Morgunblaðið - 12.12.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
2
GÍTARAR
Jón Páll
og
Ólafur Gaukur
leika íslensk og erlend lög
sem margir kannast við,
þar á meðal nokkur
alkunn þjóðlög
Sofðu unga ástin mín • Tondeleyó • Hani, krummi, hundur, svín
Ó, blessuð vertu sumarsól • Litfríð og ljóshærð • Einskonar blús • Krummi krunkar úti
Greensleeves • Fly me to the moon • Stardust
jazz
DREIFING:
ÚTSÖLUÁSTAND
Óvenju mikið hefur verið um til-
boðsverð í verslunum undanfarið,
miðað við árstíma og nemur verð-
lækkun allt frá 20 til 70%. Sumar
vörur eru jafnvel seldar undir kostn-
aðarverði. Tilboð erlendra versl-
unarkeðja virðast hafa bein áhrif á
verðlækkun hérlendis.
Scud-flaugum skilað
Bandaríkjamenn segjast hafa náð
samkomulagi við Jemena um að þeir
síðarnefndu kaupi ekki fleiri Scud-
eldflaugar af Norður-Kóreu-
mönnum. Bandaríkjamenn urðu að
veita heimild til þess að skip með
farm af Scud-flaugum, er stöðvað
var á mánudag, fengi að fara áfram
til Jemens.
Öryggiskerfi í flugstöðinni
Nýtt öryggiskerfi vegna
sprengjuleitar verður tekið í notkun
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar um ára-
mótin. Mun það vera einn fullkomn-
asti búnaður sem völ er á í heim-
inum.
Tímamóta vænst
Þess er vænst að á leiðtogafundi
Evrópusambandsins, sem hefst í
Kaupmannahöfn í dag, verði gengið
frá aðildarsamningum við tíu ríki og
þar með bundinn endi á kalda-
stríðsklofning Evrópu.
Vatnsréttindi framseld
Davíð Oddsson forsætisráðherra
greindi frá því á þingi í gær að í und-
irbúningi væri frumvarp er heim-
ilaði ríkinu að framselja vatnsrétt-
indi í afréttum Árnessýslu til
Landsvirkjunar.
Matvælaverð kannað
Samþykkt var á Alþingi í gær til-
laga um að ríkisstjórnin láti kanna
matvælaverð á Íslandi í samanburði
við nágrannalöndin. Forsvarsmenn
matvöruverslanakeðjanna fagna
samþykkt tillögunnar.
Fá geðræktarkassa
Allir þingmenn fá í dag afhenta
svonefnda geðræktarkassa í
tengslum við forvarna- og fræðslu-
verkefni Geðræktar.
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÖRN ARNARSON MÆTIR ÞEIM BESTU Á EM Í RIESA / C4
ÞEIR sem stunda veðmál um allt á milli himins
og jarðar í Evrópu hafa mesta trú á því að Aust-
urríki og Sviss fái að halda Evrópukeppni
landsliða í knattspyrnu árið 2008. Stuðull veð-
banka í Evrópu fyrir Austurríki og Sviss er 1,3
en næst kemur umsókn Norðurlandanna fjög-
urra, en þau eru Danmörk, Noregur, Svíþjóð og
Finnland, en veðbankar setja stuðulinn 2 á bak
við þá umsókn. Þriðja í röðinni er umsókn Íra
og Skota en skammt á eftir koma Tyrkir og
Grkkir sem standa sameiginlega að umsókn.
Per Ravn Omdal, forseti norska knattspyrnu-
sambandsins, á sæti í stjórn UEFA og segir
hann að allir meðlimir UEFA haldi spilunum
þétt upp að brjóstinu en hann telur að Aust-
urríki og Sviss séu sigurstrangleg. Stjórn
UEFA ákveður um hádegisbil í dag hvar keppn-
in mun fara fram. Að mati Omdals gæti umsókn
Tyrklands/Grikklands komið á óvart.
