Morgunblaðið - 12.12.2002, Page 69

Morgunblaðið - 12.12.2002, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 69 LJÓN sem líktist meira kú með nátt- húfu, ET sem reyndist vera tré, um- ræða um Gulleyjuna án þess að minnast mætti á Langa-Jón silfur, gullkistu eða eyland, var meðal þess sem kom við sögu í fyrsta leik spila- klúbbs fótboltafélagsins Strumpa í spilinu Party & Co. á föstudags- kvöldið. Áður en hægt var að hefja spilið þurfti þó að fara nokkrum sinnum yfir reglur Party & Co. sem virtust í fyrstu æði flóknar enda heilt fugla- bjarg að túlka þær við borðið, en reyndust þó við nánari skoðun vera einfaldar og skilmerkilega útskýrð- ar. Þá var skipt í lið og þróuðust heit- ar umræður að venju út í að einföld skipting var notuð: Stelpur á móti strákum (lesist: stelpurnar vinna strákana). Utan á kassanum stendur að í hverju liði geti verið 3–20 liðs- menn, en sennilega voru fimm manna lið „Strumpa“ og „Strympna“ hæfilega stór. Sérstaða Party & Co. felst í því hversu fjölbreytt spilið er og er rétti- lega lýst með því að það sé blanda af spurningaspili, Actionary og Teikni- spilinu. Liðsmenn fá að spreyta sig í öllum þessum flokkum eftir því hvernig litaðan reit þeir kjósa að velja sér hverju sinni, en að auki bætast við tveir nýir flokkar sem að mati spilaklúbbsins voru skemmtileg nýbreytni í spilamennskunni. Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir „kjúklingur“? Annars vegar er um að ræða flokk sem kallast „Vörumerki“ og gengur út á það að þegar ákveðið orð er nefnt detti liðsmönnum í hug sama vörumerkið sem það segi svo upp- hátt, samtímis! T.d. þegar sagt er „jeppi“ sé sá sem spilið dró og félagi sem hann velur með sér úr liðinu á einu máli um jeppategundina (svo reyndist reyndar ekki vera í okkar tilfelli!). Þá kemur valmöguleikinn „Bann- orð“ fyrir í Party & Co. Til að fá rétt verða liðsmenn að giska á orð sem félagi þeirra í liðinu má ekki segja (augljóslega!) en hefur að auki lista yfir önnur orð sem lykilorðinu tengj- ast og ekki má nefna. Það getur því vafist fyrir sumum að lýsa Jacques Chirac, forseta Frakklands, þegar ekki má segja „forseti“, „Frakkland“ og nokkur önnur orð (einum liðs- manni tókst það hins vegar snilld- arlega!). Reyndar voru ekki allir á einu máli um túlkun á reglum í sam- bandi við „Bannorðið“ svo lá við vin- slitum eða svona hér um bil. Það var þó ekkert við því að gera annað en að rökræða, semja og sættast. Líkt og í Teiknispilinu fá liðsmenn að spreyta sig á því að teikna orð sem getur verið allt á milli himins og jarðar. Einnig fá þeir að leika orð líkt og í Actionary en í Party & Co. má reyndar nota hljóð með sem er í fyrstu erfitt að venjast þar sem var- irnar hafa hingað til verið innsiglað- ar í látbragðsleikjaspilum. Það kemst þó upp í vana en spurningin er þá hvort ekki verði erfitt að spila Actionary næst! Fjölbreytnin er aðalsmerki Party & Co. sem fyrr segir. Það sem spila- klúbburinn hafði helst við spilið að athuga við fyrstu kynni var að spurningar og teikniorð væru of létt. Þegar á leikinn leið og spennan jókst var þó flestum orðið ljóst að spurn- ingarnar eru miserfiðar og því oft töluverð áskorun. Því má heldur ekki gleyma að spilið er líka hugsað sem fjölskylduspil svo allir geti verið með óháð aldri. Einhverjir söknuðu líka hasarsins sem fylgir því þegar lið keppa sín á milli við að teikna og leika og allt ætlar um koll að keyra þegar tíminn er að renna út. Það er auðvitað alltaf sjúklega gaman að spila nýtt spil, en leiðinn gerir vanalega vart við sig annað veifið og spilið er þá hvílt í vikur og jafnvel mánuði. Ég sé þó fyrir mér að Party & Co., fjölbreytninnar vegna, verði töluvert spilað yfir há- tíðirnar bæði í spilaklúbbnum, sem samanstendur að stórum hluta af einhleypu fólki á besta aldri, sem og í stórfjölskyldunni sem eru einstak- lingar á aldrinum 2–60 ára. Fjölbreytt og fjörugt spil Nokkur ný og forvitnileg spil koma út fyrir þessi jól. Sunna Ósk Loga- dóttir hóaði í eftirlætisspilafélag- ana og spreytti sig í Party & Co. GÍTARGOÐIÐ Pete Townshend segir í viðtali við breska götublaðið The Sun í vikunni að hann sé svo að segja alveg heyrnarlaus. Þessi gamli gít- arbrjótur úr Tho Who, sem á sín- um tíma var yf- irlýst háværasta rokkhljómsveit í heimi, segir að heyrninni hafi hrakað mjög á síð- ustu tónleikaferð sem sveitin fór í um Bandaríkin á árinu og nú sé svo kom- ið að hann grein vart hvað hann leik- ur á gítarinn … Dánardómstjóri hef- ur loksins komist að niðurstöðu um hver var dánarorsök félaga Towns- hend í The Who, bassaleikarans John Entwistle. Staðfestir úrskurð- urinn það sem marga hafði grunað, að hjarta hans hafi gefið sig vegna kókaínneyslu en tvær gerðir eiturefn- isins fundust í blóði hans … Dómstóll hefur dæmt bandarískt klámdreifing- arfyrirtæki til að greiða kvikmynda- stjörnunni Pamelu Anderson og tónlistarmanninum Tommy Lee fyrr- verandi eiginmanni hennar jafnvirði um 64 milljóna króna hvoru í bætur auk málskostnaðar fyrir að dreifa myndbandi sem sýndi þau hjónin í ástarleikjum. Myndbandinu, sem þau hjónin tóku sjálf, var stolið af heimili þeirra árið 1995 og hefur síðan orðið eitt mest selda klámmyndband sög- unnar. Ólíklegt þykir þó að And- erson og Lee fái féð nokkurn tímann í hendurnar því klámjöfurinn seki er stunginn af til Taílands … FÓLK Ífréttum Townshend Sýnd kl. 4. Ísl tal Vit 448 ÁLFABAKKI KRINGLA AKUREYRI KEFLAVÍKÁLFABAKKI AKUREYRI/KEFLAVÍK Kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 Kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8 og 10. Vit 474 1/2HK DV ÓHT Rás2  SV Mbl  RadíóX Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Sýnd kl.9.Vit 479 ÁLFABAKKI KEFLAVÍK ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI RadíóX DV kemur öllum í jólaskap Sýnd kl. 9. Auka sýning. AKUREYRI 4 8 . 0 0 0 G E S T I R Á 1 9 D Ö G U M Roger Ebert E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P Í ÁLFABAKKA KL. 4 OG 8. B. I. 16. VIT 469. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 9. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 8. Vit 468 HL MBLKvikmyndir.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.