Morgunblaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 24
SUÐURNES 24 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ FRUMKVÖÐLR Als álvinnslu ehf. eru Helgi Þór Ingason vélaverkfræð- ingur og Þorsteinn I. Sigfússon pró- fessor. Á árinu 1994 tóku þeir að sér að kanna hagkvæmni þess að koma upp verksmiðju hér á landi til að eyða hættulegum spilliefnum með háhita plasmatækni. Kom í ljós að slík verk- smiðja væri ekki arðbær en athug- unin beindi athygli Helga og Þor- steins að endurvinnslu ál- gjalls með þessari tækni. Hafa þeir síðan unnið að þróun þess verkefnis með félögum sín- um, Halldóri Jónssyni og Stef- áni Reyni Krist- inssyni, en þeir stofnuðu Al álvinnslu ehf. 1998 og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins gekk síðan til liðs við félagið. Við þróun verkefnisins var horfið frá því að nota plasmatækni en í stað- inn ákveðið að nýta nýja brennslu- tækni. Tæknin er þróuð af sænska gasframleiðandanum AGA, Herwich Engineering í Austurríki og álrisan- um Corus og hefur verið notuð í sjö ár í verksmiðju Corus í Voerde í Þýskalandi. Þá er verið að setja upp tvo slíka ofna í Svíþjóð. Helgi Þór segir að þessi brennsluaðferð hafi þann kost, auk þess að vera reynd tækni, að ekki þurfi að blanda nein- um aukaefnum í hráefnið fyrir brennsluna og mengun sé því í lág- marki. Frumkvæði úr Reykjanesbæ Frumkvöðlarnir hafa undanfarin ár unnið að fjármögnun viðskipta- hugmyndar sinnar og jafnframt leit- að fyrir sér um staðsetningu verk- smiðju. Nokkrir staðir hafa komið til greina. Eftir að Árni Sigfússon varð bæj- arstjóri í Reykjanesbæ í vor kynnti hann iðnaðarsvæðið í Helguvík fyrir bróður sínum, Þorsteini Sigfússyni, og félögum hans. Í framhaldi af því söfnuðu þeir Þorsteinn Erlingsson, bæjarfulltrúi og formaður Hafna- samlags Suðurnesja, saman hópi fjárfesta sem reyndist tilbúinn til að leggja hlutafé í fyrirtækið. Helgi Þór segir að það hafi orðið til þess að frumkvöðlarnir sáu til lands í fjár- mögnun verkefnisins. Gert er ráð fyrir að fjárfestingarsjóðir, fleiri einkafjárfestar og lánastofnanir komi að því máli. Stofnkostnaður er áætl- aður á þriðja hundrað milljónir króna. Alur álvinnsla ehf. hefur fengið út- hlutað verksmiðjulóð á Berghóla- braut 15 í Helguvík. Helgi Þór vonast til að hægt verði að ganga endanlega frá málum á næstu vikum og að fram- leiðsla geti hafist næsta haust í um 1.000 fermetra verksmiðjuhúsi sem til stendur að reisa. Alur hefur gert samninga við álver Alcan í Straumsvík og Norðuráls á Grundartanga um að vinna ál úr því álgjalli sem til fellur í álverunum en það hefur hingað til verið flutt til end- urvinnslu í öðrum löndum. Helgi Þór segir að gert sé ráð fyrir því að í upp- hafi verði unnið úr um sex þúsund tonnum af álgjalli og brotaáli á ári og að út úr því komi um þrjú þúsund tonn af áli. Alcan og Norðurál munu taka við því áli sem unnið verður úr þeirra gjalli. Í upphafi verður unnið á dagvakt í verksmiðjunni og við það verða 4 til 5 starfsmenn. En með stækkun álver- anna kemst hún í fulla stærð með allt að 15 manna starfsliði. Þótt ekki sé gert ráð fyrir álveri Alcoa í Reyðar- firði í áætlunum fyrirtækisins neitar Helgi Þór því ekki að því yrði tekið fagnandi ef af því yrði og samningar næðust við það um vinnslu á áli úr álgjalli. Til greina