Veðbankar trúa á
Austurríki og Sviss
ÞÝSKU meistararnir í Dortmund
og enska úrvalsdeildarliðið
Charlton hafa samkvæmt öruggum
heimildum Morgunblaðsins spurst
fyrir um íslenska landsliðsmanninn
Jóhannes Karl Guðjónsson sem er
á mála hjá spænska 1. deildarlið-
inu Real Betis. Félögin hafa bæði
fengið að vita hversu háa upphæð
Real Betis vill fá fyrir Skagamann-
inn og samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins er sú upphæð ná-
lægt 300 milljónum króna. Real
Betis keypti Jóhannes Karl frá
hollenska liðinu Waalwijk í sept-
ember í fyrra fyrir 350 milljónir
króna en hann hefur fá tækifæri
fengið með liðinu og vill komast í
burtu þegar leikmannamarkaður-
inn opnast í janúar. Fastlega má
reikna með því að forráðamenn
Real Betis lækki Jóhannes í verði
þegar markaðurinn opnast en
hann er samningsbundinn félaginu
til ársins 2005.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Dortmund og Charlton sýna Jó-
hannesi Karli áhuga. Bæði fylgd-
ust þau með honum þegar hann
lék í Hollandi og Dortmund gerði
Waalwijk tilboð á sama tíma og
Real Betis.
KRISTÍN Rós Hákonardóttir vann
til silfurverðlauna í sínum flokki í 100
metra skriðsundi á heimsmeistara-
móti fatlaðra í sundi í Argentínu í
gærkvöld. Kristín Rós tvíbætti Ís-
landsmetið í greininni. Hún synti á
1.17,56 mínútum í undanrásunum og
var með annan besta tímann og í úr-
slitasundinu bætti hún um betur,
synti á 1.16,81 mín.
Danilela Campo, 17 ára stúlka frá
Kanada, varð heimsmeistari en hún
hafði betur eftir hörkukeppni við
Kristínu Rós og kom í mark á 1.15,86
mínútum.
„Þetta er glæsilegur árangur hjá
Kristínu. Hún átti sjálf ekki von á að
berjast um sigurinn en ég var búinn
að telja henni trú um að hún gæti gert
þetta. Sundið var einvígi Kristínar og
Campo og það mátti ekki miklu muna
að Kristínu tækist að komast fram-
úr,“ sagði Kristín Guðmundsdóttir,
þjálfari Kristínar Rósar, í samtali við
Morgunblaðið skömmu eftir úrslita-
sundið í gærkvöld. Kristín Rós og
Bjarki Birgisson keppa bæði í dag í
100 metra bringusundi og segir Krist-
ín þjálfari að nafna sín eigi ef allt sé
með felldu að vinna sigur og bæta þar
með þriðja verðlaunapeningnum í
safn sitt.
Silfur og met hjá
Kristínu Rós
Reuters
Eggert Magnússon, formaður KSÍ, og Frakkinn Michel Platini voru íbyggnir á svip áður en lokakynning sjö umsækjenda um EM árið
2008 fór fram í Nyon í Sviss í gær. Eggert og Platini eru í framkvæmdastjórn UEFA sem tekur ákvörðun í dag um það hverjir hreppa
hnossið og verða þar með gestgjafar þriðja stærsta íþróttaviðburðar heims árið 2008.
Sepp Blatter, forseti FIFA, hefurhaft betur í valdabaráttunni
gegn Johansson hvað forsetakjör
FIFA varðar og margir áhrifamenn í
umsókn Austurríkis og Sviss eru ná-
tengdir Blatter. Blick segir að Jo-
hansson sé lítt hrifinn af valdaklík-
unni og geri allt sem í hans valdi
standi til þess að fella umsókn Aust-
urríkis og Sviss.
Blick hefur heimildir fyrir því að
Johansson hafi reiknað það út að um-
sókn Norðurlandanna eigi ekki
möguleika þegar á hólminn er komið.
