Morgunblaðið - 30.11.2002, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 30.11.2002, Qupperneq 31
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 31 ÞAÐ er ekki miklu plássi fyrir að fara í Blómatorginu við Hringbraut. Eiginlega er erfitt fyrir nútímamanninn að ímynda sér að á þeim 30 fermetrum sem verslunin hef- ur yfir að ráða hafi blómstrandi viðskipti átt sér stað í hálfa öld. En sú er þó raunin og hefur sama fjölskyldan haldið um stjórnartaumana allan tímann. „Faðir minn, Sigurður Guðmundsson, byrjaði að versla hérna árið 1949 í fimm fermetra skúr þar sem blómin voru seld í gegn um lúgu,“ segir Sigurður Þórir Sig- urðsson blómasali sem starfrækir búðina í dag ásamt Rúnari syni sínum. „Fimm árum síðar kom þetta húsnæði sem við erum í núna en það er um 30 fer- metrar að stærð. Fyrir örfáum árum bætt- ist svo við sjoppa sem er hér við hliðina og það breytti miklu því við erum með mjög góða geymsluaðstöðu þar.“ Gunnar Thoroddsen, fyrrum forsætisráð- herra og þáverandi borgarstjóri átti sinn þátt í að Blómatorgið festist í sessi á þessu horni. „Faðir minn var garðyrkjumaður og áður en þessi staður kom til var hann bú- inn að selja blóm sem torgsali á ýmsum stöðum eins og á Laugavegi 7, Skólavörðu- stíg og á Sunnutorgi. Einhverju sinni fór pabbi á fund Gunnars og sagði honum að hann myndi gjarnan vilja finna einhvern fastan punkt þar sem hann gæti selt sína framleiðslu og Gunnar benti honum á þetta horn hérna.“ Afi tengdadótturinnar smíðaði skúrinn Gunnar átti einnig sinn þátt í að fjöl- skyldunni tókst að stækka við sig á sínum tíma. „Þessi skúr, sem við erum í núna, var notaður til að selja húsgögn uppi á Berg- staðastræti. Einhverra hluta vegna komst hann svo í eigu borgarinnar og Gunnar benti pabba á að gera tilboð í hann, sem hann og gerði. Eitthvað var Gunnar fálið- aður á borgarstjórnarfundinum þar sem til- boðið var tekið fyrir þannig að því var hafnað. Það fór svo illa í Gunnar að hann lagði til á næsta fundi, þegar allir hans menn voru til staðar, að Sigurði Guð- mundssyni yrði gefinn skúrinn. Og það var samþykkt.“ Það er ekki laust við glettni í augum Sig- urðar þegar hann segir þessa sögu og hann bætir því við að á dögunum hafi fjöl- skyldan komist að því að sambýliskona annars sonar hans væri barnabarn manns- ins, sem upphaflega smíðaði skúrinn og seldi húsgögnin í honum forðum daga. Á meðan Sigurður segir frá er hann í óða önn að gera klárt fyrir sölu dagsins og dregur fram hvern blómavöndinn á fætur öðrum. Blaðamaður á satt best að segja erfitt með að skilja hvar öll þessi dýrð eigi að komast fyrir en einhvern veginn hefur hver vasi sinn stað í skúrnum. „Ég er meira og minna uppalinn hérna, alveg eins og strákarnir mínir,“ heldur Sigurður áfram. „Ætli ég sé ekki búinn að vera hér í fullri vinnu í 38 ár. Reyndar ætl- aði ég aldrei að leggja þetta fyrir mig en það æxlaðist bara þannig. Faðir minn var orðinn fullorðinn og heilsulítill og þá lá nokkuð beint við að ég tæki við.“ Sóttu vatn yfir í kirkjugarðinn Hann segist ekki hafa séð eftir því og út- skýrir að starfið sé þess eðlis að því lengur sem maður sé í því, því meiri unun hafi maður af því. „Á unglingsárunum fannst manni þetta ekki beint skemmtilegt en þeg- ar maður fer að eldast getur maður ekki hugsað sér neitt betra.