Morgunblaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 12.12.2002, Blaðsíða 28
NEYTENDUR 28 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ V erslanir hafa að undanförnu verið með mikið af hagstæðum tilboðum á vörum sínum, ef miðað er við árs- tíma, þar sem varan hefur verið lækkuð umtalsvert eða frá 20–70% eða meira. Er óvenjulegt að verslanir lækki vöru sína jafnmikið og raun ber vitni á þessum há- bjargræðistíma kaupmanna, sem eru jólin. Telja sumir af þeim sem við ræddum við að þetta stafi af því að verslunum hefur fjölgað síðastliðna tólf mánuði með tilkomu Smáralindar og verið sé að bítast um viðskiptavini sem hafi nú minna á milli handanna. Þeir viðmælendur okkar sem tóku sterkast til orða töluðu um að verið væri að flytja útsölurnar yfir í desember. Segja má að þessi þróun hafi hafist snemma í nóvember þegar Debenhams lækkaði flestar vörur sínar um 25% líkt og aðrar Debenhams- verslanir í heiminum. Í lok mánaðarins lækkuðu Hagkaup verð á öllum barnafatnaði sem nam virðisaukaskattinum til að sýna samstöðu með til- lögu til þingsálykturnar um afnám virð- isaukaskatts á barnafötum og skófatnaði og Int- ersport fylgdi í kjölfarið með sama afslátt. Sumar verslanir lækkuðu verð hjá sér á öllum fatnaði í nóvember eins og Dressmann, sem lækkaði allar vörur um 30%, en það tilboð stóð aðeins einn dag. Þetta var einnig gert í öllum verslunum Dress- mann í heiminum. Þessi þróun hefur svo haldið áfram í desember eins og sjá mátti á auglýsingum dagblaðanna fyr- ir síðustu helgi þar sem auglýstar voru vörur á umtalsverðum afslætti. En hvað segja kaupmenn- irnir? „Við erum að keppa í mjög mörgum vöruflokk- um og það er alveg sama hvar við berum niður, samkeppnin er alls staðar mikil og meiri en und- anfarin ár,“ segir Finnur Árnason, forstjóri Hag- kaupa. „Við mætum samkeppninni með því að veita afslátt, þó einkum í tveimur flokkum; jóla- mat og jólagjöfum; hvort sem það eru bækur, fatnaður, spil eða skemmtiefni. Verð á jólafatnaði er nú með 30–50% afslætti í verslunum okkar og verður til jóla. Um helgina veittum við verulegan afslátt á yf- irhöfnum eða 20–70%. Haustið er búið að vera óvenjuhlýtt hér á landi og því ekki selst mikið af hlýjum yfirhöfnum. Vorum við að létta á birgðum okkar. Við höfum líka verið með tilboð á raftækjum og nam lækkunin 30–40% og á geisladiskum 30– 50%,á nýjum bókum 40% og á tölvuleikjum og myndböndum 30%. Einnig höfum við lækkað Séð og heyrt-spilið um 2.000 krónur en það kostar nú 3.999. Um síðustu helgi vorum við með afslátt á völd- um leikföngum sem nam 50%.“ Finnur segir það hafa reynst vel að vera með þessi verðtilboð og það hafi verið mikil ásókn í þau. Ýmis verðtilboð í gangi „Nú í desembermánuði verðum við með nýja til- högun á verðtilboðum hjá okkur eða það sem við köllum jóladagatal Debenhams,“ segir Inga Reynisdóttir sölustjóri. „Það felst í því að þegar jólasveinarnir koma til byggða 12. desember verð- um við með ný tilboð á hverjum degi til jóla. Ég get nefnt sem dæmi að veittur verður 20% af- sláttur af barnaúlpum einn daginn og annan dag- inn fylgir 4.000 króna gjafabréf til kaupa á skyrtu og bindi ef keypt eru herrajakkaföt. Auk þess verð- um við með tilboð á