kæmi að flytja hrá- efnið til Helguvíkur eða að byggja útibú fyrir austan. Frekari úrvinnsla til athugunar Lengi hefur verið rætt um mögu- leika á úrvinnslu áls hér á landi. Verksmiðja Als álvinnslu í Helguvík verður fyrsta meginstarfsemi hér- lendis sem beint má leiða af álfram- leiðslu í landinu. Helgi Þór telur hugsanlegt að hægt verði að þróa frekari úrvinnslu úr áli eða efnum sem verða til við vinnsluna. Nefnir hann sérstaklega að til verði áloxíð- ríkt efni sem nefnist gjallsandur. Gert er ráð fyrir því að hann verði notaður til íblöndunar í malbik og byggingarefni og hluti af honum get- ur orðið hráefni í steinull í stað inn- flutts áloxíðs. Helgi Þór hefur ekki áhyggjur af umhverfismálunum enda hefur hann fengið samþykkt mat á umhverfis- áhrifum sem miðast við að verksmiðj- an gæti verið í Gufunesi í Reykjavík. Segir hann að fremur megi líkja starfseminni við smiðju en álver og tæknibúnaðurinn sé vistvænn. Alur álvinnsla byggir verksmiðju í Reykjanesbæ og fjárfestar af svæðinu koma inn í reksturinn Álgjalli breytt í ál með nýrri tækni Álgjallið er flutt inn í brennsluofninn eftir brautinni. Myndin er tekin í verksmiðju Stena í Svíþjóð en ofninn þar er stærri en sá sem Alur kaupir. Ákveðið hefur verið að Alur álvinnsla ehf. reisi verksmiðju í Helguvík í Reykjanesbæ. Framleitt verður ál úr álgjalli frá álver- unum í Straumsvík og á Grundartanga og einnig úr brotaáli. Stefnt er að því að fram- leiðsla hefjist næsta haust. Helguvík Helgi Þór Ingason ÁRNI Sigfússon bæjarstjóri er ánægður með að Alur álvinnsla ehf. hefur ákveðið að byggja verk- smiðju sína í Helguvík. „Þetta gerir atvinnu- lífið fjölbreyttara og styrkir það á viðkvæmum tíma,“ segir Árni. Hann neitar því ekki að fjöl- skyldutengsl hafi átt þátt í því að sjónir eigenda fyrirtækisins beindust til Reykjanesbæjar en Árni og Þorsteinn I. Sigfússon eru bræður. „Við höfum verið að kynna kosti Helguvíkur og iðn- aðarsvæðisins þar. Ég hef fylgst með þessu verkefni hjá Þorsteini og félögum hans og þótti til- hlýðilegt að ganga að þeim sem næst mér standa til að kanna möguleika svæðisins. Þegar þeir eru sannfærðir veit ég að fleiri munu koma,“ segir Árni. Reykjanesbær leggur ekki fram hlutafé í fyrirtækið en stjórnendur bæjarins kynntu þetta fyrirtæki fyrir fjárfestum á svæðinu og þeir ákváðu að leggja hlutafé í það, enda segir Árni að þetta sé arðbært fyrirtæki. Auk aðstöðunnar í Helguvík var það lykillinn að því að fyrirtækinu var valinn samastaður þar. Tókst að sannfæra bróðurinn FJÖLMARGIR lögðu lykkju á leið sína í jólaundirbúningnum til þess að fara á Bókakonfekt í bókasafni Reykjanesbæjar um helgina enda er uppákoman orðin fastur liður í bæjarlífinu á aðventunni. Fjórir höfundar kynntu bækur sínar að þessu sinni. Verkin voru fjölbreytt, tvær ævisögur, skáld- saga og smásagnasafn. Sigurbjörg Þrastardóttur las upp úr verðlauna- sögu sinni, Sólarsögu, Guðjón Frið- riksson las brot úr ævisögu Jóns Sigurðssonar, fyrra bindi, Þórarinn Eldjárn flutti eina smásögu úr bók- inni Eins og vax og Kolbrún Berg- þórsdóttir las kafla úr ævisögu Jóns Baldvins Hannibalssonar. Á milli upplestra söng Dagný Jónsdóttir mezzósópran nokkur hugljúf jóla- lög við undirleik Ragnheiðar Skúla- dóttur píanóleikara. Í hléi og að loknum lestri gafst gestum kostur á að kaupa verk þeirra höfunda sem fram komu á Bókakonfektinu og fá áritun. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Þórarinn Eldjárn áritar bóka sína, Eins og vax, fyrir gest á Bókakonfekti. Fjölbreyttur upp- lestur á Bókakonfekti Reykjanesbær FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykjanes- bæjar fyrir árið 2003 var samþykkt samhljóða eftir síðari umræðu á fundi bæjarstjórnar í fyrrakvöld. Minnihlutinn bauð þó meirihlutan- um aðstoð sína við að bæta fjárhags- áætlunargerð og bæta meðferð fjár. Samþykkt var tillaga um að fela bæjarstjóra að óska eftir viðræðum við Hitaveitu Suðurnesja um sölu á vatnsveitumannvirkjun Reykjanes- bæjar til Hitaveitunnar. Í áætlun- inni er einmitt gert ráð fyrir að 450 milljónir fáist við sölu eigna. Fulltrúar Framsóknarflokks og Samfylkingar vöktu athygli á því í bókun við afgreiðslu fjárhagsáætl- unarinnar að meirihlutinn hafi ákveðið að nota 125 milljónir af þessum peningum til að fjármagna rekstur sveitarfélagsins. „Slíkar að- gerðir benda til að menn hafi ekki full tök á rekstrinum. Það sjá allir að ekki er hægt að selja eignir til lengdar til að fjármagna reksturinn. Grípa þarf til annarra aðgerða. Til að snúa vörn í sókn þarf að stuðla að bættu atvinnulífi og auka útsvar- stekjur. Jafnframt þarf að laða fólk sem hér starfar en býr annars stað- ar, til að setjast hér að,“ segir í bók- uninni. Árni Sigfússon bæjarstjóri lagði fram bókun þar sem meginatriði fjárhagsáætlunarinnar eru dregin saman en helstu verkefni hennar taka mið af samþykktri framtíðar- sýn, stefnu og meginmarkmiðum Reykjanesbæjar fyrir árin 2003 til 2006. Árni tekur fram að verði ekki af sölu vatnsveitumannvirkja verði að draga úr niðurgreiðslu skulda og skera niður framkvæmdir. Bjóða fram að- stoð við að bæta meðferð fjár Reykjanesbær SAMKOMULAG hefur náðst um að Kristjana Einarsdóttir hótelstjóri taki að fullu yfir rekstur gistihússins við Bláa lónið. Bláa lónið hf. hefur fram til þessa átt helming fyrirtæk- isins á móti Kristjönu. Kristjana segir að gistihúsið verði rekið áfram með sama sniði og verið hefur nema hvað nafn þess breytist í Northern Light Inn. Grímur Sæmundsen, fram- kvæmdastjóri Bláa lónsins hf., segir að Bláa lónið sé með áform um að byggja heilsulindarhótel við lónið og vilji fyrirtækið ein- beita sér að þeirri framkvæmd. Unnið sé að útreikningum á arð- semi hótels. Spurningin sé ekki hvort heldur hvenær slíkt hótel rísi við Bláa lónið. Northern Light Inn er með liðlega tuttugu gistiherbergi. Kristjana segir að þangað komi almennir ferðamenn og einnig sé að aukast að fólk komi bein- línis til að hvíla sig. Þá er áfram samvinna við meðferðarstöðina við Bláa lónið um gistingu fyrir fólk sem þar er í meðferð. Hótel- stjórinn yfirtek- ur rekst- urinn Bláa lónið KVEIKT verður á ljósum bæjar- jólatrésins í Garði á morgun, föstu- dag, klukkan 18. Tréð verður á horni Gerðavegar og Garðbrautar. Við athöfnina flytur Gísli Heið- arsson hreppsnefndarmaður ávarp. Söngsveitin Víkingar syngur nokk- ur jólalög, auk þess sem tónlistar- atriði verða frá tónlistarskólanum. Þá er von á jólasveinum í heim- sókn. Afmælisbarn kveikir jólaljósin á trénu. Boðið verður uppá heitt kakó og piparkökur. Kveikt á jólaljósunum Garður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.