Morgunblaðið - 27.11.2002, Page 41

Morgunblaðið - 27.11.2002, Page 41
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002 41 LÖGREGLAN í Keflavík lýsir eftir bifreiðinni SA-584 sem er dökk- grænn Ford Escort, árgerð 1997, fimm dyra hlaðbakur. Framstuðari bílsins er grænn og brotinn en aft- urstuðarinn er svartur. Þá eru fram- ljós bifreiðarinnar brotin og bifreiðin er eineygð að framan. Bílnum var stolið við afgreiðslu SBK í Grófinni í Keflavík sl. föstu- dag, kl. 19.29. Þeir sem hafa einhverjar upplýs- ingar um bifreiðina eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögregl- una í Keflavík í síma 420 2400 eða 112. Lýst eftir stolinni bifreið KIWANISKLÚBBURINN Set- berg gaf nýlega tölvu, prent- ara, pappír og aðra fylgihluti til sambýlisins að Markarflöt 1 í Garðabæ. Setberg hefur stutt við starfsemi sambýlanna á fé- lagssvæði klúbbsins og veitt þeim stuðning með marvísleg- um hætti. Við frágang tölvukaupanna var leitað aðstoðar hjá Ný- herja og Prentsmiðjunni Odda, sem komu að þessu verkefni sem stuðningsaðilar. Eftir að gjöfin hafði verið afhent var Setbergsfélögum boðið að skoða aðstöðu heimilisfólksins, en þar búa fimm manns. Frá vinstri: Steinþór Eyþórsson, forseti Setbergs, Þórhildur Svanbergsdóttir, for- stöðuþroskaþjálfi, Sigurður Axelsson, form. styrktarnefndar Setbergs, Guð- mundur Ottó Þorsteinsson, Gunnar Örn Erlingsson og Dagbjörg Þorleifsdóttir, heimilisfólk sambýlisins, Matthías G. Pétursson, Guðjón Smári og Hallmann Ósk- arsson, Setbergsfélagar. Gjöf til sambýlis CCU-samtökin kynna nýjan bækl- ing CCu-samtökin Crohns og Colit- is Ulcerosa, boða til fræðslufundar í tilefni af útgáfu bæklings um Crohns, svæðisgarnabólgu og Colit- is Ulcerosa, sáraristilbólgu, í dag, miðvikudaginn 27. nóvember, kl. 20 á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38. Erindi fundarins verður: Crohns- og Colitis-sjúkdómarnir al- mennt. Nýjungar í rannsóknum. Fyrirlesari verður Bjarni Þjóð- leifsson meltingarsérfræðingur og mun hann svara fyrirspurnum á eft- ir. Colitis Ulcerosa eða sáraristilbólga er bólgusjúkdómur í slímhúð ristils. Sjúkdómurinn takmarkast við rist- ilinn. Crohns eða svæðisgarnabólga er venjulega í neðsta hluta smág- irnis en getur þó verið hvar sem er í meltingarvegi þ.e. frá munni til endaþarms. Bæklingurinn inniheldur lýsingu al- mennt um bólgusjúkdóma í melting- arvegi, einnig nánar um báða þessa sjúkdóma og síðan um einkenni og meðferð við þessum sjúkdómum. Bæklingnum er verið að dreifa á all- ar sjúkrastofnanir, læknastofur og í apótek í landinu og mun dreifingu ljúka innan tveggja vikna. Félag Vinstri grænna í Reykjavík gengst fyrir opnum skemmti- og baráttufundi í Tjarnarbíói í kvöld 27. nóvember kl. 20. Ávörp flytja Steingrímur J. Sigfússon formaður VG, Pétur Tyrfingsson sálfræð- ingur og Bjarney Friðriksdóttir for- stöðumaður Alþjóðahússins. Rithöf- undarnir Andri Snær Magnason, Auður Jónsdóttir, Björn Th. Björnsson, Ragnhildur Richter og Steinar Bragi lesa kafla úr verkum sínum og baráttusveitin léttleik- andi, Fimmta herdeildin, flytur tón- list. Stuðningshópur kvenna sem fengið hafa krabbamein í eggja- stokka halda rabbfund í húsi Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8 í Reykjavík, í dag, miðvikudaginn 27. nóvember, kl. 17. Halla Þor- valdsdóttir sálfræðingur og Nanna Sigurðardóttir félagsráðgjafi koma á fundinn og kynna humyndir sínar um þjónustu á vegum Krabba- meinsfélagsins við krabbameins- sjúklinga og stuðningshópa félags- ins. Í DAG Á MORGUN Fræðsludagur á vegum Park- insonteymisins á Reykjalundi verð- ur haldinn fimmtudaginn 28. nóv- ember kl. 9–15 á göngudeild Reykjalundar. Fundurinn er fyrir fólk sem nýlega hefur verið greint með Parkinson-veiki og aðstand- endur þess. Markmið fræðsludagsins er að upplýsa þátttakendur um sjúk- dóminn og meðferðarmöguleika. Áhersla er lögð á virkni einstaklings- ins í meðferð og ábyrgð á eigin heilsu. Parkinson-samtökin kynna starfsemi