Ástæðan er einföld, þeirra atkvæði
eru ekki talin með á meðan umsókn
Norðurlandanna er enn með í pott-
inum – Eggert Magnússon og félagar
hans eru af þeim sökum vanhæfir til
þess að kjósa.
Johansson með varaáætlun
Johansson er sagður hafa komið
með varaáætlun sem er á þann veg að
Norðurlöndin styðji við bakið á um-
sókn Skota og Íra. Sex af 14 stjórn-
armönnum tengjast umsóknum um
keppnina á einhvern hátt, þrír af
þeim eru frá Norðurlöndum.
Í fyrstu umferð verða þrjár um-
sóknir valdar af alls sjö, þar er talið
að Sviss/Austurríki, Norðurlöndin og
Skotland/Írland verði fyrir valinu.
Blick telur að Norðurlöndin með
a.m.k. fimm atkvæði á bak við sig í 2.
umferð, líkt og Sviss/Austurríki.
Varaforseti UEFA, Llonas, er með
tvöfalt vægi og hann mun styðja
Austurríki/Sviss. Blick segir að
Norðurlöndin skynji stöðuna og muni
styðja við bakið áSkotum og Írum, til
þess að ná sér niðri á Sepp Blatter.
Mun
Johans-
son koma
öllum á
óvart?
MUN hinn sænski Lennart Jo-
hansson forseti UEFA fórna
umsókn Norðurlandanna um
EM árið 2008 til þess að ná sér
niðri á Sepp Blatter forseta
FIFA og gera honum þar með
stóran grikk? er spurt í grein í
svissneska blaðinu Blick í gær
og þar er leitt að því líkum að
þessi samsæriskenning eigi við
rök að styðjast. Sviss og Aust-
urríki eru þessa stundina lík-
legust til þess að fá EM lands-
liða í knattspyrnu árið 2008, en
í báðum löndunum er sá orð-
rómur á kreiki að fulltrúar Norð-
urlandanna í stjórn UEFA muni
koma í veg fyrir að keppnin fari
fram í Austurríki og Sviss.
2002 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER BLAÐ C
Dortmund fylgist
með Jóhannesi Karli
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í F
INNKAUP VIÐSKIPTI FISKVEIÐAR
Ríkið hyggst spara veru-
legar upphæðir í inn-
kaupum með rafrænu
markaðstorgi.
Altech JHM framleiðir
tæki til álframleiðslu og
hefur smám saman
vaxið að burðum.
Aflaklóin Sigurður
Friðriksson hefur
ákveðið að hella sér
í trilluharkið.
EFASEMDIR/4 BÚINN/6 EKKI LENGUR/12
ÓSKAR Eyjólfsson, forstjóri Frumherja
hf., sem í síðustu viku eignaðist meirihluta í
fyrirtækinu með kaupum á hlutum Sjóvá-
Almennra trygginga hf., Íslenskrar endur-
tryggingar hf., Vátryggingafélags Íslands
hf., Tryggingamiðstöðvarinnar hf. og
Heklu hf. í félaginu, lýsti því yfir í gær fyrir
hönd óstofnaðs einkahlutafélags síns að
hann muni á næstunni bjóða hluthöfum í
Frumherja hf. að kaupa hlutafé þeirra á
sömu kjörum og hann gerði samning um við
fyrrgreinda stærstu fyrrverandi hluthafa
félagsins. Óskar átti sjálfur fyrir 7,29% hlut
í félaginu.
Íslandsbanki er fjármögnunaraðili verk-
efnisins og mun sjá um innköllun útistand-
andi hluta sem að sögn Óskars eru um 200.
Vil láta jafnt yfir alla ganga
„Mér finnst eðlilegt að koma með þetta út-
spil núna þannig að minni hluthafar fái ekki
á tilfinninguna að þeir læsist inni með sitt
hlutafé. Ég vil láta jafnt yfir alla ganga,“
sagði Óskar í samtali við Morgunblaðið.
Óskar segir að hluthafar séu ánægðir
með verðið sem hann bjóði, eða gengið 9,01.
