Morgunblaðið - 30.11.2002, Side 30

Morgunblaðið - 30.11.2002, Side 30
ERLENT 30 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Margar þekktustu söngperlur Íslands og Evrópu í frábærum flutningi óperusöngvaranna Þóru Einarsdóttur og Björns Jónssonar. Lög eftir Schumann, Richard Strauss, Grieg og Siebelius, Sigfús Einarsson, Pál Isólfsson og Bjarna Böðvarsson. ilvalin gjöf fyrir alla unnendur sígildrar tónlistar. T SÖNGPERLUR ÍSLANDS OG EVRÓPU  MARGIR virðast standa í þeirri trú að ítölsk stjórnmál eftir seinna stríð hafi verið meira og minna í upp- lausn. Þessi ímynd er hins vegar fjarri sanni. Þótt það hafi verið myndaðar 56 ríkisstjórnir á valda- tíma kristilegra demókrata (KD) á árunum 1946–1992 voru forsætis- ráðherrarnir aðeins 22 og KD var alltaf í stjórn. Kjósendur vissu að flokkurinn var íhaldssamur og breytti stefnu sinni lítið, svo þótt einhverjir hausar fykju öðru hverju í ríkisstjórninni eða skipt væri um samstarfsflokk, breytti það ekki svo miklu um hvernig landinu var stjórnað. Þetta skapaði stöðugleika sem stór hluti þjóðarinnar, sem ótt- aðist kommúnisma meira en flest annað, kunni að meta. En bilið milli stöðugleika og stöðnunar getur verið skammt. Flokkur kristilegra demókrata gat mótað stjórnkerfið að vild og stjórn- að öllu sem hann vildi stjórna. Bit- lingum var úthlutað samkvæmt ákveðnu kerfi og eftir því sem árin liðu varð ómögulegt að fá nokkurt opinbert verkefni hvort sem það var að mála umferðarskilti eða byggja brýr, án þess að borga réttum mönnum á réttum stöðum réttar upphæðir. Það er rétt að taka fram að þótt KD hafi deilt og drottnað, tóku allir flokkar, allt frá komm- únistum til nýfasista, þátt í þessu og þágu molana sem hrutu af borði KD. Hreinar hendur Þegar Berlínarmúrinn féll var sem fargi væri létt af þeim sem höfðu óttast kommúnismann hvað mest og fylgi KD hrundi. Kjósendur voru orðnir þreyttir á kosninga- svindli, mútum, stöðnun og spillingu og vildu breyta kosningakerfinu sem bauð að nokkru leyti upp á svindl. Þrátt fyrir harða andstöðu stjórnmálaflokkanna tókst öflugri hreyfingu almennra borgara árið 1991 að safna tilskildum fjölda und- irskrifta og knýja þannig fram þjóð- aratkvæðagreiðslu um endurbætur á kerfinu. Leiðtogar flokkanna hvöttu fólk til að vera heima á kjör- dag og sniðganga kosningarnar. Þeir vissu sem var að ef tillagan yrði samþykkt, væru þeir búnir að vera. Það reyndist rétt. Aðgerðinni hreinum höndum (,,Mani pulite“) var hrint í fram- kvæmd skömmu síðar og um 2.000 stjórnmálamenn og fyrirtækja- eigendur voru dregnir fyrir dóm, þar af margir af æðstu stjórnendum landsins. Dómsmálin leiddu í ljós umfang spillingarinnar og vöktu gríðarlega reiði meðal Ítala. Vegna þessa voru dagar gömlu flokkanna taldir, þeir hreinlega leystust upp þegar foringjarnir enduðu í fangelsi eða flýðu land. Upplausnarástand ríkti um tíma á meðan á þessu stóð og 1994 var boð- að til kosninga. Í janúar það ár steig Silvio Berlusconi, ríkasti maður landsins, fram á sjónarsviðið og stofnaði flokk sem hann nefndi Forza Italia og hann var orðinn for- sætisráðherra í apríl. Sú ráðherra- tíð stóð reyndar aðeins fram í des- ember, mest vegna reynsluleysis hans og samstarfsmanna hans, auk þess sem þriðjungur allra þing- manna sætti rannsókn á þessum tíma vegna spillingar og fjölmargir voru sakfelldir. Vinstri menn unnu næstu kosningar, en gengu klofnir til kosninganna í fyrravor og því vann Berlusconi aftur og hefur stýrt landinu síðan þá. Berlusconi Það er opinbert leyndarmál að Berlusconi varð upphaflega ríkur með hjálp mafíunnar og hefur enn tengsl við hana. Hann á yfir höfði sér að minnsta kosti ein réttarhöld í nánustu framtíð, þótt honum hafi nýverið tekist að koma í gegnum þingið lögum sem munu tefja málið um einhvern tíma. Meira að segja virt tímarit eins og The Economist birti mynd af honum á forsíðu í apríl í fyrra, undir fyrirsögninni: ,,Skýr- ingin á því hvers vegna Silvio Ber- lusconi er ekki hæfur til að stýra Ítalíu.