Morgunblaðið - 27.11.2002, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 27.11.2002, Qupperneq 21
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002 21 Á DÖGUNUM var vefmiðillinn skarpur.is formlega opnaður sem rekinn verður samhliða úgáfu hér- aðsfréttablaðsins Skarps. Skarpur.is leysir jafnframt af hólmi fréttavefinn vikin.is sem Prenstofan Örk/Tröð ehf. hefur haldið úti ásamt útgáfu blaðsins. Samhliða þessum breyting- um var útliti blaðsins breytt til sam- ræmis við vefinn. Í tilefni þessara tímamóta buðu aðstandendur blaðsins til veislu í sal stéttarfélaganna þar sem Húsvík- ingum og öðrum héraðsbúum var boðið upp á léttar veitingar. Fjöldi manns þáði boðið og var Víðir Pét- ursson, framkvæmdastjóri og eig- andi fyrirtækisins, ánægður með daginn, bæði gestakomuna sem og útlit miðlanna. Hann sagði mesta kostinn við breytingarnar á vefnum vera þann að nú væri mun auðveld- ara og fljótlegra að skrifa inn og upp- færa efni hans. Arngrímur Arnarson og Hróbjart- ur Sigurðsson, starfsmenn á Örk/ Tröð, hönnuðu hið nýja útlit blaðs og vefjar og lögðu mikla vinnu í það. Þá sá Arngrímur um forritun á þessum nýja gagnvirka vefmiðli. Blaðið og vefmiðillinn munu vinna nánar sam- an en til þessa, og munu ritstjórarnir Arngrímur á skarpi.is og Jóhannes Sigurjónsson á héraðsfréttablaðinu Skarpi, starfa eftir þörfum á báðum stöðum þótt hvor um sig stýri sínum miðli áfram. Vikin.is verð- ur skarpur.is Húsavík ÞAÐ var í lok þjóðhátíðarinnar í byrjun ágúst að Keikó yfirgaf heim- kynni sín í Klettsvík og synti á vit örlaga sinna í Noregi. Þar hefur Keikó dvalið síðustu vikur við ágætt atlæti og fögnuð Norðmanna sem hafa tekið honum vel. Smári Harðarson kafari sem starfað hefur við Keikó-verkefnið frá upphafi telur að Keikó eigi ekki afturkvæmt til Eyja, nema þá sem gestur. Hann fór eftir lætin á þjóðhátíðinni, en bæði vont veður og hávaði frá flugeldasýningunni virtist trufla hann, að sögn Smára. Hann bætti því við að líklega væri Keikó ekki mikið fyrir þjóðhátíð eins og sannir Eyjamenn eru jafnan. Kvíar notaðar fyrir þorskeldi Frá því að ljóst var að hvalurinn kæmi ekki aftur til heimilis síns í kvínni í Klettsvík hafa starfsmenn verkefnisins unnið að því að taka niður girðingu úr Klettshelli í Heimaklett sem gerði Keikó kleift að synda utan við búrið sem hann var upphaflega vistaður í. Kvíin sjálf hefur verið seld aðilum sem hyggj- ast hefja framhaldseldi á þorski í Klettsvík. Smári sagði að nú sæi fyrir end- ann á tiltektinni sem hann, ásamt Ingunni Sigurðardóttur og Michael Parks hafa starfað að. Nokkur hreinsun er eftir á botni Klettsvíkur en henni lýkur á næstunni. Í síðustu viku var síðasti búturinn úr girðing- unni dreginn að landi. Þá er til sölu margskonar bún- aður sem fylgdi starfseminni. Hægt er að nálgast upplýsingar um þenn- an búnað og tæki á vefsíðu samtak- anna í Eyjum, keikó.is. Smári sagði að nú sæi fyrir endann á skemmti- legu verkefni. „Innst inni vonaði maður að þetta stæði lengur þó svo að alltaf væri vitað að fyrr en seinna tæki þetta enda í Klettsvík og ein- hvernveginn var maður óviðbúinn þegar því lauk,“ sagði Smári. Að- spurður um hvort hann myndi starfa áfram fyrir samtökin sagði Smári ekkert geta sagt um það á þessu stigi, framtíðin væri óráðin hvað það varðaði. Morgunblaðið/Sigurgeir Lokafrá- gangur eftir Keikó Vestmannaeyjar ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem erlendir listamenn heimsækja fá- menn samfélög úti á landi. Djúpa- vogsbúar voru svo lánsamir að fá píanóleikarann Simon Marlow í heimsókn frá Bretlandi um miðjan nóvembermánuð. Simon Marlow stundaði nám í tónlistarfræðum við háskólann í Cambridge. Hann kom fyrst fram sem píanóleikari árið 1973 í Wig- more Hall ásamt fiðluleikaranum Roger Garland. Síðan þá hefur hann komið fram sem einleikari og undirleikari víða um heim. Simon spilaði Impromptu eftir Schubert auk þess að spila undir hjá Berg- lindi Einarsdóttur mezzosópran í verkum eftir Atla Heimi Sveinsson, Mozart, Rossini o.fl. Berglind hefur sungið einsöng með mörgum kór- um og söng til skamms tíma í kór Þjóðleikshússins. Hún söng m.a. með kórnum í „My fair Lady“ og óperunni „Valdi örlaganna“. Hún starfaði sem söngkennari við Tón- listarskóla Árnesinga 1995–2001 en þá fluttist hún á Djúpavog. Heima- menn fjölmenntu á tónleikana og kunnu vel að meta þennan frábæra tónlistarflutning listamannanna. Morgunblaðið/Sólný Pálsdóttir Simon Marlow píanóleikari og Berglind Einarsdóttir mezzosópran buðu upp á fjölbreytta dagskrá á hinum fjölsóttu tónleikum á Djúpavogi. Mikil stemning á tónleikum Djúpivogur LEIKSKÓLABÖRN á Garðaseli á Akranesi tóku forskot á afmælisdag Jónasar Hallgrímssonar er boðið var til sýningar á afrakstri stífra æfinga á þulum og söngvum sem að sjálfsögðu voru öll á íslensku, í til- efni dags íslenskrar tungu. Fullt var út úr dyrum í húsnæði leikskólans og stigu allar deildir hans á svið en yngstir eru Lónarar. Holtarar koma þar næstir og Vík- arar eru elstir, eins og þeir eru nefndir af yngstu starfsmönnum leikskólans. Börnin af Víkinni lifðu sig inn í söngva sína er Morg- unblaðið leit inn á skemmtun þeirra, sumir sungu af miklum krafti og innlifun en aðrir lögðu meiri áherslu á hljómgæðin, en allt komst skýrt og greinilega til skila að lokum. Sungið af innlifun á ylhýrri íslensku Akranes Morgunblaðið/Sigurður Elvar Börnin á Vík sungu hátt og snjallt á skemmtuninni á Akranesi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.