Morgunblaðið - 28.11.2002, Síða 62
DAGBÓK
62 FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
er Hvidbjörnen vænt-
anlegt og út fara Helga-
fell og Freyja RE.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofa, kl. 9–
12.30 bókband og öskju-
gerð, kl. 9.45–10 helgi-
stund, kl. 10.15 leikfimi,
kl. 11 boccia, kl. 13–16.30
opin smíða- og handa-
vinnustofa.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 9–16 handavinna,
kl. 9–17 fótaaðgerðir, kl.
13 bókband, kl. 14–15
dans.
Félagsstarfið Furugerði
1. Í dag er venjuleg dag-
skrá og á morgun er jóla-
bingó kl. 14. Aðventu-
skemmtunin verður 5.
des. nk. kl. 20.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mán. og fim. Mán. kl. 16
leikfimi. Fim. kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing kórs eldri
borgara í Damos. Laug.:
kl. 10–12 bókband, línu-
dans kl. 11. Innkaupa-
ferð í Kringluna í dag kl.
13. Miðasala hafin á jóla-
hlaðborð 12. des. Uppl. í
síma 586 8014.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan, kl. 9–12
íkonagerð, kl. 10–13,
verslunin opin, kl. 13–16
spilað.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl. 9–
12 íkonagerð, kl. 10–13
opin verslunin, kl. 13–16
spilað, kl. 9.30 dans-
kennsla.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12 böð-
un, kl. 9–16.30 gler-
skurður, kl. 10 leikfimi,
hárgreiðslustofan opin
kl. 9–14, kl. 15.15 línu-
dans og fl., kl. 15.15
danskennsla. Söngtími
kl. 13.30. Jólabingó föst.
29. nóv. kl. 13.
Félagsstarfið, Lönguhlíð
3. Kl. 8 böðun, kl. 9 fóta-
aðgerðir, kl. 10 hársnyrt-
ing, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félag eldri borgara í
Garðabæ. Jólahlaðborð í
Kirkjuhvoli föst. 6. des.
nk. kl. 19.30. Uppl. og
pantanir hjá Arndísi í s.
565 7826 eða 895 7826 og
á skrifstofu félagsins í s.
565 6627 fyrir föst. 29.
nóv.
Félag eldri borgara
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Í dag:
Púttað í Hraunseli kl. 10,
bingó kl. 13.30, gler-
skurður kl. 13. Opið hús
kl. 14, upplestur, söngur,
kaffiveitingar. Gler-
skurður kl. 13. Á morg-
un: Tréútskurður kl. 13,
brids kl. 13.30 og pútt í
Hraunseli kl. 13.30.
Námskeið í leirmótun kl.
13, laus pláss. Dans-
leikur á föstudag, kl.
20.30. Caprí Tríó leikur.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Opið hús fyrir
félagsmenn laug. 30. nóv.
kl. 14 í Gullsmára 13.
Dagskrá: Sagt frá sam-
komulagi Landssam-
bands eldri borgar og
ríkis. Upplestur o.fl. Ein-
ar Friðgeir Björnsson,
harmónikkuleikari mæt-
ir. Kaffi og meðlæti.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan er
lokuð. Fim.: brids kl. 13.
Framsögn kl. 16.15.
Brids fyrir byrjendur kl.
19.30. Almennur félags-
fundur með þingmönn-
um Reykjavíkur laug. 30.
nóv. í Ásgarði, Glæsibæ,
kl. 13.30.
Jólafagnaður í Ásgarði,
Glæsibæ, mið. 4. des. nk.
og hefst kl. 20. Hugvekju
flytur Guðrún Ásmunds-
dóttir. Karlakórinn Kátir
karlar syngur. Létt jóla-
lög sungin. Danshópur
Sigvalda sýnir línudans
og dansað á eftir.
Ljósaskreytingar á
Akranesi, stutt dagsferð
15. des., uppl. á skrif-
stofu FEB.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 10.30 helgistund. Kl.
13.15 „Kynslóðir saman í
Breiðholti“. Félagsvist í
samstarfi við Fellaskóla.
Uppl. í s. 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 og kl. 9.55 leik-
fimi, handavinnustofan
opin, leiðbeinandi á
staðnum kl. 9.30–15, kl.
9.30 keramik og leir-
mótun, kl. 13 ramma-
vefnaður, gler og postu-
línsmálun, kl. 15 enska,
kl. 17 myndlist, kl. 16. 15
og kl. 17.15 kínversk
leikfimi. Sýnikennsla og
sala á jólaskreytingum
verður í dag frá kl. 13–
16. Laxnessdagur í dag,
fimmtudag.
