Morgunblaðið - 12.12.2002, Side 33

Morgunblaðið - 12.12.2002, Side 33
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 33 Hrásalur, Listaháskóli Íslands, Sölvhólsgötu 13 Jólatónleikar tón- listardeildar verða kl. 20. Flytjendur eru Ólafía Línberg Jensdóttir, sópr- an, Birna Hallgrímsdóttir, píanó, Hafdís Vigfúsdóttir, flauta, Sigrún Erla Egilsdóttir, selló, og Asrún Inga Kondrup, tónsmíðar. Borgarleikhúsið, forsalur Rithöf- undar lesa úr nýjum bókum sínum kl. 20. Arnaldur Indriðason, Einar Már Guðmundsson, Einar Kárason, Guðrún Eva Mínervudóttir, Stefán Máni og Þórarinn Eldjárn. Þá leikur KK nokkur lög. Sögufélagið við Fischersund Höf- undar kynna nýútkomin sagn- fræðirit sem út koma á vegum Sagn- fræðingafélags Íslands og Sögufélags kl. 20.30. Meðal höfunda sem taka til máls eru þau Guðjón Friðriksson, Helgi Skúli Kjart- ansson, Hulda S. Sigtryggsdóttir Jón Þ. Þór, Kristján Sveinsson, Ólöf Garðarsdóttir, Már Jónsson og Þór- unn Valdimarsdóttir. Hver höfundur segir stuttlega frá sínu verki og því sem mest kom á óvart við vinnslu þess. Eggert Þór Bernharðsson stjórnar samkomunni. Súfistinn, Laugavegi 18 Höfundar lesa úr nýjum bókum kl. 20. Guðrún Helgadóttir, Steinunn Sigurð- ardóttir. Brynhildur Björnsdóttir og Páll Óskar Hjálmtýsson flytja jóla- lag úr sönglagahefti Hreiðars Inga Þorsteinssonar og Englakórinn syngur jólalög. Vefsetrið ljóð.is tileinkar desem- bermánuði nýútkomnum ljóðabók- um. Af því tilefni verður efnt til upp- lestrarkvölds, Gleðileg ljóð, á Dubliner, Hafnarstræti kl. 20, þar sem skáldin kynna afurðir sínar. Auk þeirra munu notendur vefset- ursins lesa úr sínum ljóðum. Meðal lesara eru Baldur Óskarsson, Bjarni Bernharður, Einar Már Guðmunds- son, Hallberg Hallmundsson, Hrafn Jökulsson (les úr Flugum), Ingi- björg Haraldsdóttir, Ísak Harð- arson, Kristján Eiríksson (fyr- irlestur), Norma E. Samúelsdóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Sig- tryggur Magnason, Steinn K. og Þorsteinn frá Hamri. Kvennakór Garðabæjar heldur að- ventutónleika í Digraneskirkju kl. 20. Auk kórsins koma fram Ingi- björg Guðjónsdóttir sópran og kór- stjóri, Helga Laufey Finn- bogadóttir, píanóleikari, Marion Herrera, hörpuleikari, Kristjana Helgadóttir, flautuleikari og Guðjón Þorláksson, bassaleikari. Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg 5 Elva Hreiðarsdóttir sýnir graf- íkverk til 18. desember. Sýninguna nefnir Elva „Grjót“ og sækir hún efniviðinn til náttúrunnar. Elva út- skrifaðist úr LHÍ vorið 2000. Blómaverkstæði Betu, Reykjavík- urvegi 60 Sólveig Ágústsdóttir sýn- ir ný málverk til áramóta. Sólveig hefur stundað nám í myndlistarskóla Rúnu Gísla í fjögur ár og er þetta hennar fyrsta einkasýning. Myndveggur skartgripaverslunar- innar Mariellu, Skólavörðustíg 12 Verk eftir Guðjón Ketilsson verður á myndveggnum til 5. janúar. Nýlistasafnið Vatnsstíg Í neðra rými safnsins verður opnaður jóla- basar listamanna og hönnuða kl. 20 og stendur hann fram að jólum. Markaðurinn verður opinn í sam- ræmi við versl- unartíma. Faktorshúsið, Ísafirði Lesið verður úr nýjum bókum kl. 20.30. Guðrún Eva Mín- ervudóttir les úr skáldsögu sinni, Sagan af sjó- reknu píanóun- um, og Hrafn Jökulsson úr ljóðabók Jóns Thoroddsens, Flugur, sem fyrst kom út árið 1922. Skaftfell menningarmiðstöð, Seyðisfirði Rúrí heldur myndlist- arsýningu um þessar mundir og er yfirskrift sýningarinnar Tímans rás. Verkin eru unnin með blandaðri tækni á tímabilinu 2000–2002. Verk- ið ,,That day“ sem tileinkað er Sig- ríði frá Brattholti. Á sýningunni eru einnig nokkur bókverk Rúríar, kort og veggspjald sem gefið var út í tengslum við sýninguna, þau eru árituð í 50 eintökum. Rúrí hefur verið valin sem fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2003. Sýningin er opin alla daga kl. 14–18 og stendur til 13. janúar. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is Jón Thoroddsen Að alast upp aft- ur: Annast okkur sjálf, annast börn- in okkar er eftir Jean Illsley Clarke og Connie Dawson í þýðingu Helgu Ágústs- dóttur. Yfirfarið af Sigurði A. Magn- ússyni. Í bókinni eru kynntar aðferðir sem hafa hjálpað þúsundum foreldra til að sinna foreldrahlutverkinu. Lögð er áhersla á að lesandinn skilji sjálfan sig betur og mikilvægi þess að hann annist sjálfan sig til þess að vera bet- ur í stakk búinn að sinna þörfum barna sinna. Að alast upp aftur veitir upplýsingar um formgerð og næringu sem skiptir svo miklu máli fyrir heilbrigði barna og þroska og einnig er nauðsynlegt fyrir hina fullorðnu. Höfundar bókarinnar miðla upplýs- ingum, sem allir uppalendur ættu að hafa, um aldur og þroskastig barna. Þá er fjallað um þarfir samsettra fjöl- skyldna og ættleiddra barna. Í bókinni er einnig tekið á samskiptum para á meðgöngunni, en einnig þegar kemur að okkar síðustu ævidögum og þeim vaxandi vanda sem stafar af ofdekrun barna. Útgefandi er ÓB Ráðgjöf. Verð. 4.980 kr. Handbók Silungur á Íslandi er myndband eftir Eggert Skúlason veiðimann og Friðrik Guð- mundsson kvikmyndagerðarmann. Fjallað er um silungsveiði í tveimur norð- lenskum veiðiám, Laxá í Mývatnssveit og Eyjafjarðará. Reyndir veiðimenn í báðum þessum ám leiða áhorfendur í allan sannleika um hvað er hægt að gera á góðri stundu með réttu græjunum. Tvær flugur í silungsveiði eru hnýttar í myndinni og teknar til kostanna. Þessar flugur hafa ekki verið kynntar veiðimönnum áður. Myndin var tekin upp sumarið 2002 og er um að ræða áður óbirt efni, sem sér- staklega var tekið upp fyrir þessa mynd. Báðir hafa þeir Eggert og Friðrik unnið að gerð margra náttúru- og veiðiþátta fyrir sjónvarp. Útgefandi er Edda útgáfa hf. Myndbandið er 73 mín. að lengd. Hönnun kápu: Þormar Melsteð.Verð: 2.900 kr. Myndband Guðni Ágústsson tekur við fyrsta eintakinu úr hendi höfunda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.