“ Rúnar, sonur hans, grípur hér inn í við- talið til að undirstrika að honum hafi aldr- ei fundist það kvöð að vera í blómabúðinni, jafnvel ekki þegar hann var yngri. „Þá hefði ég ekki gert það því ég hafði örugg- lega allt annað val en pabbi. Maður var kannski ekkert viss um að maður vildi þetta en hins vegar vildi ég ólmur fá auka- pening og hér lá ljóst við að maður gæti fengið vinnu.“ Þeir segja viðskiptin hafa gengið vel á þessu horni alla tíð þótt oft hafi verið erfitt um vik fyrstu árin. „Fyrsti skúrinn var ekki með neinni kyndingu þannig að við- skiptin réðust svolítið af veðrum og vindum yfir vetrarmánuðina. Svo varð að sækja vatn yfir í gamla kirkjugarðinn fyrstu árin og bera það yfir Hringbrautina.“ Sigurður bætir því við að á þeim tíma hafi framleiðslan verið mjög árstíð- arbundin og þannig hafi verið mjög erfitt að fá blóm yfir vetrarmánuðina. Hins vegar hafi faðir hans farið fljótlega að selja jólatré og greni fyrir jólin auk þess sem stundum hafi verið hægt að ná í laukblóm eins og páskaliljur og túlípana. Önnur framleiðsla hafi mest ráðist af birtunni sem kom með hækkandi sól á vorin. Svolítið íhaldssöm viðskipti Að sögn þeirra feðga hafa viðskiptavin- irnir haldið mikilli tryggð við verslunina og samskiptin við þá mikið verið á per- sónulegum nótum. „Ég þekki óhemjumikið af fólki í gegn um þessi viðskipti og mikið af því er úr Vesturbænum...,“segir Sig- urður og Rúnar botnar setninguna: „...eða ættað þaðan.“ Þannig segja þeir mikið um að fólk, sem er alið upp í Vesturbænum, komi á stórhátíðum eins og jólum til að sækja grenið sitt eða jólaskreytinguna. „Því finnst ekki vera nein jól nema það komi hér við. Það er líka mjög algengt að hérna komi fólk inn og spyrji strákinn minn hvort systir viðkomandi sé búin að koma og það vill gjarnan fá að vita hvað hún hafi tekið.“ Rúnar kannast vel við þetta og segir algengt að fólk sé að kaupa fyrir sömu veisluna og því sé gott að geta passað upp á að allir séu ekki að kaupa það sama. Sigurður segir að viðskiptin hjá þeim séu nokkuð stöðug og sveiflurnar jafnvel minni en gengur og gerist. „Það má segja að þau séu svolítið íhaldssöm,“ segir hann og hlær. Hann þakkar þetta fyrst og fremst þeirri áherslu sem verslunin hafi lagt á gæði blómanna og sanngjarnt verð. Draumurinn sé þó að geta endurnýjað húsnæðið og jafn- vel stækkað svolítið án þess þó að þenjast of mikið út. „Við erum aldrei að selja sömu blómin eða sömu rósina,“ segir hann að lokum. „Það er það sem gerir þetta svo skemmtilegt því þegar þú hefur áhuga á þessu þá sérðu að það eru engin tvö blóm eins.“ Hafa starfað í 30 fermetrum á sama horninu við Hringbrautina í hálfa öld „Engin tvö blóm eins“ Morgunblaðið/Jim Smart Blómstrandi viðskipti í 53 ár: Sigurður og sonur hans Rúnar innan um rósir og ýmis blóm í verslun sinni Blómatorginu. Vesturbær STARFSMENN Vegagerðarinnar og gatnamálastjóra voru jákvæðir í garð þeirra hugmynda sem forvarnahópur á vegum Sambands íslenskra tryggingafélaga og sam- starfsfélaga kynnti þeim um mislæg gatnamót Miklubrautar og Kringlu- mýrarbrautar. „Aðalatriðið hjá okk- ur var að benda á að sú tillaga sem aðallega hefur verið rædd leysir að okkar mati ekki þann vanda sem mislæg gatnamót ættu að leysa,“ segir Einar Guðmundsson, forvarna- fulltrúi hjá Sjóvá-Almennum. Tillagan sem Einar vísar til var kynnt af