Morgunblaðið - 12.12.2002, Síða 63

Morgunblaðið - 12.12.2002, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 63 DAGBÓK Gallafatnaður Bankastræti 11 • sími 551 3930 Leður- og rúskinns- jakkarnir komnir St. 2XL-8XL Pantanir óskast sóttar sem fyrst VINNUFATABÚÐIN Laugavegi 76, s. 551 5425 Útsölustaðir Höfuðborgarsvæðið: Daman Laugavegi, Gullbrá Nóatúni, Árbæjarapótek, Fína Mosfellsbæ, Ceres Kópavogi, Embla Hafnarfirði. Landið: Palóma Grindavík, Efnalaug Suðurlands Selfossi, Klakkur Vík, Tískuverslun Steinunnar Akureyri, Ísold Sauðárkróki, Risið Skagaströnd, Apótek Blönduóss, Fatabúðin Ísafirði, Heimahornið Stykkishólmi, Apótek Ólafsvíkur, Perla Akranesi Mikið úrval af vönduðum ítölskum bolum úr ull-silki, ull-bómull og ull-microfibra frá Vajolet Laugavegi 54, sími 552 5201 ÓL Í FLASH Peysur 2 fyrir 1 Flott í jólapakkann! SÖGULEGUR sigur Bandaríkjamanna á HM í París 2001 lyfti Kyle Lar- sen úr djúpi gleymskunn- ar, en Larsen var undra- barn við spilaborðið fyrir fjórum áratugum: „Senni- lega besti ungliðinn fyrr og síðar,“ segir Bob Hamman og rifjar upp eftirfarandi sögu frá 1964: Hamman hafði tekið að sér brids- kennslu eitt kvöld í viku, á þriðjudögum. Hamman er áhugasamur um box og eitt þriðjudagskvöldið eiga þeir Sonny Liston og Cassius Clay að keppa. Hamman vildi heyra lýsinguna í út- varpinu, en fékk engan til að leysa sig af og brá á það ráð að útbúa sérlega þung- ar þrautir fyrir bekkinn. Hann dreifði verkefninu og fór svo inn í annað her- bergi og kveikti á útvarp- inu. Þegar önnur lotan er rétt hálfnuð bankar Larsen á dyrnar og hafði þá lokið við verkefnið. Hamman leist ekki á blikuna, en Larsen róaði hann niður: „Slappaðu af, mig langar líka til að heyra útsend- inguna.“ Austur gefur; enginn á hættu. Norður ♠ 853 ♥ 9832 ♦ Á1093 ♣ÁK Vestur Austur ♠ G1062 ♠ ÁD74 ♥ K ♥ G6 ♦ DG8542 ♦ K76 ♣G8 ♣10976 Suður ♠ K9 ♥ ÁD10754 ♦ -- ♣D5432 Vestur Norður Austur Suður -- -- Pass 1 hjarta Pass 3 hjörtu Pass 4 lauf Pass 6 hjörtu Pass Pass Pass Larsen þykir hugmynda- ríkur spilari. Hér er hann í suður, sagnhafi í sex hjört- um. Vörnin á slag á spaða- ás og því má engan gefa á tromp. Hin tæknilega rétta íferð er að svína drottning- unni, en Larsen hitti á að leggja niður ásinn. Hvað hafði hann fyrir sér í því? Út kom spaðagosi og austur tók ásinn og spilaði aftur spaða. Larsen fór nú inn í borð á lauf, en ekki til að svína hjartadrottningu heldur til að spila smáum tígli! Austur fór upp með kónginn og Larsen tromp- aði. Austur hafði nú sýnt ÁD í spaða og tígulkóng. Með hjartakónginn til við- bótar ætti austur góða 12 punkta og þar með opnun, en hann sagði pass í upp- hafi. Larsen lagði því niður trompásinn og átaldi vest- ur fyrir að halda ekki að sér spilunum. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson LJÓÐABROT JÓLAKVÆÐI Einn er eldstólpi undra bjartur, mitt í myrkrum vetrar. Upp af eyðimörk, ofar himnum, leggur ljóma þann. Gekk ég einn á æskuvetri myrkvið húms og harma. Varð mér vegleysa villum hugar feigðvæn fram í veröld. – – – Kom þá hinn krýndi Konungur dýrðar. Hófust heilög jól. Húmið varð birta, heimur allur lýstur ljósi guðs. – – – Jón Magnússon Árnað heilla 70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 12. desember, er sjötugur Kristinn Jónsson, Hátúni 10b, Reykjavík. Hann er að heiman í dag. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 12. júlí sl. í Þing- vallakirkju af sr. Braga Skúlasyni þau Elín Ög- mundsdóttir og Óli Þór Hilm- arsson. Með þeim eru börn þeirra Dagmar og Hlyn- ur. 1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c4 c5 4. d5 exd5 5. cxd5 d6 6. Rc3 a6 7. a4 g6 8. Bf4 Bg7 9. h3 O-O 10. e3 Rh5 11. Bh2 f5 12. Be2 f4 13. exf4 Rxf4 14. O-O Rd7 15. Dd2 g5 16. Re4 h6 17. Rxd6 Re5 18. Bxf4 Hxf4 19. Rxc8 Hxc8 20. Rxe5 Bxe5 21. Bg4 Hb8 22. Hae1 Dd6 23. De2 Bf6 24. g3 Hd4 25. Df3 Bg7 26. He6 Dxd5 27. De3 Kh8 28. He1 Hf8 29. He8 Df7 30. He7 Df6 31. Hxb7 Hxa4 32. Dxc5 Hd4 33. He2 Hd1+ 34. Kg2 Dg6 35. He6 Dd3 Staðan kom upp á Ólympíuskákmótinu í Bled sem lauk fyrir nokkru. Smbat Lputian (2.627) hafði hvítt gegn Kevin Spraggett (2.533). 36. Hxh6+! og svartur gafst upp enda yrði hann mát eftir 36... Bxh6 37. De5+ Kg8 38. Be6+. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik.     Með morgunkaffinu Dóttir mín er upp- tekin sem stendur, en gerðu svo vel og taktu númer … FRÉTTIR RAUÐI kross Íslands hefur gefið út jólakort til styrktar starfsemi Rauðakrosshússins, sem er neyðar- athvarf fyrir börn og unglinga. Áslaug Jónsdóttir myndlistar- maður og rithöfundur gerði mynd- ina sem prýðir jólakortið í ár. Sala jólakortanna er helsta fjár- öflun Rauðakrosshússins, sem skýt- ur skjólshúsi yfir ungmenni sem ekki eiga í önnur hús að vernda, segir í fréttatilkynningu. Kortin eru seld hjá Rauða krossi Íslands og kosta 100 kr. Einnig er hægt að panta þau í síma eða á netfangi: central@redcross.is. Þá er einnig hægt að fá kort frá fyrri árum. Jólakort til stuðnings Rauða- krosshúsinu STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake BOGMAÐUR Afmælisbörn dagsins: Þú ert tilfinningaríkur nátt- úruunnandi sem hefur gam- an af að ferðast og kynnast ólíkum menningarheimum. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Reyndu að greina á milli langana þinna og þarfa. Mundu að ástvinir þínir þekkja þig best og eru því hæfastir til að gefa þér góð ráð Naut (20. apríl - 20. maí)  Það er ekki við aðra að sak- ast þótt þú sért undir miklu vinnuálagi. Reyndu að koma skipulagi á líf þitt og nýta tímann vel. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Hafðu augun opin í samskipt- um þínum við annað fólk. Gullið tækifæri gæti beðið þín sem þú mátt ekki láta renna þér úr greipum. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú átt auðveldara með að sjá málin frá fleiri en einni hlið en áður. Notaðu tækifærið til að gera upp gömul mál. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Hresstu nú upp á útlitið. Það þarf ekki að kosta mikið en getur gert mikið fyrir sjálfs- traustið. Það færist fjör í leikinn í félagslífinu á næst- unni. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Taktu ekki öllu sem sjálf- sögðum hlut. Sýndu fólki að þú kunnir að meta það sem gert er fyrir þig og gakktu glaður að hverju verki. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú ættir að gefa þér tíma til samskipta við vini þína og njóta aðventunnar. Láttu það eftir þér þótt þú hafir í mörgu að snúast. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Gættu þess að sýna lipurð og góða framkomu í starfi því fólk mun taka eftir því. Þú hefur það í hendi þér að koma vel fyrir. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Taktu þátt í heimspekilegum umræðum. Þær geta sýnt þér fram á ýmislegt sem get- ur orðið þér til góðs í fram- tíðinni. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Kannaðu verð og gæði áður en þú festir kaup á nýjum hlut. Gefðu þér tíma til að sinna sjálfum þér þótt aðrir kalli á athygli þína. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú ert með hugann við mannleg samskipti og jafn- réttismál. Þú hefur ákveðnar skoðanir á þessum málum og þarft að koma þeim á fram- færi. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú hefur hæfileika til að gæða gamla hluti nýju lífi og getur gert þér mat úr því með því að kaupa gamla hluti og gera þá upp. Kannaðu málið. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.