ýmsum vörutegundum eins og við erum vön og verður afslátturinn misjafn hverju sinni. Jólaverslunin hjá okkur hefur farið mun bet- ur af stað núna en í fyrra, fólk er farið að þekkja verslunina betur,“ segir Inga. Í Ritu, Eddufelli og Bæjarlind 6, hafa staðið yfir tilboð á yfirhöfnum undanfarnar vikur. Afsláttur nemur 20%. Um síðastliðna helgi veitti verslunin auk þess 20% afslátt á buxum og skyrtum. „Ástæð- an fyrir því að við bjóðum þennan fatnað á lægra verði er að verslanir eru í auknum mæli að bjóða af- slátt á vörum sínum og við verðum að vera með til að fá fólkið inn í verslunina,“ segir Steinunn Ing- ólfsdóttir, eigandi Ritu. „Það eru allir að tala um minnkandi sölu og ég held að þessi tilboð séu merki um hræðslu hjá verslunareigendum við að verða undir í þeirri miklu samkeppni sem nú er á mark- aðnum. En það er auðfundið að fólk hefur minna á milli handanna nú en áður.“ Samkeppni eins og hún gerist best Í Regatta-útivistarversluninni hefur verið helm- ingsafsláttur á barnafötum síðan í haust og verður út desember. Að sögn eiganda verslunarinnar, Daníels Guðlaugssonar, hefur Regatta-fyrirtækið sem hann verslar við verið að stækka barnafatalín- una hjá sér og er verslunin að kynna þessa nýju línu með þeim hætti að veita helmingsafslátt á vör- unum fram að jólum. „Það er líka bullandi sam- keppni á þessum markaði,“ segir Daníel, „en hér eru nú fleiri verslanir en okkar fámenna þjóðfélag getur borið. Ef maður ætlar að lifa þetta af verður maður að geta boðið almennilegt verð. Samkeppni eins og hún er núna er eins og hún gerist best og kemur almenningi til góða.“ Verslunin Hreysti hefur verið með 20–60% af- slátt á vetrar- og útivistarfatnaði frá Columbia í verslun sinni. Verður afsláttur veittur út desem- ber. „Þetta er glæný vara sem búið var að panta fyrir Nanoq en vegna gjaldþrots þess aðila sem pantaði vöruna ákváðum við, sem erum heildsal- inn, að selja fatnaðinn sjálfir og veita þá frekar viðskiptavininum góðan afslátt,“ segir Eggert Jónsson, eigandi Hreysti. „Þetta hefur auðvitað áhrif á sölu á svipuðum fatnaði annars staðar, enda Columbiavörunar einhverjar þær vinsælustu á markaðnum.“ Í verslunum Steinars Waage er nú 30% af- sláttur á einstaka skótegundum eins og Laus- barnajólaskóm. Einnig er 30% afsláttur á Yellomi- les-herraskóm og verður þessi afsláttur veittur fram að jólum. „Við höfum verið með ýmis tilboð bæði í nóvember og desember. Sem dæmi um það er að nýlega voru öll leðurstígvél á 10% afslætti og nú erum við með 25% afslátt á nokkrum gerðum af Eccoskóm,“ segir Tabitha Snyder, versl- unarstjóri hjá Steinari Waage í Smáralind. „Um síðustu helgi var 40% afsláttur á öllum skóm í Toppskónum, en venjulega erum við með 30% af- slátt allan ársins hring. Ég held að fólk sé að spara meira fyrir þessi jól auk þess sem fólk er farið að dreifa jólainnkaupunum meira yfir árið og kaupir þá jafnvel gjafirnar á útsölum.