Morgunblaðið - 20.12.2002, Síða 28

Morgunblaðið - 20.12.2002, Síða 28
LANDIÐ 28 FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Þægilegir brjóstahaldar- ar sem styðja vel við Undirfatasett, margir litir og mynstur Móðurást, Auðbrekku 2. Kóp. modurast.com Bravado meðgöngu- og brjóstagjafabrjóstahöld Fáðu sendan vörulista hjá ymus@islandia.is Skagfirðingabúð Ártorgi 1, Sauðárkróki. Verslunin Okkar á milli, Tjarnarbraut 19, Egilsstöðum. Hafnarapótek, Hafnarbraut 29, 780 Höfn. Í SÍÐUSTU kjarasamn- ingum Starfsgreinasam- bands Íslands og Samtaka atvinnulífsins árið 2000 var samið um framlag í starfsmenntunarsjóð sem fékk nafnið Landsmennt, fræðslusjóður verkafólks á landsbyggðinni. Helstu verkefni sjóðsins eru að sinna stuðningsverkefn- um og þróunar- og hvatn- ingaraðgerðum í starfs- menntun, styrkja rekstur námskeiða og nýjungar í námsefnisgerð og veita einstaklingum, verkalýðs- félögum og fyrirtækjum styrki vegna starfsmennt- unar. Markmiðið er að treysta stöðu einstaklinga á vinnumarkaði og bæta samkeppnisstöðu ís- lenskra fyrirtækja. Stétt- arfélög sem aðild eiga að sjóðnum og fyrirtæki greiða til sjóðsins sam- tals um 140 milljónir á samnings- tímanum sem er til ársloka 2003. Aðalsteinn Árni Baldursson for- maður Verkalýðsfélags Húsavíkur sem jafnframt á sæti í stjórn Landsmenntar segir að félagar í stéttarfélögum innan Starfsgreina- sambands Íslands hafi verið dug- legir að sækja um endurgreiðslur úr sjóðnum. Með tilkomu sjóðsins hafi orðið bylting í sókn verkafólks til starfsmenntunar. Sem dæmi nefnir hann að um 200 fé- lagsmenn í Verkalýðs- félagi Húsavíkur eða um 22% félags-manna hafi fengið endurgreiðslur frá sjóðnum. Styrkurinn sem félagsmenn Verkalýðs- félags Húsavíkur hafa fengið frá því að sjóðurinn hóf starfsemi haustið 2000, er um 2,5 milljónir að sögn Aðalsteins Árna. Fyrir skemmstu ákvað stjórn Landsmenntar að hækka endurgreiðslur til félagsmanna aðildarfélag- anna vegna kostnaðar við starfsnám. Helstu breyt- ingar eru þær að nú eiga félagsmenn rétt á allt að 35.000 kr. endur- greiðslum, þó aldrei meira en nemur 75% af kostnaði viðkomandi félagsmanns við námskeiðið eða skól- ann. Þetta hlutfall var 60% og þá voru hámarksendur- greiðslur 27.000 kr. Styrkir vegna meiraprófs haldast hins vegar óbreyttir áfram eða 42.500 kr. Þetta nýja fyrirkomulag tekur gildi um næstu áramót og gildir fyrir ár- ið 2003. Um 200 hafa fengið endur- greiðslur vegna starfsnáms Húsavík Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Þær Björk Breiðfjörð Helgadóttir (fjær) og Svala Björg- vinsdóttir, félagar í Verkalýðsfélagi Húsavíkur, eru meðal þeirra sem nýtt hafa sér Landsmennt, fræðslusjóð verkafólks á landsbyggðinni. Aðalsteinn Árni Bald- ursson er formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur. NÝVERIÐ fékk slökkvilið Tálknafjarðarhrepps nýja slökkvibifreið af gerðinni Ford F550, 4x4 með 300 ha. dísilvél. Yfirbygging og búnaður er hann- að og smíðað af MT-bílum í Ólafs- firði, en bifreiðin er innflutt frá Bandaríkjunum. Það var Sigurjón Magnússon frá MT-bílum sem af- henti Ólafi M. Birgissyni sveitar- stjóra bílinn. Með kaupunum er verið að endurnýja Bedford-slökkvibíl ár- gerð 1971, sem hefur þjónað slökkviliðinu frá árinu 1983. Nýi bíllinn er búinn 2.000 lítra vatns- tanki, 70 lítra froðutanki, dælu sem afkastar 2.700 l/mín., há- þrýstislöngu, ásamt tveimur reykköfunarstólum í áhafnarhúsi. Ólafur er ekki ókunnugur við- skiptum við MT-bíla, þar sem hann kom að því, þegar keyptur var nýr slökkvibíll frá þeim til Grundarfjarðar í byrjun árs 2000. Morgunblaðið/Finnur F.v. Heiðar I. Jóhannsson varaslökkviliðsstjóri, Sigurjón Magnússon, framkvæmdastjóri MT-bíla, Þormóður, starfs- maður MT-bíla, Björgvin Sigurjónsson oddviti, Egill Sigurðsson slökkviliðsstjóri og Ólaf M. Birgisson sveitarstjóri. Slökkviliðið fær nýjan bíl Tálknafjörður AÐALFUNDUR Barra hf. var hald- inn á Hótel Héraði á Egilsstöðum hinn 12. des. fyrir starfsárið nóvember 2001 til október 2002. Stjórnarformaður félagsins, Hilmar Gunnlaugsson lögmaður á Egilsstöð- um, gerði grein fyrir störfum stjórnar á umræddu tímabili. Meðal annars voru tekin fyrir eftirfarandi atriði. „Eins og kynnt var á síðasta aðal- fundi félagsins höfðu framkvæmda- stjóraskipti verið ákveðin. Núverandi framkvæmdastjóri, Rúnar Ísleifsson, var kynntur á þeim fundi um leið og Jóni Kr. Arnarsyni voru þökkuð góð störf í þágu félagsins. Þessi fram- kvæmdastjóraskipti urðu að veruleika hinn 1. september sl. en áður hafði Rúnar starfað með Jóni. Er það mat stjórnar að framkvæmdastjóraskiptin hafi verið farsæl og öllum hlutaðeig- andi til sóma.