Morgunblaðið - 30.11.2002, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 30.11.2002, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. L EIÐTOGAFUNDUR Atlantshafs- bandalagsins (NATO) í Prag í síðustu viku hefur kveikt umræður um varnarmál Íslands. Vegna skorts á spennu á Norður- Atlantshafi hafa þau mál legið nokkuð í láginni og ekki verið eins ofarlega í hinum pólitísku umræðum og nauðsynlegt er, því að frumskylda stjórnvalda og stjórnmálamanna er að sýna umbjóð- endum sínum, að þeir hafi stefnu og úrræði til að tryggja öryggi þeirra. Umræður um íslensk öryggismál eru sérstök vegna þess, að margir líta þannig á, að þau séu frekar vanda- mál annarra en okkar sjálfra. Þau snúist um afstöðuna til Bandaríkjanna og umsvifa þeirra frekar en hvað gerist hér á landi eða í næsta nágrenni okkar og hvernig íslensk stjórnvöld geti brugðist við, ef hætta er á ferðum. Er umhugsunarvert, að þjóð, sem gerir sér góða grein fyrir hættum frá náttúruöflunum og grípur til forvarna til að draga úr þeim, skuli líta á hættur af manna völdum sem viðfangsefni annarra. Hafi saga 20. aldarinnar átt að kenna eitthvað er það að vanmeta ekki grimmd og eyðingarmátt manns- ins. Á lokaáratugi aldarinnar urðum við Evrópubúar vitni að blóðugum átökum í fyrrverandi Júgóslavíu, þar sem ekki var síður sýnd grimmd en í fyrri heims- styrjöldinni eða þeirri síðari; grimmd, sem er svo fyr- irlitleg, að í huga okkar allra blundaði von um, að hún hefði orðið siðmenntuðum þjóðum Evrópu víti til að varast. Annað kom í ljós við sundurliðun stjórnkerfis kommúnista og verst hafa átökin orðið í Júgóslavíu fyrrverandi. Minnist ég viðræðna við þingmenn, sem komust við illan leik frá Sarajevo til fundar á vegum Evrópuráðsins í Strassborg og sögðu engu líkara en að átökin hefðu leyst allt hið ömurlegasta í mannlegu eðli úr læðingi. Að sjálfsögðu höfum við Íslendingar ekki efni á því að hafa að engu viðvaranir um nýjar hættur, sem steðja að öryggi þjóða eftir lyktir kalda stríðsins. Við hljótum að bregðast við þessum hættum af sömu ábyrgð og gert var með aðildinni að NATO 1949 og varnarsamningnum við Bandaríkin 1951. x x x Í stjórnmálalegu tilliti verður leiðtogafundar NATO í Prag minnst vegna stækkunar bandalagsins, þegar sjö nýjum ríkjum er boðið að slást í hóp þeir fyrir eru. Hefur þetta mikil og varanleg áhri þessara þjóða á alþjóðavettvangi og leiðir til á NATO. Fyrir leiðtogafundinn létu ýmsir í veðri va kannski yrði þessi stjórnmálalega áhersla ha draga athygli frá raunverulegu hlutverki ban að vera tæki aðildarþjóðanna til að tryggja ö með raunhæfum ráðstöfunum á friðartímum ið er á niðurstöðu leiðtogafundarins sést, að einnig af skarið um mikilvæg hernaðarleg ef Leiðtogarnir ákváðu að koma á fót viðbrag NATO (NATO Response Force NRF), sem herafla, sem er tæknilega fullkominn, sveigja hreyfanlegur, samhæfður í vopnabúnaði og s nógur með sveitum úr land-, flug- og sjóher, tiltækar með skömmum fyrirvara og senda m sem þörf krefst samkvæmt ákvörðun fastará Viðbragðsliðið á að koma til starfa sem fyrst síðar en í október 2004 og vera fullbúið ekki október 2006. Ætlunin er að endurskipuleggja herstjórn Þær á að minnka, gera skilvirkari og hreyfan Skipulag herstjórnanna á að tryggja hernaða tengsl yfir