Morgunblaðið - 30.11.2002, Blaðsíða 73

Morgunblaðið - 30.11.2002, Blaðsíða 73
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 73 BINDINDISDAGUR fjölskyldunn- ar er okkur sem reynum að berjast gegn því að menn aki eftir að hafa neytt áfengis kærkomið tæki- færi til þess að huga að þeim tíma sem fram- undan er, aðvent- unni. Því miður hefur reynslan verið sú að fólk neytir meira áfengis í desem- bermánuði en í öðrum mánuðum ársins. Jólaglögg- ið, sem oft var sterkt blandað, var vandamál fyrir nokkrum árum, síð- an tóku jólahlaðborðin vinsælu við og alltaf er það svo að einhverjum ökumönnum dettur í hug að það sé allt í lagi fyrir þá að aka þótt þeir hafi drukkið nokkur glös með kræs- ingunum. Við skulum vona að sem flestir eigi þess kost á næstu vikum að njóta jólahlaðborða víða um land, en láti bílinn vera hafi þeir smakkað það. Neysla áfengis hefur mikil áhrif á mannslíkamann. Þyngst vegur að dómgreind skerðist og það í réttu hlutfalli við það áfengismagn sem innbyrt er. Möguleikar á að meta að- stæður rétt, fjarlægðir, hraða aðvíf- andi ökutækja o.s.frv. minnka til mikilla muna og öll nákvæmni í akstri fer veg allrar veraldar. Við bætist að sjónsvið þrengist og sjón í myrkri versnar og minnkandi sjón og athyglisgáfa verða m.a. til þess að menn taka ekki eftir lögreglubíl sem í sitja lögreglumenn sem eru sér- fræðingar í að meta aksturslag með tilliti til þess hvort líkur eru á að ökumaður sé drukkinn. Vinsamleg- ast hugleiðið efni í meðfylgjandi töflu. Við skulum minnast þess að um það bil 20% banaslysa í umferð hér á landi má rekja til ölvaðra ökumanna eða ölvaðra gangandi vegfarenda sem verða fyrir bíl. Spillum ekki þeim skemmtilega tíma sem fram- undan er með vanhugsuðum akstri undir áhrifum áfengis. ,,Eftir einn – ei aki neinn“. ÓLI H. ÞÓRÐARSON, formaður og framkvæmdastjóri Umferðarráðs. %      &  $   $ 8$ 8 4 =->--"      %   %  9%   % <    $    00?  4)+1? 8 & #  $  $ %   #$ $     #$ & '$ (  )*+    %  +  ,+ )*% $  +$ ) #$ )* -.'/ 01$  % $ 2* $     3   % ' $  #$ * $    *+ %) + #& $+  $   $ ,  +*$  % ' $ *  4 *5  6)*%$ / +$ / $ + *  #  $  * %  / +$ / ,+% $ % ' $ *  7   * +    )** 2  $ * $ *+ $  $ / $    + 8&' $  ' 7  * +   / $$ $  ,*' $ / +$ / & $   $ 7*  1 *+  $ %    $   )** (  %  + + / 9 /  #& $ *+ * 3*%  $ :   :    /  ! )0 ,* 21 !,)- -+) -+, !+- !+, /+- ,,Eftir einn – ei aki neinn“ Frá Óla H. Þórðarsyni: Óli H. Þórðarson UNDANFARNA viku hefur mikið verið rætt um 8% hækkun leikskóla- gjalda í Reykjavík sem kemur til framkvæmda um áramót. Um leið og gjaldskrár- hækkunin var ákveðin var því slegið föstu að öllum leikskólum skyldi lokað í fjórar vikur næsta sumar. Þessi staðreynd hefur ekki vakið mikla athygli og í raun alveg orðið undir í umræðunni. Áður fyrr var það keppikefli borgaryfirvalda að halda einhverri starfsemi allt sum- arið, en nú hefur verið tekin ákvörð- un um að skerða þjónustu við for- eldra. Þeir fjölmörgu sem ekki geta tekið sér sumarfrí á þeim tíma sem leikskólanum þóknast að loka verða að bjarga sér fyrir horn með því að leita á náðir ættingja eða skilja af- kvæmin eftir í höndum hálfstálp- aðra barna, og vona að dagurinn verði stórslysalaus. Þetta er mikil afturför og í raun óskiljanlegt að Reykjavíkurborg skuli taka svona ákvörðun á nýrri öld. Er þetta aðferðin til að bæta skilyrði barnafólks og möguleika kvenna til þátttöku í atvinnulífinu? Þegar Reykjavíkurlistinn tók við borginni úr höndum Sjálfstæðis- flokksins á sínum tíma var uppbygg- ing leikskólakerfisins og almenn þjónusta við barnafólk eitt mesta keppikefli hins nýja