„Ég hef bara fengið jákvæð viðbrögð við
þessu tilboði. Miðað við síðasta viðskipta-
verð sem var 7,5 er verðið gott auk þess
sem þeir sem áttu hluti frá því fyrirtækið
var einkavætt og ríkið seldi á genginu 2,5
eru að fá góða arðsemi út úr viðskiptunum.“
Óskar áformar að reka félagið áfram í
núverandi mynd. Hann segir að hugmyndin
um að kaupa félagið hafi verið búin að
blunda í sér í nokkurn tíma. Hann hafi
mikla trú á félaginu, hann segir að rekst-
urinn sé arðsamur og ýmsir vaxtarmögu-
leikar séu fyrir hendi.
Síðan Óskar tók við forstjórastarfi árið
1997 þegar Frumherji hf. var stofnaður í
kjölfar breytinga sem gerðar voru á Bif-
reiðaskoðun Íslands hf. hefur starfsemi fé-
lagsins breyst úr því að snúast eingöngu um
bifreiðaskoðanir út í alhliða þjónustu á sviði
ýmiss konar skoðana og prófana ásamt
annarri starfsemi. Félagið starfar nú á
fimm mismunandi sviðum á um 30 stöðum á
landinu.
V I Ð S K I P T I
Vildi ekki
að smærri
hluthafar
læstust inni
VERÐBÓLGA síðustu 12 mán-
uði er 2%, en vísitala neysluverðs
hækkaði um 0,07% í nóvember.
Hún var 223,9 stig í desem-
berbyrjun og hafði hækkað um
0,2 stig frá fyrri mánuði. Verð á
mat og drykkjarvörum lækkaði
um 1,3%, sem hafði áhrif til 0,2%
lækkunar vísitölunnar. Kjötverð
lækkaði um 2,8% og hafði áhrif til
0,08% lækkunar.
Jón Björnsson, framkvæmda-
stjóri Baugs Íslands, segir að
lækkun matvöruverðs megi að
miklu leyti rekja til verðstríðs á
kjötmarkaði. „Framboðið af kjöti
er mjög mikið og því lækkar það
hlutfallslega,“ segir hann.
„Grimm samkeppni“
Jón segir að samkeppni á mat-
vörumarkaði sé grimm. „Ég sé
ekki fyrir endann á kjötverðstríð-
inu. Á meðan við höldum uppi
framleiðslutengdu landbúnaðar-
kerfi eru líkur á óbreyttu ástandi.
Við megum ekki gleyma því að
skattgreiðendur borga brúsann,
þótt þeir geri það ekki í vöruverð-
inu,“ segir hann.
Að sögn Jóns eru talsverðar
blikur á lofti í verðlagsmálum á
matvörumarkaði. „Um áramót
hækka laun umtalsvert. Launa-
kostnaður er stærsti kostnaðar-
liður verslunar, að vöruinnkaup-
um frátöldum. Ég get varla séð að
verslunarfyrirtæki séu það arð-
bær að þau geti borið þessa
hækkun ein síns liðs,“ segir hann,
„en við erum samt sem áður alltaf
að leita leiða til að lækka mat-
vælaverð.“
Næst á eftir mat og drykkjar-
vörum lækkuðu föt og skór hvað
mest af liðum vísitölunnar, eða
um 1,1%, sem svaraði til 0,06%
lækkunar hennar. Ferðir og
flutningar lækkuðu um 1%, þar af
lækkaði bensín og olíur um 3,9%
og vísitalan um 0,15% vegna
þeirra breytinga.
Kristinn Björnsson, forstjóri
Skeljungs, segir að þessi lækkun
bensínverðs sé í takt við þróun á
gengi og heimsmarkaðsverði. „Að
vísu er bensín ívið dýrara nú en
um síðustu áramót, en frá 1. nóv-
ember hefur lækkunin verið lið-
lega 3%. Verðið hefur farið heldur
hækkandi í desember, en á móti
kemur styrking krónunnar,“ seg-
ir hann.
