Morgunblaðið - 30.11.2002, Blaðsíða 77
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002 77
Ryan Adams – Demolition
Vonbrigði.
Adams getur að
sögn ekki hætt að
semja og upphaf-
lega stóð til að
þessi þrettán
laga plata, sem
inniheldur ófægðan lagabing eins og
nafn hennar gefur til kynna, yrði
fjórföld! Efnið hér er upp og ofan,
aðallega ofan og maður sér ekki al-
veg tilganginn í því að henda þessu
svona út. J Mascis + The Fog – Free so Free
Gamli góði Dinosaur Jr. kafteinninn
Mascis er greini-
lega farinn að
njóta sín sem
aldrei fyrr. Þetta
er önnur platan
sem hann gerir
undir þessu nafni
og svei mér þá, hún er betri en sú
fyrri, sem var hreint ekkert slor.
Mascis leitar sem fyrr á kunnugleg
mið, er kannski ögn glaðværari og
kæruleysilegri en áður (ímyndið
ykkur það!?). Þægilega áreynslu-
laust um leið og þetta ROKKAR
feitt. Lifi J. Mascis! The D4 – 6Twenty
Enn eitt Strokes/Hives/White Stri-
pes bandið er mætt. The D4 er því
miður fremur útvötnuð eftirherma
þess sem hér er talið þó meiningin
sé góð. Allt eftir bókinni – bara að-
eins of mikið eftir
bókinni. Svalt
viðmót og sjarma
vantar tilfinnan-
lega og eftir
stendur enn ein
hrárokksskífan, í
hópi þeirra hundraða sem nú er
dælt út í meðvindi Hives og félaga.
Og hún er örugglega ekki sú síðasta.
Tenacious D – Tenacious D
Stórskemmtileg
plata þar sem
leikarinn/tónlist-
armaðurinn Jack
Black fer á kost-
um ásamt félaga
sínum Kyle Gass.
Textar laganna eru grínaktugir og
stuttum og vel fyndnum grínflugum
er skotið inn á milli þeirra. Lögin
eru haglega samin, flutningur hress
og kröftugur, og sýnilega mikið í
þetta lagt. Það er fremur sjaldgæft
að verkefni sem þessi séu leyst af
svona miklum metnaði og platan því
enn meira afrek fyrir vikið.
Erlend tónlist
Arnar Eggert Thoroddsen
PLUS
PLUS
ww
w.
for
va
l.is
Ósýnilegur
(Den osynlige)
Spennutryllir
Svíþjóð 2002. Myndform VHS. (95 mín.)
Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn Joel
Bergvall og Simon Sadquist. Aðal-
hlutverk Gustaf Skarsgård, Tuva No-
votny.
HÉR er á ferð nokkurskonar svar
Svía við unglingahrollvekjunum
bandarísku sem tröllriðið hafa öllu
síðan Scream sló í gegn. Og auðvitað
er um mun dekkri mynd að ræða og
raunsærri, jafnvel þótt yfirskynvit-
legir atburðir séu með í ráðum.
Nicklas er ungur
venjulegur
menntaskólastrák-
ur sem fær vand-
ræðagemsa skól-
ans upp á móti sér.
Dag einn eftir
skóla er hann eltur
uppi og rotaður af
höfuðpaurnum,
hrottafenginni hettuklæddri stelpu
sem svífst einskis til að halda orð-
spori sínu sem hættulegasti glæpa-
maður á svæðinu. Þegar Nicklas
rankar við sér hefur hann í hyggju að
svara fyrir sig en áttar sig von bráð-
ar á því að hann er í raun látinn. Var
drepinn, gengur aftur og þarf að
horfa upp á morðingja sinn komast
upp með glæpinn. Eða hvað?
Hún er alls ekki síðri en Holly-
wood-framleiðslan þessi, ef ekki
bara betri en þær flestar. Þó skortir
talsvert á spennuna og ekki getur
hún talist óvænt framvindan. Leikur
Skarsgård (sonur Stellan Skars-
gård) og Novotny er líka yfir með-
allagi fyrir svona mynd. Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Gengið
aftur
Moggabúðin
Geisladiskahulstur, aðeins 700 kr.