“ Aðalástæðan sem þar er til- greind, er opinberar rannsóknir (í sumum tilvikum dómar) á aðild hans að peningaþvætti, ef til vill morði, tengslum við mafíuna, skatt- svikum og mútugreiðslum til þing- manna, dómara og skattrannsókn- armanna. Hvers vegna? Þetta vekur upp þá spurningu hvers vegna Ítalir hafi gengið í gegnum þessa umbyltingu á stjórn- málakerfinu til að uppræta spillingu og losa sig við stjórnmálamenn sem ekki voru hæfir til að vinna fyrir land og þjóð, aðeins til að kjósa sér leiðtoga sem virðist vera nákvæm- lega sömu gerðar. Svarið er ekki einfalt. Þriðji hluti verkamanna kaus Berlusconi. Flest- allir eigendur lítilla fyrirtækja sömuleiðis. Kosningaherferð Forza Italia var fagmannleg og mun betur skipulögð en nokkurra hinna flokk- anna. Hann lofaði að lækka skatta, bæði á fyrirtæki og einstaklinga, hann lofaði að skapa atvinnu og stöðugleika. Berlusconi sjálfur segir ásakanir og rannsóknir sem hann hefur mátt sæta vera samsæri vinstri aflanna í landinu gegn sér, sem einkennist af öfund í garð manns sem hefur byggt upp stór- veldi með blóði, svita og tárum. Þeg- ar hann var að koma sínum fyr- irtækjum á fót hafi kaupin einfaldlega gerst þannig á eyrinni að það þurfti að beita ,,óhefðbundn- um aðferðum“, hann hafi ekki verið verri en hver annar á þeim tíma. Líklegasta ástæðan fyrir vel- gengni Berlusconis er sú að Ítalir eru vanir spilltum stjórnmálamönn- um. Þeir þekkja ekkert annað, svo siðferðismörkin eru einfaldlega önn- ur, ef nokkur. Það tekur lengri tíma en nokkur ár að byggja upp traust að nýju – kjósendur hafa enga trú á því að stjórnmálamenn séu á þingi fyrir nokkurn annan en sjálfa sig. Það er hægt að ímynda sér að kjósandi Forza Italia hugsi sem svo: ,,Mér er nokk sama hvort forsætis- ráðherrann og samflokksmenn hans hafi vafasama fortíð eða ekki, þessir stjórnmálamenn eru hvort sem er allir eins. Já, já, varaforsætisráð- herrann er fyrrum fasisti og annar er opinber rasisti en það sem skiptir máli er að þeir lofuðu að gera ákveðna hluti sem koma mér og mínu fyrirtæki og fjölskyldu vel. Berlusconi er líka svo ríkur að hann getur keypt hvað sem er og hvern sem er og þess vegna verður áreið- anlega erfitt að velta honum úr sessi á kjörtímabilinu og það skapar stöð- ugleika sem við þurfum á að halda...“ Langt í land Það er ekki auðvelt verkefni að stýra landi eins og Ítalíu. Að því leyti er Berlusconi ekki öfundsverð- ur af hlutskipti sínu. Ítalía fyrir sunnan Róm er efnahagslega mjög vanþróað svæði og því verður erfitt að breyta á meðan mafían hefur jafnföst tök þar og raun ber vitni. Kjósendur skiptast nánast nákvæm- lega í tvennt til vinstri og hægri og andstæðingar stjórnar Berlusconis hafa gert hvað þeir geta til að grafa undan henni með endalausum verk- föllum og mótmælum. Náttúruham- farir hafa verið tíðar, jarðskjálftar, flóð og eldgos og það hefur sömu- leiðis komið illa við pyngju ríkis- sjóðs. Til þess að koma Berlusconi frá völdum verður auk þess annar val- kostur að vera til staðar og hann hefur vinstri flokkunum ekki tekist að búa til sökum glundroða í þeirra herbúðum. Ítalir kalla tímabilið undir stjórn KD 1946–1992 ,,fyrsta lýðveldið“. ,,Annað lýðveldið“ er hins vegar ekki fætt ennþá, til þess þurfa að verða miklu meiri breyt- ingar, bæði á skipulagi ríkisins og á hugarfari almennings og stjórn- málamanna. Það er enn langt í að þeim takist að vinna traust ítalskra kjósenda á ný og þangað til er allt eins líklegt að þeir haldi áfram að velja sér leiðtoga sem önnur lýð- ræðisríki myndu tæpast hleypa í framboð. Handþvottur dugir ekki til Siðferði stjórnmálamanna virðist ekki skipta kjósendur miklu máli Reuters Andreotti er hann tók þátt í umræðuþætti í sjónvarpi fyrir rúmri viku. Höfundur er mastersnemi í al- þjóðastjórnmálum og hagfræði við Johns Hopkins University í Bologna. Holdgervingur ítalskra stjórnmála í hálfa öld, Giulio Andreotti, hefur verið dæmdur í 24 ára fangelsi. Hann er ekki einsdæmi. Þóra Arnórsdóttir kannaði hvers vegna Ítölum virðist vera sama um það sem aðrar þjóðir kalla siðferði í stjórnmálum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.