Morgunblaðið - 28.11.2002, Side 23
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2002 23
Einföld
og áhrifarík
leið til
grenningar
Tilboð í
LEIÐTOGAKJÖR verður í dag í
Likud-flokki Ariels Sharons, for-
sætisráðherra Ísraels og keppir hann
við Benjamin Netanyahau, fyrrver-
andi forsætisráðherra og núverandi
utanríkisráðherra. Sharon ítrekaði í
gær stuðning sinn við þá hugmynd að
Palestínumenn fengju í fyllingu tím-
ans að stofna eigið ríki á svæðum sín-
um með ströngum skilyrðum en Net-
anyahu er andvígur öllum slíkum
tillögum. Er Sharon spáð stórsigri og
hefur 20% forskot í könnunum.
Talsmenn stjórnvalda í Ísrael vís-
uðu því í gær á bug að tveir af hátt-
settum mönnum Hamas og Al Aqsa-
herdeildanna, tveggja herskárra
skæruliðasamtaka Palestínumanna,
hefðu verið drepnir með eldflaug frá
þyrlu í gærmorgun. Útvarpið í Ísrael
hafði eftir embættismönnum að um
„vinnuslys“ hefði verið að ræða en
með því orðalagi er átt við að menn-
irnir, sem höfðu bækistöð í flótta-
mannabúðum í Jenin, hafi verið að
setja saman sprengju.
Yasser Abed Rabbo, ráðherra upp-
lýsingamála í Palestínustjórn Yassers
Arafats, fordæmdi í gær Ísraela fyrir
að „myrða“ mennina tvo í Jenin.
Sagði hann að um væri að ræða með-
vitaða tilraun Sharons til að reyna að
bregða fæti fyrir tilraunir Palestínu-
stjórnar og Fatah-samtakanna, sem
Arafat fer fyrir, til að ræða við hin öfl-
ugu Hamas-samtök og efla samheldni
meðal Palestínumanna um að vinda
ofan af ofbeldinu og hefja aftur frið-
arviðræður. Búast mætti við frekari
árásum Ísraela. Sagði Rabbo Sharon
vera að „skipuleggja blóðsúthellingar
næstu daga“ til að styrkja stöðu sína.
Meintur sjálfsmorðingi sprengdi
sig í gær á Gaza eftir misheppnaða
árás á varðstöð hermanna og að sögn
Palestínumanna skutu Ísraelar annan
mann er gekk milli húsa í flótta-
mannabúðum við Nablus til að vekja
fólk og minna á morgunbænir.
Jólahátíðarhöldum aflýst
Yasser Arafat sagði í gær að hátíð-
arhöldum vegna jólanna hefði verið
aflýst í Betlehem, fæðingarborg
Frelsarans og væri ástæðan vera her-
námsliðs Ísraela í borginni. Ísraelar
lögðu Betlehem undir sig á ný sl.
föstudag eftir að sjálfsmorðingi varð
11 Ísraelum að bana í tilræði í stræt-
isvagni. Borgin hefur nú verið lýst
lokað svæði, þar ríkir útgöngubann að
næturlagi og fréttamenn fá takmark-
aðan aðgang. Embættismaður í
Betlehem sagði líklegt að þó yrði leyft
að syngja hefðbundna miðnætur-
messu í Fæðingarkirkjunni um jólin.
Ariel Sharon
spáð stórsigri
í leiðtogakjöri
Tveir skæruliðaleiðtogar drepnir,
að sögn Ísraela við sprengjugerð
Jenin, Ramallah. AP, AFP.
ALÞJÓÐLEGU mannréttindasam-
tökin Amnesty International hafa
krafist þess að kínversk stjórnvöld
láti lausa úr fangelsi alla þá sem hafa
verið handteknir fyrir að tjá skoðanir
sínar á Netinu, að sögn BBC. Í nýrri
skýrslu samtakanna segir að minnst
33 hafi verið teknir fastir á þessum
forsendum og tveir fanganna virðist
hafa dáið af völdum slæmrar með-
ferðar og jafnvel pyntinga.
Umrætt fólk er oft sakað um ólög-
legan undirróður en einnig ákært fyr-
ir að miðla leynilegum upplýsingum
um Netið. Talsmaður stjórnvalda í
Peking sagði að Amnesty hefði áður
birt ásakanir gegn Kínastjórn er
hefðu ekki átt sér „neina stoð í raun-
veruleikanum“.
Fleiri netnotendur eru í Kína en
öllum öðrum löndum heims að
Bandaríkjunum undanskildum og
fjölgaði þeim um 12 milljónir fyrstu
sex mánuði ársins, eru nú 45,8 millj-
ónir.
Sérhver sem rápar …
„Netnotendur [í Kína] lenda æ oft-
ar í því að brjóta gegn flóknum og
viðamiklum reglum sem takmarka
grundvallarmannréttindi þeirra,“
segir í skýrslu Amnesty. „Sérhver
sem rápar um Netið getur átt á hættu
geðþóttaákvörðun um varðhald og
fangelsi.“ Samtökin lýsa áhyggjum af
því að erlend fyrirtæki hafi selt kín-
verskum stjórnvöldum forrit sem
notuð séu til að framfylgja ritskoðun.
Um tíma var leitarforritið Google
bannað í Kína og heimasíðum þar
sem kemur fram einhvers konar
gagnrýni á stjórnvöld er að jafnaði
lokað strax. Meðal þeirra sem hafa
verið handteknir eru pólitískir and-
ófsmenn og rithöfundar en einnig
liðsmenn hugleiðslusamtakanna Fal-
un Gong sem eru bönnuð í Kína. Þeir
tveir sem taldir eru hafa dáið í fang-
elsi eru liðsmenn Falun Gong.
Kínastjórn rit-
skoðar Netið
Amnesty segir tugi manna í fangelsi
og tjáningarfrelsi netnotenda heft
ÍBÚAR Mílanóborgar á Norður-
Ítalíu ganga eftir tréplönkum sem
lagðir hafa verið til að fólk komist
leiðar sinnar eftir götu sem er á
kafi í flóðvatni. Flóð vegna gríðar-
legra rigninga síðustu daga hafa
valdið miklum spjöllum og um-
ferðarörðugleikum víða á N-Ítalíu.
AP
Gengið
yfir vatni
TEPPI Á
STIGAHÚS
- got t verð -
komum og gerum verðtilboð