Morgunblaðið - 28.11.2002, Qupperneq 43
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2002 43
LEIKFÉLAG Reykjavíkur og Ís-
lenski dansflokkurinn efna til sam-
keppni um frumsamið dansleikverk
eða verk er flokkast gæti undir dans-
leikhús. Hugtakið dansleikhús var
fyrst notað í kringum 1920 af dans-
höfundunum Kurt Jooss og Rudolf
von Laban sem báðir voru braut-
ryðjendur í hinni frjálsu nútíma-
danslist sem fólk hefur fengið að
kynnast á síðustu árum í sýningum
Íslenska dansflokksins og annarra
dansflokka. Þegar talað er um dans-
leikhús (sem sumir kalla kóreógraf-
ískt leikhús) er átt við dansaðan leik
þar sem innihaldið er gjarnan frá-
sögn eða saga. Sumir hafa skilgreint
dansleikhús á þann veg að það sé að
skapa myndir á leiksviði með hreyf-
ingum, leiksviðslýsingu og tónlist.
Einkum er óskað eftir að þeir sem
hafa menntun og reynslu í leiklist,
dansi, tónlist eða öðrum listgreinum
sendi inn tillögur sínar. Óskað er eft-
ir hugmyndum að 10–15 mínútna
verki fyrir blandaðan hóp leikara og
dansara. Ekki skal gera ráð fyrir
stærri hóp en sex manns. Valin
verða 4–6 verk til frekari æfinga og
mun Leikfélag Reykjavíkur og Ís-
lenski dansflokkurinn bjóða höfund-
um aðstöðu í Borgarleikhúsinu í því
skyni.
Áætlaður æfingatími verður u.þ.b.
4 vikur í apríl/maí 2003. Verkin
verða sýnd á sérstakri leiklistarhátíð
í Borgarleikhúsinu í júní 2003 og
verðlaun veitt þeim er skara framúr.
Máttarstólpar og stuðningsaðilar
keppninnar eru SPRON, Sjóvá/Al-
mennar og Flugleiðir.
Útfærð hugmynd ásamt upplýs-
ingum um menntun og starfsferil
skal send Borgarleikhúsinu Lista-
braut 3, 103 Reykjavík, fyrir 30. jan-
úar 2003 merktar Dansleikhús.
Samkeppni
um dans-
leikverk
„MINNI“ nefnist sýning Rósu
Sigrúnar Jónsdóttur sem nú
stendur yfir á efri hæðinni í Gall-
eríi Skugga. Titilinn má túlka sem
„minningu“ „yrkisefni“ og/eða
„mótíf“. Rósa útskrifaðist frá
skúlptúrdeild Listaháskóla Íslands
árið 2001 og hefur verið nokkuð ið-
in við sýningahald síðan. Hún átti
fyrirtaks verk á samsýningu í
Listasafni ASÍ í fyrra þar sem hún
strengdi blúndur yfir stigann inn í
sýningarsalinn svo þær litu út eins
og kóngulóarvefir. Hún endurtók
svo leikinn skömmu síðar undir
stiganum í Galleríi i8, en bætti við
„blacklight“-perum svo hvítar
blúndurnar lýstu upp. Fyrir inn-
setninguna í Galleríi Skugga hefur
Rósa safnað smáum hlutum á ferð-
um sínum um hálendið sem hún
sýnir í löngu, mjóu neti sem hang-
ir úr lofti sýningarrýmisins líkt og
vefir með fangaða bráð. Rósa not-
ar „blacklight“ perur svo hvítir
þræðir pokanna lýsa í rýminu. Auk
netpokanna sýnir hún ljúfa og
ljóðræna texta á hvítum blöðum
sem í „blacklight“-lýsingunni virð-
ast svífa frá veggnum. Textarnir
greina frá stöðum á hálendi Ís-
lands og tengjast jafnframt hlut-
unum. Eiginleikar sjálfra hlutanna
virðast þó ekki skipta Rósu miklu
máli og gerir hún jafnvel í því að
fela þá. Efni og rýmiskennd virðist
liggja listakonunni mest á hjarta
enda hefur hún augljóslega næmt
auga fyrir þeim atriðum. Sýningin
er á heildina vel unnin og er jafn-
framt fallegur óður til hálendisins.
