Morgunblaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 14
FRÉTTIR 14 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433. Enginn afsláttur! Opið laugard. 11-19 Renndar peysur frá kr. 2.900 • Síðar peysur frá 3.900 V-hálsmálspeysur frá kr. 2.900 Hnepptar og heilar peysur kr. 2.200 „ÉG held að Íslendingum sé í blóð borið að ferðast og láta útþrána seðja sig og hluti af ferðalaginu er að segja söguna þegar heim er kom- ið,“ segir Ólafur Örn Haraldsson, en Hið íslenska bókmenntafélag hefur gefið út bókina Suður á pólinn. Ís- lenski skíðaleiðangurinn, þar sem Ólafur Örn segir frá ferð á suðurpól- inn og skreytir með myndum frá þremenningunum. Fyrsti skíðaleiðangur Íslendinga á suðurpólinn skilaði árangri á ný- ársdag 1998, þegar Haraldur Örn Ólafsson, Ingþór Bjarnason og Ólaf- ur Örn Haraldsson náðu takmark- inu eftir um tveggja mánaða skíða- göngu. Ólafur Örn segir að hann hafi verið búinn að ákveða að skrifa bókina þegar þeir lögðu af stað og hann hafi nýtt tímann á kvöldin til að skrifa niður brot úr samtölum og minnisatriði. „Það var samt erfitt því við höfð- um lítinn tíma og svona ferðalag krefst þess að öll verk séu unnin hratt,“ segir hann. „Hins vegar er eins og minnið skerpist við þessa einveru. Dags daglega er hver göngumaður einn með sjálfum sér og hefur nægan tíma til að hugsa og festa atriði í minni.“ Ólafur Örn segir að á undirbún- ingstímanum hafi hann meðal ann- ars verið á þingi Evrópuráðsins og þá hafi verið erfitt að einbeita sér að samtölum, góðum réttum og ljúfum frönskum vínum því hugurinn hafi verið kominn út á ísbreiðurnar þar sem lífið snúist um að ganga, borða og sofa og allt sé naumt skammtað. „Það eru ótrúlega miklar andstæð- ur, allsnægtarlífið sem við búum við við undirbúning jólanna og á jólum og í góðum veislum og hins vegar harðræðið sem fylgir pólferðum.“ Þrautseigja Það er meira en að segja það að ganga í tæplega tvo mánuði, en þre- menningarnir gengu um sjö og hálf- an til átta og hálfan tíma á dag eða um níu til 11 tíma með hvíldum. Haraldur Örn segir að þetta langa ferðalag hafi verið mjög erfitt og til- breytingaleysið hafi tekið á. „Þegar við vorum búnir að ganga eins lengi og hægt var á hverjum degi í heilan mánuð sáum við fram á annan eins mánuð,“ segir hann. „Það er einna erfiðast að glíma við að hafa þraut- seigju til að halda áfram og ganga dag eftir dag. Að berja sig áfram í þessari endalausu víðáttu.“ Ólafur Örn tekur í sama streng og sonurinn. „Það hafa margir sagt að ganga á suðurpólinn sé ekki aðeins barningur gegn þessum stöðuga mótvindi og brunakulda heldur er tilbreytingaleysið svo mikið og mað- ur þarf að taka svo mikið af sjálfum sér, sökkva djúpt í eigin sál til að laða fram það úthald sem þarf,“ seg- ir hann. „Auk þess reynir þetta gríð- arlega mikið á samheldnina og vin- áttuna. Maður kynnist sjálfum sér og bráðnar einhvern veginn inn í náttúruna, en allir mannheimar hverfa.“ Feðgarnir hafa reynt margt, en þeir segja að útilokað sé að bera saman einn leiðangur við annan. „Hver ferð er einstök, en þetta er með allra erfiðustu ferðum sem ég hef farið,“ segir Haraldur Örn. Ólaf- ur Örn segir að göngumaðurinn í svona langri einveru verði að finna sér einhverja hugarleikfimi og að- ferð til að útiloka sársauka og drepa tímann. „Ég lýsi ákveðinni sjálfdá- leiðslu sem við komumst upp á lag með og aðferð til að fást við tilbreyt- ingaleysið.