meirihluta. Síð- an er mikið vatn runnið til sjávar og margt hefur breyst til batnaðar þótt enn megi bæta þjónustu, sérstak- lega fyrir yngstu börnin. Því þykir mér skjóta skökku við þegar Reykjavíkurlistinn stendur fyrir þjónustuskerðingu af þessum toga. Þess má geta að í þjónustusamningi við nýlegan einkarekinn leikskóla í Garðabæ var sett það skilyrði að leikskólinn yrði opinn allt sumarið. Garðabær lýtur stjórn Sjálfstæðis- flokksins sem hér gætir hagsmuna barnafólks og get ég því ekki betur séð en að flokksblokkirnar hafi skipt um klæði. Reykjavíkurlistinn er hér að bregðast barnafólki, það eru margar starfsgreinar þar sem ekki er frjálst val um sumarleyfistíma, og vil ég biðja leikskólayfirvöld í Reykjavík að endurskoða afstöðu sína. Það getur ekki verið ætlun borgaryfirvalda að stefna í þessa átt. GUÐRÚN A. SÆVARSDÓTTIR, eðlisfræðingur. Sumarlokun leikskóla Frá Guðrúnu A. Sævarsdóttur: Guðrún A. Sævarsdóttir FRÉTTIR Bridsfélag Kópavogs Þá er lokið 5 kvölda Barómeter tvímenningi, þar sem spennan hélst alveg fram á síðustu setu. En að lokum fór ekkert á milli mála hverj- ir voru sigurvegarar. Lokastaðan: Magnús Aspelund – Steingrímur Jónass. 212 Eggert Bergsson – Unnar Atli Guðm. 163 Jens Jensson – Jón Steinar Ingólfsson 124 Ragnar Björnss. – Sigurður Sigurjónss. 122 Hæstu kvöldskor: Magnús Aspelund – Steingrímur Jónass. 128 Jens Jensson – Jón Steinar Ingólfsson 82 Harpa Fold Ingólfsd. – María Haraldsd. 65 Björn Friðriksson – Guðlaugur Bessason 59 Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði Glæsibæ mánud. 25. nóv. 2002. 22 pör. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Sæmundur Björnss. – Olíver Kristóf. 244 Júlíus Guðmundsson – Rafn Kristjánss. 240 Eysteinn Einarsson – Magnús Oddsson 240 Árangur A-V: Halldór Magnússon – Sigurður Karlss. 244 Sigurleifur Guðjónss. – Guðm. G. Guðm.243 Kristján Ólafsson – Ólafur Gíslason 234 Tvímenningskeppni spiluð fimm- tud. 28. nóvember. 22 pör. Meðal- skor 216 stig. Árangur N-S: Sæmundur Björnss. – Olíver Kristóf. 261 Hannibal Helgason – Magnús Jósefss. 251 Eysteinn Einarsson – Kristján Ólafss. 237 Árangur A-V.: Haukur Guðmundsson – Gunnar Hersir 270 Sigurleifur Guðjónss. – Guðm. G. Guðm.241 Oddur Jónsson – Ægir Ferdinantsson 228 26 pör í Gullsmára Bridsdeild FEBK Gullsmára spil- aði tvímennig á 13 borðum fimmtu- daginn 28. nóvember. Meðalskor 264. Beztum árangri náðu. NS Óla Jónsdóttir – Anna Jónsdóttir 325 Kristján Guðm.. – Sigurður Jóhannss. 303 Þorgerður Sigurgeirsd. – Stefán Friðbj. 295 AV Unnur Jónsdóttir – Jónas Jónsson 299 Sigtryggur Ellertss. – Þóarinn Árnas. 299 Jón Páll Ingiberss. – Ingólfur Viktorss. 290 Sigursveitin í sveitakeppni deild- arinnar var þannig skipuð: Kristinn Guðmundsson, Guðmundur Pálsson, Karl Gunnarsson og Ernst Back- man. Nýliðabrids Fimmtudaginn 28. nóv. mættu 11 pör í Síðumúlann. Spilaður var 15 spila mitchell. Lokastaðan var þessi: N-S riðill: Birgir Berndsen – Karl Þorsteins 68 Gunnlaugur Jóhannsson – Örn Ingólfss. 66 Guðni Harðars. – Hrafnhildur Konráðsd. 65 Ingólfur Sigurjónss. – Jónas Ágústss. 