Morgunblaðið - 28.11.2002, Side 47
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2002 47
Meira á mbl.is/Aðsendar greinar
Á netinu
„Sex daga stríðið“
ÞAÐ gefur tilefni til umhugsunar
að forseta löggjafarþings þjóðar-
innar skuli þykja það sjálfsagt rétt-
lætismál að ráðherra í ríkisstjórn
Íslands skuli hafa slíkt málfrelsi að
honum sé heimilt að dreifa óhróðri
um samborgara sína á opinberum
vettvangi, og saka þá tilhæfulaust
og án sannana um að hafa tekið
þátt í lögbrotum til að sviðsetja
fréttir.
Ekki verður annað ráðið af
greinarstúf sem Halldór Blöndal,
forseti Alþingis og þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, birti í Morg-
unblaðinu föstudaginn 22. nóvem-
ber. Þar skrifar þingforsetinn að
honum blöskri að Árni Mathiesen
sjávarútvegsráðherra hafi verið
dæmdur fyrir meinyrði eftir að ráð-
herrann ræddi «vafningalaust og
ærlega um sjónvarpsmynd af brott-
kasti frá dragnótabát» (tilvitnun úr
grein Halldórs Blöndal). Forseti
löggjafarvaldsins er sem sagt far-
inn að þræta við dómstóla í landinu.
Niðurstaða dómsins er skýr.
Ráðherrann hafði ekki fullan rétt
til að viðhafa þau ummæli sem
hann hefur nú verið dæmdur fyrir.
Tjáningarfrelsið hlýtur að hafa
sín takmörk, þegar rætt er um aðr-
ar persónur. Dómurinn yfir Árna
Mathiesen varðar ekkert málfrelsi
sjórnmálamanna. Ég er ansi
hræddur um að það hefði ekki verið
liðið ef ég hefði fullyrt að nafn-
greindur íslenskur stjórnmálamað-
ur léti stjórnast af annarlegum
hvötum í starfi á erlendri grundu
sem miðaðist að því að grafa undan
starfi íslenskra stjórnvalda. Hvað
þá ef ég hefði bætt um betur og
sagst hafa vissu fyrir því að þessi
stjórnmálamaður væri á kafi í ein-
hverri ólöglegri spilllingu. Fyrir
þessu hefði ég að eigin sögn áreið-
anlegan heimildarmann, sem ég
hefði reyndar ekki talað sjálfur við,
en ég hefði séð þessar fullyrðingar
hafðar eftir honum.
Sjávarútvegsráðherra lagði mér í
munn orð um að ég ætlaði að vinna
gegn íslenskum stjórnvöldum er-
lendis. Hér fylgir bein tilvitnun í
orð ráðherrans í viðtali við sjón-
varpsstöðina Fjölsýn í Vestmanna-
eyjum 23. nóvember í fyrra:
«Magnús Þór lýsti því hérna yfir að
hann ætlaði sér sko að koma hérna
höggi á fiskveiðistjórnunarkerfið
erlendis og hérna, og … koma,
hvernig hann nú orðaði það, að
hérna skemma fyrir íslenskum
stjórnvöldum og því sem íslensk
stjórnvöld eru að reyna að gera í
fiskveiðistjórnun á erlendri
grundu». Þetta hef ég aldrei sagt.
Ráðherrann fullyrti einnig að ég
hefði með vitund og vilja tekið þátt
í samsæri um sviðsetningu mynda,
án þess þó að hafa neinar sannanir.
Vissa hans fyrir þessu átti að
byggjast á blaðaviðtölum við skip-
stjóra bátsins sem þegar var orðinn
margsaga í málinu. Árni Mathiesen
tengdi mitt meinta samsæri dæm-
um um tvær þekktar fréttafalsanir
varðandi fíkniefni. Ummæli ráð-
herra í þessu máli má finna á vef-
síðu Frjálslynda flokksins
(www.xf.is).
Ég gat ekki setið undir þessu,
enda er ég saklaus. Brottkast á
fiski er talið alvarlegt brot á fisk-
veiðistjórnunarlögunum. Refsi-
ramminn er allt að sex ára fangelsi.
Árni Mathiesen úthrópaði mig sem
afbrotamann sem ekki einungis var
að taka þátt í grófu fiskveiðibroti,
heldur líka að falsa fréttir til að
blekkja alla þjóðina. Ráðherranum
var ítrekað boðið að biðjast afsök-
unar á ummælum sínum og draga
þau til baka. Hann taldi enga
ástæðu til þess. Því var mér nauð-
ugur einn kostur að stefna honum.
Ég hef engan áhuga á því að vera
stimplaður saklaus sem glæpamað-
ur af ráðherra í ríkisstjórn Íslands.
Það er athyglisvert að lesa að
hinum aldna blaðamanni og núver-
andi forseta Alþingis blöskri að
sjávarútvegsráðherra og flokks-
bróðir hans skuli hljóta dóm fyrir
að reyna með þessum hætti að
eyðileggja feril og orðstír frétta-
manns sem var ekki að gera neitt
annað en að sinna skyldum sínum. Í
þessu tilfelli að afla mynda sem
sýna fólki eina af dekkstu hliðum
við nýtinguna á sameiginlegri fisk-
veiðiauðlind allrar þjóðarinnar.
