Morgunblaðið - 30.11.2002, Side 36
LISTIR
36 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞETTA gengur vonum framar og
íslensku verkin, sem þegar hafa ver-
ið flutt, hafa fengið mjög jákvæðar
viðtökur. Flutningur hefur líka ver-
ið frábær,“ segir Kjartan Ólafsson
tónskáld og einn af fulltrúum Ís-
lands á Magma, Norrænum tónlist-
ardögum í Berlín.
Þetta er í fyrsta sinn að hátíðin er
haldin utan Norðurlandanna og seg-
ir Kjartan menn hafa rennt nokkuð
blint í sjóinn. „Við gerðum okkur
enga grein fyrir því hvort við ættum
von á góðri aðsókn. Þjóðverjar eru
hins vegar gömul og rótgróin menn-
ingarþjóð og hafa ekki látið sig
vanta. Hátíðin hefur verið mjög vel
sótt. Þar spillir eflaust ekki fyrir
mikill áhugi Þjóðverja á norrænni
menningu.“
Norðmenn eru ábyrgir fyrir
framkvæmd hátíðarinnar að þessu
sinni og segir Kjartan þá hafa staðið
sig með sóma. „Hátíðin hefur bæði
verið vel skipulögð og vel kynnt.
Hér hittir maður varla leigubílstjóra
sem ekki veit af hátíðinni. Það segir
sína sögu.“
Kjartan segir að fjöldi umboðs-
manna og kynningarfulltrúa frá hin-
um ýmsu löndum sæki hátíðina. Og
þegar er hlaupið á snærið. „Það er
franskur aðili, sem er í tengslum við
franska útvarpið, sem vill koma til
samstarfs við Norræna tónlist-
ardaga þegar þeir verða næst
haldnir í Danmörku 2004. Þannig að
hátíðin er greinilega að spyrjast út.
Þetta þýðir væntanlega að norræn
tónlist verður flutt enn víðar en áð-
ur sem er auðvitað ánægjulegt.“
Að áliti Kjartans er nauðsynlegt
fyrir Íslendinga að taka þátt í hátíð-
um af þessu tagi til að „kynna okkar
list, kynna okkar þjóð“. „Við höfum
rætt um það hér að efla sameig-
inlega kynningu á norrænni tónlist
til að styðja við okkar listgrein. Von-
andi getum við hrint þeim áformum
í framkvæmd sem fyrst. Það er allra
hagur.“
Ashkenazy í fínu formi
Atli Ingólfsson var fyrstur ís-
lenskra tónskálda í sviðsljósinu, síð-
astliðinn laugardag, þegar Arditti
strengjakvartettinn frá Bretlandi
lék verk eftir hann í Otto-Braun-
Saal. Að sögn Kjartans heppnuðust
þeir tónleikar vel og virtist verk
Atla hafa fallið í góðan jarðveg.
Þrjú til fjögur tónskáld eiga verk
á hverjum tónleikum og á mánudag
var röðin komin að Hafliða Hall-
grímssyni. Að sögn Kjartans var
honum afskaplega vel tekið. „Haf-
liða var vel fagnað og hann lenti
meira að segja í því eftir tónleikana
að gefa eiginhandaráritanir sem ég
hélt að væri bara bundið við popp-
ara.“
Einn af hápunktum hátíðarinnar
voru tónleikar Óslóarfílharm-
óníunnar undir stjórn Vladimirs As-
hkenazys í aðaltónleikasal Berl-
ínarfílharmóníunnar. Þorkell
Sigurbjörnsson var í hópi tónskálda
sem þar áttu verk. „Þessir tónleikar
tókust afskaplega vel. Flutning-
urinn var frábær og verki Þorkels
vel tekið. Það voru upp undir tvö
þúsund manns á þessum tónleikum
sem telst mjög gott. Ashkenazy er í
fínu formi og greinilegt að hann er
að færa sig í ríkari mæli yfir í nú-
tímatónlist.“
Á miðvikudag átti Kjartan sjálfur
verk á tónleikum í Tränenpalast
sem er í austurhluta Berlínar.
„Þetta er staður sem menn fóru í
gegnum þegar þeir þurftu að kom-
ast yfir til Vestur-Berlínar á sínum
tíma. Þar hefur verið búið til prýði-
legt tónlistarhús, sem er einkum
ætlað fyrir raftengda tónlist. Hljóm-
burður er mjög góður þarna og gild-
ir einu hvar maður situr í salnum.“
Kjartan segir að tónleikarnir hafi
gengið vel og salurinn verið fullset-
inn, á að giska tvö hundruð manns.
Í kvöld verður Ríkharður H.
Friðriksson í sviðsljósinu í Trä-
nenpalast og á morgun kemur CA-
PUT-hópurinn fram á tónleikum í
kammermúsíksal Fílharmóníunnar.
Á efnisskrá verða meðal annars
verk eftir Hauk Tómasson, Snorra
Sigfús Birgisson og Atla Ingólfsson,
auk færeyska verðlaunatónskálds-
ins Sunleifs Rasmussen.
Hátíðinni lýkur á morgun.
