Morgunblaðið - 28.11.2002, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2002 67
HLJÓMSVEITIN Sign vakti tals-
verða athygli á síðasta ári, vann
til verðlauna á Músíktilraunum
Tónabæjar, að vísu undir aðeins
öðru nafni, og sendi frá sér breið-
skífuna Vindar og breytingar fyr-
ir jólin. Þá skipuðu sveitina
Ragnar Zolberg, gítarleikari og
söngvari, Egill Örn Rafnsson
trommuleikari, Hörður Stef-
ánsson gítarleikari, Sigurður
Ágúst bassaleikari og Baldvin
Freyr gítarleikari. Fyrir stuttu
kom út önnur plata sveitarinnar,
kallast Fyrir ofan himininn.
Skerpt á rokkinu
Ragnar Zolberg segir að laga-
smíðar fyrir nýja plötu hafi hafist
um leið og upptökum var lokið á
Vindum og breytingum á síðasta
ári. Þegar hlustað er á plötuna
nýju má glöggt heyra að hún er
talsvert frábrugðin fyrri skífunni
og að sögn Ragnars er það gert
með ráðnum hug, þeir hafi ákveð-
ið að skerpa á rokkinu. „Þetta
kom einhvern veginn saman eins
og við vildum hafa það, varð
skýrara og heilsteyptara,“ segir
hann og bætir við að þeir hafi
einmitt farið rétta leið að sínu
mati. Sign hefur lítið gert af því
að spila síðustu mánuði og lögin
því ekki heyrst utan hljóðversins,
„það má eiginlega segja að við
höfum verið svolítið latir, en það
er heldur ekki svo mikið um tón-
leika fyrir bönd eins og okkur“.
Fullt af gítarsólóum
Frá því síðasta plata þeirra fé-
laga kom út hefur fækkað um
einn í sveitinni, Hörður gítarleik-
ari er hættur. Ragnar segir að
það hafi átt sér nokkurn aðdrag-
anda og þegar þeir fóru að vinna
plötuna megi segja að hann hafi
verið kominn út úr sveitinni.
„Baldvin Freyr byrjaði með okk-
ur þegar við vorum að klára að
taka upp síðustu plötu og hann
hefur tekið mikinn þátt í því sem
við höfum verið að gera, við tveir
höfum unnið mikið saman í gít-
urum og útsetningum,“ segir
hann en því er við að bæta að
þeir Ragnar og Baldvin sömdu
saman flest laganna, en þau lög
sem hann var búinn að semja
vann hann með Baldvin. „Ég er
náttúrlega frekur og ég veit ekki
hvað er gott að vinna með mér,“
segir Ragnar og hlær við, „en
það er mikill metnaður í því sem
við erum að gera og okkur finnst
gaman að spila saman, það er allt
fullt af gítarsólóum sem við spil-
um saman,“ segir hann og þver-
tekur fyrir að það sé of mikið af
gítarsólóum á plötunni, „þau
mættu vera miklu fleiri“.
Ragnar segist alinn upp við
bönd eins og Skid Row og Kiss,
en hafi síðan farið að hlusta á
þyngri tónlist. „Svo kynntist ég
Badda og þá vildi svo til að við
vorum báðir í sömu pælingum í
rokkinu og ákváðum að stíga
skrefið til fulls, fara alveg út í
80’s tónlist, meira rokk og meira
hár,“ segir hann og hlær.
Útgáfutónleikar fyrir ofan him-
ininn verða síðan í Austurbæ,
gamla Austubæjarbíói, næstkom-
andi föstudag, en að sögn Ragn-
ars verður allt gert til þess að
gera þá tónleika sem glæsileg-
asta, með alvöru hljóð- og ljósa-
kerfi. Tónleikarnir hefjast kl
20:30 og ekkert aldurtakmark.
Meira
rokk og
meira
hár
Morgunblaðið/Þorkell
„Það er mikill metnaður í því sem við erum að gera og okkur finnst gaman
að spila saman,“ segir Ragnar Zolberg, söngvari og gítarleikari, sem er
hér lengst til hægri, við hlið bróður síns og félaga í Sign.
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
www.regnboginn. is
Hverfisgötu 551 9000
Frábær rómantísk
gamanmynd með
Reese Witherspoon,
Rupert Everett, Judi
Dench og Colin Firth
úr Bridget Jones Diary
í aðalhlutverkum.
Sýnd kl. 5.30.
Það
er ekkert eins
mikilvægt og að
vera Earnest, það
veit bara enginn
hver hann er!
Roger Ebert
Sýnd kl. 8 og 10. Stranglega bönnuð innan 16 ára.
Búðu þig undir
nýja tilraun í
hrylling. Það
geta allir séð
þig
og það heyra all-
ir í þér.
En það getur
enginn hjálpað
þér!
Mögnuð hryll-
ingsmynd.
FYRSTI OG SKELFILEGASTI KAFLINN
Í SÖGU HANNIBAL LECTER
Kvikmyndir.com
HK DV
SV Mbl
Sýnd kl. 10. B. i. 16. .
Þegar tveir ólíkir menn
deila getur allt gerst.
Stórbrotin og óvenjuleg spennumynd með
Samuel L. Jackson og Óskarsverðlaunahafanum, Ben Affleck.
Margir vilja meina að hér sé á ferðinni ein besta og eftirminnilegasta kvikmynd ársins.
Sjáið
Jackie Chan
í banastuði
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 6 og 8.
www.laugarasbio.is
SV Mbl
RadíóX
ÓHT Rás2
1/2
Kvikmyndir.is
SK RadíóX
ÓHT Rás 2