Halldór Blöndal telur augljós-
lega að sá dómur sem kveðinn var
upp fyrir Héraðsdómi Reykjaness
fyrir réttum mánuði sé ósanngjarn
í meira lagi, og vitnar þar meðal
annars til nýlegra dóma Hæsta-
rétts í meinyrðamálum. Ég hygg þó
að í þeim málum hafi hvergi verið
gengið jafnlangt í ummælum og
ásökunum, og sjávarútvegsráð-
herra gerði í minn garð. Sá ráð-
herra trúir víst enn að hvítt sé
svart í þessu máli, án þess að hafa
þó nokkru sinni reynt að leggja sig
eftir því að heyra sannleikann í
málinu. Ekki frekar en Halldór
Blöndal.
Báðir ættu að hætta að velta sér
upp úr þessu máli sem hefur fengið
allt of mikla athygli á kostnað hins
raunverulega vanda sem er brott-
kastið. Það hefur valdið þjóðfélag-
inu milljarða tjóni á undanförnum
árum. Árni Mathiesen og Halldór
Blöndal gerðu vel ef þeir reyndu nú
að einbeita sér að því að huga að
nauðsynlegum umbótum á fisk-
veiðistjórnunarkerfinu, meðal ann-
ars til að stöðva brottkast. Ásamt
flokksfélögum sínum og banda-
mönnum í Framsóknarflokknum
hafa þeir reyndar haft bráðum átta
ár til þess. Án þess að skilja mikið
eftir sig.
Nei, það er ekki skrýtið þó að
manni hafi dottið í hug að bjóða sig
fram til þings fyrir Frjálslynda
flokkinn.
Réttlætiskennd
gamals blaðamanns
Eftir Magnús Þór
Hafsteinsson
„Forseti lög-
gjafarvalds-
ins er sem
sagt farinn
að þræta við
dómstóla í landinu.“
Höfundur er fiskifræðingur og
fréttamaður.
myndi það að fylgja markvissri
stefnu Reykjalundar og fast mótuð
meðferð til reykleysis vera til gagns
fyrir þessa sjúklinga. Frá 1. mars
2001 hefur reykleysismeðferð hafist
við innköllun sjúklings í endurhæf-
ingu. Í innköllunarviðtali er sjúkling-
urinn spurður um reykingar. Öllum
sem reykja er sagt frá meðferðartil-
boði Reykjalundar og þeir hvattir til
að íhuga alvarlega að nota tækifærið
og hætta reykingum. Við komu á
Reykjalund er kynningarfundur, þar
sem rætt er um ávinning reykleysis
og sjúklingnum boðið upp á að skrá
sig í meðferð.
Í reykleysismeðferðinni felst að
sjúklingurinn fær vikulega fræðslu,
stuðningsfundi með hópi, einstak-
lingshæfðan stuðning og lyfjameð-
ferð ef þarf. Reykleysismeðferð
Reykjalundar er hluti af endurhæf-
ingarmeðferð sjúklingsins, þannig
að hann sækir einnig aðra meðferð-
artíma, svo sem leikfimi, göngur,
iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun og fleira.
Styrkleikar þessarar reykleysismeð-
ferðar liggja annars vegar í því að
sjúklingnum býðst að taka á lífsstíl
sínum á heildrænan hátt, ásamt því
að starfsfólkið sem sér um meðferð-
ina kemur af öllum endurhæfingar-
sviðum Reykjalundar. Meðferðar-
hópurinn samanstendur af
hjúkrunarfræðingum, læknum,
sjúkraþjálfara og sjúkraliðum, alls
um 20 manns.
Séra Hallgrímur Pétursson skáld
fæddist 1614 og andaðist 1674. Hann
vissi margt um skaðsemi tóbaks-
neyslu, eins og sjá má í eftirfarandi
úrdrætti úr Tóbaksvísum:
Tóbak nef neyðir
náttúru eyðir …
út hrákann breiðir …
minnisafl meiðir …
Tóbak róm ræmir
remmu fram kvæmir
tungu vel tæmir
tár af augum flæmir
háls með hósta væmir
heilann fordæmir
og andlit afskræmir.
Það má kallast merkilegt að við
séum enn, meira en þrem öldum eftir
að þessi sannleikur leit dagsins ljós,
að berjast við afleiðingar þessarar
neyslu.
Jónína er hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri og
Marta líffræðingur á Reykjalundi.
Fundarherbergi
Mörkinni 3, sími 568 7477
www.virka.is
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 og laugard. frá kl. 10-14
Samkvæmisefni
Margar gerðir
Björn Jónsson hagfræðingur
svarar bréfi til blaðsins um Mið-
austurlönd
Þú sparar
kr. 6.590
Kynntu þér tilboðin!
Spennandi
bökunar-
tilboð!
GREEN
ww
w.
for
va
l.is