Morgunblaðið - 12.12.2002, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 12.12.2002, Qupperneq 55
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 55 þær hugljúfar og hjartahlýjar og ég geymi þær ætíð. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sig.) Guð geymi þig. Ég votta foreldrum og öðrum ættingjum mína dýpstu samúð. Kolbrún, Lyngási. Kæra Ösp. Nú þegar þú hefur kvatt langar okkur að þakka þér fyrir þann tíma sem við fengum að eiga með þér. Þú varst pínulítil þegar þú komst inn í litlu fjöl- skylduna okkar hinn 16. júní 2001 þá tæplega eins árs. Þú bræddir hjarta okkar strax við fyrstu kynni og kenndir okkur að gefast ekki upp þó að á móti blási. Það eru forréttindi að fá að kynnast lítilli hetju eins og þér sem tókst á við veikindi þín af svo mikilli þraut- seigju og af svo miklum dugnaði að engin orð eru nógu sterk til að lýsa því. Við áttum margar góðar stundir saman, okkur er minnisstæður göngutúrinn okkar niður Lauga- veginn í endaðan nóvember þar sem við skoðuðum saman jólaljósin og nutum þess að vera saman í bænum. Þessar stundir og allar hinar stundirnar okkar saman geymum við í hjarta okkar og ilj- um okkur við þær í sorginni. Lítill sex ára drengur á erfitt með að sætta sig við andlát þitt enda mikill aðdáandi þinn sem beið eftir dögunum sem þú dvaldir hjá okkur í hverjum mánuði. Aldrei fundust honum þessir dagar nógu margir og vildi í hvert skipti fá að lengja tímann sem þú varst hjá okkur. Hann mun minnast þín sem litlu „systur“ sinnar sem verndar hann og bíður eftir honum á himn- inum. Kæru Anna Karen, Viðar, Stein- ar, Tómas og fjölskyldur, megi Guð gefa ykkur styrk í sorginni. Guð geymi litla sólargeislann ykk- ar. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesú, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti sjáðu, blíði Jesú, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson.) Hanna, Pétur og Lárus Óli. Ó, sofðu, blessað barnið frítt, þú blundar vært og rótt. Þig vængir engla vefja blítt og vindar anda hljótt. Af hjarta syngja hjarðmenn þér til heiðurs vögguljóð sem tér: Sofðu rótt, sofðu rótt, vært og rótt, sofðu rótt. (Þýð. Þorgils Hlynur Þorbergsson.) Í dag kveðjum við litla vinkonu, hana Ösp okkar. Ösp kom fyrst til okkar á Lyngás fyrir rúmlega einu og hálfu ári og átti sér strax stað í hug okkar og hjarta. Fljótlega sáum við að Ösp var mikil dugn- aðarstelpa sem tók veikindum sín- um með þrautseigju og mikilli þol- inmæði. Hún átti marga góða daga og þá fengum við tækifæri til að sjá hana þroskast og dafna í leik og starfi. Ösp átti sínar uppáhalds- stundir og þar var sundið númer eitt og bubblið í heitapottinum best af öllu. Hestaferðirnar í sum- ar þóttu henni skemmtilegar svo og að róla og hossa á stóra bolt- anum. Við fengum ekki að hafa Ösp lengi hjá okkur en ljúfar minningar munu lifa áfram í huga okkar. Við biðjum góðan Guð að styrkja og styðja Önnu Karen, Viðar, Steinar, Tómas litla og aðra að- standendur í sorginni. Mér er sem leggi ég lófann á litla höfuðið þitt, biðjandi Guð að geyma gullfagra barnið mitt. (Þýð. B. Gröndal.) Vinir á Lyngási. