Morgunblaðið - 12.12.2002, Side 27
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 27
AFMÆLISSTEMMNING ríkti í
Barnaskóla Bárðdæla sl. föstudag
þegar haldið var upp á hundrað og
tíu ára afmæli ungmennafélagsins
Einingar enda fjölmenntu Bárðdæl-
ir á öllum aldursstigum til þess að
fagna sameiginlega þessum tíma-
mótum.
Ungmennafélagar buðu upp á
vandaða dagskrá og var setið undir
borðum í þrjá klukkutíma þar sem
rifjuð var upp saga félagsins, leikið,
sungið, spilað og notið ríkulegra
veitinga með tertum og tilheyrandi
af hlaðborðinu í matsalnum.
Kynnar kvöldsins voru ungir fé-
lagar, þær Hjördís Ólafsdóttir og
Ingibjörg María Ingvarsdóttir, sem
vöktu athygli fyrir góða stjórn og
skemmtilega framkomu. Þarna
komu margir fram, m.a. bárðdælskt
tríó sem rifjaði um gamla daga, þeir
Tryggi Harðarson í Svartárkoti,
Tryggvi Valdimarsson á Engi og
Jónas Sigurðarson á Lundarbrekku.
Þá söng Dagný Pétursdóttir á Öx-
ará einsöng við undirleik Kaldos
Kiis tónlistarkennara.
Ýmsar myndir voru sýndar úr
sögu ungmennafélagsstarfsins und-
ir stjórn Magnúsar Skarphéð-
inssonar á Úlfsbæ og Sigrúnar
Hringsdóttur á Lundarbrekku. Þar
gaf að líta myndir frá samkomum í
Halldórsstaðaskógi, ferðalögum
m.a. í Ásbyrgi, myndir frá töðu-
gjaldaböllum, íþróttamótum heima í
Bárðardal, íþróttaferðalögum og
ýmsar mannlífsmyndir úr dalnum.
Einingunni bárust margar kveðj-
ur í tilefni afmælisins og sveit-
arstjóri Þingeyjarsveitar, Jóhann
Guðni Reynisson, kvaddi sér hljóðs
og afhenti stjórninni krónur
110.000 í tilefni afmælisins, þ.e. kr.
1.000 fyrir hvert ár sem félagið hef-
ur starfað. Þá færði Anna Rúna
Mikaelsdóttir félögum kveðjur og
peningagjöf frá Héraðssambandi
Suður-Þingeyinga og Böðvar Pét-
ursson í Baldursheimi flutti kveðjur
frá íþrótta- og ungmennafélaginu
Mývetningi.
Burtfluttir Bárðdælir í Eyjafirði
létu ekki sitt eftir liggja og Kristján
Sigurðarson las kveðju frá þeim og
afhenti þrjár startblokkir ásamt
peningagjöf til félagsins. Þá kom
upp Svanhildur Hermannsdóttir,
áður kennari við Barnaskóla Bárð-
dæla í áratugi, og gaf Einingunni
farandbikar til félaga fyrir frjálsar
íþróttir. Kveðjur bárust og frá Ung-
mennafélagi Íslands og Íþrótta-
sambandi Íslands.
Leikþáttur var settur á svið þar
sem ungmennafélagsfundur frá ár-
unum um 1930 var rifjaður upp og
sýnt hvað þá var á dagskrá. Var létt
yfir mannskapnum, lesnar sögur og
ljóð, mikið dansað, sungið og spjall-
að. Þetta kunnu afmælisgestir vel
að meta enda var mikið klappað.
Leikendur voru Guðrún Tryggva-
dóttir, Heiðrún Tryggvadóttir, Ing-
ólfur Víðir Ingólfsson, Jónas Sig-
urðarson, Ólafur Ólafsson og
Þuríður Sveinsdóttir.
Það var í desember árið 1892 sem
ungt fólk af bæjunum í Bárðardal
kom saman á Jarlsstöðum og stofn-
aði félagið Eininguna sem átti að
halda uppi gleðskap í sveitinni og
vera meðlimum sínum til aukins
þroska. Allar samkomur félagsins
hétu Einingarfundir og fyrir utan
söng og dans voru upplestur, um-
ræður, leikstarfsemi, íþróttir, bind-
indismál, skógrækt og skemmti-
ferðir það sem ungmennafélagið lét
sig varða.
Sveitarblað var eitt af fyrstu ein-
kennum Einingarinnar og gaf félag-
ið út blaðið Frosta, sem ekki varð
langlíft, og síðan Vilja, sem kom út
öðru hvoru fram um 1920. Þriðja
blaðið hét Neisti og kom það út fram
á sjötta áratug síðustu aldar.
Á þessari 110 ára afmælishátíð í
Barnaskóla Bárðdæla var mikið
sungið og rifjað var upp kvæðið um
Eininguna eftir Svein Sæmundsson
þar sem segir m.a.:
Liðin Einingaröld
enn er æskan við völd
sýnir árvekni í námi og starfi.
Erja reitinn sinn enn
bæði konur og menn
sækja orku úr fortíðararfi.
Undir lok dagskrár stóðu allir
upp og sungu Blessuð sértu sveitin
mín.
Einingin í Bárð-
ardal 110 ára
Laxamýri
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Miklar veitingar voru bornar fram í tilefni afmælisins.