Morgunblaðið - 30.11.2002, Síða 74

Morgunblaðið - 30.11.2002, Síða 74
DAGBÓK 74 LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Í dag fara út Gullfaxi KE og Bjarni Ólafsson AK. Hafnarfjarðarhöfn: Í dag koma Ludvik And- ersen og Cielo de Bis- caglia. Mannamót Bólstaðarhlíð 43. Litlu jólin fimmtud. 5. des. Jólahlaðborð. Uppselt. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Púttað í Hraunseli mánudag kl. 10, þriðjud. kl. 13, fimm- tud. kl. 10 og föst. kl. 13. Námskeið í mótun á leir alla föstudaga kl. 13–16. Laus pláss. Billj- ardstofan opin alla virka daga kl. 13–16. Skráning og allar uppl. í Hraunseli í síma 555-0142. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið opið mánu- og fimmtudaga. Mánud.: Kl. 16 leikfimi. Fimmtud.: kl. 13 tré- skurður, kl. 14 bókasafn- ið, kl. 15–16 bókaspjall, kl. 17–19 æfing kórs eldri borgara í Damos. Laug- ard.: kl. 10–12 bókband, línudans kl. 11. Hvassaleiti 56–58. Kl. 13.30–16 basar, Hvass- óportið. Margt góðra muna s.s. sultutau, kök- ur, handavinna, föt og barnadót. Allir velkomn- ir og kaffisalan opin. Korpúlfarnir, eldri borg- arar í Grafarvogi. Fim- mud.: Kl. 10, aðra hverja viku púttað á Korpúlfs- stöðum, hina vikuna keila í Keilu í Mjódd. Vatnsleikfimi í Graf- arvogslaug á þriðjud. kl. 9.45 og föstud. kl. 9.30. Uppl. í s. 5454 500. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Ferð á Nesja- velli 10. desember kl. 12.30 í boði sýslumanns- ins í Hafnarfirði og lög- reglunnar í Garðabæ. 2. des. Lyfja með mælingar og ráðgjöf allan daginn í Félagsmiðstöð aldraðra í Kirkjuhvoli kl. 9.30, 10.15 og 11.10 Leikfimi kl. 12.30 Leirmótun kl. 16 spænska. 3. des. kl. 10.30 upplestur úr nýjum bókum í Bókasafni Garðabæjar kl. 11.40 leikfimi karla kl. 13 mál- un kl. 13.30 Tréskurður. 4. des. Bingó í Holtsbúð – Leikfimi samkvæmt stundaskrá. kl. 13.30 Trésmíði kl. 14. Klippi- myndir og handa- vinnuhornið. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Áður auglýstur félagsfundur með þing- mönnum Reykjavíkur laug. 30. nóv. Sunnudagur: Dansleikur kl. 20 Capri tríó leikur fyrir dansi. Jólafagnaður í Ásgarði, Glæsibæ mið. 4. des. nk. og hefst kl. 20. Hugvekju flytur Guðrún Ásmundsdóttir. Karla- kórinn Kátir karlar syngur. Létt jólalög verða sungin. Danshópur Sigvalda sýnir línudans og dansað á eftir. Skrán- ing á skrifstofu félagsins. Ljósaskreytingar á Akranesi, stutt dagsferð 15. des. Byggðasafnið í Görðum o.fl. Kaffihlað- borð. Upplýsingar á skrifstofu FEB. Upplýsingar á skrifstofu FEB. Gerðuberg, félagsstarf. Myndlistarsýning Árna Sighvatssonar stendur yfir. Föstud. 6. des. dans- leikur. Hljómsveit Hjör- dísar Geirs. Húsið opnað kl. 19.30. Allar uppl. um starfsemina á staðnum og í síma 575-7720. Hraunbær 105. Jóla- fagnaður föst. 6. des. Jólahlaðborð. Húsið opn- að kl. 18 með fordrykk. Ræðumaður Dagur B. Eggertsson. Nemendur úr Ártúnsskóla syngja. Jólasaga. Hugvekja. Graduale kór Árbæj- arsóknar syngur. Verð kr. 2.700. Skráning á skrifstofu fyrir 4. des. Norðurbrún 1. Jólamat- ur og skemmtun verður föst. 6. des. kl. 18. Guð- rún Þórisdóttir flytur jólahugvekju. Kór Vest- urgötu syngur undir stjórn Sigurbjargar Hólmgrímsdóttur. María Jónsdóttir kemur frá Söngskóla Reykjavíkur og syngur við undirleik Elínar