Atlantshaf. Fækka skal starfsmön an þeirra og í sameiginlegum lofthernaðar-st stöðvum. Starfræktar verða tvær höfuðherst önnur í Evrópu (Belgíu) og hin í Bandaríkju verk Evrópuherstjórnarinnar verður að gera og stjórna hernaðaraðgerðum. Hlutverk her arinnar í Bandaríkjunum, sem hefur útibú í verður að leiða breytingar á heraflanum og s samhæfingu herja bandalagsþjóðanna í samv aðgerðaherstjórnina í Evrópu. Varnarmálará NATO-ríkjanna taka lokaákvarðanir um útfæ skipulagi herstjórnanna í júní 2003. Í Prag voru samþykkt markmið, sem band irnar verða að ná í samræmi við þá ætlun NA geta beitt nýjum herafla í nútímalegum hern sem mikil hætta er fyrir hendi. Ríkisstjórnir arríkjanna ætla að auka getu sína til að geta við ógn sem steðjar af efnavopnum, líftækniv geislavopnum og kjarnorkuvopnum; þær ætl hæfni sína til njósna og eftirlits og til að fylg atburðum á jörðu niðri úr lofti; bæta yfirstjó VETTVANGUR Hættumat leiðtoga Eftir Björn Bjarnason S amskiptin milli Evrópusam- bandsins og landa Evrópska efnahagssvæðisins (að Íslandi meðtöldu) hafa yfirleitt verið góð og deilurnar hafa ekki ver- ið of margar. Þetta gæti breyst nú þegar Evrópusambandið býr sig undir inngöngu tíu ríkja í Austur- og Mið-Evrópu og komið gæti upp togstreita um ýmis mál. Þetta hlýtur að leiða til alvarlegrar um- ræðu um tengslin milli Íslands og Evr- ópusambandsins. Lokastaða Íslands gæti haft mikla þýðingu fyrir framtíð Evr- ópska efnahagssvæðisins. Þessi togstreita kom fram á fundi ráð- herranefndar EES í Brussel í vikunni. Fyrirhugaðri stækkun Evrópusambands- ins, sem verður um leið til þess að EES stækkar, verður komið í framkvæmd á sama tíma og semja þarf á ný um fram- lög EFTA-ríkjanna í þróunarsjóð Evr- ópusambandsins fyrir aðgang að innri markaði þess. Framkvæmdastjórn Evr- ópusambandsins segir að EES-ríkin þurfi að auka þessi framlög verulega. Óljóst er hversu mikið þau eigi að aukast en þær tölur sem framkvæmdastjórnin hefur nefnt hafa valdið uppnámi í EES-lönd- unum, einkum Íslandi. Framkvæmda- stjórnin lítur aðeins á þær sem upphaf umræðu og samningaviðræðna. Frá sjón- arhóli Íslendinga benda tölur fram- kvæmdastjórnarinnar til þess að þeir þurfi að greiða hlutfallslega jafnmikið og aðildarríki ESB án þess að njóta að fullu ávinningsins af aðild. Þetta er augljós- lega ósanngjörn afstaða af hálfu fram- kvæmdastjórnarinnar en setur einnig Ís- lendinga í óþægilega stöðu af öðrum ástæðum (ekki efnahagslegum) þegar Evrópusambandið heldur áfram innri breytingum sínum fyrir og eftir stækk- unina sem Íslendingar hafa engin áhrif á. Sem þingmaður á Evrópuþinginu hef ég á síðustu þremur árum verið þess heiðurs aðnjótandi að vera fyrsti varafor- maður tengslanefndar þingsins við Sviss, Ísland og Noreg (svokallaðrar SIN- nefndar). Á þessum tíma hef ég að minnsta kosti átt tvo fundi á ári með þingmönnum frá hverju þessara landa og viðræðurnar hafa óhjákvæmilega beinst að tengslum Evrópusambandsins og Ís- lands. Stundum hefur talið sveigst að hugsanlegri aðild Íslands að Evrópusam- bandinu. Í því felst nokkur kaldhæðni og ósamkvæmni að öll löndin þrjú styðja heilshugar stækkun Evrópusambandsins en vilja ekki sjálf taka þetta skref. Norð- menn hafa auðvitað tvisvar sótt um aðild að ESB og