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTRÚNAR KARLSDÓTTUR, Litlahvammi 2, Húsavík. Ásmundur Bjarnason, Karl Ásmundsson, Bergþóra Guðbjörnsdóttir, Bergþóra Ásmundsdóttir, Arnar Guðlaugsson, Bjarni Ásmundsson, Jóhanna Ásmundsdóttir, Erling Ó. Aðalsteinsson, Anna Ásmundsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Sigrún Ásmundsdóttir, Kjartan Ásmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, KRISTBORG JÓNSDÓTTIR, Hásteinsvegi 53, Vestmannaeyjum, sem lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja laugardaginn 7. desember, verður jarðsungin frá Landakirkju laugardaginn 14. desember nk. kl. 14.00. Sigurður Jónsson, Ægir Sigurðsson, Jenný Ásgeirsdóttir, Arnþór Sigurðsson, Sigríður Kjartansdóttir, Guðlaug Björk Sigurðardóttir, Kristinn Ágústsson, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, HALLDÓRA SIGFÚSDÓTTIR frá Steinsstöðum í Öxnadal, sem lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, laugardaginn 30. nóvember, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 13. desember kl. 13.30. Ingibjörg Bjarnadóttir, Dýrleif Bjarnadóttir, Bjarni Rúnar Bjarnason og fjölskyldur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN SVEINSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 13. desember kl. 10.30. Fyrir hönd aðstandenda, Steingerður Þórisdóttir, Jón Þ. Hallgrímsson, Sveindís Steinunn Þórisdóttir, Sveinn Guðmundsson, Aðalheiður Valdimarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG JÓHANNESDÓTTIR, Birkivöllum 5, Selfossi, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugar- daginn 14. desember kl. 13.00. Guðjón Jónsson, Kristján Jónsson, Valdimar Jónsson, Helga Ásta Jónsdóttir, Grétar Jónsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir og systir, GERÐUR G. ÞORVALDSDÓTTIR, lést á Hillerød Sygehus í Danmörku að kvöldi mánudagsins 9. desember. Torkil Frederiksen, Þóra Pia Finnsdóttir, Jesper Søe, Ida Hrönn Finnsdóttir, Kaja Søe, Þorvaldur Søe, Hjördís Oddgeirsdóttir, Óskar Már Þorvaldsson, Eva G. Þorvaldsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÞÓRÐUR GESTSSON, Kálfhóli, Skeiðum, verður jarðsunginn frá Skálholtskirkju laugar- daginn 14. desember kl. 14.00. Jarðsett verður í Ólafsvallakirkjugarði. Eyrún Guðmundsdóttir, Guðrún Elsa Aðalsteinsdóttir, Ingvar Árnason, Guðmundur Þórðarson, Guðlaug Gísladóttir, Gestur Þórðarson, Margrét J. Ólafsdóttir, Valgeir Þórðarson, Kristín Hjálmarsdóttir, Hrafnkell Baldur Þórðarson, Siril Iren Sagstad, Elín Þórðardóttir, Sigurður Guðmundsson, Gunnar Már Þórðarson, Kolbrún Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, KRISTINN MORTHENS, Fjallakofanum í Kjós, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykja- vík föstudaginn 13. desember kl. 15.00. Börn hins látna. Útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGU GUÐRÍÐAR ÞORSTEINSDÓTTUR, Lönguhlíð 3, fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 13. desember kl. 13.30. Örn Ólafsson, Guðrún Arnardóttir, Jón Örn Arnarson, Sigurlaug Kristmannsdóttir, Þorbjörg Íris Arnardóttir, Ingólfur Arnarson, Ægir Arnarson, Þorsteinn Ö. Arnarson, Liss Wenche, barnabörn og barnabarnabörn. Útför bróður okkar, KRISTJÁNS SIGURÐAR GUNNLAUGSSONAR fyrrverandi bónda, Miðfelli 1, Hrunamannahreppi, fer fram frá Hrepphólakirkju laugardaginn 14. desember kl. 14.00. Skúli, Magnús, Karl og Emil Gunnlaugssynir og fjölskyldur þeirra. Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, HEIÐRÚN KRISTÍN ÓSKARSDÓTTIR, Hólavegi 37, lést á Heilbrigðisstofnuninni Siglufirði þriðjudaginn 10. desember. Stefán Jóhannsson, börn og aðrir aðstandendur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.