Morgunblaðið - 30.11.2002, Síða 40

Morgunblaðið - 30.11.2002, Síða 40
HEILSA 40 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Íslenskt náttúruafl - fy ri r or ku na www.sagamedica.com Í skugga styrjalda Ljósmyndasýning - Þorkels Þorkelssonar stendur yfir í Listasafni ASÍ við Freyjugötu. Á sýningunni eru myndir frá Palestínu og Ísrael sem teknar voru síðastliðið vor ásamt myndum frá ýmsum löndum. Sýningin er liður í verkefni. þar sem lýst er lífi fólks sem býr við erfiðar að stæður víða um heim. Sýningin er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18. Sýningin stendur til 8. desember. Eftirtöldum aðilum er þakkaður stuðningurinn: Flugfélagið Atlanta, Rauði kross Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar, BECO Ljósmyndaverslun, ASÍ, Efling, VR, BSRB, Morgunblaðið. Spurning: Hvers konar sjúkdóm- ur er amyloid(osis)? Kona sem ég þekki er sögð vera með þenn- an sjúkdóm og ég vil vita hvort hægt sé að lækna þetta eða sjúk- dómurinn sé ólæknandi. Ég hef ekkert heyrt um þennan sjúk- dóm. Svar: Amyloid hefur verið kall- að mýlildi á íslensku og er óeðli- leg útfelling prótína í ýmsum vefjum líkamans. Amyloidosis, sem mætti kalla mýlild- issjúkdóma, er flokkur sjúkdóma þar sem mýlildi safnast fyrir í ýmsum vefjum og líffærum og truflar starfsemi þeirra. Algeng- ast er að mýlildi safnist fyrir í hjarta, nýrum, taugakerfi eða meltingarfærum. Mýlildi á sér stundum þekkta orsök og má nefna sem dæmi berkla eða aðr- ar langvinnar sýkingar, Alzheim- ers-sjúkdóm og langvinna bólgu- sjúkdóma eins og iktsýki. Algengt er þó að mýlildi eigi sér ekki neina þekkta orsök. Sjúk- dómum af þessu tagi var fyrst lýst fyrir um 350 árum og nafnið amyloidosis hefur verið notað í meira en 100 ár. Mýlildi er ekki krabbamein en er illlæknanlegt og getur valdið alvarlegum veik- indum og dauða. Mýlildi er sjald- gæft og má gera ráð fyrir aðeins örfáum tilfellum á hverju ári hér á landi. Sjúkdómseinkennin fara eftir því hvaða líffæri verða fyrir barðinu á sjúkdómnum og geta þess vegna verið margvísleg og gert sjúkdómsgreiningu erfiða. Nokkur þekkt einkenni eru ökklabjúgur, máttleysi, þyngd- artap, mæði, dofi í höndum eða fótum, niðurgangur, mikil þreyta, tungustækkun og svimi. Ein- kenni og sjúkrasaga geta gefið grunsemdir um mýlildi en stað- festing á sjúkdómsgreiningu fæst einungis með vefjasýni en al- gengt er að sýni séu tekin úr fitu á kviðvegg, beinmerg eða enda- þarmsslímhúð. Þegar sjúkdóm- urinn leggst á nýrun tapast mik- ilvæg prótín með þvaginu og það leiðir til vökvasöfnunar og bjúgs og stuðlar einnig að þyngdartapi sem getur numið 10–20 kg. Ef hjartað er undirlagt getur komið að því að það dæli ekki nægj- anlegu magni af blóði á tímaein- ingu og þá verður hjartabilun; hjartsláttartruflanir geta einnig verið vandamál. Stundum verður taugakerfið fyrir skemmdum og þá koma einkenni eins og dofi eða verkir í höndum og fótum, tilfinningaleysi eða brunatilfinn- ing. Sjúkdómurinn getur einnig lagst á taugar sem stjórna þarmahreyfingum og það getur leitt til niðurgangs og hægða- tregðu til skiptis. Eins og áður sagði er yfirleitt um ólæknandi sjúkdóm að ræða og að því leyti eru horfur ekki sérlega góðar. Það tekst þó og nú eru í gangi ýmsar rannsóknir sem vonandi geta bætt horfur sjúklinganna í framtíðinni. Þau lyf sem oftast eru notuð eru sterar ásamt lyfj- um sem notuð eru við illkynja sjúkdómum. Á allra síðustu árum hafa verið gerðar rannsóknir með notkun svokallaðra stofn- frumna við lækningar á mýlildi og lofa þær nokkuð góðu. Hvað er amyloid (mýlildi)? MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA Mataræði og lyf halda sjúk- dómi í skefjum  Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækninn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið er á móti spurningum á virkum dög- um milli klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og bréfum eða símbréfum merkt: Vikulok. Fax 5691222. Einnig geta lesendur sent fyrirspurnir sínar með tölvupósti á net- fang Magnúsar Jóhannssonar: elmag@hotmail.com. LYF sem innihalda acetýlsalicýl- sýru, eins og magnýl og aspirín eru hættuleg börnum og ungling- um. Bann var lagt á sölu barna- magnýls hér á landi um árið 1985, þegar í ljós kom að acetýlsalicýl- sýra, eykur hættuna verulega á Reyes-heilkenni sem er sjaldgæft en kemur oftast þegar barn er að jafna sig eftir veirusýkingu. Reyes- heilkennið veldur skemmdum á lif- ur og heila og leiðir oft til dauða, að sögn Magnúsar Jóhannssonar læknis. Foreldrum er þess í stað ráðlagt að gefa lyf sem innihalda paraceta- mól, en þau hafa líka verkjastill- andi og hitalækkandi verkun. Stúlka lést í Bretlandi Nýlega lést 13 ára stúlka í Bretlandi af völdum Reyes-heil- kennis, sem leiddi til þess að bresk heilbrigðisyfirvöld vara for- eldara, á nýjan leik, við að gefa börnum sínum hita- og verkja- stillandi lyf sem innihalda acetýl- salicýlsýru. Þetta kom fram í frétt fyrir skömmu á netútgáfu Berlingske Tidende. Árið 1963 lýsti ástralski læknirinn Reye, sjúkdómi sem síðan hefur verið kallaður Reyes-heilkenni. Reyes- heilkenni sést næstum eingöngu hjá börnum yngri en 18–19 ára, og kemur oftast þegar barnið er að jafna sig eftir veirusýkingu. Magnús segir tengslin við magnýl hafa orðið ljós upp úr 1980 og fljótlega var hér á landi eins og víðast hvar annars staðar bannað að selja lyfið undir nafninu barna- magnýl og aðvaranir settar á um- búðir og í fylgiseðla til að vara við hættunni fyrir börn. „Magnýl og asprírin eru þess vegna hættuleg og úrelt lyf fyrir börn. Þau eru stundum notuð sem verkjastill- andi lyf handa fullorðnum þótt segja megi að það sé líka úrelt. Betri og öruggari lyf eru til dæm- is íbúprófen og naproxen sem einnig fást án lyfseðils. Magnýl er einnig notað í litlum skömmtum sem segavarnalyf handa þeim sem eru með kransæðasjúkdóma og í vissum tilfellum öðrum.“ Morgunblaðið/Kristinn Foreldrum er ráðlagt að gefa lyf sem innihalda paracetamól, en þau hafa líka verkjastillandi og hitalækkandi verkun. Börn og ung- lingar mega ekki fá magnýl Alltaf á þriðjudögumATVINNA mbl.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.