Minni hækkun en spáð var
Hækkun vísitölunnar varð tals-
vert minni en greiningardeildir
fjármálafyrirtækja höfðu gert ráð
fyrir. Á móti lækkun matvæla- og
bensínverðs kom að áfengi og
tóbak hækkuðu um 6,2%, sem
hafði áhrif til 0,26% hækkunar
neysluverðsvísitölunnar. Alþingi
samþykkti nýlega frumvarp til
laga um hækkun áfengisgjalds af
sterku víni um 15% og hækkun
tóbaksgjalds um 27,7%, eins og
komið hefur fram áður.
Verðbólga síðustu 12 mánaða á
undan nam 8,6% á sama tíma í
fyrra. Í frétt frá Greiningu Ís-
landsbanka segir að líklegt sé að
verðbólgan eigi eftir að hjaðna
frekar og að við næstu mælingu
sem er í upphafi janúar fari hún
niður í 1,5%.
2% verðbólga síð-
ustu tólf mánuði
Matvöruverð lækkar um 1,3% milli mánaða og vegur á móti hækkunum á tóbaki og
áfengi. Bensín lækkar um 4%. Blikur á lofti um áramótin þegar kauphækkanir taka gildi
!
"
#$!%& '
(
)
!!
#$!
'(*!$& +*+ , "
,#*!
%!* -
" &
*
"
" #$ $
%
-.!
!/(
)0(!
(
#*
!&
1&
2! ,
!"#$#
%&' $(&)*
+,
3
&
%
4,
-./
&
%
4
4 4 "
4
&
4
4 ,
'
'
(
'
'
3 &
&
Miðopna: Búinn að byggja upp gott landslið
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 40
Erlent 16/21 Minningar 50/57
Höfuðborgin 22/23 Skák 63
Akureyri 25/26 Bréf 60
Suðurnes 24 Kirkjustarf 61
Landið 26/27 Dagbók 62
Neytendur 28 Fólk 64/69
Listir 31/35 Bíó 66/69
Menntun 40/41 Ljósvakamiðlar 70
Forystugrein 36 Veður 71
* * *
ÍSLENSKIR jarðvísindamenn fara til Írans
eftir áramótin, en írönsk stjórnvöld hafa óskað
eftir því að Íslendingar aðstoði þá við að beisla
jarðhita í norðurhluta Írans. Áformað er að
virkja jarðhitann til raforkuframleiðslu.
Þorkell Helgason orkumálastjóri sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að sendinefnd frá Íran,
með varaorkumálastjóra landsins í broddi fylk-
ingar, hefði komið í heimsókn til Íslands sl.
sumar. Hann sagði að nefndin hefði skoðað ís-
lensk orkufyrirtæki og orðið mjög hrifin af því
sem hún sá.
„Það er jarðhiti í Norður-Íran sem þeir vilja
gjarnan virkja til raforkuvinnslu. Þeir hafa ver-
ið með erlenda ráðgjöf sem þeir hafa ekki verið
allt of ánægðir með. Þeir hafa mikinn áhuga á
því að við fylgjum málum eftir,“ sagði Þorkell.
Sérfræðingar á leið til Írans
Enex hf., sem er fyrirtæki í eigu íslenskra
orkufyrirtækja og einbeitir sér að því að selja
þekkingu á sviði jarðhitavinnslu til útlanda, hef-
ur tekið að sér að kanna þetta verkefni í Íran.
Hörður Már Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Enex, sagði að þriggja manna hópur jarðvís-
indamanna og verkfræðinga myndi fara til Ír-
ans eftir áramót. Hann sagði að Lúðvík
Georgsson, verkfræðingur hjá Orkustofnun,
hefði farið til Írans í lok nóvember til að kanna
aðstæður.
„Það er verið að byrja að bora í norðaust-
urhluta Írans. Það er að sjá að áform Írana séu
stórtæk. Þeir eru búnir að setja töluverða pen-
inga í þetta,“ sagði Hörður.