síðan hafnað henni í þjóð- aratkvæðagreiðslu. Umsókn Sviss hefur verið á borðinu frá 1992 og ESB-aðild er enn langtímamarkmið ríkisstjórnarinnar þar en heyrir nú undir hina erfiðu tvíhliða samninga við ESB. Ísland er enn „und- antekningin í stækkuninni“; eina ríkið sem hefur hingað til ekki lagt fram form- lega aðil breyting eru nú í vindu í E Það lig anríkisrá Íslending földum lý EES. Bo land mitt ræðishall eigum þó kvæmdas við samn hafa ver sem fær breytingu Rétti tíminn fyrir Ev Eftir Diana Wallis Sjávarútvegsmál tengjast umræðunni um aðild Íslands m málin framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. FRAMSÓKNARFLOKKUR OG HEILBRIGÐISMÁL Halldór Ásgrímsson, formaðurFramsóknarflokksins, lagðimikla áherzlu á heilbrigðis- mál í ræðu sinni á fundi miðstjórnar Framsóknarflokksins, sem hófst í gær. Það kemur ekki á óvart enda hef- ur Framsóknarflokkurinn borið ábyrgð á þessum málaflokki í bráðum átta ár. Í ræðu sinni gerði Halldór Ásgríms- son að umtalsefni þá gagnrýni, sem beint hefur verið að heilbrigðiskerfinu í opinberum umræðum og velti því fyr- ir sér af hverju þær athugasemdir kæmu fram. Hann svaraði eigin spurningu með þessum orðum: „Gæti það eitthvað tengzt þeirri miklu peningahyggju, sem nú er mjög ráðandi í samfélaginu? Gæti það eitt- hvað tengzt þeim miklu fjármunum, sem heilbrigðiskerfið ræður yfir? Er það ekki kjarni málsins?“ Er það svo? Eru þetta ástæðurnar fyrir því hve mikið er rætt um heil- brigðismálin? Tæpast. Ástæðurnar fyrir því að heilbrigð- ismálin eru svo mjög til umræðu eru einfaldlega þær, að almenningur finn- ur að það eru vandamál í heilbrigð- isþjónustunni, sem koma niður á fólki, sem stundum veit ekki hvernig það á að bregðast við. Það hafa verið brota- lamir í þjónustu heilsugæzlustöðva. Það eru of langir biðlistar á sjúkra- húsum. Ár hvert fylgist fólk með deil- um forráðamanna Landspítala–há- skólasjúkrahúss og talsmanna fjárlaganefndar Alþingis um fjárveit- ingar til spítalans. Vandamálin í heil- brigðiskerfinu blasa við öllum. Með því er ekki sagt að heilbrigð- iskerfið sé lélegt eða að starfsfólkið á stofnunum þess kunni ekki til verka. Þvert á móti er um að ræða frábært starfsfólk í flestum tilvikum. Heilbrigðiskerfið hefur einfaldlega vaxið okkur öllum yfir höfuð og það er tímabært að leita leiða til þess að tak- ast á við þau vandamál, sem þar er við að etja eins og Morgunblaðið hafði orð á í forystugrein blaðsins í gær. Í ræðu sinni á miðstjórnarfundinum í gær virtist formaður Framsóknar- flokksins vera að svara öfgafyllstu sjónarmiðum, sem fram hafa komið um aðild einkarekstrar að heilbrigð- isþjónustunni. Ekki vill Morgunblaðið draga úr því, að haldið sé uppi sam- ræðum við þá hópa, þótt ætla megi að þeir eigi litlu fylgi að fagna meðal al- mennra borgara. Hins vegar er ástæðulaust að gera lítið úr sjónar- miðum þeirra, sem telja, að einka- reksturinn eigi hlutverki að gegna á þessu sviði með því að nefna einungis til sögunnar öfgafull dæmi um það. Í ræðu sinni sagði Halldór Ásgríms- son m.a.: „Þeir hinir sömu og þetta boða hafa haldið því fram, að einka- rekstur sé það eina, sem bjargað geti til að mynda biðlistunum, því þeir sem efni hafa á geti borgað aukalega og fengið þá þjónustu fyrr sem aftur mundi stytta biðtímann fyrir allan al- menning. Þeir ríku eiga þannig að fá forgang.