Morgunblaðið - 20.12.2002, Page 2

Morgunblaðið - 20.12.2002, Page 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ R-LISTI Í UPPNÁMI Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ítrekaði í gær, að hún ætlaði í þing- framboð og kvaðst telja, að hún nyti áfram trausts sem borgarstjóri. Fulltrúar VG og Framsóknar tala aftur um trúnaðarbrest. Minni kortavelta Greiðslukortavelta einstaklinga hefur minnkað um 10% í desember nú miðað við fyrra ár og um 5% hjá fyrirtækjum. Launahækkun Laun æðstu embættismanna hækka um 7% 1. janúar nk. en laun forseta Íslands um 3%. Laun hans verða þá 1,4 millj. kr. á mánuði, for- sætisráðherra um 729.000 kr. og þingfararkaup 368.000 kr. Skýlaust brot Vopnaskýrsla Íraka var rædd í ör- yggisráðinu í gær og sögðu Banda- ríkjamenn, að í hana vantaði mik- ilvægar upplýsingar. Hún væri því skýlaust brot á ályktunum SÞ. Þúsund minkar drápust Um eitt þúsund minkar drápust er eldur kom upp í loðdýrabúinu Dýrholti í Svarfaðardal í fyrrinótt. Er tjónið mikið en talið er að kvikn- að hafi í út frá rafmagni. Roh náði kjöri Umbótasinninn Roh Moo-Hyun var kjörinn forseti Suður-Kóreu í kosningum í gær. Studdi hann „Sól- skinsstefnu“ fráfarandi forseta gagnvart N-Kóreu. Ósönnuð sök Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað karlmanna af ákæru um kyn- ferðisafbrot gegn stjúpdóttur sinni um margra ára skeið. Þótti dóm- inum sem ekki hefði verið sýnt fram á sök hans þrátt fyrir sektarlíkur. Stórir samningar Kine ehf., lítið fyrirtæki á heil- brigðissviði, hefur náð stórum dreif- ingarsamningum við erlend fyr- irtæki og á í viðræðum við önnur. Framleiðsla Kines er hreyfigrein- ingartækni. 2002  FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER BLAÐ C B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A DAVÍÐ Örn Ólafsson, hornamaður í Gróttu/ KR, verður ekki með félögum sínum er þeir mæta ÍR á morgun. Davíð Örn braut bringubein í leik liðsins við ÍBV í fyrrakvöld. Þetta var snemma í síðari hálfleik, ég braust í gegnum vörn ÍBV og skoraði, fann ekki fyrir neinu þeg- ar ég hljóp til baka í vörnina en strax í næstu sókn fann ég mikið til,“ sagði Davíð Örn í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Hann sagðist verða tilbúinn í slaginn þegar deildakeppnin hefst á ný í byrjun febrúar. Þess má geta að Grótta/KR leikur 27. leik sinn á tímabilinu þegar liðið mætir ÍR, eða níu leiki að meðaltali á mánuði í vetur. „Þetta er búið að vera mikið álag og nú missum við Dav- íð, Ingimar Jónsson er veikur og Alfreð Finns- son er slæmur í nára,“ sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari liðsins.. Davíð bringu- beinsbrotinn Í bréfinu segir: „LeikmanninumRoland Eradze er heimilt að leika með íslenska karlalandsliðinu í handknattleik á Heimsmeistara- mótinu í Portúgal og getur tekið þátt í fyrsta leik íslenska liðsins 20. janúar árið 2003. Í öðru lagi hefur IHF engar efa- semdir þess efnis að áðurnefndur l ik ð t i i l ikið ð íslenska landsliðinu í æfingaleikjum liðsins fram að HM í Portúgal.