Morgunblaðið - 20.12.2002, Side 53
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 53
Málfundur verður haldinn um
niðurleið efnahags heimsins og af-
leiðingar þess, föstudaginn 20.
desember kl. 17:30 í Pathfinder
bóksölunni Skólavörðustíg 6 b,
bakatil, segir í fréttatilkynningu.
Meðal annars er fjallað um hvort
efnahagur Argentínu sé dæmi um
það sem er í vændum, um hertar
aðgerðir lögreglu og yfirvalda sem
eru undirbúningur átaka við vinn-
andi fólk, og um Róger Calero,
blaðamann á Militant og aðstoð-
arritstjóra Perspectiva Mundial,
mánaðarrits á spænsku, sem var í
haldi útlendingaeftirlitsins í
Bandaríkjunum í tíu daga og gæti
átt brottvísun á hættu þrátt fyrir
löglega búsetu í Bandaríkjunum
frá barnsaldri.
Fundinn halda aðstandendur sósí-
alíska verkalýðsblaðsins The Milit-
ant.
Í DAG
formaður ÍTR, mun setja mótið og
leika fyrsta leik þess. Keppt verð-
ur í 4 aldursflokkum, flokki
fæddra 1987-1989, flokki fæddra
1990-91, flokki fæddra 1992-93 og
flokki fæddra 1994 og síðar. Jóla-
pakkar eru í verðlaun fyrir 3 efstu
sætin í hverjum aldursflokki. Auk
þess verður happdrætti um 3 jóla-
pakka í hverjum aldursflokki Þátt-
taka er ókeypis.
Sólstöðuhlaupið verður að þessu
sinni hlaupið laugardaginn 21. des-
ember. Þá verður hlaupið frá sól-
arupprás (11:21) til sólarlags
(15:30), frá og að Vesturbæj-
arlauginni. Í megindráttum verður
hlaupin sama leið og farin var í
vor og haust-maraþonum FM hin-
um fyrri (fyrir Laxnesshlaup), þó
þannig að farinn er „öfugur hring-
ur“ um Grafarvoginn.
Áætlað er að vera við Grafarvogs-
laugina ca kl. 13:20 -13.35 og við
Árbæjarlaugina ca. kl: 14:20-14:35.
Drykkir verða í sundlaugum Graf-
arvogs og Árbæjar. Sólstöðuhlaup-
ið er „félagshlaup“ til þess fallið að
styrkja hlaupara andlega og lík-
amlega á skammdegistíma, segir í
fréttatilkynningu. Sumir hlaupa
alla leiðina eða allan tímann, aðrir
hlaupa hluta af leiðinni innan til-
tekinna tímamarka eftir vilja og
mætti eða hvoru tveggja. Hlaupa-
hraði er á að giska 6 mín á km.
Laugardagsfundur VG. Stjórn
borgarmálaráðs VG í Reykjavík
boðar til fundar um samstarfið
innan
R-listans. Fundurinn verður á
Torginu, Hafnarstræti 20, 3.h. og
hefst kl. 11:00 laugardaginn 21.
desember. Frummælandi verður
m.a. Steingrímur J. Sigfússon for-
maður VG. Kaffi verður á könn-
unni.
Fundarstjóri verður Steingrímur
Ólafsson formaður VG í Reykjavík.
Nánari upplýsingar birtast á vef
félagsins, www.reykjavik.vg
Jólaskákmót Búnaðarbankans
fer fram í aðalútibúi bankans í
Austurstræti 5, á morgun, laug-
ardaginn 21. desember kl. 15 – 18.
Átta af níu stórmeisturum Íslend-
inga taka þátt í mótinu, sem er
hraðskákmót, en alls taka 14 af
sterkustu skákmönnum landsins
þátt í mótinu. Þar á meðal er Frið-
rik Ólafsson sem nýlega vann ein-
vígi við Ivan Sokolov í hraðskák.
Áhorfendur eru velkomnir í Bún-
aðarbankann og fylgjast með
meisturunum að tafli.
Jólapakkamót Hellis, Kringlan
og Taflfélagið Hellir standa að
skákmóti fyrir krakka á grunn-
skólaaldri í anddyri Borgarleik-
hússins á morgun, laugardaginn
21. desember kl. 11–14 Anna
Kristinsdóttir, borgarfulltrúi og
Á MORGUN
Í TILEFNI jólanna hefur Bedco &
Mathiesen í Hafnarfirði ákveðið að
gefa Styrktarfélagi krabbameins-
sjúkra barna Rosengrens-
peningaskáp í stað þess að senda út
hefðbundin jólakort til við-
skiptavina sinna. Með þessum hætti
og með velvilja viðskiptavina okkar
viljum við stuðla að eflingu Styrkt-
arfélags krabbameinssjúkra barna,
til að ná fram markmiðum sínum.
