordæmdu ummælin
og sögðu að Oftebro varpaði fram
fullyrðingum án nokkurra sannana.
Hann hefði sjálfur aðallega stundað
vaxtarræktarmenn sem ekki væru í
samtökum íþróttamanna. Ef hann
sakaði heimsþekkta skíðagöngumenn
um misnotkun lyfja yrði hann að
nafngreina þá, ella lægju allir undir
grun.
Fjölmargt þótti vafasamt í meðferð
fréttamannanna á viðfangsefninu og
oft dregnar ályktanir á hæpnum for-
sendum. Fullyrt var í þættinum að
landslið Norðmanna í skíðaíþróttum
hefði fyrir Ólympíuleikana í Lille-
hammer 1994 pantað alls 150 lyfja-
tegundir frá fyrirtækinu Astra. Í ljós
hefur komið að fréttamennirnir höfðu
misskilið málið, þeir sýndu myndir af
vörulista frá fyrirtækinu en ekki
pöntunum fyrir íþróttafólkið. Astra
segir að pöntuð hafi verið 20 lyf.
Yfirmaður TV2, Kåre Valebrokk,
harmaði að svona hefði tekist til og
sagði að um „svartan dag“ í sögu
stöðvarinnar væri að ræða. „Norskir
íþróttamenn áttu þetta ekki skilið,“
sagði hann. Yfirmaður þáttarins um-
rædda, Gunnar Helskog, hefur beðið
jafnt áhorfendur sem íþróttamenn af-
sökunar og sagt að aldrei hefði átt að
senda út þáttinn. Einnig segist hann
íhuga að hætta að stjórna þættinum.
„Ég notaði rangan lista og engar af-
sakanir duga. Verst er ef þetta verður
til að skaða gagnrýna fréttaöflun um
vandamál vegna ólöglegrar lyfjanotk-
unar í íþróttum.“
Hlakkar í Finnum
Finnskir skíðamenn og íþróttaleið-
togar telja að fótur sé fyrir grun-
semdunum. Þeir telja sig eiga harma
að hefna vegna þess hve hart Norð-
menn gengu fram þegar uppvíst varð
um ólöglega lyfjanotkun tveggja
Finna á heimsmeistaramóti í Lahti í
fyrra. „Við erum ekki þeir einu sem
hafa svindlað,“ sagði Jari Isometsä,
sem var vísað frá keppni vegna lyfja-
misnotkunar, í samtali við sænska
Aftonbladet.
Norsk sjónvarps-
stöð kaupir sér frið
Hafði uppi tilhæfu-
lausar fullyrðingar
um lyfjamisnotkun
íþróttamanna
Reuters
Frá keppni í 10 km skíðagöngu á
heimsmeistaramóti sem nú er hafið
í Kiruna í Svíþjóð.
ÍRASKIR embættismenn hafa tjáð
vopnaeftirlitsmönnum Sameinuðu
þjóðanna í Bagdad að engin gereyð-
ingarvopn sé að finna í Írak og þeir
hafa einnig lýst efasemdum sínum
um hvort rétt sé að leyfa vopnaeft-
irlit í forsetahöllum Saddams Huss-
eins Íraksforseta. Vopnaeftirlitið
hefst formlega í dag.
Hans Blix, yfirmaður vopnaeftir-
litsnefndarinnar, greindi öryggisráði
SÞ frá stöðu mála á mánudag. Hann
sagði að Írakar hefðu heitið fullri
samvinnu en að spurningar þeirra
bentu til að ekki væri öruggt að Írak-
ar myndu leggja fram tæmandi yf-
irlýsingu um sýkla-, eiturefna- og
kjarnorkuvopnaeign sína fyrir 8.
desember, líkt og ályktun öryggis-
ráðs SÞ þó gerir ráð fyrir. Kom fram
í máli Blix að Írakar teldu til of mik-
ils ætlast af þeim.
Blix varaði Íraka við
Kvaðst Blix hafa tjáð Írökum – og
varað þá við – að þeir yrðu að leggja
fram sannfærandi sönnunargögn ef
þeir hygðust halda því fram að alls
engin gereyðingarvopn væru í Írak.
Í fyrrakvöld hafði breska þingið
lýst yfir stuðningi við ályktun örygg-
isráðs SÞ um vopnaeftirlit í Írak.
Þingið hafnaði hins vegar hugmynd-
um vinstrimanna þess efnis að hern-
aðaraðgerðir gegn Írak kæmu ekki
til greina nema öryggisráðið hefði
fyrst samþykkt sérstaka ályktun þar
að lútandi.
Vopnaeftirlit í Írak
Færi sönn-
ur á full-
yrðingar
sínar
Bagdad, London. AFP.