Morgunblaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 20
ERLENT
20 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
flaugar af ýmsum gerðum. Talið er
að eldflaugaútflutningur Norður-
Kóreu hafi stóraukist um miðjan síð-
asta áratug þegar efnahagur lands-
ins hrundi og milljónir manna sultu
heilu hungri.
„Það var markaður fyrir eldflaug-
arnar og Norður-Kóreumenn höfðu
tæknina á valdi sínu,“ sagði embætt-
ismaður í Seoul.
Endurbættu sovéskar flaugar
Sovétríkin sáu Norður-Kóreu-
mönnum fyrir skammdrægum eld-
flaugum frá árinu 1969 en talið er að
þeir hafi fengið fyrstu Scud-flaugarn-
ar frá Egyptum árið 1976 fyrir að
styðja þá í Yom Kippur-stríðinu gegn
Ísraelum. Sovéska Scud-tæknin var
hins vegar byggð á V-2-flugskeytinu
sem Þjóðverjar beittu í síðari heims-
styrjöldinni.
Norður-Kóreumenn voru farnir að
smíða eigin eldflaugar af gerðinni
Scud-B árið 1984 og síðan þá hafa
þeir þróað tvær aðrar gerðir, Scud-C
og Scud-D, og langdræga eldflaug,
NORÐUR-Kóreumenn hafa alltaf
skellt skollaeyrum við ásökunum um
að þeir hafi selt eldflaugar og ólíklegt
er að fréttin um að þeir hafi verið
staðnir að því að flytja út Scud-flaug-
ar verði til þess að þeir láti af þessum
arðvænlega útflutningi. Þeir líta á
hann sem kjörið viðskiptatækifæri
nú þegar efnahagur Norður-Kóreu
er í kaldakoli.
Bandaríkjastjórn lagði að Norður-
Kóreumönnum að hætta eldflauga-
útflutningnum á síðasta áratug en
þeir kröfðust þess þá að fá andvirði
nær 100 milljarða króna á ári í bætur
fyrir tapaðar útflutningstekjur.
Þeirri kröfu var hafnað.
Leyniþjónusta Suður-Kóreu telur
að Norður-Kóreumenn geti framleitt
allt að tólf eldflaugar af gerðinni
Scud-C á mánuði og hafi selt ríkjum í
Mið-Austurlöndum og Afríku hundr-
uð eldflauga. Sérfræðingar áætluðu í
gær að Norður-Kóreumenn gætu
fengið andvirði um 4,2 milljarða
króna fyrir Scud-flaugarnar sem
fundust í skipinu sem var stöðvað í
Arabíuflóa.
„Þessi viðskipti eru helsta tekju-
lind Norður-Kóreu,“ sagði suður-
kóreskur embættismaður.
Sérfræðingar telja að Norður-
Kóreumenn hafi selt um 540 eld-
Taepodong 1, sem byggist á Scud-
tækninni. Hún dregur allt að 1.500
km og er tveggja þrepa. Norður-Kór-
eumenn skutu slíkri flaug yfir Japan í
tilraunaskyni í ágúst 1998 og olli það
miklu uppnámi á Vesturlöndum.
Talið er að Norður-Kóreumenn
séu nú að þróa nýja gerð af Taep-
odong sem eigi að draga allt að 8.000
km.
Skæðar en ónákvæmar
Scud-flaugarnar geta borið
kjarnaodda og hefðbundnar sprengi-
hleðslur og þeim er yfirleitt skotið af
skotpöllum á farartækjum. Talið er
að Norður-Kóreumenn hafi breytt
flaugunum til að þær geti borið efna-
og sýklaodda.
Scud-flaugar geta valdið miklu
manntjóni en hafa reynst mjög óná-
kvæmar. Þeim var fyrst beitt í stríði
araba og Ísraela árið 1973 og Íranar
og Írakar notuðu þær í „stríði borg-
anna“ á níunda áratug síðustu aldar.
Írakar skutu næstum 90 Scud-flaug-
um í Persaflóastyrjöldinni 1991.
