Morgunblaðið - 27.11.2002, Qupperneq 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
MIKILL áhugi er fyrir tónleikum
Nicks Caves, Sigur Rósar og Coldplay
sem allir fara fram í Reykjavík í des-
ember. Nú eru rétt tæplega 8.000 mið-
ar seldir á tónleika þeirra samanlagt
og ef uppselt verður á þá alla, sem fast-
lega er gert ráð fyrir, verða tæplega
10 þúsund miðar seldir.
Í gær varð uppselt á innan við
klukkutíma á seinni tónleika Nicks
Caves en samanlagt munu 2.000 manns
sækja tónleikana á Broadway 9. og 10.
desember. Yfir 4.500 miðar hafa selst á
tónleika Coldplay og Ash í Laugardals-
höllinni 19. desember sem þýðir að rétt
innan við 1.000 miðar eru eftir, þremur
vikum fyrir tónleika. Miðasala á
tvenna tónleika Sigur Rósar, sem
verða í Háskólabíói 12. og 13. desem-
ber, hófst á mánudaginn og seldust
1.200 miðar fyrstu tvo dagana en 1.900
miðar eru í boði.
Morgunblaðið/Júlíus
Sumir biðu í þrjá tíma í röð í gærmorg-
un eftir miðum á tónleika Nicks Caves.
8.000 manns
á stórtónleika
í desember
8.000 á/48
Í GRUNNSKÓLA Mjóafjarðar eru
einungis fjórir nemendur í 1. til 8.
bekk og mun skólinn vera sá fá-
mennasti á landinu. Ekki búa heldur
margir í Mjóafirði, eða um 30 manns,
en byggðin er talsvert dreifð, jafnvel
svo dreifð að það er of tímafrekt fyr-
ir tvíburana Jónu Rán og Ólöfu Rún
Sigurjónsdætur að fara heim úr
skólanum í hádegishléinu. Þær eru
13 ára og jafnframt elstu nemend-
urnir í skólanum. Skólafélagar
þeirra eru Egill Jóhannsson, 12 ára,
og Róshildur Ingólfsdóttir, sex ára.
Kennari þeirra er Margrét Sigfús-
dóttir og kennir allar námsgrein-
arnar. „Þau sem eru í efri bekkj-
unum mæta kl. 8.10 og þá kenni ég
námsgreinar sem þarfnast meira
næðis, s.s. erlendu tungumálin,“ seg-
ir Margrét. „Eftir fyrstu tvær
kennslustundirnar kemur 1. bekk-
ingurinn okkar og við erum í tímum
til kl. 12 en þá er hádegishlé í 30
mínútur. Síðan höldum við áfram í
tvær til þrjár kennslustundir en er-
um aldrei lengur en til 14.40.“
Skólinn tekur þátt í sameig-
inlegum viðburðum með öðrum skól-
um í nágrenninu og í talsverðri sam-
vinnu við Egilsstaðaskóla. Skólinn er
einnig í samfloti með nemendum úr
Borgarfirði eystra í sundkennslu í
Hallormsstaðaskóla.
Nemendurnir hennar fjórir eru
með framtíð sína á hreinu og vís-
indastörf virðast heilla. Þannig ætl-
ar Egill að leggja líffræðina fyrir sig
en þess má geta að hann var um tíma
eini nemandi skólans hér á árum áð-
ur. „Það var svolítið erfitt þegar
kom að hópverkefnum,“ segir hann
og kímir. Ólöf Rún og Jóna Rán ætla
í læknisfræði báðar tvær, nánar til-
tekið ætlar Jóna Rán að verða dýra-
læknir. Landbúnaðarstörf eiga hug
Róshildar, sem er staðráðin í að
verða bóndakona. Hún á hundana
Trygg og Snata og heldur upp á
ketti og kindur.
Margrét kennari sést hér ásamt
nemendum sínum, Róshildi, Ólöfu
Rún, Jónu Rán og Agli. Morgunblaðið/RAX
Þrjú í
vísindi
og ein í
búskap
Með framtíðina á hreinu í grunnskólanum í Mjóafirði þótt fá séu
VERIÐ er að und-
irbúa gerð kvik-
myndar um Stein
Steinarr skáld.
Jón Óttar Ragn-
arsson og fyrir-
tæki hans í Los
Angeles standa að
gerð myndarinn-
ar.
„Steinn hefur alltaf staðið mér
nærri,“ segir Jón Óttar, „og eftir
því sem ég hef búið lengur erlendis
hef ég gert mér grein fyrir því að
hann er maðurinn sem best hefur
skilgreint hugmyndafræði Íslend-
inga fyrir framtíðina.“
Liður í að kynna verkefnið er
gerð sjónvarpsmyndar um Stein,
sem unnin er í samvinnu við Skjá
einn sem sýnir hana annan í jólum.
Kvikmynd
gerð um
Stein
Steinarr
Jón Óttar
Ragnarsson
Þetta er/22
LOFTFERÐASAMNINGUR milli
Íslands og Kína var áritaður í Pek-
ing í gær við lok samningavið-
ræðna íslenskra og kínverskra
embættismanna. Felur hann m.a. í
sér réttindi til handa íslenskum
flugfélögum til flugs til Kína með
farþega og vörur. Búist er við að
samningurinn verði undirritaður
fljótlega á næsta ári en hann er af-
rakstur af tíu daga för sendinefnd-
ar sem skipuð er embættismönnum
frá utanríkisráðuneytinu, sam-
gönguráðuneytinu og Flugmála-
stjórn, ásamt fulltrúum Atlanta,
Flugleiða, Íslandsflugs og Bláfugls.
Að sögn Sverris Hauks Gunn-
laugssonar, formanns íslensku
sendinefndarinnar, var einnig árit-
aður loftferðasamningur við Suður-
Kóreu á mánudaginn en hann
gangi þó skemur en samningurinn
við Kína og semja þurfi um frekari
útfærslu. Áhugavert verði að
gaumgæfa betur í framhaldinu
hvaða möguleikar opnist í framtíð-
arsamskiptum Íslendinga og Asíu-
ríkjanna í heild. „Segja má að þetta
opni nýjar víddir í samskiptum við
þessar þjóðir.“
Erling Aspelund, upplýsinga-
fulltrúi Atlanta, segist fagna þessu
framtaki. Löngu tímabært væri að
eitthvað gerðist í þessum málum,
frá stofnun lýðveldisins árið 1944
hafi aðeins verið gerðir tólf milli-
ríkjasamningar um flugmál.
Erling segir að þessi samningur
geti hugsanlega opnað ný viðskipta-
tækifæri fyrir Atlanta. „Boeing er
með miklar viðhaldsstöðvar í Kína
og við gætum tekið með farma
þangað um leið og vélar færu í
skoðun. Þetta eru því mjög góðar
fréttir.“
Í utanríkisráðuneytinu er gert
ráð fyrir að loftferðasamningar við
Singapúr, Hong Kong og Macau
verði undirritaðir á fyrri hluta
næsta árs. Viðræður við Japani eru
skemmra á veg komnar en stjórn-
völd þar hafa þó gefið vonir um að
íslensk flugfélög fái að stunda
leiguflug til Japans á næsta ári.
Íslensk flugfélög geta flutt
vörur og farþega til Kína
Loftferðasamningar í Asíu sagðir
opna nýjar víddir í samskiptum