Morgunblaðið - 24.12.2002, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.12.2002, Blaðsíða 20
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 20 ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu óska aðildarfyrirtækjum og samstarfsaðilum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs. AFGREIÐSLA Orkuveitu Reykja- víkur var opnuð í nýjum höfuð- stöðvum fyrirtækisins á Bæjarhálsi 1 í gær. Fjöldi iðnaðarmanna var að störfum við að leggja lokahönd á frágang en stefnt er að því að verk- taki afhendi húsið í fyrstu eða ann- arri vikunni í janúar og húsið verð- ur þá formlega opnað. Í gær var enn frekar hrátt um að litast. Eftir var að ganga að hluta frá skilrýmum í opnu skrifstofu- rými sem er einkennandi fyrir hús- ið og verið var að ganga frá ýmsum lauslegum munum innandyra og sitthvað fleira beið úrlausnar. Í síð- ustu viku var unnið við að malbika plan og bílastæði fyrir utan. Guðjón Magnússon, fram- kvæmdastjóri skrifstofu forstjóra, segir að óneitanlega hafi veðurguð- irnir reynst verktökum hliðhollir að undanförnu þrátt fyrir þann drátt sem orðið hefur á afhendingu hússins. Verkið hafi gengið vel að undanförnu og nú sé loks komið að verklokum. 300 manns í 14 þúsund fermetrum Það var á þrettándanum, 6. jan- úar árið 2001, sem fyrsta skóflu- stungan var tekin að byggingunni. Hornsteinar ehf. og Teiknistofa Ingimundar Sveinssonar hf. báru sigur úr býtum í verðlaunasam- keppni sem efnt hafði verið til um byggingu nýrra aðalstöðva OR. Þá var ráðgert að flytja inn í nýja hús- ið 17. júní 2002. Um uppsteypu sáu ÞG verktakar en Íslenskir aðal- verktakar um innréttingar Ýmsar aðstæður sem upp komu við bygg- ingu þess, m.a. dráttur á afhend- ingu byggingarefnis, urðu hins vegar þess valdandi að afhendingardagur á nýjum höfuð- stöðvum var færður aftar á alman- akið. Áætlaður heildarkostnaður við bygginguna var upphaflega 2 millj- arðar króna. Í dag er hann 2,5 milljarðar. Fjár til byggingarinnar er að stórum hluta aflað með sölu á hús- eignunum við Suðurlandsbraut 34, Grensáveg 1, Ármúla 31 og Eir- höfða 11. Tvær fyrsttöldu eignirnar voru t.a.m. seldar fyrir 1,5 millj- arða króna. Í húsinu, sem er 14 þúsund fer- metrar að flatarmáli, starfa rétt um 300 manns. Framkvæmdasvið OR mun hins vegar flytja þangað seint á næsta ári, að sögn forsvars- manna fyrirtækisins, og hafa að- stöðu í iðnaðarhúsi sem var fyrir á lóðinni. Það hús keypti OR fyrir 450 milljónir og því er heildar- kostnaðurinn við flutningana í kringum þrír milljarðar króna. Til marks um stórhug Orkuveit- unnar verða um 900 fermetrar af höfuðstöðvunum leigðir út sem síð- an gætu nýst Orkuveitunni síðar meir. Guðjón segir að viðræður hafi verið í gangi við nokkra aðila þar að lútandi en vill ekki gefa upp hverjir þeir eru að svo stöddu. Engar skrifstofur Nýju höfuðstöðvunum er skipt í tvær byggingar með tengirými á milli. Vesturhúsið er stálgrindar- hús klætt með áli en austurhúsið úr steini. Á milli þeirra er holrými úr gleri sem jafnframt er inngangur byggingarinnar. Húsið er sex hæð- ir auk kjallara. Í tengirýminu er hátt til lofts og þaðan liggja gangar á milli austur- og vesturbyggingar sem tengja saman hverja hæð fyrir sig. Í skrifstofurými er parket á gólf- um en annars staðar að mestu slíp- uð steinsteypa. Guðjón Magnússon segir að leit- ast sé við að nýta gamlan skrif- stofubúnað í bland við nýjan sem kominn var til ára sinna og ákveðið var að skipta út. Einkennandi fyrir húsið er eftir sem áður hið opna rými. Þar eru engar skrifstofur og yfimenn deilda sem áður voru faldir á bak við veggi skrifstofunnar eru nú sýnilegir öðrum starfsmönnum. Ívar Þorsteinsson, yfirmaður dreifingardeildar OR, kallar þetta fyrirkomulag „hjarðrými“. Hann hefur unnið hjá OR hátt í 30 ár og kann vel við nýju húsakynnin en hefur á orði að það eigi eftir að koma í ljós hversu mikið næði verði í húsnæðinu með engar skrifstofur. Hann bendir hins vegar á að fund- arherbergi séu nokkur á hverri hæð sem hægt verði að nýta þegar menn þurfi að loka sig af í tengslum við fundarhöld. Katrín Sigurjónsdóttir er aðstoð- areildarstjóri þjónustuvers og hef- ur starfað hjá fyrirtækinu í 27 ár. Henni líst vel á nýju húsakynnin. Hún bendir á að verklag þjónustu- versins breytist nokkuð og nú sé í auknum mæli lagt upp með að þjónustuverið svari símtölum til fyrirtækisins í stað þess að skipti- borð vísi áfram til þjónustuvers. Með því sé unnt að hraða af- greiðslu þeirra sem leita til Orku- veitunnar. Ekki var annað að sjá í gær en þetta fyrirkomulag gengi snurðulaust fyrir sig og tölvur og annar tækjabúnaður var í fínu lagi. Orkuveita Reykjavíkur flytur í nýjar og glæsilegar 14 þúsund fermetra höfuðstöðvar á Bæjarhálsi Opin skrifstofu- rými einkenn- andi fyrir húsið Árbær Morgunblaðið/Golli Einkennandi fyrir nýju bygginguna eru opin skrifstofurými. Skrifstofur yfirmanna heyra nú sögunni til. Ívar Þorsteinsson, deildarstjóri hjá OR, segir að það eigi eftir að koma í ljós hvernig gangi að vinna í opnu skrifstofurýminu í nýju húsakynnunum. Katrín Sigurjónsdóttir, aðstoðar- deildarstjóri þjónustuvers, er ánægð með nýju húsakynnin. Byggingarkostnaður við nýjar höfuðstöðvar Orkuveitunnar á Bæjarhálsi er 2,5 milljarðar. FYRIR nokkrum dögum var tekið í notkun í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum svokallað „snuddu- horn“. Snudduhornið er gert úr hreindýrshornum og hangir við kálfastíuna í fjósinu en þangað geta foreldrar komið með börnin sem vilja skilja snuðið sitt eftir. Í tilkynningu frá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum segir að í mörg ár hafi reyndar viðgengist að for- eldrar komi með börn sín í fjósið til að láta þau skilja við snudduna. Þá hafa dýrahirðar tekið við þeim og gefið kálfunum eða svínunum áður en þau fara að sofa á kvöldin. Nú gefst foreldrum sumsé kær- komið tækifæri til að koma með börnin og snuddurnar í fjósið. Fram kemur í tilkynningunni að gott geti verið að koma í eina kynn- isferð og undirbúa athöfnina áður en afhendingin sjálf fer fram. Snuð- in séu síðan hengd upp með fal- legum borða og stundum fylgi lítið kort með. Snudduhorn í Fjölskyldu- og húsdýra- garðinum Laugardalur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.