Guðmundsdóttur. Húsið opnað kl. 17.30. Nánari uppl. í síma 568- 6960. Allir velkomnir. Digraneskirkja, kirkju- starf aldraðra. Opið hús á þriðjudag frá kl. 11 leikfimi, léttur máls- verður, helgistund, fræðsluþáttur, kaffi. All- ir velkomnir. Gönguklúbbur Hana-nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krummakaffi kl. 9. Allir velkomnir Félag einhleypra. Fund- ur í kvöld kl. 21 í Konna- koti Hverfisgötu 105. Nýir félagar velkomnir. Munið gönguna mánu- og fimmtudaga. Kvenfélag Kópavogs heldur jólabasar í dag kl. 14 í sal félagsins í Hamraborg 19. Ágóði rennur til Mæðrastyrks- nefndar í Kópavogi. Fal- legir handunnir hlutir og kökusala. Kaffi og vöffl- ur. Hallgrímskirkja. Opið hús 4. des. kl. 14. Sr. Sig- urður Pálsson sér um stundina. Karl Kristian- sen leikur jólalög á harmonikku. Kaffiveit- ingar. Allir velkomnir. SVDK Hraunprýði, Hafnarfirði, heldur jóla- fund í Skútunni þri. 10. des. kl. 19. Einsöngur Alda Ingibergsdóttir. Upplestur, happdrætti, jólahugvekja. Miðar seldir í Firði fim. 5. des. og föst. 6. des. kl. 14–18. Mætum allar og tökum með okkur gesti. Stjórn- in. Kvenfélag Hrund. Jóla- fundur félagsins verður mánudaginn 2. desember kl. 20 að Hjallahrauni 8. Hátíðardagskrá og veit- ingar. Stjórnin. Vestfirðingafélagið í Reykjavík. Aðalfund- urinn verður sun. 1. des. kl. 14 í Kvennaskólanum á Fríkirkjuvegi 9. Allir Vestfirðingar og gestir þeirra velkomnir. Kvenfélagið Hrönn. Jólafundur fimmtud. 5. des. kl. 19 í sal Flug- virkjafélags Íslands, Borgartúni 22. Jólahlað- borð. Tilkynnið þátttöku sem fyrst til stjórnar. Kvenfélagið Hring- urinn, Hafnarfirði. Jóla- fundur 1. des. kl. 18.30 í Gaflinum. Jólahlaðborð, skemmtiatriði, happ- drætti, hugvekja. Kvenfélag Lágafells- sóknar heldur jólafund sinn í Hlégarði 2. desem- ber kl. 19.30. Jólamatur, jólasaga o.fl. Munið eftir jólapökkunum. Tilkynnið þátttöku. MG félag Íslands. Ákveðið hefur verið að halda spjallfund yfir kaffibolla laugardaginn 30. nóv. kl. 14 í Kaffisal ÖBÍ, Hátúni 10. Mætum öll. Stjórnin. Breiðfirðingafélagið. Félagsvist á morgun, 1. des., kl. 14. Fjórði dagur í fjögurra daga keppni. Kaffiveitingar eftir spil- ið. Indlandsvinafélagið efn- ir til Indlandskvölds í kvöld kl. 19 í Alþjóðahús- inu, Hverfisgötu 18. Jólafundur Aglow Reykjavík verður mán. 2. des. nk. kl. 20 í Templ- arasalnum, Stangarhyl 4, Reykjavík. Gestur fundarins verður Gunnar Wiencke, trommuleikari og trúboði. Jólasöngvar í umsjón Mirjam Ósk- arsdóttur og helgileikur sýndur af unglingahóp Vegarins. Jólakaffihlað- borð og allir fá jólagjöf. Allir velkomnir. Þátt- tökugjald er 800 kr. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. GA-fundir spilafíkla, kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtudögum í fræðslu- deild SÁA, Síðumúla 3–5, og í Kirkju Óháða safn- aðarins við Háteigsveg á laugardögum kl. 10.30. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fund- ir mánudaga kl. 20 á Sól- vallagötu 12. Ásartrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Í dag er laugardagur 30. nóvember 334. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Enn segi ég: Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga en auð- manni að komast inn í Guðs ríki. (Matt. 19, 24) K r o s s g á t a 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 hreyfingarlausa, 8 set- ur, 9 hæfileikinn, 10 eldi- viður, 11 víðáttu, 13 flan- aði, 15 rok, 18 svikull, 21 ekki gömul, 22 endar, 23 synji, 24 meta á ný. LÓÐRÉTT: 2 illkvittni, 3 heykvíslar, 4 gretta sig, 5 slitna, 6 krampakast, 7 röski, 12 stúlka, 14 veiðarfæri, 15 vers, 16 fárviðri, 17 smá- silungs, 18 hótum, 19 illt, 20 kyrrðin. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 volks, 4 fíkja, 7 dómur, 8 ömmur, 9 ger, 11 aurs, 13 saur, 14 álinu, 15 sjór, 17 mett, 20 sló, 22 nakin, 23 vinda, 24 afmáð, 25 tíðka. Lóðrétt: 1 vodka, 2 lemur, 3 sorg, 4 fjör, 5 komma, 6 aðr- ar, 10 erill, 12 sár, 13 sum, 15 sinna, 16 óskum, 18 ennið, 19 trana, 20 snið, 21 óvit. Víkverji skrifar... ÞAÐ eru 25 dagar til jóla og jóla-skrautið nú þegar farið að fölna í verslunarmiðstöðvunum. Engin furða að aumingja börnin séu orðin viðþolslaus af eftirvæntingu og farin að telja taugaveikluð niður dagana. En að eins sé farið með blessaða útvarpsmennina, það er eitthvað undarlegra. Ekki nóg með það held- ur voru þeir byrjaðir að telja niður fyrir réttum hálfum mánuði, þegar þeir tóku sig til á einni af vinsælli stöðvunum og fóru að leika jólalög, svona rétt um það bil sem sumar- smellirnir hættu að óma. Þjóðin mun því fá að njóta þess að hlýða á sömu lögin – 40 eða svo – enn ein jólin og það oft á dag í tæpan einn og hálfan mánuð „Skyld’að vera jólahjól, von- a’ð það sé jólahjól, held að það jóla- hjól“ út í eitt þar til það glymur í eyr- unum og þjösnar fólki í jólaskapið löngu áður það kærir sig um, í það minnsta stór hluti þess. x x x VÍKVERJI er engu minna jóla-barn en hver annar en honum hefur gramist að vera búinn að fá sig fullsaddan af þessu annars bráð- nauðsynlega kryddi í tilveruna sem góð jólalög geta verið, einmitt þegar hann er tilbúin að fara í jólaskap, u.þ.b. viku áður en Eiríkur Hauks- son lætur „klukkur hringj’inn jólin.“ x x x ANNAÐ er að það er bara eitt-hvað mjög bogið við það að raula óvart með blessuðu viðtækinu um miðjan nóvember „ég sá mömmu kyssa jólasvein“ þegar alkunna er að þeir rauðklæddu skila sér ekki til byggða fyrr en í fyrsta lagi mánuði síðar. Hvað var hún mamma þá að þvælast þarna upp í fjöllum? En svo virðist sem þessi óþreyja verslunarmanna og tónlistarstjóra útvarpsstöðvanna hafi haft býsna al- varlegar afleiðingar og smitað út frá sér á hættulegar slóðir, alla leið upp til fjalla. Þannig er nefnilega mál með vexti að jólasveinunum virðist líka vera farið að liggja þessi reið- innar ósköp á og gefa gömlum siðum langt nef sem finna má í þjóðsögum og vísum um það hvenær þeir eigi að skila sér til byggða einn af öðrum, eða réttara sagt einn og átta, eða þrettán – hvernig sem á það er litið – síðustu dagana fyrir jól. Þessa sorglegu uppgötvun gerði Víkverji um síðustu helgi þegar hver jólasveinninn af öðrum varð á vegi hans í miðborginni – og Grýla og Leppalúði líka. Og ekki fékk Víkverji betur séð en að erindi þeirra í bæinn hefði verið að auglýsa starfsemi Þjóðleikhússins því nægir voru aug- lýsingasneplarnir sem hinir rauð- klæddu og þeirra hersing otuðu að vegfarendum og börnunum líka. Skemmtilegar gjafir úr fjöllunum það. x x x ÞAÐ er ekkert að því að skapajólastemningu því hún færir sannarlega