65 A-V riðill: Þórir Jóhannsson – Eiríkur Eiðsson 70 Stefán Stefánsson – Kristján Nielsen 70 Hrafnhildur Guðm. – Bryndís Guðm. 66 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson rette-einstaklinga og stuðla að upp- lýsingamiðlun, þar sem aukinn al- mennur fróðleikur um Tourette og skilningur á sjúkdómnum er ákaf- lega mikilvægur fyrir fólk með þennan sjúkdóm. Markmið félaganna er að styðja við bakið á einstaklingum sem eiga við fötlun vegna þessara sjúkdóma að stríða og aðstandendum þeirra, gæta hagsmuna þeirra innan sem utan sjúkrahúsa og fræða almenn- ing um sjúkdómana. Allt starf sem unnið er á vegum félaganna er unn- ið í sjálfboðavinnu. Félagsgjöld, sala korta og muna ásamt styrkjum standa straum af daglegum rekstri félagsins. ÖGMUNDUR Einarsson, fram- kvæmdastjóri SORPU, afhenti í fyrradag CP- félaginu á Íslandi og Tourette- samtökunum á Íslandi, hvoru fyrir sig, 450.000 króna styrk frá Góða hirðinum. Góði hirðirinn er rekinn af SORPU í samvinnu við líknarfélög og sér SORPA um að safna húsbún- aði og selja hann í gegnum Góða hirðinn en ágóð- inn af sölunni fer til líknarmála. Þetta er fjórða árið sem árangur af samstarfinu skilar styrkjum til líknarstarfs. CP-félagið (celebral palsy) er stuðningsfélag þeirra sem eiga við hreyfifötlun að stríða en hugtakið CP er notað yfir hreyfihamlanir sem eiga rætur að rekja til heila- skemmda. CP er margskonar fötlun sem spannar allt frá vægri hömlun sem háir einstaklingi ekki í daglegu lífi, til alvarlegrar hreyfifötlunar sem einnig getur fylgt önnur skerð- ing s.s. þroskahömlun eða önnur fylgifötlun. Tourette-samtökin eru landssamtök einstaklinga með Tou- rette-heilkenni og fjölskyldna þeirra. Meginmarkmið samtakanna er að standa vörð um hagsmuni Tou- Sorpa styrkir Tour- ette- og CP-félögin Morgunblaðið/Þorkell F.v. Sólrún Auðunsdóttir, verslunarstjóri Góða hirðisins Lárus Kristjánsson, Hjörtur Már Ingvarsson, Dagur Steinn Elfu Ómarsson í fangi Ómars Arnar Jónssonar, formanns CP félagsins og Ögmundur Einarsson, fram- kvæmdastjóri Sorpu. HÁTÍÐARSAMKOMA stúdenta í tilefni af fullveldisdegi íslensku þjóð- arinnar verður á morgun, sunnudag- inn 1. desember, og hefst með hátíð- armessu í kapellu Aðalbyggingar Háskóla Íslands, kl. 11, á vegum guðfræðinema. Séra Kristján Valur Ingólfsson, predikari Ragnar Gunn- arsson. Kaffi á eftir. Kl. 12.15 verður lagður blómsveigur að leiði Jóns Sig- urðssonar í Suðurgötukirkjugarði. Guðjón Friðriksson flytur minni Jóns. Hátíðarsamkoma verður kl. 13 í hátíðarsal Aðalbyggingar Háskóla Íslands í samstarfi Stúdentaráðs og Jafnréttisnefndar Háskóla Íslands. Ávörp flytja: Páls Skúlasonar, rekt- ors Háskóla Íslands, Helgi Skúli Kjartansson rithöfundur, Sigurður Líndal lagaprófessor, Svanur Krist- jánsson stjórnmálafræðiprófessor, Brynjólfur Stefánsson, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Tónlistaratriði flytja: Kór Háskóla Íslands, Hreiðar Ingi Þorsteinsson ásamt Bjarna Snæbjörnssyni og Hafsteini Þór. Fundarstjóri er Baldvin Þór Bergsson. Heiðursgestur hátíð- arsamkomunnar er forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson. Fullveldis- fagnaður stúdenta mbl.is VIÐSKIPTI Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Þú færð jólagjafirnar fyrir starfsfólkið hjá okkur Jólagjafir starfsfólksins G æ ð i á N e tt o v e rð i. .. ELBA gerð 21-623 stál: 4-kerfa ofn með blæstri og digitalklukku Nú 39.990,- stgr. Ofnar 10 gerðir frá 29.990,- ELBA gerð 17-400 stál: 4 gasbrennarar, þ.a. 1 tvöfaldur, elektrónísk kveiking. Nú 24.990,- stgr. Gasborð 8 gerðir frá 13.990,- Gas+raf 2 gerðir frá 24.900,- Rafborð 12 gerðir frá 9.990,- ELBA gerð HMC-614 stál: 60cm breiður, 3ja hraða, afköst 250/400/500 m3 Nú 19.990,- stgr. kolsíur innif. í verði Viftur 9 gerðir frá 6.990,- JÓLA TILBOÐ OFNAR – HELLUBORÐ – VIFTUR ASKALIND 3 - KÓPAVOGI - SÍMI: 562 1500 E L B A e ld a vé la r — o fn a r — h e ll u b o rð — v if tu r g æ ð in ó tv ír æ ð ve rð ið f rá b æ rt … Buxur Neðst á Skólavörðustíg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.