Morgunblaðið - 24.12.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.12.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Opið 10-13 ... er m eð a llt f yr ir jó lin Gleðileg jól Gjafabréf Kringlunnar er frábær jólagjöf. FYRSTI vetrarsnjórinn féll í gær í Ólafsvík. Voru börninn í bænum fljót að taka við sér þegar þau sáu nýfallinn snjóinn. Þessi hressu börn voru að leik í sjó- mannagarðinum og voru í óðaönn að búa til snjókarl, og renna sér á sleðum. Hvolpurinn Trína mátti ekkert vera að því að hugsa um einhvern snjókarl, þar sem hún sá í fyrsta skiptið snjó, á sinni ævi og lék sér áhyggjulaus. Spáð er vætu víðast hvar um landið á morgun og jóladag en þó síst norðanlands og því ljóst að snjór- inn myndi láta undan síga. Morgunblaðið/Alfons Hvít jól í Ólafsvík Ólafsvík. Morgunblaðið. Almannavarnir ríkisins Ennþá til en ekki á fjárlögum FRUMVARP dómsmálaráðherra um breytingu á lögum um almanna- varnir var ekki afgreitt frá Alþingi fyrir jólahlé og því hefur starfsemi Almannavarna ríkisins ekki verið lögð niður og verkefni stofnunarinn- ar færð til ríkislögreglustjóra eins og stefnt var að. Samkvæmt frumvarp- inu áttu lögin að öðlast gildi 1. janúar 2003. Björn Friðfinnsson, ráðuneytis- stjóri dómsmálaráðuneytisins, segir að frumvarpið hafi tafist í meðferð þingsins en smávægilegar breyting- ar voru gerðar á því áður en mælt var fyrir því á Alþingi. Hann vonast til þess að frumvarpið verði sam- þykkt á fyrstu starfsdögum Alþingis eftir áramót. En þó frumvarpið um breytingar á lögum um almannavarnir hafi ekki verið samþykkt þá var gert ráð fyrir breytingunni á fjárlögum. Sam- kvæmt fjárlögum fá Almannavarnir ríkisins engin fjárframlög heldur fær ríkislögreglustjóri aukna fjár- veitingu enda átti embættið að taka við verkefnum stofnunarinnar í árs- byrjun. Aðspurður segir Björn að þetta verði leyst með millifærslum á milli stofnananna. Ekki verði nein vandræði með að greiða starfsmönn- um laun. REKSTRARKOSTNAÐUR flestra rekstrareininga Landspít- ala – háskólasjúkrahúss hefur lækkað að undanförnu samkvæmt yfirliti yfir rekstur sjúkrahússins á fyrstu ellefu mánuðum ársins. Þó eru undantekningar þar á að því er fram kemur í greinargerð Önnu Lilju Gunnarsdóttur, fram- kvæmdastjóra fjárreiðna og upp- lýsinga LSH og eykst vandinn hlutfallslega á fjórum einingum, þ.e. skrifstofu, kennslu, vísinda og þróunar, lyflækningasviði II, slysa- og bráðasviði og Rannsóknarstofn- un LSH. Anna segir í samtali við Morgunblaðið að hér sé þó ekki um veruleg frávik að ræða. Unnið sé með sviðsstjórum allra sviða spít- alans að skoðun á rekstrarkostn- aðinum. „Við erum í tengslum við starf- semis- og rekstraráætlun ársins 2003, í framhaldi af samþykkt fjár- laga, að vinna með öllum sviðum spítalans að því að ákveða hvernig rekstrinum skuli hagað á næsta ári. Þá förum við líka ofan í hvað það er á síðustu mánuðum ársins sem leiðir til hærri kostnaðar en í mán- uðunum á undan,“ segir hún. Landspítali – háskólasjúkrahús Rekstrarkostnað- ur flestra eininga hefur lækkað ELLEFU af 31 einum framhalds- skóla á landinu uppfylltu ekki ákvæði reglugerðar um starfstíma framhaldsskóla á síðasta skólaári. Samkvæmt reglugerðinni mega kennslu- og prófdagar í skólunum ekki vera færri en 175. Af þeim ell- efu skólum sem ekki uppfylltu ákvæði reglugerðarinnar var al- gengast að 1–5 daga vantaði upp til- skilinn fjölda daga. Þessar upplýs- ingar koma fram í tölum sem Hagstofa Íslands hefur tekið sam- an. Í lögum um framhaldsskóla er kveðið á um að árlegur starfstími nemenda skuli eigi vera skemmri en níu mánuðir, þar af skuli kennsludagar ekki vera færri en 145. Samkvæmt upplýsingum skól- anna var fjöldi reglulegra kennslu- daga skólaárið 2001/2002 á bilinu 138 til 152. Meðalfjöldi reglulegra kennsludaga var 145. Auk þeirra voru aðrir kennsludagar á bilinu 0 til 9, eða að meðaltali 2. Að jafnaði voru reglulegir kennsludagar nem- enda tveimur fleiri á vorönn en á haustönn. Samkvæmt upplýsingum skóla var fjöldi daga sem einungis var