Morgunblaðið - 30.11.2002, Síða 26

Morgunblaðið - 30.11.2002, Síða 26
ERLENT 26 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÍSRAELSKIR kjósendur munu veita Likudflokki Ariels Sharons forsætisráðherra brautargengi í væntanlegum kosningum í janúar, en styðja mörg stefnumál Verka- mannaflokksins. Kemur þetta fram í niðurstöðum könnunar sem blað- ið Ha’aretz birti í gær. Samkvæmt könnuninni mun Likudflokkurinn rúmlega tvöfalda sætafjölda sinn á þingi, úr 19 í 41, en Verkamannaflokkurinn missa fimm sæti og fara í 20, sem er það minnsta sem hann hefur nokkurn tíma haft. Með stuðningi hægri- öfgaflokka gæti Likudflokkurinn tryggt sér meirihluta á þinginu. En könnunin sýnir líka að þótt kjósendur ætli að tryggja Sharon forsætisráðherraembættið, annað kjörtímabilið í röð, er meirihluti þeirra fylgjandi þeirri stefnu vinstrimanna að binda enda á 35 ára yfirráð Ísraela á Gaza Sharon var kjörinn formaður Likudflokksins með miklum yfir- burðum í fyrradag er hann sigraði Benjamin Netanyahu utanríkisráð- herra og fyrrverandi forsætisráð- herra. Í kosningunum 28. janúar mun Sharon etja kappi við nýkjör- inn formann Verkamannaflokksins, friðarsinnann Amram Mitzna, sem er borgarstjóri í Haifa. Fimmtíu og níu prósent þátttak- enda í könnun Ha’aretz kváðust fylgjandi tillögu Mitznas um ein- hliða brottflutning ísraelsks her- liðs frá Gaza og að landnema- byggðir gyðinga þar yrðu lagðar niður. 37% voru andvíg þessari til- lögu. Kjósa Likud en styðja Verkamannaflokkinn Jerúsalem. AFP. AP Sharon þakkar stuðninginn í formannskosningunum í Likudflokknum. ÆTTINGI syrgir eitt fórn- arlamba skotárásar í Beit Shean í Norður-Ísrael sem borið var til grafar í gær. Tveir vopnaðir Pal- estínumenn myrtu sex Ísraela í árásinni, er gerð var á kjörstað í formannskosningu Likud- flokksins. Reuters Sorg í Ísrael ÓTTAST er, að harður vetur fari í hönd í Mongólíu, þriðja árið í röð. Áætlað er, að rúmlega átta milljónir skepna hafi fallið í harðindunum síðustu tvo vetur og miklir þurrkar í sumar benda til, að nýr fimb- ulvetur, sem Mongólar kalla „Zud“, sé í vændum. Fjölskyldan hennar Oyunchimeg missti 12 skepnur á síðasta vetri en nú verða hún og börnin hennar að þreyja veturinn ein því að eiginmaðurinn er farinn með hrossahópinn í önnur héruð þar sem kuldinn bítur ekki al- veg jafn sárt. Hann kemur aftur í vor en þangað til verður Oyunchimeg að reyna að halda lífi í fénu, geitunum og kúnum, til dæmis með því að drýgja fóðrið með trjá- greinum og þurri mykju. Mongólar, 2,4 milljónir talsins, eru sárafá- tækir en eftir hrun kommúnismans sneru margir sér aftur að búskap og hirðingjalífi. Áætlað er, að bústofninn hafi verið um 24 milljónir skepna snemma á síðasta áratug en 1998 var hann kominn í 32 milljónir. Er öll sú fjölgun gengin til baka vegna harðind- anna síðustu tvö árin. Strax í september nú í haust var lýst yfir neyðarástandi í sjö hér- uðum af 21 vegna kulda, snjóa og algers hagleysis. Tvær milljónir skepna eru fallnar og harðindin hafa að auki kostað 18 manns lífið. Beinn fjárhagslegur skaði er talinn vera um átta milljarðar ísl. kr. Verst er ástandið jafnan í suður- og mið- hluta Mongólíu en þaðan voru um 1,5 millj. skepna fluttar burt í vetrarbyrjun. Þar fer frostið ósjaldan niður undir 50 gráður á cel- síus. „Landbúnaður hér í Mongólíu er ákaflega viðkvæmur atvinnuvegur,“ segir Chimiddorj Batchuluun, yfirmaður neyðaráætlunar stjórnarinnar. „Rigni lítið á vorin og sumrin, sprettur grasið ekki og þá er voðinn vís á hörðum vetri.