Bandaríkjastjórn greip til refsiað-
gerða gegn Norður-Kóreumönnum
eftir að þeir seldu flaugar af gerðinni
Scud-C til Jemens á árunum 1999–
2000. Jemenar sögðu þá að viðskiptin
væru lögleg en að þeir hefðu ekki í
hyggju að kaupa fleiri flaugar. Talið
er að Íranar hafi keypt allt að 100
Scud-B-flaugar af Norður-Kóreu-
mönnum á árunum 1987–88. Norður-
Kóreumenn eru einnig taldir hafa
hjálpað Írönum að smíða eigin Scud-
flaugar.
Hermt er að Sýrlendingar hafi
keypt 150 Scud-C-flaugar árið 1991.
Pakistanar, Egyptar og Líbýumenn
eru einnig sagðir hafa fengið eld-
flaugar frá Norður-Kóreu eða aðstoð
við smíði eldflauga. Pakistanar voru
sakaðir um að hafa hjálpað Norður-
Kóreumenn að þróa kjarnavopn í
staðinn fyrir aðstoðina við eldflauga-
smíðina en pakistanska stjórnin neit-
aði því.
Taldir hafa flutt út
hundruð eldflauga
Seoul. AFP.
’ Eldflaugarnar eruhelsta tekjulind
Norður-Kóreu. ‘
&$0 $#(1#)
%234)&(
!
"# $
%
%
&
)* +#'
)* +, - $+ .!/ $+0 .!/ $+
(
) * &" "
+ )* &(
&(
1 !$
23/4
1 !$
5 67!
)7 4
1 !$
5 67!
8!9 !$
1 !$
8!9 !$
1 !$
0 : ; $
, &"
-
. "
/
49
-
0
$
< 9 !!$=! ! >-+;
1!.
.!= !=- = +; $$! $ 99 9 ?=+@ $
@ 9 $ =! !
STJÓRN Jemens viðurkenndi í gær
að hún hefði pantað Scud-eldflaugar
frá Norður-Kóreu sem fundust í skipi
sem spænsk herskip stöðvuðu í Arab-
íuflóa á mánudag. Jemenska stjórnin
krafðist þess að flaugunum yrði skil-
að og Bandaríkjamenn urðu við þeirri
kröfu eftir að hún lofaði því að vopnin
kæmust ekki í hendur óvina Banda-
ríkjanna. Hún hét því einnig að kaupa
ekki fleiri Scud-flaugar af Norður-
Kóreumönnum.
Abu Baker Abdullah al-Kurbi, ut-
anríkisráðherra Jemens, kallaði
sendiherra Bandaríkjanna í Sanaa á
sinn fund og afhenti honum bréf þar
sem því var mótmælt harðlega að
skipið skyldi hafa verið stöðvað.
„Þessi vopn eru eign jemensku
stjórnarinnar og hersins. Þau voru
pöntuð til að efla varnir landsins og
þau komast ekki í hendur þriðja að-
ila,“ sagði í bréfinu. „Jemenar hafa
alls engin áform um að ráðast á önnur
ríki og með því að panta þessi vopn
stofnum við ekki friði í heiminum eða
öryggi annarra ríkja í hættu.“
Dick Cheney, varaforseti Banda-
ríkjanna, og Colin Powell utanríkis-
ráðherra hringdu í forseta Jemens,
Ali Abdullah Saleh, til að ræða málið.
Bandaríkjastjórn ákvað eftir viðræð-
urnar að heimila skipinu að sigla með
farminn til Jemens, að því er virtist
til að koma í veg fyrir vandræðalega
deilu við arabaríki sem hefur heim-
ilað Bandaríkjamönnum að leita að
hryðjuverkamönnum innan landa-
mæra sinna.
