Morgunblaðið - 30.11.2002, Side 12
FRÉTTIR
12 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
UNDANFARNA daga og vikur hafa
verið boðaðar hækkanir á mjólkuraf-
urðum, brunatryggingum og leik-
skólagjöldum sem flestar taka gildi
frá og með næstu áramótum. Þá
ákvað Síminn í þessari viku að hækka
heimtaugaleigu um 9% sem felur í sér
2,01% hækkun á meðalsímreikningi
landsmanna og ÁTVR hefur hækkað
verð á tóbaki um 12% að meðaltali og
sterku víni um 10% en þá er átt við vín
sem er sterkara en 15% svo og bland-
aða drykki.
Í tilkynningu frá Samtökum ferða-
þjónustunnar er á það bent að Ísland
og Noregur skipti með sér heimsmet-
um í áfengisgjaldi, Ísland í léttum vín-
um en Norðmenn í sterku áfengi og
bjór. Munurinn sé hins vegar sá að
Norðmenn séu smám saman að lækka
sín áfengisgjöld á meðan verið sé að
hækka þau á Íslandi.
Reiknað er með að tekjuauki rík-
issjóðs vegna kaupa almennings á
áfengi og tóbaki muni nema allt að
1.100 milljónum króna á ársgrund-
velli og eru áhrifin á vísitölu neyslu-
verðs talin verða innan við 0,3 %. Geir
H. Haarde fjármálaráðherra segir að
hækkunin muni ekki hagga þeim
verðbólgumarkmiðum sem ríkis-
stjórnin hafi sett sér.
Fleiri hækkanir hafa verið boðaðar
að undanförnu og sveitarfélög á höf-
uðborgarsvæðinu hafa mörg hver
íhugað hækkanir á leikskólagjöldum í
tengslum við gerð fjárhagsáætlana
fyrir næsta ár og nokkur sveitarfélög
hafa samþykkt hækkanir sem nema
6–8 prósentum.
Leikskólagjald fyrir einstæðar
mæður hækki um 14,8%
Í nýrri fjárhagsáætlun Hafnar-
fjarðabæjar sem lögð verður fyrir
bæjarstjórn í fyrri umræðu á þriðju-
dag verður tekin fyrir tillaga um 11%
hækkun á leikskólagjöldum.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafn-
arfjarðar, segir að þrátt fyrir boðaða
hækkun séu leikskólagjöld í Hafnar-
firði lægri heldur en t.a.m. í Reykja-
vík fyrir boðaða hækkun þar.
Almennt gjald fyrir 8 klukku-
stunda vistun á leikskóla í Hafnarfirði
er í dag 18.480 kr. en verður 20.640 ef
tillagan nær fram að ganga og tekur
breytingin þá gildi 1. janúar nk. Lúð-
vík bendir á að gjaldskráin hafi ekki
verið hækkuð í rúm tvö ár. Staðið hafi
til að hækka hana í fyrra en því verið
frestað og því sé um verulega upp-
safnaða þörf á hækkunum að ræða.
„Við erum auðvitað búin að vera að
vinna á mjög breiðum grunni í nefnd-
um og ráðum bæjarins að tillögum til
að ná fram þessum 300 milljóna króna
sparnaði sem við höfum stefnt að og
ætlum að standa við í þessum áfanga
nú.“
Svokallað forgangsgjald, sem
stendur einstæðum foreldrum og
starfsmönnum leikskóla til boða,
hækkar ívið meira eða um rúm 14,8%.
Gjaldið er 10.800 kr. en verður 12.400
ef af verður. Á bilinu 50–60 börn
starfsmanna njóta þessara kjara.
Engar breytingar eru fyrirhugaðar á
systkinaafslætti, að sögn Lúðvíks,
sem verður með óbreyttu sniði nema
hvað í tillögunum er lagt til að systk-
inaafsláttur af fæðisgjaldi verði af-
numinn sem hefur í för með sér
minniháttar hækkun á gjöldunum.
Engar breytingar hjá Seltjarn-
arnesi og Bessastaðahreppi
Fleiri sveitarfélög hafa boðað
hækkanir í tengslum við afgreiðslu
fjárhagsáætlana fyrir næsta ár.
