Morgunblaðið - 20.12.2002, Page 59
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2002 59
Hafið
Með Hafinu er komið fram verk sem ber þess
vitni að íslenskt listafólk hafi náð fullkomnum
tökum á hinu alþjóðlega tungumáli kvik-
myndalistarinnar. (H.J.) Háskólabíó.
Hlemmur
Einstök, manneskjuleg heimildarmynd sem
varpar ljósi á sárþjáða lítilmagna í hörðum
heimi sem við reynum almennt að horfa
framhjá. (S.V.) Háskólabíó.
En sång för Martin
Ein besta mynd Bille Augusts fjallar afdrátt-
arlaust um ægilegar afleiðingar miskunnar-
lauss sjúkdóms og knýr áhorfandinn til að
velta fyrir sér fallvaltleika lífsins. (S.V.)
½
Regnboginn.
Harry Potter og leyniklefinn
Harry og félagar eru komnir aftur í mynd fullri
af frábærum karakterum, ótrúlegum aðstæð-
um, spennu og hryllingi. gaman, gaman!
(H.L.) ½
Háskólabíó, Sambíóin.
Possession
Sannkallað konfekt fyrir augu og eyru, vönduð
gæðamynd; skynsamleg blanda af gamni og
alvöru: nútíð og fortíð. (S.V.) ½
Háskólabíó.
Changing Lanes
Vel leikin um afdrifaríkan dag í lífi tveggja
manna. Óvanaleg spennumynd því hún veltir
fyrir sér siðferði, fjölskylduböndum, heiðri og
skyldum, á vitrænan hátt. (S.V.) Sambíóin.
Das Experiment
Kraftmikil og áhugaverð þýsk kvikmynd sem
gerist á hálfum mánuði í fangelsi. Fínir leikarar
skapa trúverðugar persónur en hegðan þeirra
varpar fram krefjandi spurningum um dýrs-
eðlið í manninum. (H.L.) Háskólabíó.
Die Another Day
Full löng Bond-mynd þar sem hasarinn ræður
ríkjum og húmorinn er kominn í hring. Ágæt-
asta afþreying fyrir fólk í góðu skapi og með
smekk fyrir fallegu fólki. (H.L.) Smárabíó, Regnboginn.
The Importance of Being
Earnest
Djörf og lífleg aðlögun á hinu hárbeitta gam-
anleikriti Oscars Wilde. Orðaleikir og lúmsk
ádeila á gildi aðalsstéttar Viktoríutímans njóta
sín í lifandi leik og framsetningu, en sam-
þjöppun veldur því að ýmislegt úr leikritinu
tapast. (H.J.) 1/2
Regnboginn.
Santa Clause 2
Fislétt jólagaman handa yngstu börnunum á
bænum. (S.V.) Háskólabíó, Sambíóin.
Ghost Ship
Bærilegur hrollur í vönduðum umbúðum en
andlaus og endaslepp. (S.V.) Sambíóin.
Friday After Next
Þessi þriðja mynd Ice Cube og félaga í Friday-
seríunni er í senn háðsk og lágkúruleg. Hún
nær sér á strik í háðskri framsetningu á nið-
urníddu umhverfi fátækra blökkumana í South
Central L.A., en fer langt yfir strikið í subbuh-
úmor. (H.J.) Laugarásbíó.
Knockaround Guys
Meðal mafíósamynd með mikla karlmennsku-
komplexa. Leikarar á borð við John Malkovich
og Dennis Hopper eru tilgerðarlegir brooklyn-
töffarar. (H.J.) Smárabíó.
The Tuxedo
Bardagasnillingurinn Jackie Chan ber vart sitt
barr í þessari mjög svohollywoodísku spennu-
mynd. Hún er þó á köflum fyndinn útúrsnún-
ingur á Bond-hefðinni. (H.J.) Laugarásbíó, Sambíóin.
Like Mike
Aðeins bandarísk barnamynd þar sem körfu-
boltastjörnudraumur munaðarleysingja rætist.
Allt í lagi hugmynd, en sagan er þunnildisleg
og leikstjórnin léleg. (H.L) Smárabíó.
Swimfan
Metnaðarlítil, vanmönnuð og glompótt eftiröp-
un af Fatal Attraction fyrir unglingamarkaðinn.
(S.V.) ½
Smárabíó.
BÍÓIN Í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
Einstök, manneskjuleg heimildar-
mynd, segir í umsögn um Hlemm.
FÁAR íslenskar hiphopsveitir
eru eins öflugar á sviði og Bæj-
arins bestu, þ.e. þegar þeir félagar
eru í stuði og missa ekki stjórn á
sér í gassaganginum. Sjaldnast
tekst að fanga slíkt stuð á band og
því forvitnilegt í sjálfu sér að
heyra hvernig
þeim tekst að
skila stuðinu á
plasti. Skemmst
er frá því að segja
að það tekst bráð-
vel, þeir félagar
eru kraftmiklir,
skrúfa raddirnar í botn og keyra
þangað til þær bresta og undir-
leikur er allur fyrsta flokks, lögin
góð og útsetningar vel heppnaðar.