Hörður sagði að jarðhitasvæðið væri nokkuð
hátt uppi í fjöllunum í Íran og þar snjóaði tals-
vert yfir vetrartímann. Hann sagði of snemmt
að segja til um hvort Enex kæmi til með að
selja Írönum mikla sérþekkingu á sviði jarð-
hitavinnslu. Þetta mál væri enn á frumstigi og
myndi ekki skýrast fyrr en eftir að Íslending-
arnir kæmu heim.
Enex er að vinna að verkefnum víðar um
heim, en stærsta verkefnið er í Kína þar sem
unnið er að stóru jarðhitaverkefni.
Aðstoða við jarðhitaleit í Íran
HÆTT er við að jólasveinarnir ís-
lensku verði vant við látnir næstu
daga, en leikrit um grallaraskap
þeirra og yfirbót verður flutt í Drill-
Hall listamiðstöðinni í London um
helgina. Leikritið heitir Gryla and
the Thirteen Yule Lads og halda að-
standendur sýningarinnar utan á
morgun með 13 jólasveina í fartesk-
inu. Felix Bergsson er höfundur og
leikari verksins, sem samið er fyrir
þetta tilefni, en leikstjóri er Kolbrún
Halldórsdóttir. Leikhópurinn Á sen-
unni stendur að sýningunni.
„Verkið er í frásagnarstíl og segir
þar af því hvernig íslensku jóla-
sveinarnir hættu að hrekkja og
pretta og fóru að gefa börnum í skó-
inn. Það verða ákveðin umskipti í
lífi jólasveinanna er þeir bjarga litl-
um dreng úr klóm Grýlu og jólakatt-
arins. Þannig er verkið byggt á
hinni sígildu sögu um Grýlu og jóla-
sveinana, og nýrri sögu fléttað
inní,“ segir Felix um leikverkið.
Þegar Felix er spurður hvort ekki
megi búast við óspektum af jóla-
sveinunum í flugvélinni á leiðinni út,
segir hann að grallararnir séu til
allrar hamingju í brúðuformi og því
auðvelt að hafa hemil á þeim. „Við
fengum Helgu Arnalds til liðs við
okkur og hefur hún búið til þrettán
stórskemmtilegar jólasveinabrúður,
sem verða með mér á sviðinu. Leik-
ritið er skrifað á ensku og hafa jóla-
sveinarnir því fengið ensk nöfn,
Skyrgámur heitir til dæmis Skyr-
gobbler, Stekkjarstaur er Stiffy-
legs, Hurðaskellir verður Door-
slammer og ekki má gleyma Stúfi
eða Stubby,“ bætir Felix við.
Morgunblaðið/Kristinn
Felix Bergsson í hrókasamræðum við Grýlu og einn hinna óstýrilátu sona hennar en öll eru þau á leið til London.
Íslenskir jólasveinar
á faraldsfæti
ENGAR fjárhæðir um hækkuð fram-
lög EFTA-ríkjanna í þróunarsjóð
Evrópusambandsins (ESB) munu
vera nefndar í samþykkt sem utan-
ríkisráðherrar ESB gerðu á fundi í
Brussel í fyrradag um samningsum-
boð fyrir viðræður við fulltrúa Ís-
lands og hinna EFTA-ríkjanna í
EES, Noregs og Liechtenstein, um
aðlögun EES-samningsins að stækk-
un ESB til austurs. Í samningsum-
boðinu segir aðeins, að fjárframlögin
ættu að „endurspegla stækkun
ESB“.
