Morgunblaðið - 20.12.2002, Page 24
Morgunblaðið/Þorkell
Uppbygging Lækjarskóla var samkvæmt einkaframkvæmdarsamningi.
BYGGING íþróttahúsnæðis við
Lækjarskóla í Hafnarfirði mun að öll-
um líkindum ekki hefjast á næstunni
eins og fyrirhugað var því bæjarráð
samþykkti í gær að beina því til bæj-
arstjórnar að fresta ótímabundið
einkaframkvæmdasamningi um
byggingu þess. Samningurinn gerði
ráð fyrir að íþróttamannvirkin yrðu
tilbúin haustið 2004.
Að sögn Sigurðar Haraldssonar,
forstöðumanns byggingardeildar
Hafnarfjarðar, stóð til að reisa
íþróttahús og sundlaug við skólann.
Samkvæmt einkaframkvæmdasamn-
ingi við Nýtak ehf. sé bæjaryfirvöld-
um þó heimilt að fresta gildistöku
hans og þarf að taka ákvörðun þess
efnis fyrir 15. janúar næstkomandi. Á
hann von á að nánari ákvarðanir um
uppbygginguna verði teknar á fyrstu
mánuðum næsta árs.
Á fundi bæjarráðs í gær bókuðu
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins að þeir
legðu áherslu á að upphaflegum
áformum um uppbyggingu á svæðinu
yrði fylgt eftir og lögðust gegn því að
fresta framkvæmdunum. „Þörf fyrir
íþróttahús og kennslusundlaug við
Lækjarskóla hefur, ef eitthvað er
aukist frá undirritun einkafram-
kvæmdasamninga um byggingu
skólamannvirkja á Hörðuvallasvæð-
inu. Þá er ljóst að íþróttahús og sund-
laug munu nýtast öðrum grunnskól-
um einkar vel og bæta úr brýnni þörf
fyrir íþróttakennslu,“ segir í bókun
þeirra.
Stækkun Suðurbæjar–
laugar í athugun
Fulltrúar meirihlutans bókuðu hins
vegar að sérstakt ákvæði í samningn-
um heimilaði slíka frestun. „Af hálfu
bæjarins hefur verið til skoðunar frá
því sl. vor mögulegar framkvæmdir
við stækkun Suðurbæjarlaugar og/
eða byggingu kennslulaugar við
skólahúsnæði í bænum. Ljóst er að
brýn þörf er fyrir aukið sundlaugar-
rými til að uppfylla kennsluþörf og
ýmsir hagkvæmir möguleikar standa
til boða sem taka verður ákvörðun um
við gerð nýrrar rammaáætlunar á
komandi vori,“ segir í bókun þeirra.
Nýtak hefur einnig með höndum
uppbyggingu nýs skólahúss Lækjar-
skóla, sömuleiðis í einkaframkvæmd,
en fyrri hluti þess var tekinn í notkun
síðastliðið haust. Er gert ráð fyrir að
skólinn verði að fullu tilbúinn haustið
2003.
Íþróttahúsi við
Lækjarskóla
verði frestað
Hafnarfjörður
SKULDIR Hafnarfjarðarbæjar voru
hæstar í fyrra af sveitarfélögum á
höfðuborgarsvæðinu sé miðað við
fjölda bæjarbúa. Lægstar voru þær
hins vegar á Seltjarnarnesi. Rekstr-
arkostnaður var hæstur í Mosfellsbæ
miðað við skatttekjur en lægstur var
hann í Kópavogi.
Þetta kemur fram í lykiltölum árs-
reikninga sveitarfélaganna sem Sam-
band íslenskra sveitarfélaga hefur
tekið saman. Er þar sett upp þróun
ýmissa lykiltalna á árunum 1998–
2001 eins og þær birtast í ársreikn-
ingum sveitarfélaganna.
Sé litið á skuldir sveitarfélaganna
sést að hjá Hafnarfjarðarbæ hafa
þær þróast frá því að vera tæpar 355
þúsund krónur á hvern íbúa árið 1998
í að vera rúmar 430 þúsund krónur í
fyrra og voru þær þá hvergi hærri
annars staðar á höfuðborgarsvæðinu.
Næsthæstar voru þær í Mosfellsbæ
eða rúmlega 392 þúsund krónur á
íbúa en fjórum árum áður voru þær
tæpar 267 þúsund krónur.
Kópavogur með lægstan
rekstrarkostnað í fjögur ár
Lægstar voru skuldir Seltjarnar-
nesbæjar eða rúmlega 123 þúsund
krónur á íbúa. Næstlægstar voru þær
í Reykjavík eða tæpar 133 þúsund
krónur sem er heldur minna en árið
1998 þegar þær voru tæplega 169
þúsund krónur á hvern íbúa.
Sé litið á rekstrarkostnað sveitar-
félaganna sést að rekstur málaflokka
var fjárfrekastur í Mosfellsbæ í fyrra
eða 87,7% af skatttekjum bæjarins.
Fjórum árum fyrr var rekstrarhlut-
fallið 85,8% sem einnig var hæsta
rekstrarhlutfall á höfuðborgarsvæð-
inu á þeim tíma. Rekstrarkostnaður
var næsthæstur á Seltjarnarnesi í
fyrra eða 87% af skatttekjum bæj-
arins en það er nokkru hærra en árið
1998 þegar reksturinn kostaði 82,7%
af skatttekjum.