borgarverkfræðingi í mars og gerir ráð fyrir fríu flæði umferðar um Kringlumýrarbraut en umferð- arljósum á Miklubaut. Einar bendir á að 78% tjóna á þessum gatnamót- um verði vegna aftanárekstra. Ef umferðarljós yrðu áfram á Miklu- braut myndi aftanákeyrslum ekki fækka á þeirri götu og ekki heldur þar sem væru beygjuljós af Kringlu- mýrarbraut. Aðspurður segir Einar að aftanákeyrslum hafi fjölgað hlut- fallslega á síðustu árum og hafi Vegagerðin talið að ástæðan væri einfaldlega aukin umferð. Búast megi við að aftanákeyrslum fjölgi enn meira á næstu árum því gert er ráð fyrir að umferð um gatnamótin aukist úr 80.000 bílum á sólarhring upp í 87.000 bíla á sólarhring árið 2007. Einar segir að forvarnahópur- inn hafi lagt til að gerð verði slaufu- gatnamót en fleiri kostir séu þó í stöðunni. Aðalatriðið sé að hvorugri götunni verði umferðarljós. Tryggingafélögin um gatnamót Miklu- og Kringlumýrarbrautar Vilja frítt flæði um báðar götur !     (   , ' *   --  $  ./&01 2 $ 3$     3    40&-1 5&015&01 Kringlan BÆJARSTJÓRN Mosfellsbæjar hefur samþykkt að veita 10 milljónir króna á fjárhagsáætlun næsta árs til hönnunar hjúkrunarheimilis í bæn- um. Ekki hefur fengist vilyrði fyrir byggingu heimilisins en bæjarstjóri segir vonir standa til að slíkt vilyrði fáist. Að sögn Ragnheiðar Ríkharðs- dóttur bæjarstjóra er bærinn nú að sækja um fjármagn úr Fram- kvæmdasjóði aldraðra í fimmta sinn. Auk þess hafi bæjaryfirvöld fundað með heilbrigðisráðherra vegna máls- ins. „Hann tók okkur vel og við erum inni í áætlun hjá þeim á bilinu 2004 til 2007. Við setjum þessar 10 milljónir inn á árinu 2003 vegna þess að við vonumst til að fá grænt ljós frá þeim núna um að við getum hafist handa við þessa hönnun. Það má kannski segja að við séum að senda þau skila- boð að við séum í startholunum til að taka við vilyrði frá þeim um að fá að byggja hér hjúkrunarheimili.“ Hún segir málið áríðandi og bend- ir á að í bæjarfélaginu séu á milli 20 og 30 einstaklingar í brýnni þörf fyr- ir hjúkrunarheimilisrými. 10 milljónir veittar til hjúkrunar- heimilis Mosfellsbær SAMNINGAR hafa tekist með Þró- unarfélagi miðborgarinnar og eig- endum Markaðstorgsins ehf. um leigu þeirra síðarnefndu á neðri hæð Tollhússins svokallaða undir starf- semi Kolaportsins. Þetta þýðir að ekki kemur til útburðar starfsemi Kolaportsins vegna vangoldinna leiguskulda til Þróunarfélagsins, en Hæstiréttur hafði úrskurðað að heimilt væri að bera starfsemina út. Að sögn Tómasar Jónssonar, eins af eigendum Markaðstorgsins, hafa fjárfestingar samfara flutningi Kola- portsins í Tollhúsið, verið þungur baggi á rekstrinum. „Við ákváðum því snemma á þessu ári að leita frjálsra nauðasamninga við alla okk- ar lánardrottna. Flestir voru mjög jákvæðir varðandi að semja við okk- ur en það tók óheyrilega langan tíma að fá borgina til að koma inn í þessa samninga og við frystum allar greiðslur á þessu tímabili samkvæmt ráðleggingum okkar lögfræðinga. Á meðan gafst Þróunarfélagið skiljan- lega upp á okkur vegna uppsafnaðra húsaleiguskulda og fór út í þessar aðgerðir.“ Hann leggur þó áherslu á að nú hafi málinu lyktað farsællega og ekki komi til lokunar. Morgunblaðið/Kristinn Næstkomandi mánudag hefst jólamarkaður Kolaportsins. Samningar nást um Kolaportið Miðborg
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.