Borgarráð samþykkti fyrr í þess-
um mánuði tillögu leikskólaráðs um
að hækka gjaldskrá Leikskóla
Reykjavíkur um 8% frá og með 1. jan-
úar næstkomandi. Sem dæmi hækkar
almennt gjald fyrir 8 tíma vistun úr 25
þúsund í 27 þúsund krónur á mánuði.
Núverandi gjaldskrá hefur verið í
gildi síðan 1. ágúst í fyrra.
Þá hækkar gjaldskrá gæsluleik-
valla og fara miðagjöld úr 100 í 200
krónur og fyrir einstaka heimsókn úr
150 í 300 krónur.
Spurð um ástæður hækkana fyrir
skömmu sagði borgarstjóri að hér
væri um uppsafnaða þörf að ræða og
að ekki yrði hægt að „loka fjárhags-
áætlun leikskólanna án hækkunar-
innar.“
Bæjarráð Kópavogs staðfesti fyrir
viku 6% hækkun leikskólagjalda frá
og með 1. janúar nk. Miðað við átta
tíma vistun hækkar almenna gjaldið
úr 24.685 kr. í 26.400 kr. á mánuði.
Þær upplýsingar fengust á bæjar-
skrifstofum Mosfellsbæjar að bæjar-
ráð myndi að öllum líkindum fjalla um
fyrirhugaðar hækkanir á leikskóla-
gjöldum í næstu viku og munu þær
taka mið af gjaldskrám nágranna-
sveitarfélaganna ef af verður.
Í Garðabæ er gert ráð fyrir 7%
hækkun leikskólagjalda í fyrirhuguðu
frumvarpi að fjárhagsáætlun sem að
öllum líkindum verður afgreitt á fundi
bæjarstjórnar á fimmtudag, sam-
kvæmt upplýsingum frá bæjarskrif-
stofu Garðabæjar.
Á Seltjarnarnesi eru ekki fyrirhug-
aðar breytingar á leikskólagjöldum
og á skrifstofu Bessastaðahrepps
fengust þær upplýsingar að engar
ákvarðanir hafi verið teknar í skóla-
nefnd þar að lútandi.
Einn lítri af nýmjólk upp um
þrjár krónur
Fleiri hækkanir eru fyrirhugaðar
sem munu koma við pyngju neytenda
á næstunni.
Heildsöluverð mjólkur- og mjólk-
urafurða mun hækka um 3,36% að
meðaltali frá áramótum sem þýðir að
með óbreyttu hlutfalli smásöluálagn-
ingar mun nýmjólk í eins lítra umbúð-
um hækka um þrjár krónur.
Þá hefur Póst- og fjarskiptastofnun
heimilað Símanum að hækka heim-
taugarleigu um 9% og hefur Síminn
ákveðið að hækka hana sem því nem-
ur frá og með 1. desember nk. Hækk-
unin felur í sér 100 kr. hækkun á mán-
aðargjaldi heimilissíma sem verður
1.211 kr. eftir breytingu. Í tilkynn-
ingu frá Símanum segir að breyting-
arnar séu gerðar svo að kostnaður
hverrar þjónustueiningar endur-
speglist í verðskrá. Að sögn Heiðrún-
ar Jónsdóttur, upplýsingafulltrúa
Símans, munu Póst- og fjarskipta-
stofnun og Síminn skoða áfram mögu-
legar kostnaðarbreytingar og segir
Heiðrún að ekki sé hægt að útiloka
frekari hækkanir hjá Símanum þegar
fram líða stundir.
Fyrr í þessum mánuði tilkynntu
Sjóvá-Almennar tryggingar og
Tryggingamiðstöðin einnig hækkanir
á iðgjaldi lögboðinna brunatrygginga
frá og með næstu áramótum og hjá
VÍS eru hugsanlegar hækkanir til
skoðunar í ljósi tíðra brunatjóna á
árinu og þar af leiðandi slæmrar af-
komu greinarinnar.
Ef dæmi er tekið af hefðbundnu
íbúðarhúsnæði í Reykjavík með 12
milljóna króna brunabótamati þá
hækkar hlutur Sjóvár úr 2.640 kr. í
3.960, eða 50%, en heildariðgjaldið
hækkar um 12%.