“ Guðmundur sagði ennfremur að þrátt fyrir þessa staðfestingu frá IHF ætlaði Handknattleikssam- bandið að láta kanna alla fleti á máli þessu áður en endanleg ákvörðun verður tekin. „Það má ekki gleyma því að Roland Eradze er þessa t di í l ik hó i Í l d Hann þarf að sanna sig í keppni á al- þjóðlegum vettvangi á næstu vikum líkt og aðrir leikmenn liðsins. Ég legg á það áherslu að það má ekki ganga að því vísu að það sé búið að velja hann nú þegar í lokahóp Ís- lands fyrir HM,“ sagði Guðmundur. Einar Þorvarðarson fram- kvæmdastjóri HSÍ sagði að næstu skref í málinu væri að fá lögfróða menn til þess að líta nánar á yfirlýs- ingu IHF. „Það er gott að þetta skeyti hefur borist okkur en hins- vegar viljum við kanna hvort þeir Mühlematter og Birkefeld hafi um- boð IHF til þess að gefa út slíka staðfestingu. Það er það eina sem gæti komið uppá í framhaldinu en ið i kki á öð ð þessi hluti undirbúnings okkar sé nú í höfn. Við höfum fengið misvísandi upplýsingar að undanförnu um þetta mál sem tengist Eradze. Handknattleikssamband Evrópu, EHF, er mun virkari stofnun en IHF, og það hefur skapað ákveðna spennu hjá okkur hve seint svör hafa borist frá IHF. Nú er enginn vafi lengur, HM í Portúgal er keppni á vegum IHF, og við höfum þessa staðfestingu frá þeim Mühle- matter og Birkefeld þess efnis að Eradze sé heimilt að leika fyrir Ís- lands hönd um leið og hann fær ís- lenskt vegabréf í upphafi næsta árs,“ sagði Einar. Eradze verður löglegur fyrir HM í Portúgal OKKUR hefur borist bréf þar sem fram kemur að markvörðurinn Roland Valur Eradze geti leikið með íslenska landsliðinu í hand- knattleik um leið og hann fær íslenskt vegabréf í hendurnar á nýju ári,“ sagði Guðmundur Þ. Guðmundsson þjálfari íslenska karla- landsliðsins í handknattleik í gær á fundi með fjölmiðlum. Bréfið er undirritað af formanni mótanefndar Alþjóðahandknattleiks- sambandsins, IHF, Peter Mühlematter og Frank Birkefeld fram- kvæmdastjóra IHF. ■ HM hó i /C3 KRISTÍN Rós Hákonardóttir, 29 ára, sunddrottning úr Fjölni, og Gunnar Örn Ólafsson, 18 ára, sundmaður hjá Ösp, voru í gær út- nefnd íþróttamenn ársins 2002 hjá Íþróttasambandi fatlaðra á Hótel Sögu. Kristín Rós er nýkomin frá Argentínu, þar sem hún tryggði sér þrenn gullverðlaun, setti tvö heimsmet í sínum flokki og fékk tvo silfurpeninga. Kristín Rós á í dag sextán heimsmet í sínum flokki – sjö í 50 m laug og níu í 25 m laug. Gunnar Örn náði einnig frábær- um árangri á árinu, setti 27 Ís- landsmet og sjö heimsmet í sínum flokki í 25 m laug og 14 Íslands- met og tvö heimsmet í 50 m laug. Hann vann til fimm gullverðlauna á opna breska meistaramóti fatl- aðra og varð þrefaldur meistari á opna danska meistaramótinu á árinu. Morgunblaðið/Golli Kristín Rós Hákonardóttir og Gunnar Örn Ólafsson með verðlaunagripi sína. Kristín Rós og Gunnar íþróttamenn ársins Þrenna Hjartar gegn Fram ÍA sigraði Fram í gærkvöld, 5:3, í fjögurra liða knatt- spyrnumótinu sem stendur yfir í Egilshöll þessa dagana. Hjörtur Hjartarson skoraði þrennu fyrir Skagamenn og Garðar B. Gunnlaugsson gerði eitt mark en Framarar skoruðu ennfremur sjálfs- mark. Sextán ára piltur, Guð- mundur Guðmundsson, var á meðal markaskorara Fram- ara og hin mörkin gerðu þeir Kristján Brooks og Ragnar Árnason. ÍA og Fylkir mæt- ast í úrslitaleik mótsins í Egilshöll kl. 12 á morgun en kl. 10 leika Grindavík og Fram um þriðja sætið. F Ö S T U D A G U R 2 0 . D E S E M B E R 2 0 0 2 B L A Ð B  MEIRI SÉRVISKUPÚKI EN STELLA/2  VAXLITIR UM