Morgunblaðið - 30.11.2002, Blaðsíða 75
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 75
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
BOGMAÐUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert hreinskilinn og gefur
þig allan í það sem þú tekur
þér fyrir hendur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Ef erfiðleikar koma upp,
ræddu þá hlutina við þá sem
þú treystir og þá sérstaklega
einhvern sem hefur staðið í
svipuðum sporum áður.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér finnst þú til í hvað sem
er og ættir að láta það eftir
þér að reyna á dirfsku þína
og hugkvæmni. Það reynist
vel.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Fylgdu hugboði þínu og
komdu skipulagi á atvinnu-
og einkalíf þitt. Betri vinnu-
aðstaða gæti verið á næstu
grösum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þér finnst þetta vera erfiðir
tímar og þú átt bágt með að
einbeita þér að því sem þú
þarft að gera. Reyndu að
standa meira á eigin fótum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það getur verið auðvelt að
eignast vini og aðdáendur,
en mundu bara að ekki eru
allir viðhlæjendur vinir.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú átt í einhverjum útistöð-
um við vini þína. Þegar þú
kveður upp úrskurð þinn
skaltu muna að tvær hliðar
eru á öllum málum.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Nú virðist vera rétta tæki-
færið fyrir þig að koma mál-
um þínum áfram. Gríptu
endilega tækifærið ef þú get-
ur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Óvænt áform um ferðalög
gætu komið þér á óvart.
Sofnaðu ekki á verðinum því
augnabliks sofandaháttur
getur reynst afdrikaríkur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú átt að nota hæfileika þína
til þess að koma lagi á fjár-
málin og þegar það er búið á
önnur svið lífs þíns líka.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það sakar ekki að staldra við
og hugleiða hversu ríkur
maður raunverulega er af
vinum og vandamönnum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú þarft að læra að fara með
það vald sem þér er fengið.
Vertu stöðugt á tánum og
leystu þau mál sem upp
koma jafnóðum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það verða báðir aðilar í sam-
bandi að leggja sitt af mörk-
um ef sambandið á að geta
gengið. Mundu að aðgát skal
höfð í nærveru sálar.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 30.
nóvember, er áttræð Svan-
hildur Snæbjörnsdóttir til
heimilis á Hrafnistu í
Reykjavík. Þeir sem vilja
samfagna með Svanhildi á
þessum tímamótum eru vel-
komnir í Holtasel 37 í
Reykjavík í dag kl 15–18,
þar sem Svanhildur heldur
upp á daginn í faðmi stór-
fjölskyldunnar.
50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 30.
nóvember, er fimmtug Mar-
grét Einarsdóttir, Grettis-
götu 86, deildarfulltrúi á
Fasteignastofu Reykjavík-
urborgar. Eiginmaður
hennar er Baldur Jónasson.
Í tilefni afmælisins taka þau
á móti ættingjum og vinum í
sal Starfsmannafélags Flug-
leiða, Síðumúla 11, 2. hæð,
austurenda, milli kl. 17 og 20
á afmælisdaginn.
LJÓÐABROT
Brim gnýr, brattir hamrar
blálands Haka strandar,
allt gjálfr eyja þjálfa
út líðr í stað víðis.
Mér kveð eg heldr of Hildi
hrannbliks en þér miklu
svefnfátt; sörva Gefnar
sakna mun eg, ef eg vakna.
x x x
Léttfæran skaltu láta,
ljóstu vendi mar, Tósti,
móðr um miklar heiðar
minn hest und þér rinna.
Makara er mér að mæla
en mórauða sauði
um afréttu elta
orð margt við Steingerði.
Kormákur Ögmundarson
SPILARAR telja það
óstuð þegar þrjú tromp
varnarinnar liggja öll á
sömu hendi. Og svo er vissu-
lega, en hins vegar er tíðni
slíkrar legu þó 22% og því
má búast við henni annað
slagið.
Norður
♠ 10652
♥ 642
♦ ÁD5
♣1043
Suður
♠ ÁK9843
♥ ÁKD
♦ 3
♣ÁKG
Suður spilar sex spaða og
fær út hjartatíu. Slemman
er auðvitað skotheld ef
trompið kemur 2-1, en þegar
sagnhafi leggur niður
trompásinn í öðrum slag
hendir austur tígli. Hvernig
á nú að spila?