varið til prófa og námsmats frá engum (þ.e. próf og námsmat fóru fram á kennsludögum) til 34. Hjá 2⁄3 hluta framhaldsskólanna var 29–31 dögum varið til prófa og námsmats. Kjarasamningar kennara gera ráð fyrir samtals 175 kennslu- og próf- dögum á níu mánaða starfstíma skóla og að auki fjórum vinnudög- um kennara utan árlegs starfstíma. Heildarfjöldi vinnudaga kennara á skólaárinu 2001/2002 reyndist vera á bilinu 172 til 192. Meðalfjöldi allra vinnudaga kennara var 180 en 174 þeirra voru á árlegum starfstíma skóla. Vinnudagar kennara utan ár- legs starfstíma skóla voru á bilinu 0 til 12 með einni undantekningu. Ellefu skólar uppfylltu ekki ákvæði reglugerðar LOKIÐ er yfirferð yfir samnings- texta samninganna sem gerðir hafa verið á milli Alcoa og Landsvirkjun- ar, ríkisins og Fjarðabyggðar og hafa samningarnir verið sendir til höfuðstöðva Alcoa í Bandaríkjunum til áritunar. Samninganefndir íslenskra stjórn- valda, Landsvirkjunar og Fjarða- byggðar hafa þegar áritað fyrirliggj- andi samninga og voru allar líkur taldar á því að fulltrúar Alcoa myndu árita samningana í gær. Áritun samninganna er fyrst og fremst formsatriði skv. upplýsingum Þor- steins Hilmarssonar, upplýsingafull- trúa Landsvirkjunar, en stjórnir Landsvirkjunar og Alcoa fjalla síðan um málið í heild sinni í fyrri hluta janúar. Er að því stefnt að öllu óbreyttu aðsamningar verði form- lega undirritaðir fyrir lok janúar. Stjórn Landsvirkjunar kom sam- an til fundar sl. föstudag þar sem út- reikningar á arðsemi Kárahnjúka- virkjunar voru kynntir. Þeir hafa verið unnir af starfsmönnum fyrir- tækisins og Yngva Harðarsyni, hag- fræðingi hjá Ráðgjöf og efnahags- spám ehf. Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, sagði engar ákvarðanir hafa verið teknar á fundinum, enda hefði hann fyrst og fremst verið til upplýsingar. Hann vildi ekki upplýsa um arðsem- isútreikningana en sagði aðeins að „ekkert óvænt“ hefði komið þar fram sem kollvarpaði áformum Lands- virkjunar um að virkja við Kára- hnjúka og selja orku til álvers Alcoa í Reyðarfirði. Hann sagði stjórn fyr- irtækisins næst mundu koma saman upp úr áramótum en hún hefur sett sér það markmið að 10. janúar nk. verði hún búin að komast að niður- stöðu um orkusölusamninginn við Alcoa, sem hefur nú verið áritaður. Um líkt leyti kemur stjórn Alcoa saman í Bandaríkjunum af sama til- efni. Jóhannes Geir sagði yfirferð til- boða í stíflu og aðrennslisgöng Kára- hnjúkavirkjunar einnig hafa komið til tals á fundinum. Hann sagði þá vinnu ganga samkvæmt áætlun en starfsmenn ítalska verktakafyrir- tækisins Impregilo, sem átti lægsta tilboð í verkið, hafa verið hér á landi að undanförnu til að fara yfir tilboðið ásamt starfsmönnum Landsvirkjun- ar. Samningar áritaðir og sendir til Alcoa Útboð á plöntun 500.000 trjáa RÍKISKAUP hafa, fyrir hönd Landgræðslu ríkisins, Suður- landsskóga og Skjólskóga á Vestfjörðum, óskað eftir tilboð- um í ýmsar tegundir skógar- plantna sem til stendur að gróð- ursetja á árunum 2003 til 2005. Er óskað eftir tilboði í samtals um hálfa milljón plantna af ýmsum gerðum og stærðum. Fram kemur á heimasíðu Ríkiskaupa að þess verði krafist að faglærður garðyrkjufræð- ingur muni stjórna og hafa um- sjón með verkinu, að viðkom- andi hafi tæknilega og/eða stjórnunarlega getu til að ann- ast alla þætti útboðsins og að ræktunarstjóri skuli vera menntaður garðyrkjufræðing- ur. Tilboð verða opnuð hjá Rík- iskaupum 16. janúar næstkom- andi. GERT er ráð fyrir að rann- sóknaskýrslu um flugatvikið við Gardermoen-flugvöll í Osló verði lokið þann 16. janúar næstkomandi. Eins og kunnugt var þota frá Flugleiðum í aðflugi að Gard- ermoen-velli þann 22. janúar sl., þegar flugmennirnir hættu skyndilega við lendingu. Í ljós kom að umrætt atvik var alvarlegra en álitið var í fyrstu. Norsk flugmálayfirvöld hafa rannsakað málið í samráði við Rannsóknanefnd flugslysa á Ís- landi. Skýrsla væntanleg 16. janúar Flugatvikið við Gardermoen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.