“ Af því að … Ólafur Örn segir að í bókinni reyni hann ekki aðeins að segja ferðasöguna heldur hleypi lesandan- um að sér, að eigin sálarlífi og átök- um sínum við það. „Ég tek nokkra áhættu með þessu en ég reyni að vera einlægur til að láta fólk skynja baráttuna, sem ég hái við mig sjálf- an en ekki aðeins náttúruöflin og erfiðleikana. Fólk vill skyggnast inn í hugarheim og baráttu göngu- mannsins og reyna að fá svar við spurningunni af hverju? Af hverju leggja menn allt þetta á sig? Ég reyni að svara þessari spurningu í bókinni.“ Ýmislegt hefur á daga þeirra drif- ið frá göngunni á suðurpólinn en þeir segja að bókin sé kærkomin upprifjun. „Ferðalagið lifnar að mörgu leyti við í huga manns við það að fletta bókinni,“ segir Har- aldur Örn. „Það er gaman að sjá þetta allt saman skjalfest og sam- ansett. Það er góð tilfinning.“ Ólafur Örn segir að gangan á suð- urpólinn og bókin séu einn áfangi í langri röð ferða þeirra feðga. „Þarna gátum við brotið ísinn og farið inn á nýjar brautir í fjalla- mennsku Íslendinga. Þetta var ein- stök ferð en um leið liður í ákveðinni sögu.“ Ólafur Örn Haraldsson með bók um gönguna á suðurpólinn Morgunblaðið/Kristinn Feðgarnir Ólafur Örn Haraldsson og Haraldur Örn Ólafsson með bókina um ferðina sem nefnist Suður á pólinn. Íslenski skíðaleiðangurinn. „Liður í ákveð- inni sögu“ ALLIR þingmenn fá afhenta svonefnda geð- ræktarkassa í dag í tengslum við þriggja ára forvarnar- og fræðsluverkefni Geðræktar, sem lýkur á næsta ári. Verkefnisstjóri Geðræktar, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, segir að geð- ræktarkassinn komi að notum þegar neikvæð- ar hugsanir leita á hugann og geti hann gegnt svipuðu hlutverki og sjúkrakassi heimilisins. Þannig megi leita í geðræktarkassann við minniháttar áföll, t.d. eftir erfiðan dag, rifrildi eða skammir. Innihald kassans er tómt við af- hendingu og kemur það í hlut eigenda hans að setja í hann nytsama hluti til verndar geðheils- unni. Geðrækt er sjálfstætt starfandi verkefni sem vinnur í samstarfi við Landlæknisembætt- ið, Geðhjálp, geðsvið Landspítala-Háskóla- sjúkrahúss og Heilsugæsluna. Helstu styrkt- araðilar eru Landsbanki Íslands, Delta, Íslensk erfðagreining, Eimskip, Skeljungur, Háskóli Íslands og íslenska ríkið. Markmiðið verkefnisins er að opna um- ræðuna um geðheilsu, gera þjóðinni grein fyrir að allir búi við geðheilsu, efla geðheilsu lands- manna og koma í veg fyrir geðraskanir með fræðslu, forvarnir og heilsueflingu að leiðar- ljósi. Tveir þingmenn, þær Jónína Bjartmarz og Margrét Frímannsdóttir, hafa lagt hönd á plóginn við verkefnið og munu segja frá geð- ræktarkössum sínum á sérstökum geðræktarfundi í Iðnó kl. 12 í dag og hvað þær gera til að halda geðheilsunni. Að loknum fundinum verður haldið inn í Alþingishúsið við Austurvöll og þingmönnum gefnir geðræktar- kassarnir, sem búnir hafa verið til í samstarfi við iðjuþjálfun Geðhjálpar. Verða þingmenn hvattir til að hlú að geðheilsu sinni og lands- manna allra. En hvað er gott að hafa í geðræktarkass- anum sínum? Það geta verið uppáhalds myndabandið eða tónlist, bók, bréf og ýmsir persónulegir munir sem tengjast jákvæðum og góðum tilfinningum. Varð að láta frá sér átta börn Hugmyndina að geðræktarkassanum á Elín Ebba Ásmundsdóttir, forstöðuiðjuþjálfi á geðsviði Landspítalans. „Fyrirmyndin að kass- anum er ráð konu nokkurrar sem missti mann sinn frá tíu börnum þeirra um aldamótin,“ seg- ir hún. „Hún þurfti að láta frá sér átta elstu börnin og að skilnaði