„Í alþjóðalögum eru engin ákvæði
sem banna Jemenum að taka við eld-
flaugum frá Norður-Kóreu,“ sagði
Ari Fleischer, talsmaður Bandaríkja-
forseta. „Þótt heimilt sé að stöðva
skip og leita í þeim er í þessu tilviki
engin skýr heimild til að leggja hald á
Scud-flaugasendingu frá Norður-
Kóreu til Jemens og þess vegna var
skipinu sleppt.“
Fylgdust með skipinu
í margar vikur
Tvö spænsk herskip stöðvuðu
flutningaskipið So San á mánudag í
Arabíuflóa nálægt Jemen. Fimmtán
Scud-eldflaugar fundust í lest skips-
ins og höfðu þær verið faldar í sem-
entsfarmi. Flaugarnar voru með
hefðbundnar sprengihleðslur og 23
eldsneytishylki.
Federico Trillo, varnarmálaráð-
herra Spánar, sagði að 84 tunnur af
óþekktu efni hefðu einnig fundist í
skipinu.
Leyniþjónustumenn fylgdust með
skipinu í margar vikur áður en það
var stöðvað nálægt jemensku eyjunni
Socotra. Það var ekki með fána en
skráð í Phnom Penh og kom síðast til
hafnar í Kína. Áhöfnin er sögð vera
frá Norður-Kóreu.
Spænsku herskipin halda uppi eft-
irliti á svæðinu og eru hluti af fjöl-
þjóðlegum flota sem tekur þátt í bar-
áttunni gegn hryðjuverkastarfsemi
undir forystu Bandaríkjahers. Sjó-
liðar úr bandaríska herskipinu USS
Nassau fóru um borð í flutninga-
skipið.
Hafa áður lofað að hætta
eldflaugakaupum
Stjórn Bandaríkjanna greip til
refsiaðgerða í ágúst gegn norður-
kóreska fyrirtækinu Changgwang
Sinyong fyrir að selja Jemenum
Scud-eldflaugar en aðgerðirnar hafa
lítil áhrif vegna þess að viðskiptin
milli Bandaríkjanna og Norður-Kór-
eu eru mjög lítil.
Jemenum var hins vegar ekki refs-
að. Jemensku stjórnina baðst afsök-
unar á kaupunum og lofaði því þá
einnig að kaupa ekki fleiri eldflaugar
af Norður-Kóreumönnum, að sögn
tveggja heimildarmanna fréttastof-
unnar AP í bandaríska varnarmála-
ráðuneytinu. Jemenska stjórnin
varði þó kaupin opinberlega og
kvaðst hafa fullan rétt til að kaupa
eldflaugar.
Jemenski utanríkisráðherrann
sagði að farmurinn í skipinu, sem var
stöðvað í Arabíuflóa, væri „hluti af
pöntunum sem gerðar voru fyrir
löngu“ en útskýrði það ekki frekar.
Háttsettur jemenskur embættismað-
ur, sem vildi ekki láta nafns síns get-
ið, sagði að bandarísk stjórnvöld
hefðu vitað af vopnakaupasamningn-
um.
N-Kóreustjórn fordæmd
Vopnafundurinn olli miklu upp-
námi í Bandaríkjunum og Bretlandi
þar sem óttast var að Scud-flaugarn-
ar kynnu að hafa verið ætlaðar óvin-
veittu ríki eða jafnvel hryðjuverka-
mönnum. Bandarísk og bresk
stjórnvöld sögðust ætla að senda
Norður-Kóreumönnum mótmæla-
bréf. Donald Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, sem var
heimsókn í Djíbútí, fordæmdi
kommúnistastjórnina í Norður-Kór-
eu vegna málsins. „Norður-Kóreu-
menn vilja ekki heyra þetta en þeir
Fimmtán Scud-eldflaugar frá Norður-Kóreu finnast í skipi á leið til Jemens
Lofa að kaupa ekki
fleiri eldflaugar
Jemenar heita
því að vopnin
komist ekki í
hendur óvina
Bandaríkjanna
Sanaa. AFP. AP.
AP
Spænskir sjóliðar síga niður úr þyrlu í norður-kóreska skipið So San eftir að það var stöðvað í Arabíuflóa.