Að sögn Sveins munu þessar ið-
gjaldahækkanir ekki hafa áhrif á vísi-
tölu þar sem gert sé ráð fyrir að lang-
stærstur hluti iðgjaldsins fari í
greiðslu tjóna. Hér sé um svokallaða.
inn- og úthreyfingu að ræða.
Frekari hækkanir á vöru og þjónustu boðaðar frá og með áramótum
Leikskólagjöld,
tryggingar,
mjólk og síma-
gjöld hækka
!" # $%&$' '&'% $('&' ')&'*'
+ !" # %') $#, $' $'
!
- . /
0
1
2 (* $* ,$ '* )* ,, #(* '* #,* %#( (% * (( %, (# , )# #(%
#$
%
!"
!
'
(
$
)
*
+
„ÞETTA er algjört stílbrot á því
sem við höfum verið að stunda í
heilt ár, að reyna að halda verð-
bólgunni niðri og halda henni í
skefjum,“ segir Halldór Björns-
son, varaforseti Alþýðusambands
Íslands, um hækkanir á áfengi og
tóbaki og aðrar fyrirhugaðar
hækkanir sem boðaðar hafa verið
að undanförnu.
„Í öðru lagi verða menn að gera
sér grein fyrir því að þessar
hækkanir á áfengi og tóbaki hafa
gífurleg áhrif á lánamarkaðinn.
Þannig að verðtryggð íbúðalán
hækka um cirka tvo milljarða hjá
þeim sem þau hafa og það er eng-
in smáupphæð.“
Halldór bendir á að áfengi og
tóbak sé í dag 4,3% af neyslu-
vísitölunni og að hækkun á þess-
um vörum ein og sér þýði 0,3%
hækkun á vísitölu neysluverðs.
„Það sem okkur finnst ein-
kennilegt er að það er auðvitað að
koma í ljós núna þessi mikla lækk-
un sem orðið hefur á skattaum-
hverfi fyrirtækja. Einhvern veg-
inn þarf ríkissjóður að tryggja sér
tekjur og þá er það þannig að
hinn almenni maður er farinn að
borga meira.“
Halldór segir að það hafi vakið
sérstaka athygli hans að vinstri-
grænir skyldu samþykkja afbrigði
til að afgreiða mætti frumvarp um
hækkun á áfengisgjaldi og tóbaks-
gjaldi strax.
„Þeir hafa talið sig vera útverði
þeirra sem mega sín lítils en
styðja þetta í gegnum þykkt og
þunnt,“ segir Halldór.
„Menn hljóta að gera sér grein
fyrir því að verkalýðshreyfingin
gekk í það að breyta þessari verð-
bólgu sem var komin í tæp tíu pró-
sent fyrir ári og
færa hana nið-
ur í það sem
hún var í dag
sem gerði það
að verkum að
samningum var
ekki sagt upp.
Ég veit ekki
hvort verið er
að undirbúa að
við förum í
sömu vinnubrögð aftur því hver
verður vísitalan í febrúar ef þetta
heldur áfram? Verður það þá
þannig að við verðum að segja
samningunum upp?“ spyr Halldór.
Hann bætir við að hér sé um af-
skaplega „heimskulegar og
skammsýnar aðgerðir“ að ræða
af hálfu stjórnvalda.
Forystumenn ASÍ koma
saman í næstu viku
„Þessu er hellt yfir mann án
þess að það sé nokkuð talað við
okkur. Mér finnst það fyrir neðan
allar hellur að við skyldum ekki
vera látnir vita af þessum ósköp-
um fyrr en þau dynja yfir því þau
hafa svo víðtæk áhrif.“
Forseti og framkvæmdastjóri
ASÍ eru erlendis og væntanlegir
til landsins í næstu viku. Halldór
segir að forystumenn ASÍ muni
þá ræða málin og hver hugsanleg
viðbrögð þeirra verði vegna
hækkana að undanförnu.
„Hvort að menn vilji kalla sam-
an einhverja fundi út af þessu get-
ur vel verið að sé nauðsynlegt. Ég
held að menn þurfi að ná víðtækri
samstöðu um hvernig við ætlum
að bregðast við því ég held að það
langi engan í verðbólguflóð aft-
ur,“ segir Halldór Björnsson.