Gullsmári, Gullsmára 13.
Kl. 9.15 postulínsmálun,
kl. 10 ganga, kl. 13 brids,
kl. 13–16 handavinnu-
stofan opin, leiðbeinandi
á staðnum.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna og keramik,
kl. 10 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og bútasaumur,
kl. 10 boccia, kl. 13
handavinna, 13.30 fé-
lagsvist. Fótaaðgerðir,
hársnyrting. Laugardag-
inn 30. nóv. verður basar
„Hvassóportið“ til efl-
ingar félagsstarfinu í
Hvassaleiti. Margt til
sölu, s.s. föt, kökur,
handavinna, sultutau.
Basarinn verður opinn
frá kl. 13.30–16.
Hana-nú Kópavogi.
Munið Laxnessdaginn í
Gjábakka í dag. Lagt af
stað í ferðina kl. 10. Síð-
ustu forvöð eru að kaupa
miða á Vínarhljómleika
Sinfóníhljómsveitar Ís-
lands 11. janúar. Farið
verður að Fossá í Kjós að
höggva jólatré 8. des. kl.
13. Uppl. í Gjábakka
554 3400 og Gullsmára
564 5261.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmtud.: Kl. 10, aðra
hverja viku, púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd. Vatnsleikfimi í
Grafarvogslaug á
þriðjud. kl. 9.45 og
föstud. kl. 9.30. Uppl. í s.
5454 500.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa og
tréskurður, kl. 13–16.45
leir, kl. 10–11 ganga, kl.
14–15 jóga. Jólabingó í
dag kl. 14.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12 að-
stoð við böðun, kl. 9.15–
15.30 alm. handavinna,
kl. 10–11 boccia, kl.13–16
kóræfing og mósaík.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður, körfugerð
og morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir og boccia,
kl. 13 handmennt og spil-
að. Aðventu- og jólakvöld
5. des. kl. 17.45. Uppl. og
skráning í síma 561 0300.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digranes-
kirkju.
Félag áhugamanna um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl. 11.
Háteigskirkja eldri
borgarar. Kl. 14 í Setr-
inu, samverustund,
„vinafundur“, fólk hjálp-
ast að við að vekja gaml-
ar og góðar minningar,
sr. Tómas og Þórdís
þjónustufulltrúi sjá um
stundina.
Hallgrímskirkja, eldri
borgara starf. Leikfimi-
æfingar undir stjórn
sjúkraþjálfara þriðjud.
og föstud. kl. 13. Spilað á
spil, kaffi og spjall. Súpa
í hádeginu.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58–60. Biblíulestur kl. 17
í umsjá Skúla Svavars-
sonar. Allar konur vel-
komnar.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 mánud. og
fimmtud. Skráning kl.
12.45, spil hefst kl. 13.
Ættfræðifélagið heldur
félagsfund í kvöld, fim.
28. nóv., kl. 20.30 í húsi
Þjóðskjalasafnsins á
Laugavegi 162, 3.h. Guð-
finna Ragnarsdóttir
menntaskólakennari
flytur erindi um Ætt-
fræðinnar ýmsu hliðar.
Erindinu fylgir lítil sýn-
ing: Leikur að ættfræði.
Kaffi, umræður. Húsið
opnað kl. 20.
Kvenfélagið Heimaey
heldur sína árlegu jóla-
sölu í Mjóddinni fim. og
föst. 28. og 29. nóv. Fé-
lagskonur, munið jóla-
fundinn 2. des. nk. – til-
kynnið þátttöku.
Kvenfélag Bústaðasókn-
ar . Jólafundur í safn-
aðarheimilinu 9. des. kl.
19.15. Jólamatur, happ-
drætti og helgistund.
Skráning hjá Guðríði í s.
568 5834, Elínu 553 2077
og Erlu Levy 897 5094.
Í dag er fimmtudagur 28. nóv-
ember, 332. dagur ársins 2002.
Orð dagsins: Jesús svaraði: Ritað
er: Eigi lifir maðurinn á einu saman
brauði, heldur á hverju því orði, sem
fram gengur af Guðs munni.
(Matt. 4,4).
K r o s s g á t a
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 lak, 8 dugnaðurinn, 9
vel látinn, 10 ferskur, 11
móka, 13 sár, 15 málms,
18 skýla, 21 kjökur, 22
upplýsa, 23 hæðin, 24
óhemja.