sína og boðið verður upp á stutt viðtöl við fagfólk í Parkinson-teymi. Þátt- tökugjald er kr. 1.200, matur og kaffi innifalið. Fræðslufundur Fuglavernd- arfélagsins á þessum vetri verður haldinn fimmtudaginn 28. nóvember kl. 20.30, í stofu 101 í Lögbergi, húsi lagadeildar Háskólans. Arnþór Garð- arsson prófessor heldur erindi sem hann nefnir brimdúfur. Brimdúfa er annað heiti straumandar. Um þessar mundir er að ljúka könnun á fjölda og útbreiðslu straumandar kringum landið og verður sagt frá niðurstöð- unum á fundi Fuglaverndarfélagsins, auk þess sem straumöndin, ætt henn- ar og umhverfi verður kynnt í máli og myndum. Ættfræðifélagið heldur félagsfund fimmtudaginn 28. nóvember kl. 20.30 í húsi Þjóðskjalasafnsins á Laugavegi 162, 3. h. Guðfinna Ragnarsdóttir menntaskólakennari flytur erindi um Ættfræðinnar ýmsu hliðar. Erindinu fylgir lítil sýning: Leikur að ættfræði. Kaffiveitingar, umræður. Húsið opn- að kl. 20. Vinafélag Blindrabókasafnsins heldur sinn árlega jólafund fimmtu- daginn 28. nóvember kl. 20 í Blindrabókasafninu við Digranesveg í Kópavogi. Guðjón Friðriksson sagn- fræðingur les úr riti sínu um Jón Sig- urðsson, Sigurbjörg Þrastardóttir rithöfundur les úr skáldsögu sinni, Sólarsögu, og Þórarinn Eldjárn, rit- höfundur les úr smásagnasafni sínu Eins og vax. Kaffiveitingar. Allir vel- komnir. Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum stendur fyrir málþingi fimmtudaginn 28. nóvember kl. 11.30–14.30 í Norræna húsinu, um Hugbúnaðarþýðingar á Íslandi. Fyr- irlesarar verða: Vigdís Finn- bogadóttir, fyrrv. forseti Íslands, Björn Bjarnason, alþingismaður og fyrrum menntamálaráðherra, Peter Weiss, deildarstjóri Tungumála- miðstöðvar HÍ, Pálmi Hinriksson, framkvæmdastjóri Skýrr, og Anna Sigríður Gunnarsdóttir, verk- efnastjóri Skýrr. Morgunverðarfundir um vís- indagarða og frumkvöðlasetur verða haldnir fimmtudaginn 28. nóvember á Radisson SAS Hótel Sögu, og föstu- daginn 29. nóvember á Hótel KEA, Akureyri. Aðalfyrirlesari er Olle Stenberg, forseti Chalmers Inn- ovation og formaður Samtaka sænskra vísindagarða. Hann hefur komið að uppbyggingu og skipulagn- ingu fjölmargra vísindagarða. Víða í Svíþjóð hafa vísindagarðar og frum- kvöðlasetur verið notuð sem tæki í svæðisbundinni atvinnuþróun og hef- ur Olle Stenberg tekið virkan þátt í því. Olle Stenberg er þátttakandi í fjölda verkefna á sviði nýsköpunar til stuðnings sprotafyrirtækjum. Heiti Potturinn Trompmiði er auðkenndur með bókstafnum B en einfaldir miðar með E, F, G og H. Gangi vinningar ekki út bætast þeir við Heita pott næsta mánaðar. Birt með fyrirvara um prentvillur. 11. flokkur, 26. nóvember 2002 Einfaldur kr. 5.159.000.- Tromp kr. 25.795.000.- 43068B kr. 25.795.000,- 43068E kr. 5.159.000,- 43068F kr. 5.159.000,- 43068G kr. 5.159.000,- 43068H kr. 5.159.000,-                                   Fyrir jólin bjóðum við upp á glæsilegt mini-hlaðborð Rjómalöguð súpa með nýbökuðu brauði, hangikjöt, ávaxtafyllt lambalæri, hamborgarhryggur, kalkúnn, villipate, hreindýrapate, kartöflusalat, hrásalat, rauðkál, grænar baunir, 4 tegundir af síld, sjávarrétta- gratín, sykurbrúnaðar kartöflur, fiskipate, tartarsósa, rauðvínssósa, sveppasósa og ýmislegt fleira sem og eftirréttir. Jólahlaðborð á aðeins 2.100 kr. (Munið að panta strax) Pantanasími 568 0098 eða hjá Siggu í síma 699 1070 Fimmtudaga, föstudaga og laugardaga frá og með 28. nóvember Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Þú færð jólagjafirnar fyrir starfsfólkið hjá okkur Jólagjafir starfsfólksins WWW.EIGNAVAL.IS Landspildur til sölu úr landi Svínhaga í Rangárþingi Um er að ræða eina ca 20 ha spildu, ca 130 ha spildu og ca 150 ha spildu á mjög fallegum stöðum rétt við Rangá. Landið er sumt gróið en annað sendið. Fallegt umhverfi og glæsilegt útivistasvæði. Nánari uppl. fást hjá Eignaval og Gretti s. 898 8300. Tölvupóstur grettir@vortex.is og oskar@eignaval.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.