Halldór Björnsson, varaforseti ASÍ, um þær hækkanir sem boðaðar hafa verið
Halldór
Björnsson
„Heimskulegar
og skamm-
sýnar aðgerðir“
SJÁLFSTÆÐISMENN í Árnes-
sýslu eru ekki sáttir við hvernig
stilla á upp á lista Sjálfstæðisflokks-
ins í Suðurkjördæmi en greint hefur
verið frá því í fréttum að uppstilling-
arnefndin muni gera tillögu um að
Kjartan verði í 4. sæti.
„Aðalfundur Sjálfstæðisfélagsins
Óðins á Selfossi haldinn fimmtudag-
inn 28. nóvember gerir þá kröfu til
uppstillingarnefndar Kjördæmis-
ráðs sjálfstæðismanna í Suðurkjör-
dæmi að Kjartani Ólafssyni alþing-
ismanni verði stillt upp í einu af
þremur eftsu sætunum í tillögu
nefndarinnar. Bent er á að í Árnes-
sýslu er um þriðjungur kjósenda í
nýju Suðurkjördæmi og algjörlega
óviðunandi ef hlutur héraðsins á
framboðslista Sjálfstæðisflokksins
verður ekki í samræmi við þá stað-
reynd,“ segir í ályktun fundarins.
Fulltrúar kjördæmisráðanna í Ár-
nessýslu komu saman vegna málsins
í gær og að sögn Ólafs Hafsteins
Jónssonar, formanns Óðins, eru
menn ekki sáttir við hvernig stilla á
upp á listann og voru fulltrúarnir al-
veg samstiga í stuðningi sínum við
Kjartan Ólafsson að sögn Ólafs.
„Við munum brýna þá afstöðu
okkar á fundi kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins sem haldinn er í dag,
laugardag,“ segir Ólafur Hafsteinn.
Vilja Kjartan
í eitt af
þremur efstu
sætunum
BIRGÐIR af blóði í Blóðbankanum
er nú komnar yfir lágmark eða í 600
einingar. „Það hefur verið mjög góð
aðsókn í dag (gær) og í raun alla
þessa viku. Við erum að ná að vinna
upp lagerstöðuna og erum komin yf-
ir 600 einingar sem eru algerar lág-
marksbirgðir þannig að ástandið
hefur skánað mikið. Þetta hafa verið
frábærar viðtökur og við kunnum
þeim sem hafa gefið mikla þökk,“
segir
Sigríður Ósk Lárusdóttir, for-
stöðumaður hjá Blóðbankanum. „En
við þurfum á meira að halda á næstu
vikum og við hvetjum fólk til að
koma og gefa eftir helgina og þá líka
nýja blóðgjafa. Það er ekki þannig að
við séum núna búin að bjarga mál-
unum næsta hálfa árið, langt í frá.
Það eru stórar aðgerðir fyrirhugað-
ar í næstu viku, s.s. hjartaðagerðir,
og maður veit aldrei hvað fer mikið í
þær.
Búið að ná
lágmarks-
blóðbirgðum
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
GÆSLUVARÐHALD yfir Íslend-
ingi um þrítugt og Þjóðverja á sex-
tugsaldri sem voru handteknir
vegna innflutnings á um 900
grömmum af amfetamíni og um
einu kílói af hassi, var í gær fram-
lengt til 20. desember.
Á þriðjudag handtók fíkniefna-
deild lögreglunnar í Reykjavík ann-
an Íslending um þrítugt í tengslum
við málið og var hann samdægurs
úrskurðaður í gæsluvarðhald til 17.
desember. Báðir Íslendingarnir
hafa áður komið við sögu fíkniefna-
mála.
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli
handtók Þjóðverjann þegar hann
kom til landsins frá Frankfurt 7.
október sl. Í kjölfarið var Íslend-
ingur um þrítugt handtekinn og nú
hefur rannsókn lögreglunnar leitt
til þess að annar Íslendingur hefur
verið handtekinn.
Þriðji mað-
urinn í
gæslu-
varðhald