LÓÐRÉTT:
: 2 skærur, 3 þekkja, 4
furða, 5 heiðursmerkjum,
6 álít, 7 tölustafur, 12
tunga, 14 muldur, 15
ávaxtasafi, 16 þor, 17
slark, 18 herðaskjólið, 19
eðlinu, 20 fífl.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 bílar, 4 förla, 7 vélar, 8 öngul, 9 tál, 11 lóan, 13
grær, 14 álaga, 15 hörð, 17 treg, 20 bik, 22 molla, 23 nú-
tíð, 24 rugla, 25 rúðan.
Lóðrétt: 1 búvél, 2 lalla, 3 rýrt, 4 fjöl, 5 rígur, 6 aular, 10
ábati, 12 náð, 13 gat, 15 hímir, 16 róleg, 18 ritað, 19 gæð-
in, 20 baga, 21 knár.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI ræddi umferðarmáleigi alls fyrir löngu og langar
til að halda aðeins áfram á þeirri
braut. Í desember verður lögreglan
væntanlega á varðbergi gagnvart
ölvunarakstri, ekki síst vegna þess
að fólk á það stundum til að aka
heim eftir jólaglögg á vinnustöðum.
Það er fjári hart að þurfa að borga
tugi þúsunda í sekt fyrir að ofmeta
eigin getu til aksturs eftir tvö rauð-
vínsglös. En svona er þetta nú samt.
Ölvunarakstur er alltaf ölvunar-
akstur, skiptir ekki máli hvort
drukkinn var tvöfaldur vodki eða
snarpheitt rauðvín með rúsínum.
Víkverji telur að herferð lögregl-
unnar gegn þessari tegund af ölv-
unarakstri hafi verið þarft og gott
verk. Ef ekki hefðu verið gefin skýr
skilaboð um að þetta væri hreint og
klárt lögbrot, væri án efa stórhættu-
legt að vera vegfarandi í sídegisum-
ferðinni í desembermánuði. Um-
ferðin er nógu snúin samt, þótt
ölvunarakstur bætist ekki við.
x x x
SÍÐAN eru það endurskinsmerk-in. Það er ekki einhlítt að gang-
andi vegfarendur noti þau, því mið-
ur. Helst eru það yngstu börnin sem
eru með mjög góð endurskinsmerki,
sem gera sennilega meira gagn en
nokkurn gæti grunað. En ungling-
arnir eru oftar en ekki án þeirra.
Það er í raun ótrúlegt að það þurfi
sífellt að reka áróður fyrir notkun
endurskinsmerkja á þessu landi. Er
það ekki bara sjálfsagt mál? Greini-
lega ekki, því miður. Víkverji vildi
gjarnan vera með nætursjónauka í
bílnum hjá sér en að svo komnu máli
vill hann leyfa sér að gera þá kröfu
til gangandi vegfarenda að þeir beri
endurskinsmerki.
Þegar Víkverji stundaði útreiðar í
nágrenni Reykjavíkur fyrir nokkr-
um árum, var mjög algengt að
hestamenn settu endurskinsmerki á
fætur hrossa sinna. Þetta var alveg
ótrúlega sniðugt og því fleiri end-
urskinsmerki, þeim mun meiri virð-
ingu báru ökumenn fyrir knapa og
hesti hans. Þeir sem gengu lengst í
þessu, settu endurskinsmerki á alla
fjóra fætur hestsins og sína eigin
fætur að auki. Síðan var úlpan
gjarnan með endurskinsmerki, jafn-
vel tveimur. Þessar ráðstafanir
gerðu það að verkum að ökumenn
drógu ekki aðeins úr hraða, heldur
jafnvel stöðvuðu alveg eða tóku
sveig, löturhægt, framhjá hinum
ríðandi manni. Þessi endurskins-
merkjanotkun var að sumu leyti
tíska, en svo sannarlega gagnleg.
Hvernig ætli þetta sé núna? Vík-
verji er bara að velta þessu fyrir sér.
x x x
ÞAÐ tekur bara örfáar mínúturað fá bílalán, sagði í auglýsingu
frá Sjóvá-Almennum tryggingum
sem birt var með Formúlunni, sem
lauk í haust. Á undan var spilaður
bútur úr Formúlu 1 þar sem ekið er
á ofsahraða og síðan er klippt strax
yfir einhvern meðaljón sem stendur
mannalegur við fjölskyldubílinn.
Víkverja finnst að tryggingafélög
eigi ekki að skírskota til hraðakst-
urs í auglýsingum sínum og vera að
espa fólk svona upp. Skrýtið að
tryggingafélag sem lætur sig um-
ferðaröryggi miklu varða skuli gera
svona auglýsingu. Félagið gerði
hins vegar tvær aðrar auglýsingar í
sama pakka sem hvöttu til fyrir-
myndaraksturs og er það vel.