Í klefa og kjallara gallerísins
sýnir Stella Sigurgeirsdóttir verk
undir heitinu „Flugufótur“. Stella
útskrifaðist úr grafíkdeild Listahá-
skóla Íslands árið 2000. Eftir út-
skrift hefur hún að mestu unnið
bókverk. Á sýningunni í Skugga
heldur listakonan á ný mið og
skapar innsetningar í rýmin tvö í
kjallaranum. Við stigann og á
ganginum hefur hún komið fyrir
skiltum sem sýna mynd af flugu.
Fyrirmyndin vænti ég að séu skilti
sem oft eru við hraðbrautir til að
vara okkur við því að hreindýr eða
elgur geti stokkið út á brautina.
En auðvitað eru það flugurnar sem
verða verst úti á hraðbrautunum. Í
kjallaraganginum hangir fjöldi af
plastflugum úr loftinu og frá hátal-
ara heyrist hávært suð. Verkið býr
yfir eins konar B-mynda stemn-
ingu og er afar skoplegt á að líta. Í
herberginu sýnir listakonan svo
tvær bækur. Í annarri bókinni er
plastfluga og í hinni, sem reyndar
er tvær bækur í einni, eru hand-
skrifuð orð. Bækurnar eru til sýnis
á plexíglerstöplum sem eru upp-
lýstir að innanverðu. Birtan tekur
yfir rýmið og athyglin fer að
mestu á stöplana líkt og hjá flug-
um sem dragast að ljósi. Fyrir vik-
ið verða sjálfar bækurnar að auka-
atriði og er mér ekki ljóst hvers
vegna svo íburðarmikil framsetn-
ing, sem í sjálfu sér er ágætis
rýmisverk, er notuð fyrir bækurn-
ar og innihald þeirra.
Skordýr í Skugga
MYNDLIST
Gallerí Skuggi
Rósa Sigrún Jónsdóttir og Stella Sig-
urgeirsdóttir. Sýningin er opin alla daga
frá kl. 13–17 nema mánudaga. Henni lýk-
ur. 1. desember.
RÝMISINNSETNINGAR
Jón B.K. RansuVerk Rósu Sigrúnar Jónsdóttur í Galleríi Skugga.
www.urvalutsyn.is
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666
og hjá umbo›smönnum um land allt
Úrval-Úts‡n
Frábær 10 daga fer›. Gist er á Hotel
Shandrani me› hálfu fæ›i og skí›apassinn
er innifalinn. Flogi› er í beinu leiguflugi til Verona.
*Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting í 10 nætur me› hálfu fæ›i á Hotel Shandrani,
lyftukort, akstur til og frá flugvelli erlendis. Fararstjóri er Örn Kjærnested.
15. janúar - Ein me› öllu
Sí›ustu sætin í frábæra vikufer› á skí›i í Ítölsku
ölpunum, Selva Val Gardena e›a Madonna di Campiglio.
*Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting í viku, akstur til
og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
1. febrúar - Vikufer›
Flug og bíll
1. febrúar í viku
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
1
95
12
11
/2
00
2
3. janúar - 12 dagar
Sí›ustu sætin
45.980 kr.*
Ver›:
112.480 kr.*
á mann í tvíb‡li
Ver› á mann
46.100 kr.*
á mann, m.v. 4 í bíl
53.300 kr. á mann,
m.v. 2 í bíl.
Ver›dæmi:
83.880 kr.*
á mann í tvíb‡li á Garni Miara.
*Innifali›: Flug og flugvallarskattar.
á skí›i í vetur
Sértilbo› fyrir námsmenn 3. janúar til Ítalíu.
Námsmenn athugi›
19.900 kr.
Ver› á mann a›ra lei›ina (flug og flugvallarskattar).
*Innifali›: Flug, flugvallarskattar og bílaleigubíll í viku.
Ód‡r flugsæti til Verona.
10
dagar