Morgunblaðið - 20.12.2002, Side 4

Morgunblaðið - 20.12.2002, Side 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ HARALDUR fimmti Noregskon- ungur hefur útnefnt Matthías Johannessen, skáld og fyrrum rit- stjóra Morgunblaðsins, til stórridd- ara hinnar konunglegu norsku heiðursorðu. Sendiherra Noregs, Kjell H. Halvorsen, afhenti Matthíasi heiðursmerkið í gær. Orðuna hlýtur Matthías fyrir framlag sitt til að bæta og þróa samstarf milli Íslands og Noregs. Halvorsen sagði mikinn heiður að afhenda Matthíasi orðuna sem hefur frá árinu 1985 verið veitt útlend- ingum eða Norðmönnum búsettum á erlendri grund fyrir framúrskarandi störf í þágu norsku þjóðarinnar. Matthías sagðist taka við við- urkenningunni með stolti og virðingu og bað sendiherrann fyrir kveðju og þakklæti til Haralds konungs. Norski rithöfundurinn Knut Ödegaard, sem þýtt hefur ljóð Matthíasar á norska tungu, sagði í ávarpi sínu við afhendinguna Matthías vera ákveðið hugtak fyrir alla Íslendinga. „Hann ætti eiginlega að vera í Íslensku orðabókinni. Þar fletti maður upp á Matthíasi Johann- essen sem merkir menning- arstofnun.“ Skáldið Matthías verður skýrara Ödegaard sagði marga þekkja Matthías sem aðalritstjóra Morg- unblaðsins en að „rithöfundurinn með sama nafni hefur ekki haft þýð- ingarminni stöðu en ritstjórinn. Nú þegar við fáum smáfjarlægð frá önn- unum og erlinum í blaðamennskunni er gleðjandi og áhugavert að skynja hvað skáldið Matthías Johannessen verður skýrara fyrir okkur og skiptir æ meira máli. Það hefur aldrei verið jafnalmennur og sterkur skilningur á stöðu Matthíasar sem skálds og ein- mitt nú.“ Benti Ödegaard á að Matthías hefði ávallt sem ritstjóri og blaða- maður Morgunblaðsins sinnt mál- efnum Noregs einstaklega vel en einnig sýnt samskiptum landanna áhuga sem rithöfundur og ein- staklingur og þá sérstaklega hvað menningu varðar. „Sem aðalristjóri Morgunblaðsins á Matthías heið- urinn af því að fjallað hefur verið ít- arlega um norsk málefni, bæði í leið- araskrifum og pistlum á þann hátt að til fyrirmyndar er. Þar er að finna djúpan skilning og mikið innsæi í norsk sjónarmið. Á þennan hátt hef- ur Matthías mótað skilning Íslend- inga á Noregi í meira mæli en nokk- ur annar núlifandi Íslendingur.“ Ljóðabók Matthíasar, Sálmar á at- ómöld, var nýverið gefin út í norskri þýðingu Ödegaards. Nefnist þýð- ingin Salmer i atomalderen. Kemur hún út í tengslum við 850 ára afmælishátíð erkibiskupsseturs- ins í Niðarósi í Noregi. Af því tilefni orti Matthías nýtt ljóð er nefnist „I Nidaros“ og birtist það í fyrsta sinn í norsku þýðingunni. Matthías mun flytja ljóðið á afmælishátíðinni í Nið- arósi næsta sumar. Við afhendinguna voru viðstaddir vinir og ættingjar Matthíasar Johannessen. (F.v.) Styrmir Gunnarsson, Sigrún Finnbogadóttir, Kristján Karlsson, Ástríður Thorarensen, Davíð Oddsson, Hanna Johannessen, Ingólfur Johannessen, Matthías Johannessen, Elísabet Jónasdóttir, Knut Ödegaard, Kjell Halvorsen, Brynhildur Ingimundardóttir, Kristján Johannessen, Margrét Margeirsdóttir, Sigurjón Björnsson og Haraldur Johannessen. Matthías Johannessen fær stórriddarakross hinnar konunglegu norsku heiðursorðu Morgunblaðið/Kristinn Hanna Johannessen gladdist með eiginmanninum Matthíasi er Kjell Hal- vorsen sendiherra Noregs afhenti honum heiðursorðuna. „Hefur mótað skilning Íslend- inga á Noregi“ JÓN Steinar Gunnlaugsson hrl. sendi í gær Fjármálaeftirlitinu bréf í umboði fimm stofnfjáreigenda í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrenn- is þar sem hann óskar eftir