Morgunblaðið - 12.12.2002, Page 13
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 13
ER ÞESSI BÓK...
...með svarið sem þú hefur leitað að
- en aldrei fundið?!
Handbók byggð á reynslu, þekkingu, skilningi og umfram
allt kærleika.
„Svo kom sá dagur að áhættan sem fylgdi því að vera
lokaður blómhnappur varð sársaukafyllri en áhættan sem
fylgdi því að opna sig og blómstra.“
Er ekki kominn tími til að gera það bara?
„Æðisleg bók sem stelpur á öllum aldri þurfa að eiga.
Fann strax við fyrsta lestur ýmsar leiðbeiningar sem ég get
notfært mér.“ Sóley Elíasdóttir, leikkona.
Bókin er jákvæð, hnitmiðuð og vel orðuð, hvorki of stíf né of væmin. Fjallar um
flesta þætti sem konur þurfa að hyggja að til að byggja upp jákvætt og heilsteypt líf.“
Stella Sæmundsdóttir, verslunarstjóri Betra Líf.
„Frábær bók. Einföld og raunhæf og auðvelt að fylgja leiðbeiningunum í henni.“
Herdís Finnbogadóttir, sálfræðinemi við Háskóla Íslands.
„Yfirgripsmikil og góð handbók sem hentar vel þeim sem vilja breyta um lífsstíl. Í
bókinni er fjöldi gagnlegra heimilda og tilvísana. Hún nær kjarnanum úr mörgum
mjög merkum fræðum. Það er mikil þörf fyrir þessa bók.“ Anna Katrín Ottesen,
sjúkraþjálfari.
Þessi litla bók getur breytt stórum hlutum til góðs í lífi þínu
- og annarra.
ALLUR INNBLÁSTUR
kemur frá andanum...
... og lögmál hans eru jafn raunveruleg og þyngdarlögmálið!
Þetta er bók sem mun fylgja þér svo lengi sem þú spyrð
spurninga og vilt fá svör.
Dan Millman er þekktur í heimalandi sínu fyrir ótrúlegt
andlegt þrek sem hann þurfti að nota þegar hann varð fyrir
hræðilegu slysi. Þá skrifaði hann metsölubókina Way of The
Peaceful Warrior sem farið hefur sigurför um allan heim.
„Við erum í mikilli þörf fyrir bækur eins og þessa. Láttu hana
ekki fram hjá þér fara.“ John Bradshaw, höfundur bókarinnar
Heimkomunnar.
„Þessa bók er ekki hægt að leggja frá sér. Hún er full af andlegum gullmolum.“
Gerald G. Jampolsky, höfundur bókarinnar Fyrirgefningin - heimsins fremsti heilari.
Þú getur öðlast dýpri merkingu, tilgang og tengingu við sköpunarverkið með því að
taka eitt skref: opna bók sem þú munt leita í aftur og aftur, eftir innblæstri og
leiðbeiningum á lífsins leið.
LÖGMÁL SEM MUNU HJÁLPA ÞÉR YFIR HVERJA HINDRUN SEM LÍFIÐ
LEGGUR FYRIR ÞIG Á LEIÐ TIL MEIRI ÞROSKA!
Símar 435 6810,
698 3850 og 891 6811.
Aðrar sígildar metsölubækur:
Staðfestingarspjöldin komin aftur:
MARKÚS Örn Antonsson út-
varpsstjóri hefur ákveðið að
ráða Elínu Hirst í starf frétta-
stjóra Sjón-
varpsins.
Bjarni Guð-
mundsson
framkvæmda-
stjóri Sjón-
varpsins stað-
festi þessa
ákvörðun í
samtali við
Morgunblaðið.
Elín fékk þrjú atkvæði á
fundi útvarpsráðs á þriðjudag-
inn en Sigríður Árnadóttir
fréttamaður fjögur atkvæði.
Bogi Ágústsson, nýráðinn yfir-
maður fréttasviðs Ríkisút-
varpsins, mælti hins vegar með
Elínu í starfið.
Elín Hirst
ráðin
fréttastjóri
Elín Hirst
Á FUNDI landbúnaðarnefndar Al-
þingis á mánudag var farið yfir
erfiða stöðu á kjötmarkaðinum en
að óbreyttu
stefnir í mikla
umframfram-
leiðslu á kinda-
kjöti.
Drífa Hjartar-
dóttir, formaður
nefndarinnar,
segir ljóst að
miklar birgðir
séu til af kinda-
kjöti í landinu
þar sem mikill
samdráttur hafi orðið í sölu á því
síðustu mánuðina. Það stefni í mik-
inn vanda vegna þessa þegar komi
fram á næsta ár.
„Það er alveg ljóst að markaður
fyrir kindakjöt hér innanlands hef-
ur minnkað mikið. Ég tel að í raun
hafi bændur verið hvattir til of
mikillar framleiðslu miðað við þró-
un innanlandsmarkaðarins. Á sama
tíma næst ekki nema lítið brot í út-
flutning. Það er lítils háttar aukn-
ing í útflutningnum en alls ekki
nægjanlegt til þess að draga úr
umframframleiðslu. Síðasti bú-
vörusamningur var að mínu viti of
framleiðsluhvetjandi og ég held að
menn hafi verið of bjartsýnir á
sölu á innanlandsmarkaði og eins á
útflutning á kindakjöti.“
Bóndinn fær lítið
Drífa bendir á að skilagjald til
bænda í útflutningi sé svo lágt að í
raun sé bóndinn lítið eða ekkert að
fá fyrir vinnu sína. Útflutningurinn
sé auk þess svo lítill að ekki sjái
högg á vatni. Þá hafi offramleiðsla
á svína- og kjúklingakjöti skekkt
myndina enn frekar fyrir sauðfjár-
bændur. „Maður sér fram á að það
stefni í hrun í greininni að
óbreyttu og það yrði mjög sárs-
aukafullt.“
Drífa segir að landbúnaðarnefnd
hafi miklar áhyggjur af stöðu
mála; sjálf telji hún nauðsynlegt að
taka á umframframleiðslu á kinda-
kjöti fyrir næstu sláturtíð svo
vandinn verði ekki óviðráðanlegur.
Formaður land-
búnaðarnefndar
Alþingis
Stefnir í
erfiða tíma
fyrir sauð-
fjárbændur
Drífa
Hjartardóttir
DILBERT
mbl.is