útbjó hún kassa handa hverju og einu þeirra, sem hún setti í hluti sem höfðu mikið persónulegt gildi fyrir þau. Í suma kass- ana setti hún klúta sína sem báru með sér lykt af henni og leikföng og annað smálegt. Börnin áttu að nota kassana ef þeim liði illa og draga upp fallegar minningar og minnast um leið lof- orðs móður þeirra um að fjölskyldan myndi sameinast aftur þótt síðar yrði. Það gekk eftir að lokum. Hugmyndin að geðræktarkassanum er jóla- gjöf Geðræktar til þjóðarinnar og um leið hvetjum við fólk til að staldra við í lífsgæða- kapphlaupinu og hugsa um hvað hefur áhrif á líðan þess.“ Þannig segir Elín Ebba upplagt að fólk búi til geðræktarkassa og gefi vinum og vanda- mönnum í jólagjöf. Kassarnir sem þingmenn- irnir fá í dag eru málaðir og skreyttir skókass- ar svo íburðurinn þarf ekki að vera mikill. Helmingur landsmanna þekkir Geðræktarverkefnið Gerð hefur verið Gallupkönnun á vitneskju landsmanna á Geðræktarverkefninu og verða niðurstöður hennar kynntar á fundinum í Iðnó í dag. Dóra Guðrún segir niðurstöðurnar mikið gleðiefni fyrir aðstandendur verkefnisins, en könnunin leiðir í ljós að um helmingur lands- manna hafi heyrt um verkefnið. „Það teljum við nokkuð gott á þeim tveimur árum sem verkefnið hefur verið í gangi,“ segir hún. „Okkur finnst mjög hvetjandi að sjá að við höfum náð til um helmings þjóðarinnar og telj- um mjög mikilvægt að stefna að því að ná til hins helmingsins í framhaldinu. Samkvæmt könnuninni vita konur meira um verkefnið en karlar og þá veit fólk meira um verkefnið eftir því sem menntun þess er meiri. Við töldum að með könnuninni gætum við fengið að vita hvaða árangri verkefnið hefði skilað og hvernig við eigum að haga vinnunni í framhaldinu. Nið- urstöðurnar segja okkur líka að verkefnið er jafnvel kynnt á landsbyggðinni sem á höfuð- borgarsvæðinu og það er mikið ánægjuefni. Að því hafa unnið einn til tveir starfsmenn með stuðningi góðra aðila og meðal þess sem gert hefur verið er að halda fyrirlestra fyrir skóla og almenning. Haldin hafa verið námskeið um geðheilbrigðismál fyrir kennara, útbúið náms- efni fyrir leik- og grunnskóla. Einnig höfum við útbúið sérstakan lista í póstkortaformi með „Geðorðunum tíu“, sem náð hefur mikilli út- breiðslu.“ Svo tekið sé dæmi um geðorðin tíu er sjötta geðorðið: „Flæktu ekki líf þitt að óþörfu.“ Áttunda er: „Gefstu ekki upp, vel- gengni í lífinu er langhlaup.“ Meðal þess sem Geðrækt hefur á prjónunum á næsta ári eru námskeið um vellíðun í vinnunni í samvinnu við VR, stofnun heimasíð- unnar sjalfsmynd.is í samstarfi við Jafningja- fræðsluna. Í samstarfi við Landspítalann, RKÍ, Geðhjálp og fleiri verður þá unnið verkefnið „Geðrækt fyrir þá sem þjást sem hefur það að markmiði að efla jákvæða hugsun hjá þeim sem þjást, s.s. langveikum börnum. Einnig er á döfinni samvinna við Borgarleikhúsið sem hyggst setja upp leikritið Psychosis 4:48 með það að markmiði að hjálpa almenningi að skilja þá sem glíma við geðraskanir. Um helmingur landsmanna þekkir Geðræktarverkefnið samkvæmt könnun Þingmenn hvatt- ir til að hlúa að geðheilsunni Morgunblaðið/Sverrir Geðræktarkassarnir í vinnslu fyrir alþingismenn en kassarnir verða afhentir í dag. Elín Ebba Ásmundsdóttir og Dóra Guðrún Guðmundsdóttir á vinnustofu Geðhjálpar við Túngötu. Góðir skór Skóbúðin Miðbæ Háaleitisbraut 58-60  Sími 553 2300 Ráðgjöf á fimmtud. kl. 15-18 og laugard. kl. 11-15.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.