Morgunblaðið - 20.12.2002, Page 1

Morgunblaðið - 20.12.2002, Page 1
STOFNAÐ 1913 298. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 mbl.is About Fish er hugsuð sem kveðja frá Íslandi Daglegt líf 4 Roland löglegur Má leika í marki Íslands þegar vegabréfið kemur Íþróttir 1 Dósafé til Tansaníu Litlar manneskjur á Norður- bergi afhentu dósafé 24 Fiskur í nýju ljósi Í yfirlýsingunni segir jafnframt að óhjákvæmilega verði að taka sam- starfsyfirlýsingu flokkanna til end- urskoðunar í framhaldi af ákvörðun borgarstjóra og hefur þegar verið óskað eftir viðræðum þar að lútandi. Samkvæmt heimildum blaðsins munu oddvitar R-listaflokkanna hittast óformlega með borgarstjóra í dag til að fara yfir stöðu mála. Í yfirlýsingunni segir m.a.: „Með hliðsjón af því hvernig til Reykjavík- urlistans var stofnað er ljóst að það er ekki samrýmanlegt að vera borg- arstjóri í umboði kosningabandalags þriggja flokka og fara á sama tíma í þingframboð fyrir einn þeirra og gerast þannig keppinautur tveggja samstarfsflokka í borgarstjórn.“ Ingibjörg Sólrún segist ekki líta svo á að yfirlýsingin jafngildi van- trausti á sig sem borgarstjóra. R- listinn starfi í borgarstjórn á grund- velli samstarfsyfirlýsingar, málefna- samnings og stefnuskrár og ekkert hafi gerst sem ætti að kippa grunn- inum undan þessu þrennu. „Þegar Reykjavíkurlistinn varð til undirgekkst ég það aldrei gagnvart þessum flokkum að ég mætti ekki skipta mér af landspólitíkinni. Það stendur hvergi í þessum yfirlýsing- um, enda hefði ég aldrei samþykkt að láta hneppa mig þannig í vist- arbönd,“ segir Ingibjörg Sólrún. Árni Þór Sigurðsson, forseti borg- arstjórnar og borgarfulltrúi VG, tal- ar hins vegar um trúnaðarbrest og segir taka tíma að byggja aftur upp traust. „Við höfum einfaldlega sagt að við teljum að það sé ekki sam- rýmanlegt að vera í framboði fyrir Samfylkinguna og vera áfram borg- arstjóri í þessu kosningabandalagi hér,“ segir hann. „Við teljum að það samrýmist ekki stöðu borgarstjóra að fara í framboð fyrir einn af þessum þrem- ur flokkum sem eru í þessu sam- starfi, segir Alfreð Þorsteinsson, oddviti framsóknarmanna í borgar- stjórn. „[É]g tel að það komi alls ekki til greina.“ Minni líkur á vinstri stjórn? Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstri grænna, segist hafa áhyggjur af því að líkurnar á vinstri stjórn eftir þingkosningar í vor minnki til muna haldi Ingibjörg Sól- rún því til streitu að fara í þingfram- boð. „Ég hef áhyggjur af því að möguleikar flokkanna til að byggja upp traust sín í milli um mögulegt samstarf í landsstjórninni geti einn- ig skaðast,“ segir Steingrímur. Trúnaðarbrestur – þingframboð kemur ekki til greina, segja oddvitar VG og Framsóknar „ÉG MUN ekki hætta við þá ákvörðun að fara í þingframboð og ég tel mig njóta trausts áfram sem borgarstjóri Reykjavíkurlistans,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri í samtali við Morg- unblaðið. Borgarstjóri segir engan bilbug á sér að finna þrátt fyrir yfirlýsingu borgarfulltrúa Framsóknarflokksins og Vinstri hreyfing- arinnar – græns framboðs í gær. Þar segir m.a. að með ákvörðun um þingframboð fyrir Samfylkinguna hafi Ingibjörg í raun ákveðið að hverfa úr stóli borgarstjóra. Morgunblaðið/Kristinn Nýt trausts segir Ingibjörg Viðbrögð  Viðtal við borgarstjóra  Leiðari  Fréttaskýring  10/11/12/miðopna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir lítur að neyðarútgangsskiltinu í borgarstjórn- arsal Ráðhúss Reykjavíkur á fundi borgarstjórnar í gær. HALLDÓR Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að Ingi- björg Sólrún Gísladóttir geti ekki verið skipstjóri á einum báti og há- seti á öðrum, með því að vera áfram borgarstjóri í Reykjavík sem fulltrúi R-listans og taka jafnframt sæti á framboðs- lista Samfylking- arinnar. „Þetta gengur ekki upp,“ segir Halldór. Halldór bendir m.a. á að Samfylk- ingin ætli að reka sína kosningabar- áttu í andstöðu við núverandi rík- isstjórn. Hann segir afstöðu framsókn- armanna í Reykjavík skýra í þessu máli; framsóknarmönnum finnist ekki samrýmanlegt að vera forystu- maður þriggja flokka í höfuðborg- inni; vera þeirra borgarstjóri og borgarstjóri í Reykjavík á ábyrgð þeirra en fara jafnframt á fullt í landsmálapólitíkina á vegum Sam- fylkingarinnar. „Það er að sjálf- sögðu vonlaust að borgarstjóri, sem er á ábyrgð þessara þriggja flokka og þar með Framsóknarflokksins, geti blandað sér með afgerandi hætti inn í þessa kosningabaráttu. Það fer ekki saman.“ Halldór segist telja að Samfylk- ingin hafi ekki hugsað málið mikið og það horfði líklega öðruvísi við þeim flokki, ef framsóknarmaður væri borgarstjóri og hefði ákveðið að blanda sér í landsmálabaráttuna með jafnafgerandi hætti. „Þetta gengur ekki upp“ VOPNAÐIR leynilögreglu- menn munu verða um borð í breskum farþegaflugvélum, að því er Alastair Darling, sam- gönguráðherra Bretlands, greindi frá í gær. Sagði hann þetta koma í kjölfar ákvörðun- ar fyrr á árinu um að auka ör- yggisgæslu í flugi sem lið í end- urskoðun á flugöryggi. BBC greindi frá þessu. Darling lagði áherslu á að þetta hefði ekki verið ákveðið vegna tiltekinna upplýsinga eða hótana, en ógnin við bresk- ar flugvélar væri „raunveru- leg“. Vopnaðir verðir í flugvélar HANS Blix, yfirmaður vopnaeftirlits- nefndar Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær, að „fátt nýtt“ væri að finna í vopnaskýrslu Íraksstjórnar og því gæti enginn verið viss um, að hún réði ekki yfir gereyðingarvopnum. Banda- ríkjamenn sögðu í gær, að vopna- skýrsla Íraka væri skýlaust brot á ályktunum Sameinuðu þjóðanna. Blix gaf öryggisráðinu skýrslu í gær og sagði á eftir með fréttamönn- um, að það væri lítið, sem styddi þær fullyrðingar Íraka, að þeir hefðu horf- ið frá kjarnorkuáætlun sinni og eytt efna- og lífefnavopnum. Sagði hann, að skýrslan vekti því margar spurn- ingar, sem engin svör hefðu fengist við enn. Nefndi hann sem dæmi upplýsingar, sem Írakar hefðu áður gefið um lífefna- vopn, en væri nú hvergi að finna. John Negroponte, sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ, sagði í gær, að með skýrslunni hefði Íraksstjórn gerst sek um skýlaust brot á álykt- unum samtakanna. Hún væri aðeins endurtekning skýrslunnar frá því fyr- ir fjórum árum og mörgu sleppt. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði, að því færi fjarri, að vopnaskýrslan hefði aukið líkur á friðsamlegri lausn. Í raun hefði sá dagur færst nær, að Íraksstjórn yrði dregin til ábyrgðar á gjörðum sínum. Í skýrsluna vantaði miklar upplýsingar um miltisbrandsvopn, kjarnorkuáætlanir, taugagas og efna- vopn. Vopnaskýrsla Íraka sögð skýlaust brot Sameinuðu þjóðunum, Vín. AP, AFP.  Hyggst/16 Colin Powell

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.