Fjölskyldu leitað
ÉG, Dóra Kristín, missti
fjölskyldu mína þegar ég
var barn og finnast nöfn
foreldra minna ekki í kerf-
inu.
Ég þarf nauðsynlega að
fá upplýsingar um fjöl-
skyldu mína. Ef einhver
getur veitt mér þær þá vin-
samlegast hafið samband
við: Vin, Rauði kross Ís-
lands, sími 561 2612.
Reykmettað bingó
ÉG fór í bingó í Vinabæ sl.
sunnudag og hafði mikið
gaman af en þangað hafði
ég aldrei komið áður.
Það eina sem varpaði
skugga á kvöldið var að á
staðnum var svo mikið
reykt að ég hef aldrei orðið
vitni að öðru eins. Þegar ég
kom á staðinn var allt orðið
fullt og ekki laust pláss í
reyklausa salnum og urð-
um við því að vera í aðal-
salnum innan um reykinga-
fólkið.
Mér er spurn, þarf fólk
virkilega að reykja svona
mikið þótt það sé á bingó?
Getur fólk ekki hamið sig
aðeins og haft reykingar í
lágmarki?
Ein reyklaus.
Röng stefna
Á BAKSÍÐU Morgun-
blaðsins 20. nóv. sl. er slá-
andi frétt um að R-listinn
ætli að hækka leikskóla-
gjöld um 8% um áramót.
Þessa yfirlýsingu var ekki
að finna í glansbæklingi
borgarstjóra fyrr á þessu
ári.
Er það stefna borgar-
stjóra að ráðast á garðinn
þar sem hann er lægstur?
Vill ekki borgarstjóri líka
láta koma fram að hún
muni einnig hækka fast-
eignagjöld á nýju ári?
Vitað er um töluvert af
fólki sem fór á kjörstað með
hálfum huga til að kjósa
Ingbjörgu borgarstjóra.
Einnig hefur borgarstjóri
boðað fækkun á félagsmið-
stöðvum fyrir eldra fólkið,
það var ekki að finna í áð-
urnefndum bæklingi.
Ef þetta er stefna jafn-
aðarmanna þá hefur orðið
mikil breyting. Ég lýsi því
yfir að ég segi mig úr R-
listanum, ég get ekki stutt
flokk sem ræðst á minni
máttar í Reykjavík.
Þetta er stefna í ranga
átt.
Hafliði Helgason.
Tapað/fundið
Silfurnæla
í óskilum
SILFUR brjóstnæla, víra-
virki, fannst fyrir framan
Þjóðmenningarhúsið á
Hverfisgötu sl. mánudag.
Uppl. í síma 690 5292.
Karlmanns-
gleraugu týndust
STÓRGERÐ karlmanns-
gleraugu með brúnni Max
Mara-umgjörð töpuðust
fyrir nokkrum vikum, lík-
legast á skemmtistað í mið-
borginni.
Sá sem hefur fundið þau
vinsamlega hafi samband í
síma 862 9192.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
LOKS er hann kominn, að-
stoðarmaðurinn sem mig
vantaði fyrir 40 árum.
Þetta er margmiðlun-
ardiskur, sem ég rakst á
núna á dögunum, hann er
einfaldur í notkun og leiðir
eldabuskur í gegnum
frumskóga matar-
gerðarinnar, skref fyrir
skref.
Ég er ein af þeim sem
ekki er gædd mat-
reiðsluhæfileikum og hef
því alltaf átt erfitt með
eldamennskuna. Ég þarf
nákvæmar leiðbeiningar
og gleymi aldrei fyrstu jól-
unum í búskap, þá fór ým-
islegt úrskeiðis og jóla-
steikin heppnaðist ekki
vel, einföldustu hlutir
vöfðust fyrir mér og ég var
feimin að láta það uppi. Í
gegnum árin hef ég þurft
að fylgja matreiðsluleið-
beiningum vandlega ef vel
á að fara og hafa þær oft
ekki verið nógu ítarlegar.
Nú hafa menn áttað sig á
að margir vilja nákvæmar
leiðbeiningar.
Þessi margmiðlunar-
diskur, sem heitir „Leikur
að elda“, er yndislegur,
með lifandi myndum af
matreiðslunni og frábær-
um uppskriftum af hátíð-
armatnum og fleiru. Þar
eru einnig smáatriðin, sem
skipta kannski öllu máli
þegar maður vill vanda
sig.
Vil því vekja athygli á
þessu framtaki, því nú geta
einnig þeir sem ekki eru
fæddir með „matreiðslu-
genið“ bjargað sér og hinir
bætt við kunnáttuna.
Húsmóðir
af eldri kynslóðinni.
Þarf einhver hjálp við jólasteikina?