Morgunblaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 43
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 43
FISKVEIÐIRÁÐGJÖF Hafrann-
sóknastofnunar er fullkomlega sam-
hljóða kenningum Alþjóðahafrann-
sóknastofnunarinnar (ICES) sem
hefur höfuðstöðvar í Kaupmanna-
höfn. Þetta eru nákvæmlega þeirra
ráð til að byggja upp fiskistofna. Ís-
lensk stjórnvöld hafa farið eftir þessu
í einu og öllu m.a. samþykktu þau
fyrir rúmlega tíu árum að aldrei skuli
veiða meira á ári hverju en 25% af
þorskstofninum (4 ára fiskur og
eldri) eins og Hafró ætlar stærð hans
á hverjum tíma. Þetta þykir mörgum
gríðarlega ábyrg stefna og eflaust er
hún það ef menn á annað borð trúa
þessum fræðum. En hvernig hefur
þessi „samþykkti sannleikur“ reynst
og hverjar eru þær staðreyndir sem
við blasa?
Um Kanada
Kanadamenn fylgdu mjög fram
hinni „ábyrgu“ stefnu um friðun og
uppbyggingu þorskstofnanna. Á ní-
unda áratug liðinnar aldar hældu for-
ráðamenn fiskirannsókna á Íslandi
Kanadamönnum mjög og töldu þá
vera til fyrirmyndar öðrum þjóðum.
Veiðiálagið á þorskstofnanna við
Kanada var ekki 25% eins og hér á
landi heldur aðeins 20%. Allir vita
hvað gerðist. Árið 1991 byrjaði
þorskstofninn að hrynja og árið 1993
voru þorskstofnarnir við Labrador
og Nýfundnaland horfnir. Og það
sem hryllilegra er, þeir hafa ekki
ennþá fundist þrátt fyrir algert veiði-
bann. Um þessar hamfarir hefur
margt verið ritað og rætt og ráð-
stefnur haldnar. Handhafar sann-
leikans í fiskifræðinni segja hins veg-
ar fátt
Um Færeyjar
Færeyingar eiga allt sitt undir
sjávarfangi og vita það vel. Þótt þess-
ir frændur okkar séu ósammála um
margt þá ríkir þar einhuga um að
trúa ekki þeirri speki sem að þeim
var rétt um friðun og uppbyggingu
þorskstofna. Hafrannsóknastofnunin
í Færeyjum sem líkt og sú íslenska
er undir yfirstjórn ICES hefur haft
uppi sömu tillögur eins og allir af
þessum skóla, friðun og aftur friðun,
sérstaklega á smáfiski. Árið 2000 var
aflaráðgjöfin 16 þúsund tonn, Fær-
eyingar veiddu 21 þúsund tonn. Aft-
ur árið 2001 var aflaráðgjöfin 16 þús-
und tonn og Færeyingar veiddu 27
þúsund tonn. Árið 2002 var ráðgjöfin
14 þúsund tonn og talið er að veið-
arnar fari yfir 30 þúsund tonn í ár.
Þrátt fyrir þetta er hrygningarstofn-
inn í ágætum vexti, hefur vaxið úr 40
þúsund tonnum í 53 þúsund tonn.
Veiðarnar ganga vel og afli á sókn-
areiningu fer vaxandi. Sömu söguna
er að segja um ýsuna og ufsan.