“ Er alveg nauðsynlegt að halda uppi umræðum um hugsanlegar breytingar á heilbrigðiskerfinu á þennan veg? Hverjum dettur í hug að „þeir ríku“ eigi að fá forgang? Þeir eru vand- fundnir í okkar samfélagi, sem hugsa á þann veg. Við Íslendingar erum þjóð, sem bú- um við mikla velmegun. Fólk hefur efni á því að leyfa sér margt. Eitt af því er að landsmenn ferðast mikið til útlanda í sumarleyfum sínum. Er hugsanlegt að einhverjir einstakling- ar, sem komnir eru nokkuð við aldur og þurfa t.d. á bæklunaraðgerð að halda, sem ekki er kostur á nema eftir nokkurra missera bið, mundu hugsan- lega vilja fórna svo sem einu sumar- leyfi á Spánarströndum fyrir að borga fyrir aðgerð og fá hana fyrr? Er kannski hugsanlegt að börn og tengdabörn mundu vilja taka þátt í því að auðvelda öldruðum foreldrum sín- um lífið með því að taka þátt í slíkum kostnaði? Auðvitað er svarið við báðum þess- um spurningum jákvætt. Og það er al- veg ljóst að því fleiri, sem tækju slíka ákvörðun þeim mun styttri yrði bið- tíminn fyrir hina, sem hefðu alls ekki efni á að greiða fyrir slíka aðgerð á einkarekinni læknastofu. Það dettur varla nokkrum manni í hug að einkavæða allt heilbrigðiskerf- ið. Þvert á móti er ljóst, að grunnkerfi heilbrigðisþjónustunnar verður opin- bert og rekið fyrir opinbert fé. En það er rangt að halda því fram, að einka- rekinn valkostur geti ekki komið til sögunnar á vissum sviðum heilbrigð- isþjónustunnar án þess að raskað sé því jafnvægi jafnaðar og velferðar, sem náðst hefur í íslenzku samfélagi. Í ræðu sinni á miðstjórnarfundinum sagði formaður Framsóknarflokksins einnig: „Slík framtíðarsýn, tvískipt heil- brigðiskerfi, mismunun á grundvelli efnahags- og félagslegrar stöðu, er ekki sú framtíðarsýn, sem við fram- sóknarmenn höfum. Við viljum að vel- ferðarkerfið lúti lögmálum samhjálp- ar og samvinnu, kærleika og umhyggju, ekki gróðahyggju.“ Ef ræða Halldórs Ásgrímssonar þýðir, að Framsóknarflokkurinn sé yf- irleitt ekki til viðtals um einkarekinn valkost í heilbrigðiskerfinu verða bæði formaðurinn og flokkurinn í heild að svara þeirri spurningu, hvernig þeir ætli þá að tryggja almenningi í þessu landi viðunandi heilbrigðisþjónustu. Hvernig ætla þeir að útrýma biðlist- um? Hvernig ætla þeir að tryggja fólki viðunandi aðgang að heimilislæknum? Hvernig ætla þeir að tryggja viðun- andi rekstrargrundvöll spítalanna í landinu? Hvernig ætla þeir að lækka beinan lyfjakostnað sjúklinga, sem nú þegar er orðinn of hár? Þeir sem segja að einkarekinn val- kostur í heilbrigðiskerfinu komi ekki til greina verða að svara þessum spurningum. Það á meðal annars við um Framsóknarflokkinn og talsmenn hans. Óbreytt ástand gengur ekki. Bið- listar sem lengjast í stað þess að stytt- ast ganga ekki. Það er óviðunandi að stórir hópar íbúa höfuðborgarsvæðis- ins, hvað þá annarra landshluta, geti ekki haft greiðan aðgang að þjónustu heimilislækna. Það væri æskilegt að einhver svör fengjust við spurningum af þessu tagi í ályktunum miðstjórnarfundar Fram- sóknarflokksins, úr því að flokkurinn telur einkarekstur í einhverri mynd alls ekki koma til greina í heilbrigð- isþjónustu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.