Morgunblaðið - 20.12.2002, Qupperneq 43
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 43
SVEITARFÉLÖGIN er nú öll
hvert á fætur öðru að samþykkja fjár-
hagsáætlanir sínar fyrir árið 2003.
Eru þær víða fremur seint á ferð þar
sem þau eru nú í fyrsta skipti að setja
þær fram á nýju reikningsskilaformi.
Staðan í Kópavogi
Staðan í Kópavogi er þó sérstak-
lega slæm þar sem enn hefur ekki
verið lögð fram nein áætlun. Það er
ætlun meirihluta Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks að leggja hana
fram á sérstaklega boðuðum auka-
fundi bæjarstjórnar 30. desember.
En það er ekki nóg með að ekkert
gangi með að koma saman fjárhags-
áætlun, heldur hefur fjárhagsáætlun
fyrir yfirstandandi ár sem staðfesta
átti á hinu nýja formi ekki enn verið
lögð fram í heild sinni í bæjarstjórn.
Þrátt fyrir skýr fyrirmæli frá félags-
málaráðuneytinu um að það ætti að
vera búið fyrir 1. september. Hér er
um einstakt sleifarlag að ræða og er
það ótrúlegt að bæjarfulltrúum
meirihlutans finnist þetta boðlegt.
Auk þess sem hér eru brotin lög og
reglur sýnir þetta með skýrum hætti í
hve miklum vandræðum sjálfstæðis-
og framsóknarmenn eiga með að
koma saman fjárhagsáætlun fyrir
2003.
Skýringanna er að leita í skorti á
skipulagi og stýringu af hálfu forystu-
manna sjálfstæðis- og framsóknar-
manna sem eru æðstu stjórnendur
bæjarins. Þeir virðast að auki ekki
geta komið sér saman um stefnu og
áherslur. Fjármál sveitarfélaga eru
alvörumál og þarf að meðhöndla sem
slík. Það ætti ekki að líðast að stórt
fyrirtæki eins og Kópavogsbær, með
fjölda starfsmanna sem rekur mikla
og fjölþætta þjónustu, geti haft skýr-
an vilja Alþingis að engu og hagað sér
að vild. Í fjárhagsáætluninni verða
væntanlega kynntar ýmsar hækknir
á þjónustugjöldum bæjarins og víst
er að íbúar bæjarins komast ekki upp
með að borga þau við hentugleika.
Langt á eftir
Sveitarfélögin í kringum okkur eru
komin mun lengra og eru til að
mynda Akureyri, Hafnarfjörður og
Garðabær búin að samþykkja sínar
áætlanir. Því er ljóst að það er hald-
lítil afsökun hjá meirihlutanum að
segja að kerfisbreytingin sé svo flók-
in – vandinn í Kópavogi er heima-
tilbúinn stjórnunarvandi og liggur
hjá bæjarfulltrúum Framsóknar- og
Sjálfstæðisflokks.
Kópavogur
langt á eftir
Eftir Flosa
Eiríksson
Höfundur er oddviti Samfylking-
arinnar í Kópavogi.
„Hér er um
einstakt
sleifarlag að
ræða og er
það ótrúlegt
að bæjarfulltrúum meiri-
hlutans finnist þetta
boðlegt.“
ÞAÐ er ekki annað hægt en velta
fyrir sér því að það þarf alltaf að vera
svo að þeir sem setja sig á móti fram-
förum sem miða að því að skapa
þjóðinni bjartari tíð öllum til handa,
eru ávallt þeir sömu og gera mestar
kröfur um öflugt og gott samfélag
sem veitir öllum þegnum þá bestu
þjónustu sem tækni og framfarir
veita á hverjum tíma. Það þarf varla
heimspeking til að átta sig á því að ef
samfélagið á að veita góða þjónustu
þarf að tryggja því fjármagn, það
verður varla gert án þess að nýta
þær auðlindir sem móðir jörð leggur
okkur til handa. Að sjálfsögðu er það
okkar skylda að ganga vel um jörð-
ina og með það til hliðsjónar megum
við Íslendingar vera þakklátir fyrir
að geta nýtt okkur auðlindir jarðar-
innar á vistvænan hátt. Það mætti
því ætla hnattvæddum umhverfis-
samtökum að hvetja til þess að við
Íslendingar tækjum að okkur það
hlutverk að framleiða orkufrekar
iðnaðarvörur frekar enn leggjast
gegn því. Öll getum við eflaust tekið
undir þau sjónamið að náttúran sé
ekki einvörðungu einkamál hverrar
þjóðar heldur heimsbyggðarinnar
allrar, þó verður ekki vikið frá því að
hver þjóð verður að halda í sitt sjálf-
stæði og má ekki líða þrýstihópum
að vega að rétti hennar til sjálfstæðr-
ar ákvörðunatöku. Tel ég skyldu
landsmanna að standa saman að
uppbyggingu atvinnuvega á Íslandi
og efla framtíð okkar um leið og við
stöndum vörð um sjálfstæði þjóðar-
innar.
Náttúru-
auðlindir
Eftir Bjarna H.
Matthíasson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Raflagna Íslands og stjórnarmaður
í Samtökum atvinnulífsins.
„Tel ég
skyldu
landsmanna
að standa
saman að
uppbyggingu atvinnu-
vega á Íslandi.“
mbl.isFRÉTTIR
EUROPE
V I Ð K Y N N U M
Hillusamtæður og
einingar
Margir röðunarmöguleikar
Framúrstefnuleg ítölsk
hönnun
Massívar einingar
GOTT VERÐ