“ Fastráðnir starfsmenn í lok rekstrarársins voru þeir Rúnar Ís- leifsson framkvæmdastjóri og Þórhall- ur Sigurðsson verkstjóri. Á árinu vann lausráðið verkafólk sem svarar til 6,7 ársverka og jókst um sem nemur 0,6 stöðugildum á ársgrundvelli. Á ann- atímum hefur fyrirtækið haft á að skipa traustum og vönum hópi fólks. Fram kemur á ársreikningi félags- ins að hagnaður af rekstri á síðastliðnu starfsári nam um 3,3 milljónum króna og er því afkoma nokkuð í samræmi við áætlun og jafnvel betri. Á síðustu fjárlögum hefur auknum fjármunum verið varið til skógræktar. Framlög hafa hækkað til Héraðsskóga og einnig til nýrra landshlutabundinna verkefna. Eins og fram kemur í skýrslu for- manns er reiknað með að afkoma fé- lagsins verði jákvæð næstu árin. Þann- ig er gert ráð fyrir að hagnaður nýbyrjaðs rekstrarárs verði um 1,6 milljón króna. Eigið fé félagsins er bókfært á kr. 55.971.935, sem er hækkun um kr. 3.299.771 frá síðasta ári. Sölumál og samningar Samningar ársins 2003 eru þessir: Framleiðsla til Héraðsskóga 1.100.000 plöntur. Austurlandsskógar 130.000 plöntur. Norðurlandsskógar 375.000 plöntur. Önnur sala 100–150 þús. plöntur. Farið er að huga að föstum samn- ingum fyrir árið 2004 og er gert ráð fyrir aukningu upp á 30–40 þúsund plöntur. Á síðastliðnu starfsári voru afhentar 1.715.600 plöntur frá fyrirtækinu, sem skiptist þannig milli tegunda: Rússalerki 949.693 55,4% Stafafura 204.976 11,9% Birki 154.613 9% Greni 372.473 21,7% Vörtubirki 11.755 0,7% Alaskaösp 15.292 0,9% Annað 6.824 0,4% Vorafhending til Héraðskóga nam 827.000 plöntum, en haustafhending 419.000 plöntum. Aðrir helstu kaup- endur voru Norðurlandsskógar með um 238.000 plöntur og Austurlands- skógar með um 110.000 plöntur. Sumarið 2002 var sáð tvisvar í gróð- urhúsið á Egilsstöðum, alls í um 44.000 bakka og er áætlað að það muni skila um 1.711.000 plöntum. Formaður, Hilmar Gunnlaugsson, baðst undan endurkjöri vegna anna, svo og Ólafur Sigurðsson. Í þeirra stað voru kjörnir Vignir Sigurðsson og Skúli Björnsson. Endurkjörnir í stjórn félagsins voru Broddi Bjarnason, Helgi Bragason og Hlynur Halldórs- son. Morgunblaðið/Guttormur Þormar Stjórnarformaður Barra, Hilmar Gunnlaugsson, flytur ársskýrslu félagsins. Góð afkoma hjá gróðrar- stöðinni Barra Geitagerði NEMENDUR á miðstigi í Grunnskóla Borgarness unnu þemaverkefni um hjálparstarf nú á aðventunni. Þema- vinnan hófst með heimsókn í Borgarneskirkju þar sem sóknarpresturinn séra Þorbjörn Hlynur Árnason fræddi nemendur um liti kirkjuársins, klæðnað prest- anna, heiti og tákn kerta aðventukransins, tilgang að- ventunnar o.fl. Eftir heimsóknina var nemendum sem alls eru 112, skipt í sex hópa, sem fræddust og fjölluðu um hjálp- arstarf. Nemendur öfluðu sér upplýsinga um starfsemi Rauða krossins, Hjálparstarf kirkjunnar, mæðra- styrksnefnd, Hjálpræðisherinn, flóttamannahjálp og SOS-barnaþorpin og kynntu á plakötum. Hóparnir kynntu síðan starf sitt hverjir fyrir öðrum, lesin voru ljóð og sögur, rappað og leikin leikrit í tengslum við hvert verkefni. Að auki söfnuðu þeir einnig fatnaði, leikföngum, peningum og jólagjöfum sem þeir gáfu hjálparstofnunum. Nemendur kynntust því að margir búa við fátækt og eiga um sárt að binda, en stuðluðu einnig að því að einhverjir eigi samt sem áður gleðileg jól. Lokapunktur verkefnisins var þegar nemendur 5. bekkjar hengdu upp plakötin í Hyrnutorgi, þar sem viðskiptavinir þar geta kynnt sér vinnu hópanna. Var mat nemanda og kennara að vel hefði tekist til. Kynntu sér störf hjálparstofnana á aðventunni Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Þessar stelpur kynntu sér starf SOS-barnaþorpa og heita, frá vinstri, Bergþóra Þórsdóttir, Salome Kon- ráðsdóttir og Jóhanna Stefánsdóttir. Borgarnes

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.