Um Barentshafið
Rússar og Norðmenn skipta á milli
sín veiðum í Barentshafinu. Þar hef-
ur um langan aldur verið veitt miklu
meira af þorski en sérfræðingar
ICES hafa ráðlagt. Rússar hafa aldr-
ei viðurkennt ICES í Kaupmanna-
höfn og hafa ekkert viljað með ráð-
leggingar þeirra gera. Sagt að þeim
kæmi málið ekkert við. Árið 2001
ráðlagði ICES að veiðarnar í Bar-
entshafi skyldu verða 180 þúsund
tonn. Rússar og Norðmenn úthlut-
uðu hins vegar 395 þúsund tonnum af
þorski (hafa eflaust veitt meira í
raun). Hið sama endurtók sig í ár,
2002, ICES ráðlagði 180 þúsund
tonna afla en aftur var úthlutað 395
þúsund tonna afla. Veiðarnar hafa
gengið vel í ár, afli á sóknareiningu
hefur haldið áfram að vaxa. Hvað
gerðist svo næst? Fyrir nokkrum
vikum gerði ICES tillögur um þorsk-
veiðar í Barentshafi 2003. Sam-
kvæmt þeim tillögum yrði leyft að
veiða 305 þúsund tonn á næsta ár!!!
Hvað er nú að gerast, var ekki þor-
stofninn að hruni kominn, eða hvað?
Hafrannsóknastofnun hefur ráðið
rannsóknum í fiskifræði á Íslandi í 30
ár. Haldið þar fram ákveðnum skóla
sem hinum eina rétta sannleika og
harðneitað að horfast í augu við það
að hann hefur engum árangri skilað
þótt yfirgnæfandi líkur séu á því að
þeirra kenningar sé ekki einungis
rangar heldur einnig lífshættulegar
þorskstofninum og þar með efna-
hagslífi og framtíð þjóðarinnar.
Fiskifræði og rannsóknir á lífríki
hafsins eru einhverjar þær mikil-
vægust sem Íslendingar geta stund-
að. Þess vegna er það svo áríðandi að
menn hætti að umgangast þessi vís-
indi eins og trúarbrögð og horfi með
opnum augum á veröldina í kringum
sig. Við verðum að leysa upp Haf-
rannsóknastofnun, halda rannsókn-
arþættinum alveg sér en tryggja
jafnframt að úrvinnsla og túlkun
gagnanna sé í höndum frjálsra vís-
indastofnanna og þá fleiri en einnar
sem hafa engan annan tilgang né
metnað en að stunda rannsóknir sín-
ar og fræði opnum huga. Ríkið hefur
á umliðnum árum lagt til þessara
rannsókna gríðarlega fjármuni og
ekkert er sjálfsagðara en að hið op-
inbera geri það áfram. En um leið
verður að tryggja frjálsan aðgang og
frjálsa hugsun allra. Hví skyldu há-
skólarnir á Íslandi ekki byggja upp
innan sinna vébanda öflugar stofn-
anir sem gætu sinnt úrvinnslu gagn
og túlkun á þeim af mikilli trú-
mennsku og virðingu fyrir því að
enginn er handhafi neins endanlegs
sannleika um lífríki hafsins.
Reynsla annarra
Eftir Einar Odd
Kristjánsson
„Fiskifræði
og rann-
sóknir á líf-
ríki hafsins
eru ein-
hverjar þær mikilvæg-
ustu sem Íslendingar
geta stundað.“
Höfundur er þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins á Vestfjörðum.
F
&#
45554554
. $$
!$$ >M!=
K 9!
<>=$ 9 M=$!
B 3$$! $
46"555
69"555
4 48"555
69"555
(4 L5"555
6M"555
4 F 0
45554556
. $$
K 9!
<>=$E,2)
L7K"555
6N5"555
L7K"555
6N5"555
O L5K"555
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
mbl.isFRÉTTIR
Húfur - um jólin
Brekka húfur frá 1.290 kr.
Brekka vettlingar frá 1.490 kr.
Smáralind - Glæsibæ
Simi 545 1550 og 545 1500
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
1
94
42
12
/2
00
2
Kynnum OROBLU jólavörurnar
í dag kl. 13-17 í Lyfju Lágmúla og Smáratorgi,
á morgun kl. 13-17 í Lyfju Lágmúla,
laugardag kl. 13-17 í Lyfju Laugavegi.
Glæsilegur kaupauki ef keypt er tvennt frá Oroblu.
Skrefi framar
Sokkar, sokkabuxur, undirföt.
oroblu@islensk-erlenda.is
www.lyfja.is