Magma, Norrænir tónlistardagar vel sóttir og vel kynntir í Berlín
„Mjög jákvæðar viðtökur“
Ljósmynd/Kjartan Ólafsson
Þorkell Sigurbjörnsson og Vladimir Ashkenazy hylltir að flutningi loknum í aðalsal Berlínarfílharmóníunnar.
Kjartan Ólafsson og Natasha Barrett tónskáld frá Noregi.
Hafliði Hallgrímsson ásamt Bo Rydberg tónskáldi frá Svíþjóð.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14–16
Fram til jóla verða fjórar stuttar sýn-
ingar í Rauðu stofunni og verður
fyrsta sýningin opnuð í dag. Þá sýna
Sigrún Einarsdóttir og Sören Larsen
í Gleri í Bergvík nýjar gerðir af glös-
um af ýmsu tagi. Glösin nefnast Ar-
tika.Gallerí Fold er opið daglega frá
10–18, laugardaga til kl. 17 og sunnu-
daga frá 14–17. Sýningunni lýkur 6.
desember.
Opna galleríið verður að þessu sinni
á Laugavegi 24, þar sem áður var
verslunin NN Boutique. Myndlist-
armenn mæta, hver sem vill, á sýn-
ingardag og setja upp verk sín
milli 13–14, eða mæta á opnunartíma
ef um gjörning er að ræða. Sýningin
verður opnuð fyrir almenning kl. 14.
Verkin eru tekin niður kl. 18.
Borgarbókasafnið við Tryggva-
götu Þorvaldur Þorsteinsson flytur
stutt erindi kl. 14 og segir frá þeim
hugmyndum sem
liggja að baki
Blíðfinns bók-
unum og öðrum
verkum hans fyrir
börn. Í erindinu
varpar Þorvaldur
m.a. fram spurn-
ingum um það
hvort við höfum
þynnt út gömlu
ævintýrin í mis-
skilinni tillitssemi við börnin. Hvers
vegna erum við svona hrædd við að
vera hrædd? Erum við fyrst og
fremst að hlífa sjálfum okkur þegar
við hliðrum okkur hjá því að ræða
óþægileg mál við börn?
Súfistinn, Laugavegi 18 Lesið
verður fyrir yngstu kynslóðina kl. 11:
Guðrún Helgadóttir, Öðruvísi dagar
og Brynhildur Þórarinsdóttir, Njála.
Þá verður lesið úr Krakkakvæðum
Böðvars Guðmundssonar og Hvar
endar Einar Áskell?
Kristín Sigfríður Garðarsdóttir
hefur opna vinnustofu sína Stúdíó
Subbu, Hamraborg 1, Kópavogi, kl.
13–18. Eftir að hafa lokið námi við
Myndlista- og handíðaskóla Íslands
fór hún í framhaldsnám við Dan-
marks Design-skólann í Kaupmanna-
höfn með aðaláherslu á hönnun á
nytjahlutum í gler, leir og postulín.
Kaffi Sólon Samsýning þriggja
listakvenna verður opnuð kl. 17. Það
eru þær Solveig Rolfsdóttir, El-
ínborg Hákonardóttir og Helga
Ágústsdóttir sem sýna „portrait“ en
þær nálgast viðfangsefni sín með
ólíkum hætti. Sýningin ber yfirskrift-
ina Estrogen.
Sýningin stendur til 20. desember.
Brúðuleikarinn Bernd Ogrodnik
sýnir brúðuleikritið Pönnukakan
hennar Grýlu í Borgarbókasafni
Gerðubergs kl. kl.13.30. Sýningin er
ætluð börnum að 6 ára aldri og segir
frá hugvitsamri pönnuköku sem nær
að flýja steikarpönnu Grýlu.
Árnesingakórinn í Reykjavík held-
ur kaffi- og jólatónleika í safn-
aðarheimili Háteigskirkju kl. 15.
Stjórnandi kórsins er Gunnar Ben.
Norræna húsið Flóamarkaður verð-
ur í dag og á morgun kl. 12–17. Þar
verða m.a. húsgögn eftir Alvar Aalto,
bækur af ýmsu tagi, sýningarvegg-
spjöld, sýningarskrár eldhúsbún-
aður.
Faktorshúsið, Ísafirði Dýrfinna
Torfadóttir gullsmíðameistari og
Finnur Guðni Þórðarson nemi henn-
ar opna sýningu á módelsmíði kl. 16.
Sýningin er opin kl. 14-22 og stendur
yfir fram yfir miðjan desember.
Tjöruhúsið, Ísafirði Jón Þ. Þór
sagnfræðingur heldur erindi kl. 16
þar sem hann ræðir um tengsl Ás-
geirsverslunar á Ísafirði við Jón Sig-
urðsson og sjálfstæðisbaráttuna á 19.
öld. Erindið er þriðja og síðasta
uppákoman sem Byggðasafn Vest-
fjarða stendur fyrir til að minnast
þess að 150 ár eru liðin frá stofnun
þessa sögufræga fyrirtækis.
Þá verður opnuð sýning á gömlu sím-
tæki Ásgeirsverslunar, en fyrirtækið
lagði árið 1889 fyrstu símalínu á Ís-
landi og náði hún frá Faktorshúsinu
upp í verslunarhúsið í Aðalstræti 15.