VERÖLD ALLA/3  FANTASÍA UM FISK/4  GULLKORN BARNA/6  LÍFSORKU- HITABAKSTUR/6  DRAUMAPRINSAR/7  AUÐLESIÐ EFNI/8  JÓLASVEINAR, jólatré ogjólakúlur eru allt í kringumokkur þessa dagana. Hinsvegar vantar alvöru snjó- korn og snjókarla en myndir af þessu öllu prýða ýmsan fatn- að fyrir þessi jól, þá helst sokka, en einnig nærföt og náttföt. Yfirleitt eru sokkarnir með ýmsu jólamynstri, jólakúlu hér og snjókarli þar, en í sumum tilvikum er allur sokkurinn í líki jólasveins eða hreindýrs. Táin getur til dæmis verið rauða nefið hans Rúdolfs. Rauði liturinn stendur alltaf fyrir sínu Nærföt með jólamyndum hafa oft verið til í meira úrvali en bæði kynin geta þó fundið jólalegan nærfatnað fyrir þessi jól. Notkunartími jólalegra fata er eðli máls samkvæmt held- ur skammur, varla meira en desembermánuður. En mynstrið er margvíslegt; jólakveðja á ensku, snjó- korn, jólasveinar og jóla- pakkar. Rauð undirföt eru áber- andi í jólamánuðinum enda vel brúkleg á öðrum árstím- um en í desember. Rauð náttföt einnig, oft köflótt og jafnvel úr flísefni. Náttföt fyrir börnin er jólasveina- búningur úr bómull og nátt- húfur með. Líklega alveg eins og náttföt jólasveinsins sjálfs, en hann hlýtur að eiga náttföt eins og aðrir. Morgunblaðið/Sverrir Tveir litlir jólasveinar á leið í háttinn. Nátthúfurnar eru ómissandi í þess- um búningi. Náttföt úr H&M Rowells. Morgunblaðið/Jim Smart Jólasveinar, snjókarlar og hreindýr eru meðal þess sem skreytir jóla- sokkana frá Sock Shop. Snjókorn og snjókarlar eru á nær- buxunum en ekki í raunveruleik- anum fyrir þessi jól. Nærbuxur úr Top Shop. Jólasveinum prýddar herranærbuxur úr Hagkaupum. Á jólamyndum einum fata Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Minningar 44/50 Viðskipti 13/15 Staksteinar 52 Erlent 16/23 Bréf 54 Höfuðborgin 24 Kirkjustarf 57 Akureyri 25 Dagbók 56/57 Suðurnes 26/27 Þjónusta 52 Landið 28/29 Leikhús 58 Listir 30/33, 38/39 Fólk 58/65 Umræðan 40/43 Bíó 62/65 Forystugrein 34 Ljósvakamiðlar 66 Viðhorf 38 Veður 62 * * * ÓLAFUR Ragnar Grímsson, for- seti Íslands, heimsótti aðsetur Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur í gær þegar síðasta úthlutun fyrir jól fór fram. Tilgangur heimsókn- arinnar var að kynna sér starf- semi nefndarinnar en margir hafa þegið aðstoð hennar á að- ventunni í gegnum árin. Fjöl- margir einstaklingar komu til nefndarinnar á meðan forsetinn staldraði þar við í gær. Morgunblaðið/Sverrir Forsetinn heimsótti Mæðrastyrksnefnd SKOSKAR rjúpur eru komnar í verslanir Nóatúns og Hagkaupa eft- ir samþykki yfirdýralæknis við inn- flutningi á skoskum lyngrjúpum. Um er að ræða villibráð sem veidd var í skosku hálöndunum. Hagkaup eru með rúmlega þúsund rjúpur til sölu og kostar stykkið 1.399 en Nóa- tún flutti inn 5 þúsund rjúpur og selur stykkið á 1.398 kr. Framboð á íslenskri rjúpu hefur verið afar takmarkað og er búist við mikilli sölu á skosku rjúpunni fram að jólum. Morgunblaðið/Ómar Skosku rjúpurnar komnar LAUN æðstu embættismanna þjóð- arinnar, annarra en forseta Íslands, hækka um 7% hinn 1. janúar nk. skv. úrskurði Kjaradóms. Laun forseta Íslands hækka um 3% á sama tíma. Eftir hækkunina verða mánaðarlaun forseta Íslands um 1,4 milljónir kr, mánaðarlaun forsætisráðherra um 729 þúsund kr. og