“ Vaxandi fátækt Hörmungarnar bitna að sjálfsögðu líka á íbúum borga og bæja. Bændafólk, sem hefur flosnað upp, sest að í þéttbýlinu með tjöldin sín og hefur myndað þar stór fátækrahverfi. Veldur það miklu álagi á flesta innviði sam- félagsins og margar greinar opinberrar þjónustu eru að sligast undir byrðinni. Mongólíustjórn hefur fengið nokkra er- lenda aðstoð, einkum frá Sameinuðu þjóð- unum, og hefur húnverið notuð til að auð- velda flutning búfjár til betri svæða, til kaupa og dreifingar á fóðri, til að grafa brunna, bólusetja skepnur og til að kenna hirðingjunum að skera strax að hausti allar veikburða skepnur til að auka möguleika hinna á að lifa veturinn af. Þá er brýnt fyrir þeim að reyna að heyja sem mest að sumr- inu, eftir því sem það er hægt, en það hefur yfirleitt verið venjan að setja allt á guð og gaddinn. Það getur gengið í venjulegu ár- ferði en ekki þegar „Zud“ lætur til sína taka. Í tjaldinu hennar Oyunchimeg er mikið af handmáluðum kistum og myndir af fjöl- skyldunni. Á miðju tjaldgólfinu stendur hita- tækið, viðarofn, og á honum er hún að sjóða jakuxamjólk og grænt te. Um leið og hún saltar lítillega þennan þjóðardrykk Mongóla veltir hún kvíðafull fyrir sér komandi mán- uðum. „Ég vona bara, að fellirinn verði ekki mjög mikill,“ segir hún eins og annars hug- ar. Óttast nýjan fimbulvetur Hirðingjar í Mongólíu standa enn frammi fyrir miklum harðindum Altanbulag. AP. AP Oyunchimeg með tvær kindur í gerði, sem á skýla þeim í mestu vetrarveðrunum. SVEITIR vopnaðra hægri- manna í Kólombíu lýstu í gær yfir vopnahléi í átökunum í landinu og á það að taka gildi á sunnudag. Í yfirlýsingu frá AUC eða Sjálfsvarnarsveitum Kólombíu sagði, að vopnahléið væri ekki tímabundið en ákveðið í trausti þess, að stjórnvöld tækju upp viðræður við samtökin með milligöngu kaþólsku kirkjunnar og Samtaka Ameríkuríkja. Er litið á yfirlýsinguna sem svar við boði stjórnvalda um viðræð- ur. Talið er, að um 10.500 manns séu í vopnuðum sveitum hægri- manna en þær efldust mjög á síðasta áratug og voru svar landeigenda og eiturlyfjabaróna við hernaði vinstrisinnaðra skæruliða. Stærstu samtök þeirra eru FARC, Byltingar- sveitir Kólombíu, og hafa þær um 16.500 manns undir vopnum. Þrátt fyrir yfirlýsinguna áskilja hægrimennirnir sér rétt til að verjast ráðist skæruliðar vinstrimanna á þá. Lögreglan í Kólombíu til- kynnti í gær, að hún hefði hand- tekið þrjá vinstrisinnaða skæru- liða, sem grunaðir væru um að hafa fyrir þremur árum myrt þrjá Bandaríkjamenn, sem unnu að mannréttindamálum í land- inu. Talið er, að óöldin í Kólombíu hafi kostað 200.000 manns lífið frá 1964 og hrakið um 2,7 millj- ónir manna frá heimilum sínum. Um 3.000 manns er rænt þar á ári hverju. Bjóða vopna- hlé í Kólombíu Bogota. AFP.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.