Morgunblaðið - 20.12.2002, Page 13

Morgunblaðið - 20.12.2002, Page 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 13 „Ótrúleg bók ... spennandi lesning“ Súsanna Svavarsdóttir, Ísland í bítið: „Þegar maður kemst í svona bækur er ekki litið meira upp þann daginn. Besta bók Óttars ... vel skrifuð ... „kúl“ stíll. Ótrúleg bók ... spennandi lesning.“ Höskuldur Kári Schram, Morgunblaðið: „Kennir manni það að oftar en ekki er raunveruleikinn ótrúlegri en heimur skáldskaparins. Grípandi og spennandi ... ætti sannarlega að gleðja lesendur Óttars.“ Einar Bollason, sonur loftskeytamannsins á Geysi: „Bókin er með ólíkindum spennandi, enda lásum við hjónin hana í einni striklotu.“ M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN 1 2 /0 2 A L M ENNT EF NI M ET SÖLULISTI M BL1AL I I I M BL Óttar áritar Sími 554 7700 Metsöluhöfundurinn Óttar Sveinsson hefur ein- stakt lag á skrifa raunverulegar spennusögur, sem lesendur geta ekki lagt frá sér fyrr en sagan er öll. Nýjasta bók hans, Geysir er horfinn, fjallar um eitt mesta björgunarafrek Íslandssögunnar. Höfundur áritar „Útkall - Geysir er horfinn“ á morgun, laugardag: - í Hagkaup, Kringlunni milli kl. 14 og 15.30. - í Eymundsson, Smáralind milli kl. 16 og 17. Mörkinni 3, sími 588 0640 Glæsilegar jólagjafir RÓBERT B. Agnarsson, fram kvæmdastjóri SÍF Ísland, hefur sagt starfi sínu lausu og mun hann hætta um áramótin. Ró- bert segir að hann hafi verið farinn að hugsa sér til hreyfings eftir tæp átta ár hjá fé- laginu og það hefði síðan farið vel saman við hug- myndir um ein- földun á skipulagi SÍF hf. á Íslandi. Starfsemi SÍF Ís- lands hefur byggzt á innkaupum á fiski og fiskafurðum og sölu þeirra til dótturfyrirtækja SÍF og annarra að- ila. Árleg velta er um 30 milljarðar króna. Róbert segir ekki ljóst hvað við taki hjá honum. Hann ætli að taka sér gott frí og gefa sér svo góðan tíma til leita sér að nýju starfi. Hann segir að hann hafi átt mjög góð og viðburðarík ár hjá SÍF enda miklar breytingar frá því hann kom til starfa árið 1995. „Þetta hefur verið góður tími. Fyrirtækið hefur vaxið og dafnað og veltan líklega tífaldast á þessum tíma. Ég er viss um að SÍF mun halda áfram að vaxa og muni verða enn sterkara fyrirtæki í framtíðinni,“ seg- ir Róbert. B. Agnarsson. Róbert var áður framkvæmda- stjóri Kísiliðjunnar í Mývatnssveit, bæjarstjóri í Mosfellsbæ og ráðgjafi hjá Kaupþingi. Róbert hættir hjá SÍF Róbert B. Agnarsson TÆPLEGA 20 bátar voru sviptir veiðileyfi í nóvember- mánuð síðastliðnum. Bátarnir voru sviptir leyfinu vegna afla umfram heimildir, vegna vanskila á frumriti úr afla- dagbók og fyrir að hafa ekki haft um borð virkan búnað sjálfvirka tilkynningakerfisins. Eftirtaldir bátar voru sviptir leyfi vegna afla umfram heimildir. Þeir hafa flestir fengið leyfið að nýju eftir að aflamarksstaða þeirra hefur verið lagfærð: Mímir ÍS, Eyjaberg SK, Jón forseti ÓF, Sigurvon BA, Hafursey ÍS og Jón Páll BA. Eftirtaldir bátar voru sviptir leyfi tímabundið vegna vanskila á frumriti úr afladagbók. Leyfið fá þeir eða hafa fengið þegar frumritinu hefur verið skilað: Kópanes RE, Síldin AK, Sigurvin GK, Gægir SH, Gylfi BA, Kári SH, Sæbjörg EA, Hafursey ÍS, Jón Páll BA og Friðrik Ólafs- son BA. Loks voru eftirtaldir sóknardagabátar sviptir leyfinu fyrir að hafa haldið til veiða án þess að hafa um borð virk- an búnað sjálfvirka tilkynningakerfisins: Mardöll BA, Sjöfn NS og Ólsen EA. Þeir fá því ekki að stunda veiðar fyrri helming aprílmánaðar á næsta ári. 20 sviptir veiðileyfi FRANSKI bankinn Crédit Lyonnais hefur samþykkt yfir- tökutilboð Crédit Agricole upp á 19,5 milljarða evra, eða sem nemur 1.658 milljörðum króna. Forsvars- menn Agricole hafa lofað að gera sameinaðan banka að sterku afli á evrópskum fjármálamarkaði. René Carron, stjórnarformaður Agricole, er sagður hafa átt heið- urinn að því að fullvissa forsvars- menn 45 sjálfstæðra útibúa bank- ans um ágæti tilboðsins. „Ætlun okkar er að gera þennan nýja sam- einaða banka að óumdeildum for- ingja í franskri og evrópskri bankastarfsemi,“ segir hann. Tilboðið er talið vera það hátt að keppinautur Agricole um Lyonn- ais, BNP Paribas, leggi ekki fram nýtt tilboð. BNP byrjaði að kaupa hluti í Lyonnais í nóvember, en þá höfðu staðið yfir sameiningarvið- ræður milli Agricole og Lyonnais í þrjú ár. Svo virðist sem skriður hafi komist á viðræðurnar þegar BNP Paribas fór að sýna bank- anum áhuga. Crédit Agricole yfir- tekur Crédit Lyonnais ♦ ♦ ♦ alltaf á föstudögum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.