Gallerí Halla, Hafnarfirði Árný
Birna Hilmarsdóttir opnar
sýningu á landslagi unnu í gler kl. 14.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Þorvaldur
Þorsteinsson
EIN klukkustund er
ekki langur partur af
mannsævi, en getur þó
skipt sköpum þegar
tónleikar eru annars
vegar, eins og undirrit-
aður mátti sanna þegar
hann mætti á ofan-
greinda tónleika skv.
tilkynningu kl. 17 sem
reyndust þá hafa hafizt
þegar kl. 16. En tæknin
lætur ekki að sér hæða,
því tónleikarnir voru
teknir upp „læf“ á
staðnum og þeim er
hér ritar síðar sent af-
rit á geisladiski frá rit-
stjórn með ósk um um-
fjöllun eins og ekkert hefði í skorizt.
Það er áreiðanlega einsdæmi að
gagnrýna tónleikahald in absentia
með þessum hætti og hefur vonandi
ekki fordæmisgildi.
Eftir meðfylgjandi
tónleikaskrá að dæma
voru tónleikarnir af
margvíslegu tilefni.
Nefna má að 70 ár voru
liðin frá stofnun Félags
íslenzkra hljómlistar-
manna, 35 ár frá fyrstu
opinberu tónleikum
Guðnýjar Guðmunds-
dóttur á Reykjavíkur-
svæðinu fyrir nýstofn-
að Tónlistarfélag
Kópavogs og 30 frá
„debút“ hennar hjá
Tónlistarfélaginu í
Reykjavík, að
ógleymdu 10 ára sam-
starfi þeirra Peters
Máté. Efnisvalið samanstóð af létt-
klassísku góðgæti af erlendum og
innlendum toga ásamt fáeinum nýrri
íslenzkum smáverkum. Byrjað var á
hinni alþekktu Prelúdíu og Allegro
Fritz Kreislers upp úr tónlist Pugn-
anis. Síðan kom hið ljúfa Moment
musical Sveinbjarnar Sveinbjarnar-
sonar. Rómantíska Húmoreska Þór-
arins Jónssonar var umgirt nýklass-
íkerunum Helga Pálssyni (Íslenzk
þjóðlög Op. 6 nr. 2, 3 og 5 (Hani,
krummi)) og Árna Björnssyni (Róm-
anza Op. 14), allt hin áheyrilegustu
verk og túlkuð af innlifaðri samúð.
„Expromtu“ Páls Pampichlers Páls-
sonar var samin 1997 og síðar útsett
fyrir tréblásarakvintett til marks um
endurvinnslugildi þessa kankvísa en
kjarnyrta stykkis sem reyndar kvað
byggt á Impromptu hálflanda hans
Schuberts í B-dúr. Launpopparinn
Atli Heimir Sveinsson hafði útsett
slagara eftir sjálfan sig (í „djúsí vir-
túósastíl“ að eigin sögn) sem hann
nefndi „Af hreinu hjarta, Valse noir“
tileinkað Þorsteini Gylfasyni; lítið en
samt allkrefjandi verk sem þau
Guðný frumfluttu með tilþrifum. Á
undan las Guðný upp samnefnt ljóð
eftir Attila Joseph í þýðingu Þor-
steins að ósk tónskáldsins. Síðast
fyrir hlé flutti dúóið Waltz og frum-
flutti sjarmerandi Polonaise eftir
undrabarnið og fiðlunemandann
Bjarna Frímann Bjarnason, sem
greinilega var vel heima í brilljantari
tónkrásum Kreislers og Winiawskys
og vílaði ekki fyrir sér einn og einn
fingurbrjót í leiðinni.
Eftir hlé tók dúóið fyrst hina óslít-
andi eyrnaorma Kreislers, Liebe-
freud, Liebesleid og Schön Rosmar-
in með fínni tilfinningu fyrir
vínarvalsa-„Schwung“ og hina mús-
íkalskt bitastæðari Rómönsu Dvo-
ráks Op. 11, lengsta verk kvöldsins
sem markaði upphaf „þungaviktar-
anna“ í síðasta hluta dagskrár eins
og vera bar. Hið geysivinsæla Salut
d’amour Op. 12 eftir Elgar (sem
bjargað kvað hafa brezka tónskáld-
inu frá heilu hungri á sínum tíma)
var leikið af þroskaðri tilfinningu og
hið þekkta „bravúra“ stykki Camil-
les Saint-Saëns, Introduction et
Rondo sem túlkað var lauflétt og af
kænu tímaskyni, lauk skemmtilegri
dagskrá við auðheyranlega eldhlýjar
undirtektir áheyrenda.
TÓNLIST
Salurinn
Ýmis skemmtiverk eftir innlenda og er-
lenda höfunda. Guðný Guðmundsdóttir
fiðla, Peter Máté píanó. Laugardaginn
23. nóvember kl. 16.
KAMMERTÓNLEIKAR
Gamlar og nýj-
ar fiðluperlur
Guðný
Guðmundsdóttir
Ríkarður Ö. Pálsson