“ Vörur undir kostnaðarverði Guðmundur Haukur Magnason, fram- kvæmdastjóri BT-verslana, segir samkeppnina í tölvum, tölvuleikjum og geisladiskum mun harð- ari nú en áður á sama tíma og það eigi við um flesta hluti sem seldir eru í verslununum. „Ég man ekki eftir öðrum eins lækkunum í desember og er þó búinn að vera nokkuð lengi í þessum við- skiptum. Við sjáum til dæmis mun meira af vörum fara undir kostnaðarverði. Við höfum mætt sam- keppninni með því að lækka verðið enn frekar til samræmis við stefnu okkar á markaðnum. Ef keppninautarnir koma með tilboð svörum við strax með enn lægra verði. Við höfum lækkað ákveðnar vörur allt að helmingi. Við höfum til dæmis lækkað Playstation 2-tölvuna það mikið að á síðustu þremur vikum erum við búnir að borga á aðra milljón með henni. Um Playstation 2 er einna hörðust samkeppni. Hún kostar nú hjá okkur 24.900 og fylgja henni tveir leikir í kaupbæti að andvirði 10.000 krónur. Velja kaupendur leikina úr ákveðnum fjölda titla. Hörkusamkeppni er einnig í tölvuleikjum. Við höfum lækkað fjölda tölvuleikja um 30–40%. Verðið á geisladiskum breytist hratt og það er ekki óalgengt að diskarnir fari undir 1.500, sem er kostnaðarverð, þar sem venjulegt verð er 2.399. Við höfum líka lækkað ákveðinn fjölda DVD- mynda um 50%. Þá höfum við verið að bjóða stærri hluti eins og og tölvur, sjónvarpstæki og heimabíókerfi á vaxtalausum kjörum til tólf mánaða og er það alvörukjarabót.“ Guðmundir segir ljóst að þessi mikla samkeppni eigi eftir að leiða til þess að minni verslanir heltist úr lestinni og meiri sam- þjöppun verði í verslun í nánustu framtíð. Mikið er um tilboð á jólavarningi og menn spyrja: Er verið að færa útsölur fram í desember? Samkeppnin fyrir jól sjaldan verið harðari Margar verslanir bjóða nú vörur á lækkuðu verði sem nemur 20–70% og dæmi eru um að vörur séu seldar undir kostnaðarverði. Slík- ur afsláttur hefur ekki tíðk- ast í desember. Hildur Ein- arsdóttir ræddi við nokkra forsvarsmenn í verslun og kynnti sér tilboðin. he@mbl.is Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Í DAG opnar verslunin Noa- Noa brunaútsölu í Ingólfs- stræti 5 þar sem allar vörurn- ar úr versluninni sem brann á Laugavegi 42 verða í fjóra daga seldar með miklum af- slætti. Í fréttatilkynningu frá NoaNoa kemur fram að um er að ræða nýjar vörur, kjóla, pils, buxur, húfur, trefla, skó og fleira. Útsalan verður opin frá kl. 10–22 fram á sunnudagskvöld. Jólamarkaður á Laugavegi Á Laugavegi 42 er búið að opna NoaNoa verslun á ný. Auk þess er þar nú starfrækt- ur jólamarkaður. Þar eru seldar eldri vörur úr NoaNoa en vörurnar koma beint úr verslunum í Danmörku. Auk fatnaðar eru til sölu ýmsar jólavörur eins og kerti og öskjur. Jólamarkaðurinn er opinn á verslunartíma, frá kl. 10–18. Bruna- útsala hjá NoaNoa MOUNTAIN Dew, þriðji mest seldi gosdrykkur Bandaríkj- anna, kemur í verslanir á Ís- landi næstkomandi föstudag. Ölgerðin Egill Skallagrímsson er framleiðandi og umboðsaðili Mountain Dew á Íslandi. Ísland er þriðja Evrópuland- ið þar sem Mountain Dew kem- ur á markað. Drykkurinn er orkuríkur ávaxtadrykkur og verður fáanlegur í hálfslítra og einslítra plastflöskum. Mountain Dew á Íslandi BRIE með engiferrönd er nýr ostur frá Ostahúsinu. Í fréttatilkynn- ingu kemur fram að brie- osturinn sé mildur með ljúffengu eftir- bragði. Einnig er jólaosturinn kominn í verslanir svo og hátíð- ardesertinn. NÝTT Brie-ostur með engifer- rönd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.