Morgunblaðið - 20.12.2002, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 11
Laugavegi 53, s. 552 3737
fyrir krakka frá 0-12 ára
Ítölsk barnafataverslun
Úlpur, kápur,
ungbarnaútigallar
Mjúkar gjafir í
fallegum
gjafaumbúðum
Frábærar
peysur
til jólagjafa
Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222
Stærðir frá 36-60
Jólagjöfin hennar
NÝTT Í VERO MODA
LAUGAVEGI 97 • KRINGLUNNI • SMÁRALIND
Ný snyrtivörulína
Verð 390-990
Full búð af nýjum,
glæsilegum vörum
I.
Reykjavíkurlistinn er kosn-
ingabandalag þriggja flokka,
Framsóknarflokks, Samfylking-
arinnar og Vinstri hreyfingarinn-
ar – græns framboðs, sem byggir
annars vegar á málefnasam-
komulagi flokkanna þriggja og
hins vegar á samstarfsyfirlýsingu
sem fjallar m.a. um skipan fram-
boðslistans, skiptingu starfa,
grundvöll samstarfsins og fleira.
Samstarfið byggir á grundvall-
arforsendu um jafnræði milli
flokkanna. Auk fulltrúa þessara
flokka skipuðu listann nokkrir
óflokksbundnir einstaklingar, en
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
skipaði áttunda sætið og var
sameiginlegt borgarstjóraefni
kosningabandalagsins en var
ekki tilnefnd af neinum flokk-
anna.
II.
Með hliðsjón af því hvernig til
Reykjavíkurlistans var stofnað er
ljóst að það er ekki samrýman-
legt að vera borgarstjóri í um-
boði kosningabandalags þriggja
flokka og fara á sama tíma í þing-
framboð fyrir einn þeirra og ger-
ast þannig keppinautur tveggja
samstarfsflokka í borgarstjórn.
Með ákvörðun sinni um að taka
sæti á framboðslista Samfylking-
arinnar í Reykjavík hefur borg-
arstjóri því í raun ákveðið að
hverfa úr stóli borgarstjóra.
III.
Málefnasamkomulag flokkanna
er í fullu gildi og eru engin tilefni
til endurmats á því. Hins vegar
er óhjákvæmilegt að taka sam-
starfsyfirlýsingu flokkanna til
endurskoðunar í framhaldi af
ákvörðun borgarstjóra og hefur
þegar verið óskað eftir viðræðum
þar að lútandi.“
Undir yfirlýsinguna skrifa Al-
freð Þorsteinsson, Anna Kristins-
dóttir, sem bæði eru í Framsókn-
arflokknum, Árni Þór Sigurðsson
og Björk Vilhelmsdóttir, félagar í
Vinstri hreyfingunni – grænu
framboði.
„Hefur ákveðið
að hverfa úr stóli
borgarstjóra“
Yfirlýsing borgarfulltrúa VG og
Framsóknarflokksins
„Í TILEFNI af ákvörðun borgarstjórans í Reykjavík um að
taka sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Reykjavík í kom-
andi alþingiskosningum vilja undirritaðir borgarfulltrúar
Reykjavíkurlistans koma eftirfarandi á framfæri:
STJÓRN Kjördæmasambands
framsóknarmanna í Reykjavíkur-
kjördæmi norður sendi í gær frá
sér yfirlýsingu vegna ákvörðunar
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
um að taka sæti á lista Samfylking-
arinnar fyrir alþingiskosningarnar
í Reykjavík næstkomandi vor.
„Stjórn Kjördæmasambands
framsóknarmanna í Reykjavíkur-
kjördæmi norður harmar þessa
ákvörðun borgarstjóra og finnst
hún ekki samræmast gefnum yf-
irlýsingum um að hún muni ekki
gefa kost á sér á framboðslista í
komandi kosningum.
Ennfremur telur stjórn Kjör-
dæmasambandsins það ekki sam-
ræmast stöðu borgarstjóra að fara
í framboð gegn þeim flokkum, og
gerast þannig keppinautur þeirra í
landsmálum, sem starfa með henni
að borgarmálum.
Það er því ljóst að sá trúnaður
sem áður ríkti um stöðu borgar-
stjóra í samstarfinu um Reykjavík-
urlistann er brostinn og traust
okkar á Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur sem sameiningartákn R-
listans hefur beðið hnekki. Hún
hlýtur því að hverfa úr stól borg-
arstjóra Reykjavíkur.“
Harma ákvörðun
borgarstjóra
Stjórn Kjördæmasambands framsóknar-
manna í Reykjavíkurkjördæmi norður
„HÚN er alveg skýr og afdrátt-
arlaus,“ segir Björn Bjarnason,
oddviti Sjálfstæðisflokksins í
borgarstjórn, um yfirlýsingu
borgarfulltrúa Framsóknarflokks
og VG. „Þar er sagt að það fari
ekki saman að vera borgarstjóri
og að fara í framboð [í komandi
Alþingiskosningum]. Það er ekki
hægt að finna neina málamiðlun á
milli sjónarmiða R-listamanna
þegar þessi yfirlýsing er lesin.
Um leið og ég heyrði hana þá
heyrði ég að búið var að draga
alveg skýrar línur í málinu.“
Björn Bjarnason segir að
yfirlýsingar Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur þess efnis að hún ætli
að sitja áfram sem borgarstjóri og
fara í framboð til Alþingis þrátt
fyrir umrædda yfirlýsingu fyrr-
nefndra borgarfulltrúa sýni mik-
inn ágreining innan Reykjavíkur-
listans. „Þarna
er mjög alvar-
legur og djúp-
stæður ágrein-
ingur á ferðinni
og ég hef vakið
máls á því í
ræðu um fjár-
hagsáætlunina
að það sé með
ólíkindum að
opinbera slíkan
grundvall-
arágreining þegar verið er að taka
ákvarðanir um fjármálastjórn
næsta árs,“ segir hann og bætir
við að engin pólitísk forysta sé hjá
R-listanum í Reykjavíkurborg.
Í umræðum um fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir árið 2003
í borgarstjórn í gær sagði Björn
Bjarnason meðal annars að til
umræðu væri fjárhagsáætlun sem
væri byggð á mjög veikum grunni.
„Klukkutíma fyrir þessa umræðu
er síðan gefin út yfirlýsing, sem
vekur spurningar um, hvernig
staðið skuli að framkvæmd áætl-
unarinnar,“ sagði hann og gat
þess að ekki hefði farið framhjá
neinum, að samstarfsmenn borg-
arstjóra úr öðrum flokkum en
Samfylkingunni teldu borg-
arstjóra hafa gengið á bak orða
sinna með því að bjóða sig fram
til þings.
Spurður hvort hann sæi mögu-
leika á öðrum meirihluta í borg-
arstjórn ef samstarfið innan
R-listans brysti sagðist hann ekki
sjá að þetta snerti Sjálfstæð-
isflokkinn. „Þetta er uppgjör á
milli R-listafólksins og það á eftir
að komast að niðurstöðu sín á
milli en við sinnum okkar skyldu
af fullri ábyrgð.“
Björn Bjarnason, oddviti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn
Björn
Bjarnason
Engin málamiðlun
GENGI GJALDMIÐLA
mbl.is