Hljómur á skífunni er sérstak-
lega vel heppnaður og skilar kraft-
inum vel, til að mynda í tilillagi
skífunnar sem fær hjér með mitt
atkvæði sem partílag ársins, því-
líkt stuð. Önnur lög eru ekki langt
undan í fjörinu, til að mynda Í
klúbbunum þar sem skemmtilega
hallærisleg hljóð undirstrika fjör-
mikinn textann, Get ég fengið (1,
2, 3) þar sem þeir fara á kostum í
dissinu, Dóri er góður: „Þú gætir
ekki afgreitt rappara þótt þú ynnir
í Exodus,“ og Kjarri frábær: „Þeir
segjast vera underground og rosa
margslugnir / eina skiptið sem þið
verðið underground er þegar þið
verðið jarðsungnir.“
„Ég sem texta“, sem þeir fé-
lagar eiga með Birki B, „D.N.A.“
þar sem Dóri kynnir sig („„Ertu
Laxness“ úff enn ein spurning frá
markaðnum“) og Innanbrjósts
sýna að þeir geta líka farið fetið og
í Innanbrjósts er ekki verið að
gera lítið úr neinum heldur glímt
við óendurgoldna ást. Yfirleitt snú-
ast rímurnar annars um að dissa
aðra rappara, gera að þeim góðlát-
legt grín, en þjóðmálin eru líka
tekin fyrir, meðal annars í býsna
pólitískri stemmu, Málum bæinn
rauðan, og í laginu [við erum]
sokkin, en í því síðastnefna eru
einmitt margir góðir sprettir, til
að mynda þessi: „Þetta snýst ekki
lengur um vilja fólksins heldur
einfalda stærðfræði / sem breiðist
út eins og alnæmi, á þeirra máli
kallað hagkvæmni.“
Daníel Ólafsson er skrifaður fyr-
ir að segja öllum lögunum, nema
einu sem þeir félagar semja saman
og með aðstandendum Desibel
hljóðversins og svo á DJ Gummó
eitt lag. Lögin hans Daníels eru
öll verulega vel heppnuð og
sum framúrskarandi, nefni
svalt grúv í „Málum bæinn
rauðan“ og „Við erum sokk-
in“ þar sem hann notar
kassagítara mjög vel.
Miklu skiptir fyrir
stemmninguna á plötunni
að lifandi hljóðfæraleikur
kemur víða við sögu, sér-
staklega gefur góða raun
að nota lifandi bassaleik en
ekki tölvubassa, fyrir vikið
verður sveiflan í lögunum
mýkri og sveigjanlegri og
fellur betur að flæðinu í þeim Dóra
og Kjarra.
Þessi skífa Bæjarins bestu sann-
ar að víst eru þeir betri en flestir
og ótrúlegt að platan hafi verið
tekin upp og hljóðblönduð á tíu
dögum, ekki síst þegar við bætist
að mörg laganna voru samin á
sama tíma. Víst eru hnökrar á
skífunni en þeir eru líka til þess
fallnir að gæða hana meira lífi.
Hugsanlega hefði þó mátt sleppa
„þakkalaginu“; það er gaman að
heyra það tvisvar til þrisvar en
síðan aldrei aftur!
Tónlist
Betri en
flestir
Bæjarins bestu
Tónlist til að slást við
Castor & Pollox
Tónlist til að slást við, geisladiskur rapp-
flokksins Bæjarins bestu. Liðsmenn eru
Halldór „Dóri DNA“ Halldórsson, Daníel
Ólafsson og Kjartan Atli „Kjarri“ Kjart-
ansson. Arnar Helgi Aðalsteinsson og
Villi í Desibel hljóðvinnslu tóku plötuna
upp og leika á hljóðfæri, Villi á gítar,
bassa og hljóðgervla og Arnar á trommur
og hljóðgervla. Skank sá Daníel Ólafsson
um.
Morgunblaðið/Jim Smart
Í umsögn um fyrstu plötu Bæjarins bestu segir að tekist hafi að fanga
kraftinn sem býr í sveitinni á sviði.
JENS Hansson hefur verið lengi við-
loðandi íslenskt tónlistarlíf en þekkt-
astur er hann líklegast sem einn
meðlima Sálarinnar hans Jóns míns.
En það er ekki fyrr en nú sem hann
gefur út eigin plötu og eru öll lögin
eftir hann. Ber hún nafnið Six
Rooms og eru þeir Friðrik Sturlu-
son, Jóhann Hjörleifsson, Björgvin
Gíslason, Guðmundur Pétursson og
Hjörtur Howser honum til aðstoðar
við tónlistarflutninginn.