kærkomna glætu inn í svartasta skammdegið en það má ekki rugla börnin í ríminu og vekja í brjósti þeirra of mikla spennu of brátt því þegar maður er ungur get- ur mánuður virkað sem heil eilífð. Munum bara að „jólin koma, jólin koma“, en bara ekki fyrr en eftir 25 daga. Body Shop VIÐ erum hérna tvær 14 ára stelpur og langar að kvarta yfir hegðun starfs- fólks Body Shop í Kringl- unni, því að í tvö skipti sem við höfum lagt leið okkar þangað hefur okkur gjör- samlega blöskrað ókurteis- in og yfirgangurinn í þeim. Fyrra skiptið var fyrir um tveimur árum þegar við vorum aðeins 12 ára. Vor- um við þá eitthvað að skoða í búðarhillurnar og prófa hinar og þessar vörur. Svo þegar við erum á leiðinni út kallaði ein afgreiðslustúlk- an í okkur og bað okkur að fylgja sér í eitthvert bak- herbergi sem var þarna. Við eltum hana og þegar við vorum komnar inn byrj- aði hún bara að ásaka okk- ur um þjófnað en við höfð- um engu stolið. Við vorum svo ungar og hræddar að við gerðum bara nákvæmlega það sem hún sagði okkur að gera, en það var að tæma veski okk- ar og vasa. Við vissum það ekki þá, en vitum núna, að þetta er bannað, enginn nema lögreglan má leita á okkur. Þegar við komum heim ákváðum við að gera ekkert í þessu þó að okkur liði sannarlega illa. En seinna atvikið gerðist núna síðast- liðinn miðvikudag, þ.e. 20. nóvember. Þá vorum við aftur staddar í þessari sömu verslun (reyndar annað afgreiðslufólk). Þá erum við bara að skoða (ekkert að prufa) og reyna að ákveða hvernig „eye-- liner“ okkur langaði í. Áður en langt um leið tókum við eftir því að önn- ur afgreiðslustúlkan var farin að veita okkur eftirför um búðina. Og allt í einu sagði hún eða réttara sagt hvæsti á okkur: „Stelpur, viljið þið ekki vera að skemma vörurnar.“ Okkur brá svo mikið að við gátum rétt svo stamað upp úr okk- ur hvort við mættum ekki skoða. Þá sagði hún bara á enn dónalegri hátt en áður: „Er þá ekki eitthvað sem ég get sýnt ykkur? Þið eigið ekk- ert með að vera að krota á og skemma vörurnar.“ Okkur brá svo að við gengum bara orðalaust út. Við viljum gjarnan benda yfirmönnum Body Shop á að brýna fyrir fólki sínu að koma fram við alla af kurteisi. En við höfum tekið þá ákvörðun að versla aldrei framar í Body Shop í Kringlunni. Eyja Drífa Ingólfsdóttir og Sara Guðrún Þorkelsdóttir. Stuðningsaðilar Herdís hafði samband við Velvakanda og vildi hún minna fólk á að gerast stuðningsaðilar fyrir Amn- esty International. Segir hún að Íslendingar ættu að vera sem flestir í þessum samtökum og að þeir sem vilji kynnast þessum sam- tökum geti kynnt sér þau á heimasíðu samtakanna. Engin smábörn í bíó Í mörgum löndum tíðkast það að fólk frá barnavernd- arnefndum standi við dyr kvikmyndahúsa og meini smábörnum að fara á myndir sem eru ekki við hæfi barna þótt þær séu ekki bannaðar börnum. Amma. Dýr harðfiskur MÉR ofbauð þegar ég fór í verslun í Keflavík og keypti mér þar harðfisk. Þetta var Flateyrarfiskur, með roði, og kostar hann 6.600 kr. kg. Ég vigtaði frá roðið og þá fór fiskurinn í tæpar 11.000 kr. kg. Við hliðina var fiskur frá Stjörnufiski, roðlaus, og kostaði kílóið af honum 4.690 kr. Jónas. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/RAX
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.