Læstur var rekstrarkostnaður
sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins í
Kópavogi í fyrra eða einungis 66,5%
af skatttekjum og hefur hann ávallt
verið lægstur undanfarin fjögur ár.
Næstlægstur var rekstrarkostnaður-
inn í Garðabæ þar sem hann var 75%
af skatttekjum í fyrra miðað við
73,7% fjórum árum fyrr.
Hafnarfjörður skuldar
mest miðað við höfðatölu
Rekstrarkostnaður hlutfallslega hæstur í Mosfellsbæ
Höfuðborgarsvæðið
' :&$
",$-+
&
)7;
/ &<
6
-
7;
! "
#$$% &''#
! (
)
#$$% #$$$ &''' &''# #$$% #$$$ &''' &''#
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
24 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Skipholti 31, Reykjavík, s: 568 0450 • Kaupvangsstræti 1, Akureyri, s: 461 2850
3.2 milljón virkir dílar.
Aðdráttarlinsa 38-114mm.
Ljósnæmi ISO 100-400.
Hreyfanlegur skjár.
Notar Compact Flash kort.
Notar AA eða Ni-MH rafhlöður.
Verð kr. 59.900,-
STAFRÆN PENTAX
frábær myndgæði og gott verð
Það voru þau Halldór S. Jónasson og Ólöf Jónsdóttir sem afhentu Ásthildi Linnet, fulltrúa Rauða krossins, söfn-
unarféð með því að hella því yfir í dollu sem Ásthildur fékk með sér. Á milli þeirra er Anna Borg leikskólastjóri.
ÞÓ maður sé ekki gamall í hettunni
er engin ástæða til að láta það
hindra sig í að leggja góðu málefni
lið. Þetta sönnuðu krakkarnir á leik-
skólanum Norðurbergi í gær þegar
þeir afhentu Hafnarfjarðardeild
Rauða kross Íslands rúmlega 13 þús-
und krónur til styrktar fátækum
börnum í Tansaníu.
Peningarnir eru afrakstur eins
árs dósa- og flöskusöfnunar litla
fólksins en með henni tókst þeim að
slá tvær flugur í einu höggi: annars
vegar að safna peningum og hins
vegar að vera umhverfisvæn sem-
börnunum er orðið umhugað um.
Dósavélin hvetjandi
„Þau eru raunverulega eins konar
„umhverfislöggur“,“ segir Anna
Borg Harðardóttir leikskólastjóri í
samtali við Morgunblaðið. „Norð-
urberg er með umhverfismennt sem
rauðan þráð í gegnum starfið og
þetta er svona partur af því að taka
það sem finnst úti og innandyra og
fara með það í endurvinnslu. Þannig
að þau starfa í umhverfisvænu um-
hverfi.“
Anna segir alla krakka í leikskól-
anum hafa tekið þátt í söfnuninni.
„Þau fara reglulega inn í Samkaup
með dósir og flöskur, sem við höfum
fundið á förnum vegi og það sem
hefur safnast inn frá starfsfólki. Það
finnst þeim voðalega gaman því þar
er dósavél ennþá og eftir að hafa
sett dósirnar í dósavélina fá þau svo-
lítinn aur til baka sem þau síðan
setja í Rauðakrossbaukinn okkar.“
Og það fer ekki hjá því að það er
mikið sport að fá að pota dósunum í
vélina góðu. „Jú, það er rosaleg
hvatning,“ segir hún og hlær.
Fór með heilan
sendiferðabíl af dósum
Þetta eru þriðju jólin sem krílin á
Norðurbergi afhenda slíka gjöf til
Rauða krossins en síðastliðin tvenn
jól hefur söfnunarféð farið til barna-
á munaðarleysingjahæli í Úsbek-
istan. Í ár er sú breyting að það
rennur til barna í Tansaníu í Afríku.
Aðspurð segist Anna ekki viss um
að krakkarnir átti sig á tilgangi
dósasöfnunarinnar fyrr en í vikunni
áður en peningarnir eru afhentir en
þá sé spjallað við þá um gjöfina. Á
sama tímabili fái foreldrar miða
heim þar sem þeir eru hvattir til að
koma með dósir að heiman og er vel
tekið í þá ósk. „Ég fór með heilan
sendiferðabíl í gær og ég er ekki að
plata,“ segir Anna með áherslu.
„Fólk er mjög jákvætt gagnvart
þessu hjá okkur.“
Hún segir að afhendingarstundin
í gær hafi verið afskaplega hátíðleg
og í samræmi við þann tíma sem fer
í hönd. „Við hittumst öll á sal, sung-
um tvö jólalög og svo komu tveir
fulltrúar í rauðum peysum frá
Rauða krossinum sem sögðu okkur
hvert peningarnir ættu að fara og
sýndu á stóru heimskorti hvar Tans-
anía er. Svo afhentum við baukinn
formlega eða öllu heldur helltum úr
honum í aðra dollu.“
Hún segir að stefnan með þessu sé
að átta sig á því að margir séu þurf-
andi í kringum okkur. „Þannig að
það er bara samhygð og kærleikur
sem við erum að reyna að temja
börnunum með því að kenna þeim að
við getum látið ýmislegt af hendi.“
„Getum látið ýmislegt af hendi“
Hafnarfjörður
Börnin á leikskólanum Norðurbergi
afhentu dósafé til styrktar börnum í Tansaníu