„Þetta er svona heimadútlið,“ seg-
ir Jens. „Aðdragandinn er langur, ég
er búinn að eiga sum lögin nokkuð
lengi. Loksins ákvað ég að koma
þessu frá mér.“
Elstu lögin eru frá 1989 en Jens
segist hafa byrjað að taka upp
grunna fyrir þremur árum síðan.
„Ég hugðist gefa plötuna út það
árið en þá kom Sálin með 12. ágúst
þannig að ég ákvað að slá þessu á
frest. En núna er Sálin í fríi, engin
plata fyrir jólin þannig að ég ákvað
að drífa þetta út núna.“
Tónlistinni lýsir Jens sem létt-
djassi.
„Þarna eru t.d. tvö Sálarlög,
„Ekkert breytir því“ og „Hún mun
lýsa lengi vel“.“ Grunnhugmyndin að
þessu er að kynna mig á erlendum
vettvangi. Koma mér jafnvel á fram-
færi sem hljóðfæraleikara þar.
Markaðurinn hér er auðvitað gríð-
arlega lítill.“
Athygli vekur að Björgvin Gísla-
son leggur Jensi lið á plötunni, en
gítartilþrif hans hafa verið sjald-
heyrð í seinni tíð.
„Ég og Björgvin erum gamlir
veiðifélagar,“ segir Jens og brosir út
í annað. Hann viðurkennir að óneit-
anlega sé svona stúss ný reynsla fyr-
ir sig.
„Manni leið eins og litlum krakka
þegar maður fékk diskinn í hendur –
þetta var eins og að fá fyrsta leik-
fangið sitt. En það er bara mjög
gaman að standa í þessu.“
arnart@mbl.is
SÖNGLEIKJAMYNDIN Chicago
fékk átta tilnefningar til Golden
Globe-verðlaunanna, þar á meðal
sem besti söngleikurinn eða gam-
anmyndin. Aðalleikonurnar, Renee
Zellweger og Catherine Zeta-
Jones, voru báðar tilnefndar til
verðlauna, sem besta leikkona í að-
alhlutverki í þessum flokki. Til-
nefningarnar voru kynntar á
fimmtudag.
Þá fékk kvikmyndin The Hours,
sem fjallar um konur sem allar
tengjast skáldsögu eftir Virginiu
Woolf, sjö tilnefningar, þar á meðal
sem besta dramatíska myndin. Nic-
ole Kidman var tilnefnd sem besta
leikkona í þeim flokki fyrir leik
sinn í myndinni og Ed Harris sem
besti karlleikarinn.
Aðrar myndir sem tilnefndar
voru í flokki dramamynda voru
About Schmidt, Gangs of New
York, Hringadróttinssaga: Turn-
arnir tveir og Píanóleikarinn eftir
Roman Polanski.
Þá fékk gamanmyndin Adapta-
tion sex tilnefningar, þar á meðal
sem besta gamanmyndin, fyrir
besta handritið og Nicolas Cage var
tilnefndur sem besti gamanleik-
arinn. Aðrar myndir sem tilnefndar
vori í þessum flokki voru Nicholas
Nickleby, About a Boy og My Big
Fat Greek Wedding. Nia Vardalos
var tilnefnd sem besta gam-
anleikkonan fyrir leik sinn í síðast-
nefndu myndinni.
Leikkonan Meryl Streep fékk
tvær tilnefningar, aðra fyrir leik
sinn í The Hours og hina fyrir leik í
aukahlutverki í Adaptation.
Alls er tilnefnt til Golden Globe-
verðlauna í 13 flokkum kvikmynda
og 11 flokkum sjónvarpsefnis en
það eru erlendir blaðamenn í Holly-
wood sem sjá um tilnefningarnar.
Vinir, Beðmál í borginni og
Simpson-fjölskyldan eru á meðal
þeirra, sem keppa um titilinn gam-
anþáttur ársins. Dramaþáttur árs-
ins verður hinsvegar 24, Undir
grænni torfu, The Shield, Soprano-
fjölskyldan eða Vesturálman.
Verðlaunahátíðin er í janúar og
þykir oft gefa vísbendingar um
hvaða myndir og leikarar hljóta
Óskarsverðlaunin.
Tilnefningar til Golden Globe-verðlaunanna kynntar
Chicago með
átta tilnefningar
AP
Julianne Moore, Meryl Streepog Nicole Kidman leika í TheHours, sem var frumsýnd íBandaríkjunum á miðvikudag.
AP
Atriði úr kvikmyndinni Chic-
ago en Catherine Zeta-Jonesleikur eitt aðalhlutverkanna.
Árni Matthíasson
Jens Hansson gefur út Six Rooms
Heimadútlið
á hljómdisk
Six Rooms er fyrsta
plata Jens Hanssonar
með hans eigin efni, en
hann er þekktastur sem
einn meðlima Sálar-
innar hans Jóns míns.