Ein hugmynd væri að
taka ÁK í laufi og athuga
hvort drottningin falli blönk
eða önnur. Ef ekki, væri
hægt að svína tíguldrottn-
ingu. Líkur á Dx eða stakri
þegar vörnin á sex spil eru
rúmlega 18% og tígulsvín-
ingin hefur rýrnað að verð-
gildi eftir að spaðalegan
sýnir sig, svo þessi leið er
ekki eins góð og hún sýnist
vera. Mun betra er að að
taka tígulásinn og senda
vestur inn á spaða:
Norður
♠ 10652
♥ 642
♦ ÁD5
♣1043
Vestur Austur
♠ DG7 ♠ –
♥ 1098 ♥ G753
♦ 10864 ♦ KG972
♣652 ♣D987
Suður
♠ ÁK9843
♥ ÁKD
♦ 3
♣ÁKG
Þá vinnst slemman ef
vestur á tíglukóng eða aust-
ur laufdrottningu. Vestur
kemst í þessu tilfelli skað-
laust út á tígli, en þá svínar
sagnhafi einfaldlega lauf-
gosanum.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4
4. e3 O-O 5. Bd3 d5 6. Rf3 c5
7. O-O dxc4 8. Bxc4 Rbd7 9.
a3 Ba5 10. De2 cxd4 11. exd4
Bxc3 12. bxc3 Dc7
13. Bd3 b6 14. c4 Bb7
15. He1 Hac8 16.
Bg5 h6 17. Bd2 Hfd8
18. Hac1 Dd6 19.
Bb4 Df4 20. De3 Rh5
21. Rd2 Rdf6 22. Bc3
Staðan kom upp á
Ólympíuskákmótinu
sem lauk fyrir
skömmu í Bled í
Slóveníu. Ofurstór-
meistarinn Michael
Adams (2745) hafði
svart og sýndi hér á
sér allar sínar bestu
hliðar og fléttaði
Alexey Alexandrov (2621) í
bólakaf. 22...Bxg2! 23. Kxg2
Rg4 24. Dh3 Dxf2+ 25. Kh1
Dxe1+! 26. Hxe1 Rf2+ 27.
Kg2 Rxh3 28. Kxh3 Rf4+
29. Kg3 Rxd3 30. He3 Rc1
31. Bb2 Ra2 32. Hb3 b5 33.
c5 Hb8 34. Re4 b4 35. a4
Rc3 og hvítur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Hlutavelta
Morgunblaðið/Ragnhildur
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu 2.900 kr. til styrktar Rauða
krossi Íslands. Þær heita Þórhildur Einarsdóttir, Stella Rut
Guðmundsdóttir og Silja Helgadóttir.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
FRÉTTIR
Toppar og skart
Bankastræti 11 • sími 551 3930
3ja og 4ra herb. íbúðir
við Hamravík til sölu
Vel skipulagðar íbúðir, fallegt útsýni.
100-130 fm stærð.
Byggingaraðili Örn Isebarn
Upplýsingar í símum 896 1606 og 557 7060.
BRIMBORG
frumsýnir nýjan
Ford Focus hjá
Brimborg í dag,
laugardaginn 30.
nóvember, kl.
12–16, í Brimborg-
arsalnum við Bíldshöfða 6. Bifreiðin
er kölluð Focus 007. Við hönnunina
var lögð áhersla á mikinn staðalbún-
að en að verðið væri aðgengilegt al-
menningi. Verðið er frá 1.449.000 kr.
Af þessu tilefni verður efnt til
njósnaleiks þar sem keppendur
svara spurningum um samvinnu
Ford og James Bond í gegnum tíð-
ina. Skilyrði fyrir þátttöku er að
reynsluaka Ford og svara öllum
spurningunum rétt.
Vinningarnir eru 19 Bond-myndir
á DVD, kvöldverður á veitinga-
staðnum ORO við Austur-
stræti og margir hlutir
merktir Bond. Spurn-
ingarnar og svörin er
að finna á
www.brimborg.is
eða í Brimborgarsalnum.
Á sýningunni verður bein útsend-
ing á FM 957, sýnd verða brot úr
nýjustu Bond-myndinni á breiðtjaldi
og hægt verður að spila nýjasta
Bond-leikinn í Play Station. Ski-Doo
MX Z-REV 007 Special Edition-vél-
sleði verður til sýnis.
Starfsmenn Brimborgar verða
klæddir að hætti njósnara hennar
hátignar 007 og þeir fyrstu sem
mæta fá Pepsi Blue og Doritos
snakk, segir í fréttatilkynningu.
Brimborg frumsýnir
Ford Focus 007
Í TILEFNI tuttugu ára afmælis
Kjötbankans gaf fyrirtækið Styrkt-
arfélagi krabbameinssjúkra barna,
SKB, tvöhundruð þúsund krónur.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Har-
ald Hjaltason, framkvæmdastjóra
Kjötbankans, afhenda Gunnari
Ragnarssyni, framkvæmdastjóra
Styrktarfélags krabbameinssjúkra
barna, gjöfina. Í bakgrunni er
karlakórinn Fóstbræður.
SKB fær
styrk