Morgunblaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 47
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 47
ÞAÐ er gaman í góðu veðri á að-
ventunni að ganga um strætin og
virða fyrir sér litríku jólaljósin
sem lýsa upp skammdegið. Það er
líka gaman að versla dálítið, kaupa
jólagjafir, kaupa sér nýja flík til
þess að fara ekki í jólaköttinn.
Skreppa svo inn á kaffihús, fá sér
hressingu og virða fyrir sér fjöl-
breytt mannlífið. Margir fá vatn í
munninn að hugsa um allar þær
krásir sem við borðum um jólin og
sumir taka forskot á sæluna,
bregða sér á jólahlaðborð og út að
skemmta sér. Til þess að hægt sé
að veita sér eitthvað af þessu og
leyfa sér að lyfta sér upp á stystu
dögum ársins þegar myrkrið grúf-
ir yfir, þarf maður að eiga pening.
Það átti hann ekki öryrkinn sem
hafði samband við mig um daginn.
Hann leigir íbúð hjá Félagsbústöð-
um hf og fyrir stuttu fékk hann til-
kynningu um mikla hækkun leigu.
Hann sagðist hafa ætlað að kaupa
sér nýja skó en varð að hætta við
það. Hann horfði vonsvikinn á
gömlu skóræflana sína og hló bit-
urt og sagði að þeir yrðu að duga
enn um sinn. Hann sagði líka að
hann hefði ekki efni á að kaupa í
jólamatitnn. Hann hefði leitað til
Félagsþjónustunnar sem vísaði
honum til hjálparstofnana. Hann
sagði að það hefði verið erfitt að
þurfa að leita þangað en hann
sagðist ekki fara út til að betla,
fyrr skyldi hann dauður liggja.
Þessi öryrki er ekki einn um að
eiga erfitt fyrir jólin. Kona ein
sagði að þessi sífellda neyð og
kvíði um hvernig í ósköpunum hún
gæti borgað reikninga sína og haft
fyrir mat væri sér nógu erfitt, hún
hefði ekki efni á því að halda jól.
Hún sagði að hún hefði fengið
hroll þegar hún fékk tilkynningu
um hækkun á húsaleigu en hún
leigir líka hjá Félagsbústöðum hf.
Það er víða mikil neyð fyrir jólin
og fer versnandi ár frá ári því sí-
fellt fleiri verða fátæktinni að
bráð. Ég fretti að R-listinn hefði
lagt til að 11 milljónir færu í styrk
til borgarfulltrúa vegna sérfræði-
þjónustu. Er hægt að eyða í svona
lagað meðan engin önnur leið er
fær en að hækka húsleigu hjá
leigutökum Félagsbústaða? Van-
skil hafa verið veruleg hjá Fé-
lagsbústöðum og hætt er við að
þau geti aukist vegna þessa miklu
hækkana. Ef fólk kemst í vanskil
þá er engin miskunn og umsvifa-
laust farið fram á útburð, þótt R-
listinn beri ábyrgð á velferð þessa
fólks samkvæmt lögum. Samtök
gegn fátækt vöruðu formann fé-
lagsmálaráðs við þessum hækkun-
um og þeim afleiðingum sem þær
gætu haft. Lítið var farið eftir
þeim varnaðarorðum. Þessar
hækkanir auka á erfiðleika og fá-
tækt þessa fólks og þurfa jafnvel
enn fleiri að leita til hjálparstofn-
ana. Örlítill jólabónus er ölmusa
sem breytir ósköp litlu. Það er
spurning hvort kærleiksboðskapur
jólanna sé bara ætlaður þeim sem
eiga nóga peninga. Þeir sem
stjórna hér ættu að hafa kærleik-
ann að leiðarljósi og skapa okkar
minnstu bræðrum og systrum
mannsæmandi kjör svo þau fái líka
að gleðjast um jólin og haldi sinni
mannlegu reisn.
Jólahrollvekja
Eftir Sigrúnu
Ármanns Reynisdóttur
„Þessar
hækkanir
auka á erf-
iðleika og
fátækt.“
Höfundur er formaður Samtaka
gegn fátækt.