Rósa Guðbjartsdóttir, fulltrúi Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna,
tekur við peningaskápnum frá starfsfólki Bedco & Mathiesen.
Styrkur til
krabbameins-
sjúkra barna
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Landvernd:
„Stjórn Landverndar kallar eftir
málefnalegum og upplýsandi um-
ræðum um virkjanir og náttúruvernd.
Stjórn Landverndar lýsir yfir von-
brigðum með þá stefnu sem umræðan
um Kárahnjúkavirkjun og Norðlinga-
ölduveitu hefur tekið. Umræðunni
hefur verið beint frá málefnalegri um-
ræðu um meginatriði málsins í ómál-
efnalegar umræður um fólk, félög og
fyrirtæki, sem hafa látið sig málið
varða. Ýmsir aðilar hafa verið með að-
dróttanir og niðrandi ummæli í stað
þess að halda sig við efnisatriði máls-
ins. Það gerir málið enn alvarlegra
þegar í hlut eiga menn sem gegna
mikilvægum opinberum ábyrgðar-
stöðum.
Stjórn Landverndar varar við
órökstuddum aðdróttunum að nafn-
greindum vísindamönnum. Vísinda-
menn gegna lykilhlutverki í því að
afla nauðsynlegra upplýsinga um
áhrif mannvirkja á náttúru og um-
hverfi og aðeins á forsendum vísinda-
legra gagna er mögulegt að taka
skynsamlegar ákvarðanir um land-
nýtingu.
Það er öllum ljóst að skiptar skoð-
anir eru um tiltekin álitamál um um-
hverfisáhrif framangreindra fram-
kvæmda, eins og eðlilegt getur talist í
jafnflóknum og víðtækum fram-
kvæmdum eins og hér um ræðir. Það
er bæði gagnlegt og nauðsynlegt að
framkvæmdaaðili, vísindamenn,
stjórnmálamenn, umhverfisverndar-
samtök og allur almenningur skiptist
á skoðunum og upplýsingum um þessi
mál. Slík umræða er upplýsandi og
styrkir undirstöður lýðræðisins.
Vegna gagnrýni á málflutning nátt-
úruverndarsamtaka er ástæða til að
taka fram að Landvernd beitti sér
fyrir víðtækri skoðun á þeim upplýs-
ingum sem lagðar hafa verið fram um
áhrif Kárahnjúkavirkjunar, bæði
þegar málið var til skoðunar hjá
Skipulagsstofnun og til úrskurðar hjá
umhverfisráðherra. Niðurstaða þess-
arar skoðunar var sú að umhverfis-
áhrif Kárahnjúkavirkjunar væru um-
talsverð og óafturkræf. Meirihluti
stjórnar Landverndar taldi það því
óhjákvæmilegt að mæla gegn fram-
kvæmdum.
Þá er rétt að ítreka að stjórn Land-
verndar telur að þær upplýsingar
sem fram hafa komið um fram-
kvæmdir í Þjórsárverum sýni að
Norðlingaöldulón muni valda umtals-
verðum umhverfisáhrifum á friðlýstu
svæði. Það er álit stjórnar Land-
verndar að viðhalda eigi verndun
Þjórsárvera og að ástæða sé til að
stækka ytri mörk verndarsvæðisins
þannig að það verði vistfræðileg,
vatnafarsleg og landslagsleg heild.
Að mati stjórnar Landverndar er
afar eðlilegt að erlend náttúruvernd-
arsamtök ekki síður en erlend stór-
iðjufyrirtæki láti sig varða landnýt-
ingu á hálendi Íslands þar sem
náttúrufar og landslag á hálendinu
hefur alþjóðlegt gildi. Stjórn Land-
verndar telur það því hlutverk sam-
takanna að miðla málefnalegum upp-
lýsingum um áhrif framkvæmda á
hálendinu til erlendra samtaka, fyr-
irtækja og einstaklinga og vill með því
stuðla að upplýsandi alþjóðlegri um-
fjöllun um málið.“
Yfirlýsing frá Landvernd