þingfararkaup al- þingismanna um 368 þúsund kr., svo dæmi séu nefnd. Í úrskurði Kjaradóms er bent á að laun á almennum vinnumarkaði og laun opinberra starfsmanna hækki almennt um 3% skv. kjarasamning- um um næstu áramót. Segir Kjara- dómur að eðlilegt sé að þeir sem taki laun sín skv. ákvörðunum Kjara- dóms fái sambærilega launahækkun. „Hins vegar telur Kjaradómur að enn sé óbætt nokkur launahækkun sem opinberir starfsmenn hafa notið á grundvelli kjarasamninga sem rík- ið hefur gert við starfsmenn sína og af tilfærslum sem leiða af kjara- samningum.“ Í úrskurði Kjaradóms segir að óhjákvæmilegt sé að taka tillit til þess. „Því hefur Kjaradómur ákveðið að laun þeirra sem taka laun skv. ákvörðunum hans, annarra en forseta Íslands, skuli hækka um 7% frá 1. janúar að telja.“ Í úrskurðinum segir jafnframt að m.a. vegna raka um sjálfstætt mat Kjaradóms á launum forsetans sé ákveðið að laun hans taki sömu al- mennu hækkun og önnur laun um áramót. „En þær leiðréttingar sem Kjaradómur gerir nú vegna óbætts launaskriðs eiga ekki við um forseta Íslands.“ Embættis- menn fá 7% launahækkun                                               !" "  # $%                      Laun forseta Íslands hækka um 3% frá áramótum STAÐGREIÐSLUHLUTFALL hækkar um 0,01% á næsta ári í 38,55% en er 38,54% á þessu ári. Hækkunin er tilkomin vegna hækk- unar á meðalútsvarshlutfalli sveitar- félaganna. Hjá stærri sveitarfélögum hækkar til að mynda útsvarshlutfallið í Mosfellsbæ úr 12,65% í 12,94% og í Grindavík úr 12,70 í 13,03% en út- svarshlutfallið verður óbreytt hjá öðr- um stærstu sveitarfélögum á Suð- vesturhorni landsins. Persónuafslátturinn hækkar um nær 3,3% og verður 26.825 kr. á næsta ári. Þetta þýðir að skattleys- ismörkin verða 69.585 krónur á mán- uði frá og með áramótum en skatt- leysismörkin eru nú 67.676 krónur á mánuði; hækkunin nemur um 2,8%. Meðalútsvar á árinu 2003 sam- kvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 12,80% en þetta hlutfall er 12,79% á yfirstandandi ári. Sveitarfélögin geta ákveðið útsvar á bilinu 11,24% til 13,03%. Af 105 sveitarfélögum ætla 64 að innheimta hámarksútsvar en fjögur sveitarfélög verða með lágmarksútsvar. Vegna sameiningar sveitarfélaga fækkar þeim um sautján frá fyrra ári. Meðalútsvar sveitar- félaganna hækkar REGLULEG laun hækkuðu að meðaltali um 4,9% frá þriðja ársfjórðungi í fyrra til þriðja ársfjórðungs í ár. Með reglu- legum launum er átt við grunn- laun manna í fullu starfi að við- bættum aukagreiðslum, s.s vakta-, álags-, bónus- og kostn- aðargreiðslum. Þá er umbun fyrir yfirvinnu í sumum tilvik- um hluti reglulegra launa. Verðbólga á sama tímabili mældist 3,3% og því jókst kaup- máttur launa að meðaltali um 1,6% að því er kemur fram í nið- urstöðum launakönnunar Kjararannsóknarnefndar. Meðaltal reglulegra launa var 180 þúsund kr. en meðaltal heildarlauna var 246.700 kr. Lengstan vinnutíma unnu iðn- aðarmenn og verkafólk eða 49 og 46 stundir á viku en stysta vinnutímann sérfræðingar eða 40,4 stundir á viku. Laun kvenna hækkuðu um 5,2% en karla um 4,7%. Þá hækkuðu laun á höfuðborgarsvæðinu 5,2% á móti 4,5% á landsbyggð- inni. Launakönnun Kjara- rannsóknarnefndar Kaup- máttur jókst um 1,6%

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.