upplýs- ingum um, hvort leitað hafi verið samþykkis Fjármálaeftirlitsins við kaupum Spron á öllu hlutafé Kaup- þings hf. í Frjálsa fjárfestingabank- anum hf. og hvaða afgreiðslu erind- ið hafi fengið. Í bréfi Jóns Steinars Gunnlaugs- sonar kemur fram að umbjóðendur hans, Ingimar Jóhannsson, Pétur H. Blöndal, Sveinn Valfells, Gunn- laugur M. Sigmundsson og Gunnar A. Jóhannsson, hafi upplýsingar um að 30. september sl. hafi Spron keypt allt hlutafé Kaupþings í Frjálsa fjárfestingarbankanum. „Ég leyfi mér fyrir þeirra hönd að óska eftir upplýsingum frá yður um, hvort leitað hafi verið sam- þykkis Fjármálaeftirlitsins við þessum kaupum skv. 2. mgr. 6. gr. laga nr. 123/1993, sbr. 5. gr. laga nr. 69/2001 og hvaða afgreiðslu slíkt erindi hafi fengið hjá yður,“ segir m.a. í bréfinu. Fram kemur að þessar upplýsingar séu umbjóðend- unum nauðsynlegar til að geta gætt hagsmuna sinna sem stofnfjáreig- endur í Spron vegna þessara kaupa. Þegar Morgunblaðið spurði Pál Gunnar Pálsson, forstjóra Fjár- málaeftirlitsins, hvort leitað hafi verið samþykkis Fjármálaeftirlits- ins vegna fyrrnefndra kaupa sagð- ist hann ekki tjá sig um einstök mál að öðru leyti en því að vísa til þess að það bæri að framvísa slíkri um- sókn þegar um kaup á virkum eign- arhlut væri að ræða, en um athug- un eða niðurstöðu vísaði hann á Spron. „Það hefur borist umsókn og hún tekin til athugunar en ég vil ekki tjá mig um það að öðru leyti,“ sagði hann. Kaup Spron á hlutafé í Frjálsa fjárfestingarbankanum Óskað eftir upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu MEGN reykjarlykt og sót upp um alla veggi mæta þeim sem koma inn í stigagang fjölbýlishússins Hjaltabakka 8 eftir eldsvoða þar í fyrrinótt. Um 20 manns var bjarg- að út úr húsinu og sakaði engan, en skemmdir af völdum sóts og reyks eru talsverðar. Þetta er annar bruninn í húsinu á innan við mánuði, en í lok nóvember var kveikt í hjólageymslu í húsinu. Að þessu sinni var í fyrstu talið að kviknað hefði í út frá rafmagni en lögreglan hefur nánast útilokað þau eldsupptök og telur ekki úti- lokað að um íkveikju sé að ræða. „Þetta gerðist hratt og það eina sem við gátum gert var að fara út á svalir,“ sagði Finnbogi H. Karls- son, einn íbúa, sem bjargaðist út úr húsinu ásamt fjölskyldu sinni. „Við vorum þar uns slökkviliðið kom. Slökkviliðsmennirnir voru mjög snöggir hingað og stóðu sig mjög vel.“ Baneitraður reykur Á jarðhæð hússins hefur ein- angrun utan um hitaveiturör brunnið og fleiri ummerki eftir eldinn eru sjáanleg. Mikill reykur og sót dreifðist síðan upp um stigagang og fór jafnvel inn í íbúðir. Fáheyrt er að kvikni í íbúðarhúsum með svo stuttu milli- bili eins og hér um ræðir. Hefur Finnbogi fengið nóg og er ákveð- inn í að flytja. „Ég ætla ekki að búa hér, það er eitt sem víst er,“ segir hann. Björn Halldór Björnsson, sem einnig býr í húsinu ásamt fjöl- skyldu sinni, varð fyrst var við eldinn, þegar reykur kom inn með útidyrahurðinni hjá honum. „Ég opnaði fram á gang en var snögg- ur að loka aftur og setja límband meðfram hurðinni. Á þessum stutta tíma var komið 50 cm þykkt reykjarlag í loftið í íbúð- inni. Við fórum með krakkana út á svalir og biðum eftir slökkvilið- inu. Reyndar var ekki mikið betra að vera úti á svölum vegna reyks sem steig upp með húsinu ut- anverðu.“ Hann segir reykinn hafa verið baneitraðan, enda sé röraeinangrunin sem brann göm- ul svampeinangrun með plasthúð. Tuttugu manns bjargað úr brennandi húsi í Breiðholti Annar bruninn í sama húsinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.