Bætt samningsstaða
Í texta samningsumboðsins er
ennfremur kveðið á um að í viðræð-
um um aðalkröfu ESB í þessu sam-
hengi – að framlög EFTA-ríkjanna í
þróunarsjóði ESB verði stóraukin –
sé rétt að tekið verði tillit til „sér-
stakra aðstæðna“ í EFTA-löndunum,
en að mati heimildamanns Morgun-
blaðsins í utanríkisþjónustunni felur
þetta í sér að ESB lýsi vilja til að taka
tillit til landfræðilegrar jaðarlegu Ís-
lands. Þetta atriði bæti samnings-
stöðu Íslendinga þegar kemur að því
að semja um þær upphæðir sem
sanngjarnt þyki að verði framlag Ís-
lands til þeirra sjóða ESB sem veittir
eru styrkir úr til fátækari héraða
sambandsins, en fjárþörfin til slíkra
verkefna eykst gríðarlega með inn-
göngu fyrrverandi kommúnistaríkj-
anna í álfunni austanverðri sem á að
koma til framkvæmda 1. maí 2004.
Ráðamenn ESB leita því allra leiða til
að afla fjár í þessa sjóði og þeim þykir
það eðlileg krafa að ríku Vestur-Evr-
ópuríkin í EFTA, sem njóta góðs af
þátttöku í innri markaðnum, leggi
meira af mörkum til að fjármagna
þessa sögulegu „endursameiningu
Evrópu“.
Eins og áður hefur komið fram er
kveðið á um það í samningsumboðinu
að ESB muni fara fram á að fá að-
gang að fjárfestingum í íslenzkum og
norskum sjávarútvegi gegn því að
EFTA-ríkin fái tollfrjálsan aðgang að
stækkuðum innri markaði Evrópu
fyrir sjávarafurðir sínar. Þessi krafa
er sprottin af því að Noregur og Ís-
land hafa farið fram á að innganga
Mið- og Austur-Evrópuríkjanna í
ESB skapi ekki nýjar viðskiptahindr-
anir, en þar sem í fríverzlunarsamn-
ingum EFTA-ríkjanna við hin vænt-
anlegu nýju ESB-ríki er kveðið á um
tollfrelsi í viðskiptum með sjávaraf-
urðir vilja Norðmenn og Íslendingar
semja um einhverjar ráðstafanir til
að milda skellinn sem það veldur að
óhagstæðari markaðsaðgangssamn-
ingar EES taka við er ESB stækkar
til austurs.
Í norska blaðinu Nationen í gær er
fullyrt að Íslendingar, sem hafa verið
virkir í fjárfestingum í sjávarútvegs-
fyrirtækjum innan ESB, m.a. í
Þýzkalandi, væru ekki eins harðir á
að hafna þessari kröfu ESB og Norð-
menn. Öllum slíkum fullyrðingum
var vísað á bug í utanríkisráðuneyt-
inu; spurningin um fjárfestingar út-
lendinga í sjávarútveginum væru af-
ar viðkvæmt mál sem Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra – og
reyndar allir sem mælt hefðu fyrir Ís-
lands hönd í samskiptum við fulltrúa
Evrópusambandsins – segði að kæmi
ekki til greina að opna á, nema í sam-
hengi við hugsanlegar aðildarviðræð-
ur að ESB.
Engar fjár-
hæðir nefndar
Ráðherrar ESB afgreiða samn-
ingsumboð vegna stækkunar EES
JARÐSKJÁLFTA varð vart í
vestanverðum Mýrdalsjökli í
svonefndri Goðabungu í gær og
í fyrradag. Fjórir skjálftar
komu fram á mælum Veður-
stofunnar í gær. Samkvæmt
upplýsingum frá jarðskjálfta-
deild Veðurstofunnar er
stærsti skjálftinn sem mælst
hefur 2,6 á Richter-kvarða og
varð hann klukkan níu í fyrra-
kvöld.
Að sögn Eriks Sturkells á
jarðskjálftadeild Veðurstof-
unnar hafa yfir 3.000 skjálftar
yfir 1,5 á Richter mælst í Mýr-
dalsjökli það sem af er þessu
ári en þeir voru um 1.500 í
fyrra. Sagði hann að þessi
skjálftavirkni þýddi ekki endi-
lega að frekari jarðhræringar
væru í vændum en að vel væri
fylgst með svæðinu.
Jarðskjálft-
ar í Mýr-
dalsjökli