ÁRIÐ 1994 kviknaði sú hug-
mynd að halda svokallaða „Career
days“ á Íslandi að erlendri fyr-
irmynd. Dagarnir eru haldnir víða
erlendis á vegum AIESEC og
þótti mönnum tilvalið að prófa
þetta hér á Íslandi m.a. með það
að leiðarljósi að auka tengsl há-
skólanáms við atvinnulífið. Umtal-
að var að töluvert skorti á þessi
tengsl og þess vegna þótti hug-
myndin góð. Dögunum var valið
nafnið Framadagar. Mikil og vönd-
uð undirbúningsvinna hófst og
grettistaki var lyft þegar fyrstu
Framadagarnir voru haldnir í að-
albyggingu Háskólans vorið 1995.
Alls tóku 34 fyrirtæki þátt í fyrsta
skiptið og þóttu Framadagar lofa
góðu.
Framadagar 1996 voru haldnir í
Þjóðarbókhlöðunni sem þá hafði
nýlega verið opnuð. Byggingin
þótti táknræn fyrir framtakið og
heppnuðust dagarnir frábærlega.
Þátttökufyrirtækin urðu 43 og
metaðsókn var á þá fyrirlestra
sem haldnir voru í tengslum við
dagana. Síðan þá hefur markvisst
verið unnið að því að gera sem
flestum nemendum á háskólastigi
kleift að finna eitthvað á Frama-
dögum sem hentar þeirra námi. Á
sama hátt er verið að auðvelda
fyrirtækjunum að nálgast nemend-
ur í háskólanámi.
Framadagar eru ekki vörukynn-
ing.
Fyrirtækin koma til að kynna
starfsemi sína fyrir dugandi nem-
endum sem hugsanlegu framtíð-
arstarfsfólki.
Kynningin gengur í raun út á að
draga upp aðlaðandi mynd af fyr-
irtækinu og sýna háskólanemum
fram á að það sé eftirsóknarverður
vinnustaður.
Ákveðið hefur verið að aðaldag-
urinn verði að þessu sinni í Vals-
heimilinu þann 31. janúar 2003 frá
kl. 10:00 – 16:00. Að öllum lík-
indum verða dagarnir með ein-
hverju öðru sniði en þar ber fyrst
að nefna aðra staðsetningu en hef-
ur verið undanfarin ár. Það var
okkar mat að tími væri komin á
breytingar, breytinganna vegna.
Einnig hefur verið einstaklega erf-
itt fyrir stúdenta úr öðrum skólum
að fá bílastæði fyrir utan Háskóla-
bíó á skólatíma. Þá er undirbún-
ingsnefndin í viðræðum vegna fyr-
irlestra um gerð starfsferilsskrár
sem við höfum áhuga á að hafa í
flestum skólum á háskólastigi.
Reynt verður að hafa spennandi
fyrirlestra og fyrirlesara á dag-
skrá. Það er von okkar í nefndinni
að öll fyrirtæki og allir nemendur
sýni Framadögum áhuga og flestir
verði með að þessu sinni.
Framadagar 2003
Eftir Fjólu
Hrafnkelsdóttur
„Reynt verð-
ur að hafa
spennandi
fyrirlestra
og fyrirles-
ara á dagskrá.“
Höfundur er framkvæmdastjóri
Framadaga 2003.
fia› er gott a› hafa öruggt skjól í Tra›arkoti fyrir bílinn
flegar flú átt erindi í mi›bæinn.
Fyrsta klukkustundin kostar a›eins 80 kr. e›a 1,33kr.
mínútan, sí›an grei›ir flú 10 kr. fyrir hverjar 12 mínútur
sem flú notar.
Fyrir flá sem starfa
e›a búa í mi›borginni
er í bo›i mána›arkort
á a›eins 5.600 kr. *)
fia› fæst varla
ód‡rara skjól fyrir
bílinn flinn.
Tra›arkot
vi› Hverfisgötu - gegnt fijó›leikhúsinu
*) Ef flú kaupir 6 mánu›i borgar›u a›eins fyrir 5.